Morgunblaðið - 02.10.2017, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Alexander Gunnar Kristjánsson
alexander@mbl.is
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
leggja til að fyrirkomulag borgar-
stjórnarkosninga verði endurskoðað
með það að markmiði að binda kjör
borgarfulltrúa við ákveðin hverfi.
Tillaga um að borgarstjórn beiti sér
fyrir því verður lögð fyrir borgar-
stjórn á fundi hennar á morgun.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, er flutnings-
maður tillögunnar. Hann segir slíkt
fyrirkomulag þekkjast víða erlendis,
til að mynda í Winnipeg í Kanada. Þá
yrði borginni skipt upp í kjörhverfi
og hvert hverfi hefði einn borgarfull-
trúa. Smáflokkar
eiga jafnan erfið-
ara með að fóta sig
í einmennings-
kjördæmum enda
fær stærsti flokk-
ur kjördæmisins
eina sæti þess.
Kjartan hefur þó
ekki áhyggjur af
því að þetta hafi í
för með sér einok-
un eins eða tveggja flokka. Þess í
stað gæti kosningabaráttan orðið
persónulegri og menn boðið fram í
sínu hverfi án þess að vera endilega í
forsvari fyrir stjórnmálaflokk. Hann
segir ýmsa hafa kallað eftir auknu
persónukjöri í pólitík. „Það hefur
verið kvartað yfir því að sum hverfi
eigi engan borgarfulltrúa. Með
þessu yrði tryggt að hvert hverfi
fengi sinn fulltrúa.“
Borgarstjórnarkosningar heyra
undir lög um kosningar til sveitar-
stjórna og því ljóst að fyrirkomulag-
inu verður ekki breytt nema með
lagabreytingu. Kjartan hefur ekki
kannað stuðning þingmanna við til-
löguna en hann telur líklegt að Al-
þingi verði við tillögunni, njóti hún
mikils stuðnings innan borgarstjórn-
ar. Hann telur þó óraunhæft að
breyta fyrirkomulaginu fyrir næstu
kosningar, sem fram fara í vor. Eðli-
legra væri að fara sér hægt.
Sjálfstæðismenn vilja
hverfaskipta borgarstjórn
Borginni verði skipt upp í einmenningskjördæmi
Kjartan
Magnússon
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Gestafjöldi í Smáralind, fyrstu tíu
dagana eftir opnun nýrrar versl-
unar H&M, var um 170 þúsund
manns eða sem nemur helmingi ís-
lensku þjóðarinnar. Þetta segir
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Reg-
ins sem á Smáralindina. „Aukningin
nemur tugum prósenta. Við höfum
aldrei séð annað eins,“ segir hann.
„Þetta eru frábærar tölur og
framundan eru svo mestu verslun-
armánuðir ársins. Það verður
spennandi að sjá hvernig þeir
verða,“ bætir Helgi við, en að hans
sögn koma nú um 14 til 20 þúsund
gestir í Smáralind á degi hverjum.
Helgi birti á Facebook-síðu sinni
í gær tölur úr ársfjórðungsuppgjöri
H&M fyrir þriðja ársfjórðung. Þar
kemur fram að á fyrstu sex dög-
unum sem verslunin í Smáralind
var opin, hafi vörur verið seldar
fyrir um 169 milljónir króna.
2,2 milljónir á hvern fermetra
Helgi kveðst ekki vita til þess að
sambærilegar tölur hafi sést hér á
landi. Ef tölurnar yrðu settar inn í
„retail-kennitölu“, þ.e. sölu á hvern
fermetra verslunarrýmis á ári, yrði
salan um 2,2 milljónir á fermetra.
„Þetta er algert met og hefur
ekki sést hér áður mér vitandi. Það
þykir frábært að vera með sölu sem
nær 800 þúsund krónum á fer-
metra,“ segir Helgi á Facebook, en
í færslunni tekur hann einnig fram
að Reginn búist ekki við alveg jafn
háum tölum þegar fram í sæki,
byrjunin lofi þó góðu. Áformað er
að á Íslandi verði þrjár verslanir.
Sú fyrsta var opnuð í Smáralind 26.
ágúst sl. og í síðustu viku var versl-
un opnuð í Kringlunni. Á Hafn-
artorgi í miðbæ Reykjavíkur verður
einnig verslun. Verslunarrými í
Smáralind og á Hafnartorgi eru í
eigu Regins, en verslunarrýmið í
Kringlunni er í eigu Reita. „Versl-
unin í Smáralind er 3.400 fermetrar
og er flaggskipið þeirra hér á landi.
Slíkar verslanir eru stærri og meira
í þær lagt. Sú sem verður opnuð
niðri í miðbæ verður svo allt öðru-
vísi en hinar verslanirnar, hún verð-
ur meira sniðin að miðbænum,“
segir Helgi.
Verðlagning „eðlileg“
Aðspurður segir hann Íslendinga
hafa tekið versluninni opnum örm-
um. „Við vorum dálítið stressuð yfir
því að verðlagið yrði ekki nógu gott,
en annað kom á daginn og þeir eru
með mjög eðlilegt verð,“ segir
hann.
Helmingur landsmanna á tíu dögum
Gríðarleg aðsókn í Smáralind eftir opnun H&M Verslunarrisinn seldi fyrir 169 milljónir á 6 dögum
Morgunblaðið/Ófeigur
H&M Fyrsta verslun verslanakeðjunnar H&M á Íslandi var opnuð í ágúst.
Brúin yfir Steinavötn sem skemmd-
ist í miklum vatnavöxtum í síðustu
viku var í gærmorgun opnuð fyrir
umferð gangandi vegfarenda. Þetta
staðfestir Reynir Gunnarsson,
rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni á
Hornafirði. Ákvörðunin var tekin í
gær eftir skoðun á ástandi og burðar-
þoli brúarinnar. Gangandi umferð
verður þó einungis heimil undir eftir-
liti, milli klukkan 8 og 20. Unnið er að
því að skipuleggja ferðir að og frá
brúnni. Fólk þarf því síðan að ganga í
gegnum vinnusvæðið og yfir brúna.
Vinnuflokkur Vegagerðarinnar
vinnur nú hörðum höndum að því að
reisa nýja bráðabirgðabrú yfir
Steinavötn. Sú er 100 metra löng og
stefnt er að því að klára hana í síðasta
lagi á föstudag. Engar þunga-
takmarkanir verða yfir hana og því
ættu vöruflutningar að komast í eðli-
legt horf um leið og brúin kemst í
gagnið.
Auk skemmda á brúnni yfir
Steinavötn fór vegur einnig í sundur
við Hólmsá í flóðunum. Reynir segir
að þrátt fyrir að sá kafli hafi verið
opnaður að nýju þá eigi enn eftir að
fara í fullnaðarviðgerðir. Vegagerðin
einbeiti sér þó að brúnni fyrst um
sinn.
Opna fyrir
gangandi
umferð
Vinna við bráða-
birgðabrú hafin
vart akandi umferð. Þá hefta bláu hjólin ekki för
vélknúinna ökutækja en gangandi vegfarendur
verða að hafa augun hjá sér þar sem þeir áður
gátu spígsporað án trafala. Hjólin vekja þó
áfram gleði fólks og ungu kynslóðarinnar ekki
síst.
Nú þegar veturinn nálgast og fólk lætur ekki sjá
sig öðruvísi en vel dúðað í miðborginni er einnig
dregið úr svokölluðum „sumarlokunum“ gagn-
Morgunblaðið/Eggert
Sumarlokanir í miðborginni að baki