Morgunblaðið - 02.10.2017, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
Bylting í
hreinlæti!
Hafðu samband og pantaðu kynningu fyrir þitt fyrirtæki
Sími 480-0000 sala@aflvelar.is www.i-teamglobal.com
Auðveldari og betri þrif,
sparar tíma og léttir lífið
Landskjörstjórn hefur auglýst mörk
kjördæma í Reykjavík fyrir alþingis-
kosningar 28. október nk.
Mörk Reykjavíkurkjördæmanna
tveggja verða dregin um miðlínu frá
vestri til austurs, eftir Hringbraut,
gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ár-
túnsbrekku og Vesturlandsvegi. Frá
Vesturlandsvegi til móts við Sóltorg
skal dregin bein lína í miðpunkt Sól-
torgs og þaðan skulu mörkin dregin
eftir miðlínu Kristnibrautar, Gvend-
argeisla og Biskupsgötu að Reyni-
vatnsvegi.
Frá gatnamótum Biskupsgötu og
Reynisvatnsvegar eru mörkin svo
dregin eftir miðlínu Hólmsheiðar-
vegar allt til móts við Haukdælabraut
66 og þaðan skal dregin bein lína að
borgarmörkum.
Íslendingum í útlöndum
auðveldað að kjósa
Í auglýsingunni segir einnig að
landskjörstjórn hafi ákveðið að þeim
sem taka beri á kjörskrá skv. b-lið 1.
mgr. 23. gr. laga um kosningar til Al-
þingis, þ.e. þeim sem sótt hafa sér-
staklega um kosningarétt vegna bú-
setu sinnar erlendis í átta ár eða
lengur, skuli skipt milli Reykjavíkur-
kjördæmanna þannig að í Reykjavík-
urkjördæmi suður verði allir þeir sem
fæddir eru 1.-15. dag mánaðar en í
Reykjavíkurkjördæmi norður allir
þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar
eða síðar.
Sama regla gildir um þá sem skráð-
ir eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.
Alþingi samþykkti nú í aðdraganda
kosninganna bráðabirgðalög sem
veita Íslendingum sem hafa haft lög-
heimili erlendis í meira en átta ár
heimild til þess að óska eftir því að
vera færðir á kjörskrá fyrir komandi
kosningar.
Lögin eiga við um þá sem fluttu
lögheimili sitt frá Íslandi fyrir 1. des-
ember árið 2008 og voru ekki á kjör-
skrá 1. desember árið 2016.
Í greinargerð með frumvarpi til
laganna segir að þeim sé ætlað að
leysa úr vandasamri stöðu íslenskra
ríkisborgara sem hafi verið búsettir
erlendis lengur en í átta ár. Komið sé
til móts við hagsmuni tveggja hópa.
Annars vegar þeirra sem búsettir
séu erlendis og hafi sent fullnægj-
andi umsókn um að vera á kjörskrá
eftir 1. desember árið 2016 og hafi
fengið bréf Þjóðskrár Íslands um að
þeir eigi kosningarétt frá 1. desem-
ber árið 2017. Hins vegar eigi þeir
sem hafa verið búsettir erlendis í
átta ár eða lengur og hafa ekki sent
umsókn um að verða teknir á kjör-
skrá kost á að senda umsóknir og
öðlast kosningarrétt fyrir kosning-
arnar 29. október nk. Hafa þeir frest
til 11. október til þess að senda um-
sókn.
Kjördæmamörkin ákveðin
Bráðabirgðalög samþykkt vegna Íslendinga erlendis
Kort/Landskjörstjórn
Kjördæmin Mörkin liggja frá vestri til austurs eftir endilangri borginni.
