Morgunblaðið - 02.10.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
Kynntu þér úrvalið hjá sérfræðingum okkar á rannsóknarsviði.
Þar starfar fólk með mikla þekkingu og reynslu.
VINNUR ÞÚ Á
RANNSÓKNARSTOFU?
Hjá Fastus færðu allar almennar rannsóknarvörur
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
V
ið fórum í gamla beyki-
skóga með stöku eikum
í bland, það er mjög
gaman en hérlendis eru
ekki svona hávaxnir,
gamlir skógar. Þetta var lærdóms-
ríkt og skemmtilegt, maður kynnist
öðrum sveppafræðingum, myndar
sambönd og ræðir helstu sveppa-
málin. Það uppgötvast nýir og
spennandi sveppir og það bætast
jafnvel við tegundir fyrir landið. Við
sáum t.d. hvítserk, Amanita virosa,
mjög eitraðan ættingja berserkja-
svepps, sem er hvítur og stæðilegur
og veldur skemmdum á líffærum og
dauðsföllum ef hans er neytt,“ segir
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir,
sveppafræðingur við Náttúru-
fræðistofnun Íslands (NÍ) á Akur-
eyri, sem stýrir þar svepparann-
sóknum og vísindalegu sveppasafni
stofnunarinnar, miðstöð sveppa-
rannsókna á Íslandi. Í síðari hluta
septembermánaðar var haldin
svepparáðstefnan Nordic Mycologi-
cal Congress í 23. sinn, þar sem
helstu sveppasérfræðingar koma
saman til að tína sveppi og bera
saman bækur sínar, en Guðríður
Gyða lét sig ekki vanta þar.
Ástríða fyrir sveppum
„Ég fæddist síðasta sólardaginn
haustið 1959 á Landspítalanum en
þá bjuggu foreldrar mínir á Vatns-
leysuströnd. Eftir það rigndi stöð-
ugt, heyið þornaði ekki og varð að
rudda það árið. Svo þegar ég var á
áttunda ári fluttum við upp í sveit og
foreldrar mínir tóku við búinu af afa
og ömmu í Bryðjuholti í Hruna-
mannahreppi,“ segir Guðríður Gyða
af lífshlaupi sínu.
„Ég fór í Menntaskólann að
Laugarvatni og þaðan í Háskóla Ís-
lands í líffræði. Ég fékk sumarvinnu
1982 og 1983 hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins (RALA) við að ein-
angra jarðvegssveppi í beitarlandi,
en athygli hafði vakið að lömb þrif-
ust illa þótt nóg væri grasið í
ákveðnum beitartilraunum. Vísinda-
menn frá Kanada höfðu gert svip-
aðar rannsóknir og fóru þeir í sam-
starf við RALA. Í framhaldinu fékk
ég inni í námi í sveppafræðum við
Manitoba-háskóla í Winnipeg í Kan-
ada. Ég rannsakaði sveppi sem
barkarbjöllur bera inn í við og valda
gráma þannig að viðurinn fellur í
verði,“ segir Guðríður Gyða sem út-
skrifaðist með doktorsgráðu í
sveppafræðum haustið 1990.
„Ástríða mín fyrir sveppum
byrjaði vorið 1981 þegar ég ákvað að
taka fjórða árs verkefni í líffræði um
jarðvegssveppi hjá grasafræðipró-
fessornum Herði Kristinssyni og ég
hef svo sannarlega ekki séð eftir því,
þetta er stöðugt fjör,“ segir Guð-
ríður Gyða og hlær við. „Ég átti
Sveppakverið eftir Helga Hall-
grímsson og vopnuð því ásamt bók
með máluðum myndum af helstu
gerðum sveppa fór ég og skoðaði
sveppi, teiknaði þá og reyndi að
greina. Um haustið tók ég jarðvegs-
sýni úr landi foreldra minna og
ræktaði upp sveppi sem í moldinni
leyndust,“ bætir hún.
