Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017 Nýtt Zodiac hálsmen Verð frá 22.900 Bankastræti 12, 101 Reykjavík, sími 551 4007, www.skartgripirogur.is Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 11-17 Gott úrval - gott verð Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Guðmundar Thoroddsen opnaði í fyrradag einkasýningu í Hverfis- gallerí sem ber nafnið Tittlinga- skítur. Listamað- urinn sýnir klippiverk, mál- verk og leir- skúlptúra. „Sýningin heit- ir Tittlingaskítur, af því að sl. 4-5 ár hef ég unnið með hugmyndir um karlmennsku og feðraveldi, eða karla almennt,“ segir Guðmundur. „Undanfarið er ég farinn að hugsa meira um liti og form. Ég er sjálfur farinn að missa áhugann á feðraveldispælingunni, og þá gerist það sjálfkrafa að mynd- irnar fara að leysast upp. Það er meiri óreiða og óregla í myndunum, en karlarnir eru ennþá til staðar. Þeir ana um í einhverskonar reiðu- leysi og halda að þeir séu ennþá að sinna einhverjum rosalega mikil- vægum störfum. Þeim finnst þeir vera voðalega merkilegir en svo er þetta ekki neitt neitt. Þannig er þessi tittlingaskítur bæði bók- staflegt og ekki; tittlingar og þeirra skítur, og svo tittlingaskítur sem eitthvað mjög ómerkilegt.“ Lundarfar íslenskra karla - Eru þetta íslenskir karlmenn? „Þetta eru staðlímynd almennra karla, en ég er viss um að lundafarið á þeim kemur beint úr íslenskum körlum. Þetta eru svona karlfauskar sem maður rekst á á förnum vegi, sem æsa sig yfir öllu og verða brjál- aðir ef maður gerir eitthvað smá vit- laust, þetta leiðileg freku jeppakarl- anir. En svo eru þeir nú margir þeirra brúnir á hörund þannig að þetta eru allra þjóða kvikindi,“ segir Guðmundur. „Ég búinn að setja nokkra karl- ana í kufla og þar birtist tenging við araba. Það er svo fyndið með allar ákvarðanir sem ég tek, að þær koma myndrænt; mig vantar eitthvert form á þennan stað, og það þarf að Litir og form ráða för  Tittlingaskítur á Hverfisgötu Guðmundur Thoroddsen VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Reikna má með að þýðendur lands- ins hafi verið í óvenjugóðu skapi á laugardag en þá var dagur þýðenda, Híerónýmusardagurinn, haldinn hátíðlegur. Þessi dagur, 30. sept- ember, er kenndur við prestinn og dýrlinginn Híerónýmus sem þýddi Biblíuna yfir á latínu á fjórðu og fimmtu öld. Magnea J. Matthíasdóttir gerði sér örugglega dagamun á laugardag en hún er afkastamikill þýðandi, fyrrverandi formaður Bandalags þýðenda og túlka, rithöfundur og stundakennari við HÍ þar sem hún kennir þýðingafræði og þýðinga- sögu. Magnea vinnur núna að dokt- orsrannsókn þar sem hún kafar ofan í íslenskar sálmaþýðingar. Það var á unglingsárunum að Magnea prufaði fyrst að þýða bók- menntatexta. Hún byrjaði á textum fyrir börn og þýddi t.d. fyrir Æsk- una og Ríkisútvarpið en hefur í dag þýtt meira en 50 útgefnar bækur, t.d. glæpasöguna Speglabókina sem kom út fyrr á árinu, og vinsælu ung- lingabækurnar Afbrigði og Hungur- leikarnir. „Ég þýddi líka hina hræðilegu seríu Twilight,“ segir Magnea og hlær, og bætir því við að það hafi ekki endilega tekið svo mik- ið á að snara ástarævintýri þeirra Bellu, Edwards og Jacobs á ís- lensku, enda vampírur í uppáhaldi hjá henni. „Ég hef lengi verið áhugasöm um vampírur, og man þegar ég las sem barn Makt myrkranna þar sem Valdimar Ásmundsson þýddi, og átti töluvert við, sögu Bram Stoker um Drakúla greifa. Það varð svo ekki fyrr en við systkinin sex lágum veik heima með flensu að mamma, sem eininig var þýðandi, ákvað að hafa ofan fyrir okkur með því að lesa fyrir okkur Drakúla og þýða söguna jafnharðan. Komst ég þá að því að í upprunalegu bókinni var margt að finna um Drakúla sem ekki var í Makt myrkranna, og öf- ugt.“ Þarf að vekja sömu hughrifin Er alls óvíst hvort Valdimari Ás- mundssyni yrði hleypt í Bandalag þýðenda og túlka í dag, eða að hann fengi góða einkunn í þýðingafræði- prófi hjá Magneu, enda þykir ekki gott að fara eins frjálslega með frumtextann og hann gerði með sögu Stokers. Raunar er starf þýðandans nákvæmnisvinna og ábyrgðarstarf. „Maður vill vera trúr frumtextanum, og hafa þýðinguna eins nálægt hon- um og hægt er. En þýðandinn verð- ur líka að reyna að vera sem næstur lesandanum og freista þess að vekja hjá honum sömu hughrifin og ef hann læsi frumtextann, ef um er að ræða bókmenntaverk. Að þýða nytjatexta, s.s. fræðigreinar eða fjármálagreinar, er vinna sem er annars eðlis, og þá brýnast að koma staðreyndunum skýrt og rétt til skila.