Vinstri grænir samþykktu um
helgina framboðslista í Suðurkjör-
dæmi á fundi kjördæmisráðs sem
fram fór á Selfossi. Stillt var upp á
listann en það er Ari Trausti Guð-
mundsson alþingismaður sem leiðir
listann. Efstu sætin eru óbreytt frá
því í síðustu kosningum en í öðru
sæti er Heiða Guðný Ásgeirsdóttir
sauðfjárbóndi, Daníel E. Arnarson
framkvæmdastjóri er í þriðja, Dagný
Alda Steinsdóttir innanhússarkitekt
skipar fjórða sæti og Helga
Tryggvadóttir, náms- og starfsráð-
gjafi, er í fimmta sæti listans.
Stillt verður upp á lista flokksins í
öllum kjördæmum nema í Suðvest-
urkjördæmi þar sem mikil barátta er
um efstu sæti listans. Forvalsfundur
fer fram í Flensborgarskólanum í
Hafnarfirði klukkan 18:00 í kvöld þar
sem kosið verður í sex efstu sætin.
Þá hefur verið boðað til aukafund-
ar í kjördæmisráði Norðvesturkjör-
dæmis þar sem uppstillingarnefnd
mun leggja fram framboðslista en
fundurinn fer fram í Bjarkalundi í
Reykhólasveit
annað kvöld.
Framboðslisti
Vinstri grænna í
Norðausturkjör-
dæmi mun ekki
liggja fyrir fyrr
en á mánudaginn
eftir viku en þá
fer fram auka-
kjördæmisþing á
Akureyri. Þá
liggur ekki endanlega fyrir hvenær
listar flokksins í Reykjavíkurkjör-
dæmunum tveimur verða tilbúnir en
ætla má að Katrín Jakobsdóttir, for-
maður flokksins, muni leiða áfram í
Reykjavík norður.
Landsfundur Vinstri grænna fer
fram á Grand hótel um helgina. Þar
verður meðal annars kjörinn nýr
varaformaður flokksins en Björn
Valur Gíslason, fráfarandi varafor-
maður, sækist ekki eftir endurkjöri.
Tveir hafa gefið kost á sér til vara-
formanns, Edward H. Huijbens og
Óli Halldórsson.
Tekist á um efstu
sæti á lista VG í
Suðvesturkjördæmi
Einn listi liggur fyrir hjá Vinstri
grænum Landsfundur um helgina
Morgunblaðið/Ófeigur
VG Öllum listum flokksins verður stillt upp nema lista í Suðvesturkjördæmi.
Ari Trausti
Guðmundsson
KOSNINGAR 2017
Gunnar Bragi Sveinsson hefur ekki
gert upp hug sinn um hvort hann
muni gefa kost á sér til Alþingis í
komandi kosningum. Honum stend-
ur til boða að taka sæti á lista fyrir
Miðflokkinn, nýtt framboð Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar, en
báðir sögðu þeir sig nýverið úr
Framsóknarflokknum.
„Ég hef ekki tekið neina ákvörð-
un um það,“ segir Gunnar Bragi í
samtali við Morgunblaðið. Ekki hef-
ur verið rætt að sögn Gunnars
Braga hvaða sæti á lista og í hvaða
kjördæmi hann
myndi bjóða sig
fram ef til þess
kæmi. „Ég bara
er að hugsa mál-
ið, hvort ég eigi
að halda þessu
áfram eða gera
eitthvað allt ann-
að,“ segir Gunn-
ar Bragi sem hef-
ur setið sem
þingmaður Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi síðan 2009.
Gunnar Bragi hefur ekki gert upp hug sinn
Gunnar Bragi
Sveinsson
Á haustþingi Flokks fólksins sem
fram fór í Háskólabíói um helgina
var tilkynnt hverjir leiða lista hjá
Flokki fólksins. Inga Sæland, for-
maður flokksins, skipar oddvita-
sæti í Reykjavík suður en hún er
jafnframt eina konan sem skipar
oddvitasæti hjá flokknum. Þá mun
dr. Ólafur Ísleifsson leiða lista í
Reykjavík norður, Guðmundur Ingi
Kristinsson í Suðvesturkjördæmi,
Karl Gauti Hjaltason í Suður-
kjördæmi, Magnús Þór Hafsteins-
son í Norðvesturkjördæmi og sr.
