Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017 nýrri þrennu. Við vitum ekki hvort hinar tvær eiga eftir að líta dagsins ljós. Hitt vitum við: að rödd Sigga á eftir að hljóma og ná hlustum margra – alinna sem óborinna. Við Hrafnhildur, Dagur og Gunni þökkum ævarandi vináttu og sameinumst Diddu og Jóhann- esi Páli í sorginni. Pétur Gunnarsson. Hann orti svo fallega um ljósið á kertinu. Svo máttugt og mátt- vana í senn. Sjálfur var hann á sinn hátt máttugur, kvikur og skarpur eins og logi á kerti en um leið fíngerður og næmur. Það streymdi frá honum orka. Það stafaði frá honum hlýju. Og það lagði frá honum sérstaka birtu. Skáldlega birtu sem gerði allt ein- hvern veginn innihaldsríkara. Hvort sem hann var á göngu í miðbæ Reykjavíkur, sat yfir kaffi- bolla á kaffihúsi, las upp úr verk- um sínum, spjallaði um skáld- skapinn, heima og geima eða kenndi háskólanemum, lýsti hann upp tilveruna með leifturskýrri hugsun sinni, kímni og hnyttni og setti skemmtilegan svip á um- hverfið með sérstöku fasi sínu og fagurkeralegum klæðaburði. Sigurður Pálsson var gagntek- inn af ást á lífinu. Ástarsamband hans við lífið var fullt af ólgandi tilfinningum, gleði og þakklæti en ekki átakalaust frekar en nokkurt ástarsamband. Það fól í sér glímu við stórar spurningar, lotningu frammi fyrir ráðgátum alheims- ins, hrifningu af fegurðinni í öllum sínum margbreytileika, en líka uppreisn gegn stöðnun, doða og þröngsýni og andúð á einsleitni, ljótleika og ranglæti. Hann var óhræddur við að taka sér stöðu gegn beiskjunni, dapurleikanum og neikvæðninni sem á lævíslegan hátt ógna sífellt okkur manneskj- unum. Verk hans bera vott um djúpa hugsun, mannvit og lífs- skilning. Hann átti innra með sér einstaka uppsprettu lífsorku, and- ríkis og sköpunargáfu sem hann gat sótt í bæði sem listamaður og manneskja. Og svo átti hann því mikla láni að fagna að eiga hana Kristínu að lífsförunaut, afburða listakonu sem var eiginkona, sálu- félagi, samverkamaður og vinur. Það besta í ljóðlist margra skálda snýst um hið óhöndlanlega eða hið horfna og glataða. Það vekur því athygli hve mörg ljóð Sigurðar Pálssonar fjalla á áhrifa- ríkan hátt um það sem hægt er að upplifa hér og nú, töfra hinnar líð- andi stundar, unaðssemdir lífsins. Skáldskapur hans er beinlínis full- ur af fjörefnum fyrir vitundar- og tilfinningalífið. Hann ber vott um lífsafstöðu sem einkennist af fögn- uði, fegurðarást og trú á mögu- leika mannsins. Elja og þrautseigja eru eigin- leikar sem í ríkum mæli prýddu hinn grannvaxna heimsmann. Fárveikur og máttfarinn á líknar- deildinni talaði hann af ástríðu um skáldskapinn, höfunda sem hann hélt upp á og áhrifavalda, sönglaði meira að segja brot úr texta eftir Bob Dylan þegar söngvaskáldið bar á góma í samtalinu. Í ljóðinu Vax ákallar skáldið kertið sem dreypir vaxi á dúkinn á borðinu: Og kenndu mér að syngja fyrir vaxdúkinn vaxdúkinn sem blífur. Og auðvitað er þessi vaxdúkur heimurinn sem svo oft er kaldur, viðbragðalaus og fráhrindandi. Skáldskapur Sigurðar Pálssonar er dýrðarsöngur um lífið í rangsn- únum heimi. Skáldskapur hans mun lifa. Kristján Þórður Hrafnsson. Kæri vinur. Það er með trega sem ég kveð þig en um leið vil ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér í gegnum árin og fyrir vináttuna. Ég vil þakka þér fyrir ljóðin, orðsnilldina, gestrisnina, næmnina, gleðina, húmorinn, leik- húsverkin, dansinn og blastið með Rolling Stones eða Bob Dylan. Upplestrarnir og allt framlag þitt til að gera náttúru, íslenskuna og heiminn betri með djúpri vit- und um lífið. Ég dáist að þér fyrir hugrekkið og hvernig þú tókst á við dauðann, fyrir gæskuna og mannelsku og hversu hógvær þú varst, en áttir Bankastræti, Laugaveg og veröldina alla. Læt fylgja með eitt af þínum fallegu ljóðum fyrir ferðalagið sem hafið er. Treystu náttmyrkrinu Fyrir ferð þinni Heitu ástríku náttmyrkrinu Þá verður ferð þín Full af birtu Frá fyrstu linu til þeirrar síðustu. Ljóð muna þig, kæri Pálsson. Hvíl í friði. Ég umvef Kristínu þína og Jó- hannes Pál og sendi innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina. Helga Mogensen. Sigurður Pálsson lyfti fyrir- hafnarlaust öllu í kringum sig, fólki, umræðuefni