Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við
hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins
og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í
miklu úrvali í Vélum og verkfærum.
Öryggi í sumarbústaðnum
Blaupunkt SA2700
Þráðlaust þjófavarnarkerfi
• Fullkominn GSM hringibúnaður
• Hægt að stjórna með Connect2Home-appi
• Boð send með sms eða tali
• Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir
Verð: 45.725 kr.
OLYMPIA 9030
Þráðlaust þjófavarnarkerfi
• Mjög einfalt í uppsetningu/notkun
• Fyrir farsímakort (GSM)
• Hringir í allt að 10 símanúmer
• Allt að 32 stk. skynjarar
• 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir
• Fáanlegir aukahlutir:
viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar,
svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar.
Verð: 14.570 kr.
EITT
ER VÍST:
ALNO
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Jón Eggert Guðmundsson hjólaði 230 kílómetra í
gær til að geta kosið í alþingiskosningunum 2017.
Jón býr í suðurhluta Miami í Flórída og hjólaði til
íslenska ræðismannsins í Pompano Beach. Hann
segir að markmiðið með hjólaferðinni sé að hvetja
Íslendinga til að nýta kosningarétt sinn í komandi
kosningum.
„Ég er vanur að hjóla langar vegalengdir og
mig vantaði langan hjólatúr og ákvað að nýta
þetta í kosningarnar í leiðinni. Það er fínt að hafa
eitthvert markmið með hjólaferðinni,“ sagði Jón
Eggert en þegar Morgunblaðið náði tali af honum
átti hann um 50 kílómetra eftir af ferðinni.
Vont veður setti strik í reikninginn
„Ég ætlaði að taka þetta í einni ferð en ég lenti í
rigningu og vondu veðri,“ sagði Jón Eggert sem
var því tilneyddur til að stoppa um stund áður en
hann lauk ferðinni. „Ég þurfti bara að sitja rign-
inguna af mér, það er bara gaman að því,“ segir
Jón Eggert og hlær við. Flórída varð nýlega fyrir
barðinu á fellibylnum Irmu og sagðist Jón hafa
tekið eftir ýmsum ummerkjum um það á ferð
sinni um ríkið. „Ég er reyndar að hjóla norður,
það fóru mörg svæði illa þar en aðallega syðsti
hlutinn. Það eru samt alveg ennþá tré á veginum
víðsvegar hérna en þetta sleppur.“
Stefnir á hjólaferð til Key West næst
Jón segir Flórídaríki vera mjög fallegt ríki og
afar skemmtilegt að hjóla þar um. Hann mun um
næstu helgi hljóla til Key West sem liggur alveg
syðst í Flórída. Key West er eitt af þeim svæðum
ríkisins sem fóru hvað verst í fellibylnum í síðasta
mánuði. „Ég fer ásamt nokkrum öðrum hjólreiða-
mönnum. Þetta er í fyrsta skipti sem hægt verður
að fara þangað eftir að fellibylurinn reið yfir. Það
er bara búið að vera lokað og verið að vinna að því
að koma öllu í gang aftur.“
Um er að ræða helgarferð og stefnir Jón Egg-
ert á að gista í eina nótt á svæðinu. „Það er víst
mjög furðulegt ástand þarna og verður áhugavert
að sjá.“
Hjólaði 230 km á kjörstað
Jón Eggert hjólaði á kjörstað í Flórída til að hvetja Íslendinga til að kjósa
Kjörbréf Jón Eggert með kjörbréfið sitt eftir að
hafa kosið í alþingiskosningunum 2017.
Bilun kom upp í
TF-Gná, þyrlu
Landhelgisgæsl-
unnar á laugar-
dag vegna raka.
Tvær þyrlur
Gæslunnar, TF-
Gná og TF-Líf,
hafa síðustu
daga ferjað fólk
yfir Steinavötn
eftir að stöpull brúarinnar þar
yfir laskaðist í vatnavöxtum og
henni var lokað. Brúin hefur nú
verið opnuð á ný fyrir gangandi
vegfarendur.
Sveinn H. Guðmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar, segir mikla bleytu á svæð-
inu hafa borist inn í þyrluna með
fólki og valdið raka sem truflaði
rafkerfi hennar. Því þurfti að
þurrka þyrluna áður en gert var
við bilunina en það var gert sam-
dægurs. „Þær gerast varla minni
bilanirnar,“ segir Sveinn. „Þetta
er svolítið eins og dekk springi á
bíl.“
Rakavandamál
í vél Gæslunnar
TF-Gná.
Alexander Gunnar Kristjánsson
alexander@mbl.is
Eldur kom upp í húsnæði Hvíta-
sunnukirkjunnar í Vestmannaeyjum
á laugardag. Að sögn Guðna Hjálm-
arssonar safnaðarhirðis var kveikt í
sófa á jarðhæð hússins rétt fyrir
klukkan tvö síðdegis. Guðni var við
vinnu á efri hæð ásamt fleiri og varð
eldsins var er reykur barst upp á
hæðina. Slökkvilið var kallað á svæð-
ið og slökkti eldinn áður en hann náði
að læsa sig í veggi hússins.
Reykræsta þarf húsið og mála allt
upp á nýtt, en að öðru leyti er tjón lít-
ið. Tveir drengir, sem sáust við hús-
ið, hafa verið yfirheyrðir en þeir
segjast hafa reynt að slökkva eldinn.
Hvítasunnukirkjan í Vestmanna-
eyjum er elsti hvítasunnusöfnuður
landsins, stofnaður 1926. Hann telur
um sjötíu manns. Samkomur eru
haldnar á sunnudögum og fimmtu-
dagskvöldum, auk þess sem kirkjan
hýsir AA-fundi fyrir Vestmannaey-
inga vikulega.
Guðni segir íkveikjuna ekki hafa
sett strik í reikninginn hjá kirkjunni
enda sé jarðhæðin ekki notuð undir
starfsemi safnaðarins. Þess í stað
hafi hæðin verið nýtt sem hjóla-
brettaaðstaða fyrir ungmenni bæj-
arins.
Kveikt í Hvíta-
sunnukirkjunni
Kveikt í sófa á jarðhæð hússins
Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson
Í viðtali við Mary Hockaday sem
birtist í Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins um liðna helgi misritaðist
setning en þar átti að standa: „Hlut-
verk BBC sem fjölmiðils í almanna-
eigu er að þjóna öllum breskum al-
menningi og því er afar mikilvægt að
fréttaflutningur endurspegli sam-
félagið okkar og áhorfendur okkar,
sem eru auðvitað bæði karlar og
konur.“
Þá er rétt að Mary Hockaday hef-
ur starfað í 30 ár hjá BBC en ekki 40.
Starfað hjá BBC
í 30 ár en ekki 40
LEIÐRÉTT
Allt um
sjávarútveg