Morgunblaðið - 02.10.2017, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Fyrirbyggir exem
• Betri og sterkari
fætur
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Árásarmaður um þrítugt varð tveim-
ur konum að bana í Marseille í
Frakklandi í gær, þegar hann réðst á
þær vopnaður hnífi. Árásin átti sér
stað á Saint-Charles-lestarstöðinni
og rannsakar franska lögreglan árás-
ina sem hryðjuverk. Íslamska ríkið
segist bera ábyrgð á árásinni. „Böð-
ullinn í stunguárásinni í Marseille er
einn af hermönnum Íslamska ríkis-
ins,“ var skrifað inn á áróðurssíðuna
Amaq sem Íslamska ríkið rekur. Að
sögn vitna öskraði árásarmaðurinn
„allahu akbar“ áður en hann réðst á
konurnar. Franskir lögreglumenn
skutu árásarmanninn til bana, sam-
kvæmt upplýsingum frá saksóknara-
embættinu í Marseille. Sérstakur
saksóknari í París fer með rannsókn
málsins þar sem atvikið er skilgreint
sem hryðjuverkaárás. Innanríkis-
ráðherra Frakklands tísti í gær að
hann væri á leið til Marseille til að
skoða vettvang og fá frekari upplýs-
ingar um árásina. Aukinn viðbúnaðar
hefur verið í Frakklandi á undan-
förnum árum vegna fjölda hryðju-
verkaárása sem tengjast Íslamska
ríkinu og Al-kaída.
Hryðjuverkaárás í Marseille
AFP
Árás Óeinkennisklæddir lögreglumenn voru fljótir á vettvang og tryggðu
öryggi nærstaddra. Árásarmaðurinn var skotinn til bana á staðnum.
Tvær konur
látnar eftir hnífa-
árás í Frakklandi
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Til mikilla átaka kom í Katalóníu í
gær þegar íbúar héraðsins gengu að
kjörborði og kusu um sjálfstæði frá
Spáni. Spænskir óeirðalögreglu-
menn skutu gúmmíkúlum úr byssum
sínum og beittu kylfum gegn kjós-
endum sem hlýddu ekki skipunum.
Kjörkassar og kjörseðlar voru gerðir
upptækir og kjósendur dregnir af
kjörstöðum með valdi. Þegar Morg-
unblaðið fór í prentun í gær höfðu yf-
ir 800 íbúar svæðisins þurft að leita
sér læknisaðstoðar auk 33 lögreglu-
manna.
Hæstiréttur Spánar komst að
þeirri niðurstöðu að kosningin væri
ólögleg og segja stjórnvöld á Spáni
framkvæmdina af hálfu stjórnvalda í
Katalóníu stangast á við stjórnar-
skrá landsins. Innanríkisráðherra
Spánar, Juan Ignacio Zoido, sagði á
laugardaginn að lögreglunni hefði
tekist að ná valdi á langflestum af
2.315 kjörstöðum Katalóníu sem stóð
til að opna í gær. Talsmaður yfir-
valda í Katalóníu, Jordi Turull, sagði
í gær að lögreglunni hefði einungis
tekist að loka um 319 kjörstöðum en
samkvæmt AFP er ekki vitað hversu
marga kjörstaði tókst að opna í gær-
morgun.
Kennarar opnuðu kjörstaði
Aðskilnaðarsinnar undirbjuggu
sig vel fyrir kosningarnar og komu
margir sér fyrir í skólum héraðsins á
laugardaginn, í von um að opna
skólana sem kjörstaði að morgni
kjördags.
Samkvæmt AFP var mestmegnis
um að ræða kennara, nemendur og
foreldra þeirra, sem eyddu nóttinni í
skólunum. Slökkviliðsmenn og
bændur í Katalóníu sendu frá sér yf-
irlýsingu á laugardag um að þeir
myndu aðstoða við að verja kjörstað-
ina en um leið og kjörstaðir voru opn-
aðir voru lögreglumenn frá ríkislög-
reglunni (CNP) og herlögreglunni
(Guardia Civil) mættir til að koma í
veg fyrir að kosningin færi fram.