Neðanjarðarveröld sveppa
„Sveppir mynda neðanjarðar-
hagkerfi sem sést ekki. Þeir sveppir
sem valda tjóni eru yfirleitt rannsak-
aðir og vel þekktir, en svo eru svepp-
ir sem vaxa t.d. á arfa og eru mun
minna þekktir. Það er hægt að nota
sveppi við að halda niðri skor-
dýraplágum og er þá talað um líf-
rænar varnir. Sveppir eru oft í sam-
lífi við aðrar lífverur, svepprótar-
sveppir mynda t.d. útræna svepprót
á furu, lerki og birki og sjá um að
taka upp næringarefni og vatn og
flytja trjánum en þiggja í staðinn
kolefni frá þessum sambýlingum
sínum. Fléttur eru sambýli svepps
og þörungs af svipaðri ástæðu. Í
skógrækt ætlaðri til að binda kolefni
verða sveppirnir að vera með því um
sveppina fer kolefnið niður í jarð-
veginn. Sveppir eru búnir til úr fín-
gerðum þráðum sem virka eins og
Trúlofunarástand sveppa
getur oft verið langt
Guðríður Gyða Eyjófsdóttir sveppafræðingur sér
um sveppasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands á
Akureyri. Hún hefur ástríðu fyrir sveppum og skal
engan undra, sveppir eru fjölbreyttir, heillandi,
skemmtilegir og spennandi að fást við.
Morgunblaðið/Golli
Uppskeran Ýmsir sveppir fundust í leiðangri við Rauðavatn.
Ljósmynd/Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Fallega bleik Goðhelma Mycena adonis fannst fyrst 2009 hérlendis.
Átta vikna námskeið í yin-jóga og nú-
vitund hefst mánudaginn 9. október í
Yogavin. Yin-jóga byggist á stöðum
sem haldið er í allt að fimm mínútur
og eru nálægt jörðinni, sitjandi eða
liggjandi. Að sögn Þóru Sigríðar Ing-
ólfsdóttur jógakennara losar yin-jóga
um stíflur og hefur góð áhrif á djúp-
vefi líkamans. Hún segir yin-jóga-
tæknina þróaða til að hafa áhrif á
nálastungubrautir líkamans sem
tengjast helstu líffærum og stuðla að
jafnvægi í orkubrautum, en þær eru
nýrna- og blöðrubraut, lifrar- og gall-
blöðrubraut, hjarta-, lungna- og smá-
þarmabraut og milta- og magabraut.
„Yin-jóga nýtur æ meiri vinsælda
meðal jógaiðkenda og er blanda af
jógastöðum og núvitund þar sem
kyrrstaðan opnar tækifæri til að
þjálfa hugann og hlusta inn á við,“
segir Þóra.
Tímarnir eru á mánudögum og
miðvikudögum klukkan 16.20 til
17.20. Skráning og nánari upplýs-
ingar á yogavin@yogavin.is og
www.yogavin.is
Vefsíðan www.yogavin.is
Stöður Yin-jóga byggist á stöðum sem haldið er í allt að fimm mínútur og eru
nálægt jörðinni, sitjandi eða liggjandi.
Djúpnæring líkama og sálar
Dagur Konfúsíusarstofnunar er
haldinn við Háskóla Íslands, í dag,
mánudaginn 2. október. Kínverskir
fræðimenn flytja fyrirlestra um
kínverska heimspeki, efnahagsmál,
stjórnmál og utanríkisstefnu.
Fyrirlestrarnir fara fram á ensku,
en þá flytja vel þekktir fræðimenn
innan sem utan Kína, sem sumir
eru reglulegir álitsgjafar í vestræn-
um fjölmiðlum um málefni lands-
ins.
Trúlega þykir áhugamönnum um
Kína viðburðurinn hvalreki á sínar
fjörur, enda dagskráin fjölbreytt og
fróðleg. Dagskráin hefst kl. 10:00 í
fyrirlestrasal í anddyri Þjóðarbók-
hlöðu með fyrirlestri Yang Huilin,
prófessors í heimspeki við Renmin-
háskóla. Síðan taka til máls nokkr-
ir prófessorar við sama háskóla:
Peng Gang, prófessor í hagfræði
og Shi Yinhong og Jin Canrong,
sem báðir eru prófessorar í al-
þjóðastjórnmálum.
Klukkan 15.40, eftir hlé flyst
dagskráin yfir í fyrirlestrarsal á
jarðhæð í Veröld - húsi Vigdísar, en
þá flytur Huang Weiping prófessor
í hagfræði við Renmin-háskóla fyr-
irlestur. Í lokin flytur svo Kvenna-
kór Háskóla Íslands lög á íslensku
og kínversku.
Léttar veitingar í boði Konfúsíus-
arstofnunarinnar Norðurljósa.
Dagur Konfúsíusarstofnunar
Hvalreki á
fjörur áhuga-
fólks um Kína
Morgunblaðið/Einar Falur
Víða fagurt í Kína Musterið Shiba-
ozhai við ánna Yangtze.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.