eða hlutum, á hærra plan. Jafnvel hversdagsleg- ustu fyrirbæri öðluðust nýtt og óvænt inntak þegar hann snerti þau með skáldasprotanum. Eins og margir af minni kyn- slóð man ég fyrst eftir Sigurði þegar hann og hin „listaskáldin vondu“ vöktu mikla athygli árið 1976. Ég var þá í MA á þeim tíma og fór ásamt nokkrum félögum og hlustaði á skáldin lesa upp í Sjall- anum. Það var algerlega ógleym- anleg kvöldstund fyrir okkur menntskælingana. Nokkrum árum síðar, árið 1984, tók hann að sér að leikstýra uppfærslu Stúdentaleikhússins á leikritinu „Jakob og meistarinn“ eftir Milan Kundera sem ég hafði þýtt skömmu áður. Ég bjó úti í Frakklandi á þessum tíma og sá sýninguna því ekki en frétti að hún hefði fengið frábæra dóma og gengið mjög vel. Við Sigurður hittumst svo í fyrsta sinn nokkrum mánuðum síðar þegar þau Kristín fóru til Parísar einu sinni sem oftar. Þar með tengdumst við vináttubönd- um sem hafa styrkst með tíman- um, einkum eftir að við Eydís fluttum í Mávahlíðina fyrir hart- nær þrjátíu árum. Sigurður var afar vinnusamur og agaður rithöfundur. Hann var í senn sveitastrákur og heimsborg- ari, stóð djúpum rótum í íslenskri menningu og var stoltur af henni. En hann fylgdist líka manna best með því sem var efst á baugi í samtímalist erlendis og vann svo jafnt og þétt úr þessum efniviði í skáldverkum sínum. Líkt og margir af helstu höfundum Evr- ópu á tuttugustu öld, höfundar á borð við Queneau, Vian eða Io- nesco, hikaði hann ekki við að leika sér með tungumálið, láta reyna á þanþol þess. Þannig opn- aði hann lesandanum nýja sýn á yrkis- eða viðfangsefnið, víkkaði sjóndeildarhring hans. Auk þess þýddi hann snilldarlega verk eftir nokkra af helstu rithöfundum Frakka, svo sem Prévert, Rim- baud og Modiano. Það var ævinlega gaman og gefandi að hitta Sigurð. Oft var umræðuefnið okkar á milli það sem efst var á baugi í Frakklandi, nýjustu bækurnar eftir Pierre eða Paul og annað í þeim dúr. Ef hon- um þóttu undirtektir viðmæland- ans eitthvað dauflegar eða hann þurfti að sinna öðrum erindum kvaddi hann ævinlega með orðun- um „Bene bene, rokk and ról.“ Svo kom hann brosti kankvíslega, hag- ræddi treflinum og var rokinn. Eftir hetjulega baráttu (eða dans eins og hann sagði sjálfur) við illvígan sjúkdóm er Sigurður nú farinn yfir á annað tilvistarstig. Okkur sem nú kveðjum kæran vin finnst það hvorki vera bene bene né rokk and ról, heldur átakan- lega triste triste, rithmi og blús. Við erum hálfblúsuð þessa stund- ina en svo gæfusöm að eiga sjóð ljómandi minninga í farteskinu og bækur Sigurðar fullar af hugvits- semi, fegurð, mannúð, birtu og yl og þangað sækir maður kraft og gleði, aftur og aftur. Eftir stendur minning um djúpfyndinn öðling sem var eins og „Vatn í geislandi skál / Geislandi vatn í skál“ eins og segir í gullfallegu ljóði í síðustu bók hans, Ljóð muna rödd. Við í fjölskyldunni í M-29 send- um Kristínu, Jóhannesi Páli og öðrum ástvinum Sigurðar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Friðrik Rafnsson. Mín fyrstu kynni af unga granna manninum með trefilinn og alpahúfuna voru þegar hann um hábjartan dag endur fyrir löngu bauð mér upp í dans á Lækjatorgi. Ég þáði auðvitað boð- ið. Við tókum væna sveiflu og kvöddumst svo. Seinna áttum við eftir að taka margan snúning í líf- inu og leikhúsinu. Það tókst með okkur vinskapur og skemmtilegri og gjöfulli vin en Sigurð er ekki hægt að hugsa sér. Hann skáldaði ekki bara á blað, hann var „talandi skáld“. Það var eins og vera þát- takandi í stórskemmtilegu leikriti sem var í sköpun á staðnum. „Bene, bene.“ Haustið 1975 kenndum við Sig- urður, Arnar og ég saman fyrsta árgangi SÁL leiklistarskólans. Sú vinna endaði með uppsetningu, nokkurs konar forleik að Nem- endaleikhúsi. Sigurður samdi „bónorðsverk“ upp úr Bónorðinu eftir Chekov, Don Juan eftir Mol- iére og Puntila og Matta eftir Brecht sem Sigurður kallaði „Don Puntila Crazy Marriage Show“. Tveimur árum seinna kallaði ég Sigurð til leiks til að skrifa fyrir Nemendaleikhúsið. Hlaupvídd 6 leit dagsins ljós. Margar ódauð- legar setningar úr þessu fína verki lifa í munni og minningu þátttak- enda. Ég nefni aðeins eina: „Á sviðinu! Þar gerist aldrei neitt. En utan sviðs – þar eru hætturnar.