Óeirðir brutust út á mörgum kjör-
stöðum í kjölfarið, meðal annars milli
spænsku lögreglunnar og slökkvi-
liðsmanna Katalóníu. Forseti Kata-
lóníu, Carles Puigdemont, sagði lög-
regluna fara offari gegn íbúunum
sem væru að „mótmæla friðsam-
lega“.
„Forsætisráðherran heigull“
Borgarstjóri Barcelona, Ada Co-
lau, fordæmdi ofbeldi lögreglunnar
og sagði forsætisráðherra Spánar,
Mariano Rajoy, hafa farið yfir öll
mörk í aðgerðum dagsins. „Hann er
heigull sem stendur ekki undir skyld-
um sínum og vegna þess þarf hann að
segja af sér,“ sagði Colau. Rajoy hélt
sjónvarpsávarp í gærkvöldi þar sem
hann sagði að engin atkvæðagreiðsla
hefði verið haldin í gær. Rojoy sagði í
ávarpinu að atkvæðagreiðslan væri
aðeins til þess fallin að auka bilið
milli fylkinga. Sagði hann alla ábyrgð
á því sem gerðist í gær hjá stjórn-
völdum í Katalóníu.
Kjósendur dregnir af kjörstöðum
Íbúar Katalóníu kusu um sjálfstæði í gær Kosningin ólögleg að mati stjórnlagadómstóls á Spáni
Lögreglan skaut gúmmíkúlum og beitti kylfum Yfir 800 óbreyttir borgarar leituðu læknisaðstoðar
Sjálfstæði Katalóníu
2014 Katalónía kýs í táknræn-
um kosningum um sjálfstæði.
Kjörsókn er 37%.
2015 Aðskilnaðarsinnar bæta
verulega við þingstyrk sinn á
héraðsþingi Katalóníu.
2016 Carles Puigdemont, að-
skilnaðarsinni,verður forseti
Katalóníu.
2017 Puigdemont tilkynnir 1.
okt. sem kjördag um sjálfstæði.
AFP
Kjörstaður Spænska óeirðalögreglan dregur mann frá kjörstaðnum í Sant Julia de Ramis í Katalóníu. Mikill við-
búnaðir var í Sant Julia en þar átti forseti Katalóníu Carles Puigdemot að kjósa. Hann kaus í Girona í staðinn.
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær að samninga-
viðræður við Norður-Kóreu vegna
kjarnorkuáætlun þeirra væru sóun
á tíma eftir að í ljós kom að yfirvöld
í Bandaríkjunum hefðu verið í sam-
skiptum við ráðamenn í Pyongyang,
höfuðborg Norður Kóreu. Staðhæf-
ing Trumps kom nokkrum klukku-
stundum eftir að utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Rex Tillerson, til-
kynnti að bandarískir embættis-
menn væru í samskiptum við koll-
ega sína í Norður-Kóreu. Trump
tísti þá til æðsta erindreka Banda-
ríkjanna og sagði að viðræðurnar
væru sóun. „Sparaðu orkuna, Rex,
við gerum það sem þarf að gera,“
sagði Trump í einu af tístum sínum
sem beint var að utanríkisráðherr-
anum. Tillerson
tilkynnti á laug-
ardaginn um
óformlegar sam-
skiptaleiðir
Bandaríkjanna
við kommúnista-
ríkið að loknum
fundi með forseta
kína Xi Jinping.
Þegar kínverskir
blaðamenn
spurðu hvort það væri möguleiki að
fá embættismenn Norður-Kóreu að
samningaborðinu sagði Tillerson:
„Við erum að skoða það, fylgist
með,“ sagði Tillerson og bætti við
að Bandaríkin væru ekki í myrkr-
inu og samskiptaleiðirnar væru í
notkun. mhj@mbl.is
Segir viðræður
við N-Kóreu sóun
Trump tístir til utanríkisráðherra BNA
Donald
Trump