Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2. O K T Ó B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  231. tölublað  105. árgangur  VALUR ÍSLANDS- MEISTARI ÁSTRÍÐA FYRIR SVEPPUM FÓLK VILL FINNA AÐ VINNUFRAMLAG ÞESS HAFI TILGANG GUÐRÍÐUR GYÐA 12 VALA HJÁ GALLUP 14ÍÞRÓTTIR Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Óeirðir brutust út í Katalóníu í gær þegar íbúar héraðsins kusu um sjálf- stæði frá Spáni. Yfir 800 íbúar og 33 lögreglumenn höfðu leitað sér læknisaðstoðar þegar Morgunblaðið fór í prentun. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, sagði að lögin hefðu haft sig- ur að lokum en Hæstiréttur Spánar hefur sagt kosningu Katalóníu ólög- lega. Rajoy sagði yfirvöld í Katalóníu bera ábyrgð á óeirðunum og sagði kosninguna til þess fallna að ýta und- ir átök. Hann sagðist opinn fyrir því að ræða við yfirvöld Katalóníu um að auka sjálfstjórn þeirra á héraðinu en einungis í samræmi við lög og lýðræði landsins. Borgarstjóri Barselóna, Ada Colau, fordæmdi ofbeldi lögreglunnar og sagði forsætisráðherrann vera heigul sem ætti að segja af sér. Carles Pu- igdemont, forseti Katalóníu, hélt ræðu í gærkvöldi þar sem hann sagði að sjálfstjórnarhéraðið hefði öðlast rétt til að lýsa yfir sjálfstæði. Að sögn yf- irvalda í Katalóníu greiddu 2,26 millj- ónir manna atkvæði og sögðu 90% „já“ við sjálfstæði. »15 og 16 AFP Upplausnarástand Yfir 800 manns þurftu að leita sér læknisaðstoðar vegna óeirðanna samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum í Katalóníu. Óeirðir í Katalóníu  Spænska lögreglan gekk hart fram  42,3% kjörsókn  90% með sjálfstæði Forsætisráðherra Rajoy sagði lögregluna vera að framfylgja lögum landsins.  Aðstæður til matvælaræktunar gætu breyst til muna á Íslandi ef spár vísinda- manna um hlýnun jarðar ganga eftir. Þetta segir dr. Sæmundur Sveinsson sem tók nú um mánaðamótin við starfi rektors Landbún- aðarháskóla Íslands. Með Parísarsam- komulaginu stefna ríki heims á að hitastig á jörðinni hækki ekki um meira en tvær gráður frá því sem var fyrir iðnbyltingu, og þykir slíkt markmið háleitt. Slík hlýnun myndi þó raska öllum skilyrðum til jarð- og kornyrkju ytra en gera þau hagfelldari á Íslandi. Sæ- mundur segir skólann vinna að ýmsum þýð- ingarmiklum verkefnum og nefnir sér- staklega rannsóknir sem víkja að landnýtingu og hlýnun andrúmsloftsins. Endurheimt votlendis sé til að mynda mikilvægur þátt- ur í baráttunni gegn lofts- lagsbreytingum. Þá geti ræktun gróðurhulu á ís- lenskan eldfjallajarðveg bundið mikinn koltvísýring og skapað mótvægi við loftslagsbreytingar. Bænd- ur hafi því mikilvægu hlutverki að gegna sem vörslumenn landsins. »11 Aðstæður til matvælaræktunar gætu batnað Sæmundur Sveinsson  „Þegar fólk les vissar tegundir bók- mennta þýddar á íslensku kemur alltaf að því á endanum að einhver fær þá flugu í höfuðið að hann geti skrifað svona verk á íslensku. Ágætis dæmi um þetta er Jón Thoroddsen sem segir beinlínis í eftirmála að Pilti og stúlku að hann hafi skrifað bók- ina til höfuðs þýddu sögunum sem þá voru svo vinsælar,“ segir Magnea J. Matthías- dóttir þýðandi og bætir við að haldið hafi verið fram að íslenska glæpasagan hafi orð- ið til vegna þýðinga. „Sama máli gegnir um íslensku fantasíuna sem einnig verður til eftir að þýðingar á erlendum verkum ruddu brautina, þótt vissulega eigi lestur á öðrum tungu- málum – sérstaklega ensku – sinn þátt í því.“ Í viðtali við Magneu á menningarsíðum Morgun- blaðsins í dag spjallar hún um starf þýðandans, sem er nákvæmnisvinna og ábyrgðarstarf. „Þýðing þarf að fanga tón höfund- arins og orðfæri, án þess að textinn verði slettuskotinn eða hljómi óeðlilega.“ »26 Með þýðingum verða til nýjar tegundir bókmennta Magnea Matthíasdóttir Nú tefla stjórnmálaflokkarnir fram framboðslistum sínum í hverju kjör- dæminu á fætur öðru í aðdraganda alþingiskosninga. Píratar einir flokka efndu til prófkjörs í öllum kjördæmum til að skipa fólk á lista en kosningarnar fóru fram í gegnum rafrænt kosningakerfi Pírata. Niðurstöður prófkjörsins hafa verið birtar með fyrirvara um breytingar en þegar hafa þau Ásta Guðrún Helgadóttir og Þórólfur Júlían Dagsson, sem bæði höfnuðu í þriðja sæti, hvort í sínu kjördæmi, lýst því yfir að þau hyggist ekki taka sæti á lista fyrir komandi kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sam- þykkt lista í fimm kjördæmum af sex en listi í Suðvesturkjördæmi verður lagður fram til samþykktar í kvöld. Talsverð nýliðun er á listum Sam- fylkingarinnar en þegar liggja fyrir listar flokksins í fjórum kjördæmum af sex. Aðeins einn framboðslisti er tilbúinn hjá Vinstri grænum en búist er við baráttu um efstu sætin á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Þá fer landsfundur flokksins fram um helgina. Flokkur fólksins hefur kynnt oddvita sína í öllum kjör- dæmum. Aðrir flokkar hafa ekki birt lista að svo stöddu. »6-7 Listar flokkanna skýrast  Tvö taka ekki sæti á listum Pírata  Á sex dögum seldi verslunarris- inn H&M vörur fyrir 2,2 milljónir króna á hvern fermetra verslunar- rýmis fyrirtækisins í Smáralind. Þetta kemur fram í ársfjórðungs- uppgjöri H&M, en gríðarleg aðsókn hefur verið að versluninni frá því hún var opnuð í ágúst. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins sem á Smáralind, segir í samtali við Morg- unblaðið að á tíu fyrstu dögum verslunarinnar hafi um 170 þúsund manns komið í verslunina í Smára- lind. Ný verslun H&M var opnuð í Kringlunni í síðustu viku og sú þriðja verður opnuð í miðbæ Reykjavíkur náinni framtíð. »2 H&M seldi fyrir 2,2 milljónir á fermetra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.