“ Árið 1986 hélt Herranótt upp á stórafmæli MR og Hólaskóla. Enn var kallað í Sigurð og hann skrif- aði Húsið á hæðinni, hring eftir hring. Þar eins og oft, bæði fyrr og síðar, kallaði Sigurður „anda“ til liðs við sig. Skólaandar rifjuðu upp sögu skólans og deildu um eigið mikilvægi í menntun kyn- slóðanna. Í leikhússtjóratíð minni í Borg- arleikhúsinu var Sigurður nokk- urs konar hirðskáld – leikhúsandi þess – og skrifaði Völundarhús og Einhver í dyrunum, auk þess að þýða nokkur leikrit og vera mér hollur ráðgjafi og stuðningsmað- ur. Eiginkona Sigurðar, Kristín Jóhannesdóttir, hirðleikstjóri á þessum sama tíma, leikstýrði Ein- hver í dyrunum og eftir það þeim verkum Sigurðar sem sett voru á svið. Það var alltaf ævintýri að vinna með Sigurði. Tær snilld, eða TS eins og hann sagði oft þegar hann vildi lýsa hrifningu sinni, einkenndi alla hans vinnu og við- veru. Sköpunarandinn sveif yfir vötnum, splúðrandi húmor, alvar- an þó alltaf skammt undan og óspar var hann á hrós og hvetj- andi athugasemdir sem allir nutu góðs af. Sigurður var eitt okkar fremsta leikskáld fyrr og síðar. Það hvað leikritun lá vel fyrir honum er auð- vitað nátengd TS ljóðskáldsins. En þessi tvö form ritlistar liggja hvort öðru nærri. Málsnilld, knappt form, fá orð sem búa yfir margræðri merkingu og hin ósögðu stíga fram, djúpur skiln- ingur á öllu sem lifir. Allt þetta kunni Sigurður flestum betur. Hann hafði óbrigðulan skilning á möguleikum leikhússins, töfrum þess og blekkingu, enda maðurinn sprenglærður í fræðunum. En lærdómurinn dugir skammt ef skáldgáfuna skortir, en hana fékk Sigurður í vöggugjöf. Gjöf sem hann ræktaði og ávaxtaði í lífi sínu og starfi. Ég og Arnar vottum Kristínu, Jóhannesi Páli og fjölskyldu Sig- urðar dýpstu samúð. Megi það verða þeim nokkur huggun harmi gegn að þjóðin syrgir skáldið og manninn með þeim. Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri. Morgunblaðið/Kristinn Sigurður Pálsson var afkastamikið skáld og rithöfundur. Hann hlaut fjölmargar viðurkenn- ingar fyrir störf sín í þágu bókmennta og lista.  Fleiri minningargreinar um Sigurð Pálsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. Ástkær systir okkar og mágkona, GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR frá Eyjum í Kaldrananeshreppi, síðast til heimilis að Brekkustíg 29, Njarðvík, lést fimmtudaginn 14. september. Jarðsungið verður frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 3. október klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Loftur Pálsson Guðrún Jónína Einarsdóttir Þórir Pálsson Ósk Jónsdóttir Sigurbjörn Pálsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar SIGURÐAR JÓNASAR MARINÓSSONAR. Gróa Bjarnadóttir Jón Álfgeir Sigurðarson Víðir Álfgeir Sigurðarson Marinó Álfgeir Sigurðarson Sigurður Álfgeir Sigurðarson Fjóla Karen Sigurðardóttir og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, og langamma, VALGERÐUR MARGRÉT VALGEIRSDÓTTIR, Lautasmára 1, Kópavogi, lést sunnudaginn 24. september á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 3. október klukkan 13. Magnús Andrésson Hrafnhildur Þórs Ingvadóttir Guðmundur Hall Ólafsson Guðlaug Þórs Ingvadóttir Grétar Felixson Ingunn Á. Þórs Ingvadóttir Micheal Mency Einar Þór Ingvason Aðalheiður Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI KJARTANSSON, Hlaðbæ 18, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 28. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hulda Guðrún Filippusdóttir Guðbjörg Árnadóttir Þráinn Örn Ásmundsson Árni Þór Árnason Agneta Lindberg Guðrún Björnsdóttir Valdimar Samúelsson Kristín Björnsdóttir Magni Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur bróðir okkar og frændi, GUÐMUNDUR HAFSTEINSSON, Víkurási 6, Reykjavík, sem lést á ferðalagi í Kambódíu þriðjudaginn 5. september sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. október 2017 klukkan 15. Helga Soffía Hólm Markús Magnússon Jóhanna Hafsteinsdóttir Páll Halldórsson Ægir Hafsteinsson Liz Gammon Margrét H. Hansen Jónas S. Sverrisson Bára Hafsteinsdóttir Hjörleifur Kristinsson og frændsystkin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.