Morgunblaðið - 02.10.2017, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
Ármúla 24 - s. 585 2800
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Sérfræðingar hafa lengi freistað þess að finna út
hvað einkennir, öðru fremur, þá stjórnendur sem
ná mestum árangri. Vala Jónsdóttir segir að nú sé
að koma æ betur í ljós að árangursríkir stjórn-
endur eiga í raun fátt sameiginlegt og geta verið
mjög ólíkir, en ná árangri með því að leggja
áherslu á sömu hlutina. „Samkvæmt rannsóknum
Gallup leggja þeir mikla áherslu á helgun starfs-
fólks (e. employee engagement), styrkleikamiðaða
stjórnun og frammistöðustjórnun sem er í takt við
þær breytingar sem hafa átt sér stað á vinnu-
markaði.“
Helgun starfsfólks er, að sögn Völu, lykillinn að
því að búa til vinnustað þar sem allir leggja sig
fram, sinna vinnu sinni af metnaði og láta sig
varða hagsmuni fyrirtækisins eða stofnunarinnar.
„Mælingar sýna að helgun hefur jákvæð áhrif
bæði á líðan fólks í starfi og einkalífi og hefur einn-
ig áhrif á lykilárangursþætti fyrirtækja. Helgað
starfsfólk er síður fjarri vinnu vegna veikinda og
upplifir minni streitu. Rýrnun minnkar, hagnaður
og framleiðni aukast, öryggis- og gæðafrávikum
fækkar, og starfsmannavelta verður mun minni.“
Yfirmenn þjálfarar frekar en stjórnendur
Vala er viðskiptastjóri og ráðgjafi hjá Gallup á
Íslandi. Hún segir miklar og hraðar breytingar
vera að eiga sér stað á vinnumarkaðinum og þörf
sé á að bregðast við breyttum áherslum. Til dæm-
is hafi orðið mikil framþróun í upplýsingatækni
sem hægt væri að nýta enn betur á vinnustöðum,
aukin fjölbreytni er að verða á vinnumarkaði,
breyttar áherslur í stjórnun að líta dagsins ljós og
starfsfólk gerir aðrar kröfur. „Áður áttu fyrirtæki
það til að einblína á launahliðina og láta duga að
halda árlegt starfsmannaviðtal til að meta stöðuna
og heyra skoðanir starfsfólksins. Í dag eru vænt-
ingar fólks allt aðrar; það vill finna að vinnu-
framlag þess hafi tilgang og gerir kröfu um að fá
að þróast og eflast í starfi,“ útskýrir Vala. „Sam-
skipti við yfirmann eiga að vera náin og tíð, endur-
gjöf stöðug og yfirmenn að vera í hlutverki þjálf-
ara frekar en stjórnanda. Fólk vill hafa tækifæri
til að nýta ólíka styrkleika sína frekar en að allir
séu steyptir í sama mótið.“
Tilgangur ofar launum
Að sögn Völu á sér stað mjög skýr þróun í þessa
átt, sérstaklega meðal ungs fólks, og getur skipt
yngri starfsmenn meira máli að upplifa að starf
þeirra hafi tilgang, frekar en að mánaðarlaunin
séu sem hæst. Ef tilganginn og helgunina vantar
hverfur áhuginn. „Breytingarnar eru hraðar, og
þurfa stjórnendur að gæta þess betur en nokkru
sinni fyrr að skapa eftirsóknarverðan vinnustað
þar sem réttu vinnuskilyrðin eru fyrir hendi til að
virkja mannauðinn og laða að og halda í gott
starfsfólk.“
Helgun starfsfólks er mikilvæg. Hvort sem litið
er á mismunandi starfsgreinar, ólík störf eða
menningarheima. Segir Vala að eitt gott ráð til að
fylgja sé að gera starfsmönnum ljóst hvaða máli
vinnuframlag þeirra skiptir fyrir kollegana. „Það
eykur helgun þegar starfsfólk upplifir sig sem
mikilvægan hlekk í stærri keðju – sem tannhjól
sem fær alla heildina til að virka eðlilega.“
Helgun starfsfólks hefur
jákvæð áhrif á ótal vegu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bót Vala nefnir ótal áhrif helgunar starfsmanna, s.s. færri fjarvistir vegna veikinda og minni starfs-
mannaveltu. „Rýrnun minnkar, hagnaður og framleiðni aukast og öryggis- og gæðafrávikum fækkar.“
Ef fólk finnur tilgang í starfi sínu vinnur það betur og er hamingjusamara
meðal – höfðu fallið út, með yfir-
skriftinni „Ævintýri bíða þín“. Aug-
lýsing Volkswagen skartaði tveim-
ur kvenmanshnefum, skreyttum
með henna-lit, og hafði slagorðið
„Nú er komið að mér“ verið ritað á
milli hnefanna.