“ Þýðandinn getur, að sögn Magn- eu, ekki látið nægja að þýða orð fyrir orð eða setningu fyrir setningu, heldur þarf þýðingin að fanga tón höfundarins og orðfæri, en samt án þess að textinn verði slettuskotinn eða hljómi óeðlilega. Barnabók þarf að þýða þannig að textinn sé léttur og skemmtilegur, en þungt verk eft- ir höfunda á borð við Edgar Alan Poe kalla á sterkari stíl, fornlegt orð- færi og jafnvel útskýringar á tilvís- unum í menningarleg fyrirbæri sem nútímalesandanum eru ekki kunnug. „Fyrsta skrefið við þýðingu bókar er djúplestur, þar sem þýðandinn reynir að komast undir yfirborð textans og inn í hugarheim höfund- arins. Finnst mér gott að gera jafn- óðum lista ef framandi hugtök eru gegnumgangandi í textanum,“ út- skýrir Magnea og nefnir sem dæmi bókina Stúlkan með náðargjafirnar sem fjallar um n.k. uppvakninga- sjúkdóm sem stafar af sveppasýn- ingu. „Frumtextinn notar ýmiss kon- ar hugtök tengd sveppum –sem hafa aldrei verið á mínu áhugasviði, þó sumir þeirra séu ágætir til matseld- ar. Ég þurfti því að kynna mér sveppaheiminn í þaula.“ Yfirleitt hafa þýðendur við fátt annað að styðjast en frumtextann og síðan orðabækur og orðasöfn. Netið hefur verið himnasending fyrir þýð- endur, auðveldað vinnuna mikið og gert allar upplýsingar aðgengilegri. Magnea bendir á hvernig þýðandi getur lent í vanda þegar hann þarf að þýða heilan bókaflokk, þar sem síðustu bækurnar eru jafnvel ekki komnar út. Óheppileg þýðing í fyrri bókunum getur þá valdið heljarinnar flækjum í seinni bókunum. „Mér skilst að þetta hafi t.d. gerst við þýð- ingu Harry Potter bókanna á ís- lensku, þegar það kom í ljós þegar leið á bókaflokkinn að ákveðin atriði sem þýðandinn hafði gengið út frá í fyrstu bókunum áttu ekki lengur við.“ Stundum þarf að búa orðin til Jafnvel bara eitt stakt orð getur valdið þýðanda miklum heilabrotum, og veltur bæði á verkinu og þýðand- anum hve langan tíma tekur að þýða eina bók: „Ég sótti nýlega málþing þýðenda, og í umræðum um tiltekið verk kom í ljós að annar þýðandinn hafði verið þrjár vikur að klára bók sem tók hinn þrjá mánuði.“ Ef Magnea rekst á ókunnglegt orð eru tvær leiðir færar: „Ef um er að ræða uppspunnið orð, t.d. í fantasíu- bók, og verið að lýsa fyrirbæri sem er í raun ekki til, þá er þýðandinn stikkfrír og getur búið til nýtt orð sjálfur. En ef um er að ræða „raun- verulegt“ orð sem er þegar til og notað í umræðunni einhvers staðar, þá þarf að fara að leita. Fyrst verður þýðandinn að kynna sér nákvæm- lega hvað fyrirbærið er, sem hann þarf að þýða, leita af sér allan grun á Google og kíkja í allar orðabækur og uppflettirit. Svo má spyrja í hópum þýðenda á Facebook, eða freista þess að leita til sérfræðinga á við- komandi sviði.“ Stundum kemur í ljós, eftir miklar rannsóknir, að íslenskuna vantar hreinlega orð yfir það sem þarf að þýða og er þá þýðandinn í n.k. ljós- móðurhlutverki og þarf að hjálpa nýju orði að fæðast inn í tungumálið, ýmist einn og óstuddur eða í sam- starfi við aðra sérfræðinga. „Ég man t.d. þegar ég þýddi glæpareyfara Krefjandi starf þýðandans  Þýðendur gegna mikilvægu ábyrgðarstarfi og taka þátt í að móta tungumálið  Magneu Matthíasdóttur finnst einfaldur og látlaus texti oft erfiðastur viðfangs og hún telur litlar líkur á að tölvur muni taka við af þýðendum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sköpun Í starfi sínu rekur Magnea sig stundum á að ekki eru til íslensk orð yfir suma hluti. Hún nefnir sem dæmi glæpasögu þar sem morð var framið á golfvelli. Eftir mikla ransnóknarvinnu varð úr að Golfsamband Íslands hreinlega smíðaði ný orð sem Magnea gat notað í bókinni, og eru núna hluti af orðaforða golfíþróttarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.