Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017 Ég er fæddur í stof-unni á gamla bæn-um á Brekku og er ákaflega stoltur af því og að vera héðan frá Brekku,“ segir Jóhannes Helgason vélaverktaki, eða Jói á Brekku eins og hann er oftast kallaður, en hann á 50 ára afmæli í dag. Jóhannes ólst þar upp hjá afa sínum og ömmu, Óskari Jóhannessyni og Hildi Guðmundsdóttur sem keyptu Brekku í Bisk- upstungum árið 1946. Þar hefur Jóhannes alið aldur sinn fyrir utan þegar hann lærði húsasmíði í Iðnskólanum á Ísafirði. „Svo fór ég út í þetta vélabras og festist í því en það byrjaði með því að það var lögð hitaveita frá Efri-Reykjum að Úthlíð og sumar- bústaðahverfin á svæðinu árið 1989 og fékk ég að sjá um alla véla- vinnuna við það. Björn í Úthlíð kom undir mig fótunum í þessu með því að hjálpa mér með útborgun í fyrstu gröfuna sem ég keypti, en þá var ég 22 ára og hafði ekki efni á útborgun.“ Nú starfa þrír hjá fyrirtæki Jóhannesar og Helgu Maríu Jóns- dóttur, konu hans, JH-vinnuvélum ehf og hefur mikið verið unnið fyrir RARIK, Orkuveituna, Skálholtsstað, Bláskógabyggð og bænd- ur og sumarbústaðaeigendur í nágrenninu. Einnig eiga þau hjónin fyrirtækið Brekkuheiði ehf sem rekur sumarhúsahverfi í Brekku- skógi. Börn Jóhannesar og Helgu Maríu eru Jón Óskar, f. 1994, Finnur, f. 1996, Rósa Kristín, f. 2001, og Hildur María, f. 2008. „Þegar ég er ekki að vinna þá hef ég verið að styðja við bakið á krökkunum mínum í hestamennskunni. Þau eru á kafi í henni og synirnir eru báðir í Háskólanum á Hólum í hestafræðum, eldri dóttirin er í Menntaskólanum að Laugarvatni og stefnir á Hóla og mér sýnist sú yngsta stefna í þetta líka og hafa smitast af eldri systkinunum en hún stefnir á að verða dýralæknir. Þeim hefur öll- um gengið vel í hestamennskunni og ég held því að ég sé nokkuð góður hestasveinn þótt ég segi sjálfur frá.“ Jóhannes heldur til Spánar í dag með konu sinni og yngstu dótt- ur og mun hitta tengdaforeldra sína í Torrevieja „Svo held ég veislu eftir áramót. Mér vitrari menn hafa sagt að það sé í lagi að halda svona seint upp á afmælið þegar maður er orðinn þetta gam- all.“ Í vinnugallanum Jói á Brekku. Ágætur hestasveinn Jóhannes Helgason er fimmtugur í dag P álmi fæddist í Bolungar- vík 2.10. 1957 og ólst þar upp. Hann stundaði nám í húsasmíði við Iðn- skólann á Ísafirði 1974- 76 og útskrifaðist frá Leiklistar- skóla Íslands 1982: „Ég er fyrst og síðast Bolvíkingur. Þetta er klass- íska togstreitan milli æskuslóðanna og framtíðardrauma. Þú ferð. En tekur með þér bernskuslóðirnar og þær toga alltaf í þig.“ Pálmi var ungur til sjós með Jóni Eggert, móðurbróður sínum, var á línubátum og stundum á skaki með fyrrverandi tengdaföður sínum. Pálmi var fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið 1983. Hann hefur ver- ið einn af meðlimum Spaugstof- unnar frá upphafi, 1985, vann að þáttagerð með Spaugstofunni fyrir Ríkissjónvarpið 1989-93, með Imba- kassanum á Stöð 2 1993-95, að Saugstofuþáttum fyrir RÚV með hléum 1995-2012 og aftur fyrir Stöð 2012-2015. Auk þess hafa Spaug- stofumenn flutt gamanefni á fjölda skemmtistaða víða um land um ára- bil. Þá sömdu þeir leikritið Örfá sæti laus, fyrir Þjóðleikhúsið: „Spaugstofan átti upphaflega að vera hliðarverkefni í einn vetur, en varð að ævistarfi.Við héldum upp á 30 ára afmæli Spaugstofunnar með uppákomu í Þjóðleikhúsinu en Spaugstofuþættirnir eru nú orðir ríflega 550 talsins. Þetta sá enginn fyrir.“ Pálmi hefur leikið í 11 kvikmynd- um, fjölda sjónvarpsmynda, sjón- varpsframhaldsþátta, s.s. Heims- endi, 2011, Pressu, 2011, og Ófærð, 2015-2016, og aragrúa áramóta- skaupa og útvarpsleikritum. Hann sat í Þjóðleikhússráði 1988-2000. Á undanförnum árum hefur Pálmi Gestsson leikari – 60 ára Bolvíkingur og frú Pálmi og Sigurlaug í fjallgöngu með hans kæru æskuslóðir, Bolungarvík, í baksýn. Gerði upp hús afa síns Hús afa og ömmu Gamla húsið og æskuslóðir Pálma í Bolungarvík, sem hann og Sigurlaug gerðu upp frá grunni. Þar njóta þau hvíldar í fríum. Mosfellsbær Þula Solam Bale- masdóttir fæddist þann 7. júní 2016 kl. 7.52. Hún vó 3.710 g og var 52 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Kristín Hrund Whitehead og Balema Alou. Nýr borgari Álfrún Vala Eyglóardóttir og Berta María Þorkelsdóttir héldu tombólu við Sunnubúð í Hlíðunum í Reykjavík og söfnuðu 11.869 kr. sem þær færðu Rauða krossinum á Íslandi að gjöf. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.