Ákvörðun Abdulaziz mun taka
gildi næsta sumar og gæti þýtt að
allt að níu milljón nýir ökumenn
bætist við bílamarkaðinn í landinu.
Auk þess að geta aukið sölu á bílum
og bílatryggingum er talið líklegt
að breytingin muni bæta atvinnu-
möguleika kvenna og þannig
hækka tekjur heimilanna í landinu
og örva hagkerfið á ýmsa vegu.
ai@mbl.is
Bílaframleiðendur biðu ekki boð-
anna eftir að Salman bin Abdulaziz,
konungur Sádi-Arabíu, ákvað í lið-
inni viku að konur í landinu myndu
loksins fá að aka bílum. Að sögn
Bloomberg hafa margir helstu
framleiðendur þegar birt auglýs-
ingar í samfélagsmiðlum þar sem
reynt er að höfða sérstaklega til
sádi-arabískra kvenna.
Ford fagnaði tímamótunum með
tístinu „velkomin í ökumannssætið“
og fylgdi með mynd þar sem sjá
mátti kvenmannsaugu speglast í
baksýnisspegli bifreiðar. Jaguar og
Land Rover völdu mynd af hand-
tösku sem hafði dottið á hliðina svo
að ýmsir smámunir – bíllyklar þar á
Auglýsa bíla fyrir konur í Sádi-Arabíu
Að sögn New York Times varð uppi
fótur og fit í stjórn Uber á föstudag
þegar í ljós kom að Travis Kalanick,
stofnandi og valdamesti hluthafi
skutlfyrirtækisins, hafði bætt tveim-
ur nýjum meðlimum í stjórn félags-
ins, að nýja forstjóranum Dara
Khosrowshahi og stjórninni for-
spurðum.
Kalanick fékk Ursulu Burns, fyrr-
verandi forstjóra Xerox, og John
Thain, fyrrverandi forstjóra Merrill
Lynch, til liðs við stjórnina sem er
þá, að sögn WSJ, skipuð ellefu
manns, frekar en níu líkt og var áð-
ur. NYT segir að með nýju meðlim-
unum muni Kalanic væntanlega eiga
fleiri bandamenn á fundum stjórnar-
innar, þegar teknar eru ákvarðanir
um framtíð fyrir-
tækisins.
Útspil Kal-
anick virðist hafa
verið andsvar við
nýlegum tillögum
Khosrowshahi og
Goldman Sachs,
sem er stór hlut-
hafi í Uber, um að
breyta vægi at-
kvæða hluthafa
til að minnka atkvæðavald Kalanick,
gefa nýja forstjóranum meira vald
yfir rekstrinum og skuldbinda félag-
ið til að fara á hlutabréfamarkað
ekki seinna en 2019. Stóð til að
stjórnin myndi taka tillögurnar til
umfjöllunar á þriðjudag. ai@mbl.is
Kalanick hleypir öllu í loft upp hjá Uber
Travis
Kalanick
Raðfrumkvöðull-
inn Elon Musk
kynnti framtíð-
arsýn geimferða-
fyrirtækisins
SpaceX á geim-
ráðstefnu sem
haldin var í Ade-
laide á föstudag.
Svipti hann m.a.
hulunni af nýrri
risaeldflaug sem á að geta sent
fyrstu mennina til Mars árið 2024,
en gæti líka gjörbreytt flug-
samgöngum á jörðinni.
Ef eldflaugar SpaceX væru not-
aðar til að flytja farþega á milli
borga þá tæki aðeins 39 mínútur að
ferðast á milli New York og
Sjanghaí, og ferðin frá London til
Dúbaí tæki 29 mínútur. Í dag tekur
fyrri flugferðin um 15 klukku-
stundir, og sú síðari 7 klukkustund-
ir.
Að sögn Bloomberg myndi flugið
frá Bandaríkjunum til Kína kosta
aðeins 2.800 dali, eða tæplega
300.000 krónur.
Hámarkshraði eldflaugarinnar
verður 27.000 km/klst. en til sam-
anburðar flaug Concorde á 2.140
km/klst. eða rétt rúmlega tvöföld-
um hljóðhraða.
Ef marka má kynningarmynd-
band SpaceX myndu eldflaugarnar
taka á loft frá, og lenda á, prömm-
um á hafi úti og væru farþegar
fluttir til og frá landi með hrað-
skreiðu skipi. Bloomberg bendir á
að í stórborgum sem ekki liggja að
hafi, s.s. París og Lundúnum, gæti
orðið vandasamt að finna hentugt
svæði fyrir eldflaugaflug í þægi-
legri fjarlægð frá borgar-
kjörnunum.
ai@mbl.is
Elon Musk
New York
til Kína
á hálftíma
Kynnir geimflaug-
ar sem valkost í flugi