Halldór Gunnarsson í Norðaustur-
kjördæmi. Uppstilling er megin-
regla hjá flokknum og ber uppstill-
ingarnefnd upp tillögu að lista við
stjórn og kjördæmaráð. Ekki liggja
fyrir upplýsingar um hverjir skipa
önnur sæti lista flokksins.
Flokkur fólksins
Magnús Þór
Hafsteinsson
Guðmundur Ingi
Kristinsson
Ein kona og fimm karlar leiða listana
Inga
Sæland
Halldór
Gunnarsson
Karl Gauti
Hjaltason
Ólafur
Ísleifsson
Framboðslistar Samfylkingarinnar
liggja fyrir í fjórum kjördæmum af
sex og er endurnýjun á listum nokk-
ur frá því í síðustu kosningum.
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður
og leikkona, skipar oddvitasæti
flokksins í Reykjavík norður og
Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrver-
andi alþingismaður og varafor-
maður flokksins, í Reykjavík suður.
Næstir á lista á eftir Helgu Völu í
Reykjavík norður eru þau Páll Val-
ur Björnsson, fyrrverandi þingmað-
ur, Eva Baldursdóttir lögfræðingur
í fjármálaráðuneytinu, Þórarinn
Snorri Sigurgeirsson, sagnfræð-
ingur og formaður Ungra jafn-
aðarmanna og Nikólína Hildur
Sveinsdóttir mannfræðinemi. Heið-
urssætið svokallaða, aftasta sæti á
lista, skipar Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri Reykjavíkur.
Næstir á lista Samfylkingarinnar
á eftir Ágústi Ólafi í Reykjavík suð-
ur eru Jóhanna Vigdís Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri hjá Há-
skólanum í Reykjavík, Einar
Kárason rithöfundur, Ellert B.
Schram, formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og fyrrverandi
alþingismaður, og Vilborg Odds-
dóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálp-
arstarfi kirkjunnar. Heiðurssæti
listans skipar Jóhanna Sigurð-
ardóttir, fyrrverandi forsætisráð-
herra.
Þá liggur fyrir hverjir skipa fjög-
ur efstu sætin í Norðausturkjör-
dæmi þar sem Logi Einarsson, for-
maður flokksins, er í efsta sæti
listans. Athygli vekur að Albertína
Friðbjört Elíasdóttir skipar annað
sæti listans í kjördæminu en hún sat
um tíma sem bæjarfulltrúi á Ísafirði
fyrir hönd Framsóknarflokksins.
Loks mun Guðjón S. Brjánsson al-
þingismaður áfram sitja í fyrsta sæti
framboðslista flokksins í Norðvest-
urkjördæmi en valið var í efstu sæti
listans á auknu kjördæmisþingi
Samfylkingarinnar sem fram fór í
Reykhólasveit í gær. Annað sæti
listans í NV-skipar Arna Lára Jóns-
dóttir, verkefnastjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar, Jónína Björg Magnús-
dóttir fiskverkakona skipar þriðja
sætið, Sigurður Orri Kristjánsson
leiðsögumaður er í fjórða og Gunn-
ar Rúnar Kristjánsson bóndi í því
fimmta.
Út af standa framboðslistar
flokksins í Suður- og Suðvestur-
kjördæmi en á morgun fara fram
kjördæmisþing í báðum kjör-
dæmum þar sem stillt verður upp á
lista. Kjördæmisþing flokksins í
Suðurkjördæmi fer fram í sal Sam-
fylkingarinnar í Reykjanesbæ
klukkan átta annað kvöld og kjör-
dæmisþing í Suðvesturkjördæmi fer
fram í Strandgötu 40 í Hafnarfirði á
sama tíma annað kvöld.
Samfylkingin
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Helga Vala
Helgadóttir
Talsverð endurnýjun á framboðslistum
Logi
Einarsson
Guðjón
Brjánsson