Morgunblaðið - 02.10.2017, Side 23
Pálmi unnið hörðum höndum að því
að gera upp hús afa síns og ömmu í
Bolungarvík: „Húsið hafði staðið
autt í niðurníðslu í 14 og þá stóð til
að rífa það. Pabba hafði taugar til
eldri húsa í Bolungarvík og samdi
um að fá að gera það upp. Hann
ánafnaði mér síðan húsið, skömmu
áður en hann lést, og það kom í hlut
okkar hjóna að gera það upp. Þetta
urðu miklar framkvæmdir en við er-
um stolt af húsinu og dveljum þar
öllum stundum sem við höfum af-
lögu, með Einar K. Guðfinnsson,
frænda minn, í næsta nágrenni.
Maður er því kominn aftur heim,
a.m.k. hálfa leiðina.
Ég var mikið hjá afa og ömmu,
þótti afar vænt um þau og ég held
að gamla hafi þótt það stílbrot að ég
færi í leiklistina. Skömmu eftir að
ég varð leikari kom ég óvænt vest-
ur. Þá sagði afi: „Nú? Þú hér,
Pálmi. Hver er þá að gretta sig fyr-
ir sunnan?“
Fjölskylda
Eiginkona Pálma er Sigurlaug
Halldórsdóttir, f. 9.11. 1959, flug-
freyja.
Sonur Pálma og Sigurlaugar er
Mímir Bjarki Pálmason, f. 13.4.
2000, nemi við VÍ.
Börn Pálma frá fyrra hjónabandi
eru Gestur Kolbeinn, f. 15.9. 1979,
lögreglumaður, búsettur í Garðabæ
en kona hans er Alda Hrönn Jóns-
dóttir, aðallögfræðingur hjá lögregl-
unni í Reykjavík og eru barnabörn-
in þrjú, og Birna Hjaltalín, f. 20.12.
1983, BA í sálfræði og vinnur við
kvikmyndagerð, en maður hennar
er Jóhannes Geir Guðnason og eru
barnabörnin þrjú.
Fósturbörn Pálma: Márus Brynj-
ar Bjarnason, f. 1.5. 1986, flugþjónn
hjá Qatar Airways, búsettur í Kat-
ar, og María Birta Bjarnadóttir, f.
29.5. 1988, kaupmaður og leikkona í
Los Angeles, en maður hennar er
Elli Egilsson myndlistarmaður.
Systkini Pálma: Ólafur Svanur, f.
27.11. 1951, d. 3.5. 2010, skipstjóri
og hafnarvörður í Bolungarvík; Sig-
ríður Lovísa, f. 16.9. 1958, starfar á
DAS í Hafnarfirði; Þórarinn Sigur-
geir, f. 31.12. 1960, skipstjóri, nú bú-
settur í Hafnarfirði; Davíð, f. 17.12.
1964, kjötiðnaðarmaður og bóndi í
Tjarnarkoti í Miðfirði.
Foreldrar Pálma eru Gestur Odd-
leifs Kolbeins Pálmason, f. 25.5.
1930, d. 8.9. 2006, trésmiður í Bol-
ungarvík, og k.h., Sigurborg Guð-
finna Sigurgeirsdóttir, f. 7.8. 1931,
húsfreyja.
Pálmi
Gestsson
Halldóra Jóhannsdóttir
húsfr. í Hvítanesi
Guðfinnur Einarsson
útvegsb. í Hvítanesi við Djúp,
bróðursonur Helga Hálfdánarsonar
sálmaskálds, föður Jóns biskups,
og Álfheiðar, ömmu Sigurðar Líndal,
og systursonur Bergs Thorberg
landshöfðingja ogHjalta, langafaJó-
hannesarNordal, föðurÓlafarNordal
Margrét Guðfinnsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Sigurgeir Guðmundur Sigurðsson
skipstj. og útgerðarm. í BolungarvíkSigurborg Guðfinna
Sigurgeirsdóttir
húsfr. í Bolungarvík Evalía Guðmundsdóttir
húsfr.
Sigurður Borgar Þórðarson
útvegsb. á Markeyri í Skötufirði og á Folafæti
Sigrún
Pálma-
dóttir
söng-
kona
og
kennari
Karvel Pálma-
son fyrrv. alþm.
Guðmundur
Baldur
Sigurgeirsson
stýrim. og
skrifstofum. á
Seltjarnarnesi
Jón Eggert
Sigur-
geirsson
skipstj. í
Bolungavík
Einar
Guð-
finnsson
útgerð-
arm. og
forstj. í
Bolung-
arvík
Einar Benediktsson fyrrv. forstj. Olís
Bjarni Benediksson framkv.stj. hjá Ísl. sjávaraf.
Ásgeir Haraldsson yfirlæknir og
prófessor í barnalækningum
Einar Guðmundsson um-
boðsm. Olís á Vestfjörðum
Hjalti Einarsson
verkfr.og framkv.
stj. hjá SH
Jónatan Einarsson
framkv.stj. í Bolungarvík
Guðmundur Páll Einarsson
yfirverkstj. í Bolungarvík
PéturGuðni Einarsson
bifreiðastj. í Bolungarvík
Pálmi Árni Kar-
velsson lengst
af starfsm.
hjá Orkubúi
Vestfjarða
Elís Vigfússon b. á
Neðri-Bakka í Langadal
Guðmundur Jónsson
skipstj. og aflakló á
Vilhelm Þorsteinssyni
Víðir Jónsson skipstj.
og aflakló á Kleifabergi
Jón Friðgeir Einars-
son byggingam.og
verktaki í Bolungarvík
Ragnheiður Haraldsdóttir fyrrv. fram-
kv.stj. Krabbameinsfélags Íslands
Einar Pétursson svæðisstj.Samskipa á Ísaf.
Gísli Jón Hjaltason framkv.stj. á Ísafirði
Ásgeir Þór Jónsson viðskiptafr., MA í
lýðheilsu- og kennslufræði og framkv.
stj. Fjórðungssambands Vestfjarða
Lovísa Karvelsdóttir húsfr.
SigmarGuðmundsson
dagskrárgerðarmaður
í Kastljósi á RÚV
Guðfinnur Einarsson forstj. í Bolungarvík
Einar K. Guðfinnsson
fyrrv. alþm., ráðherra
og forseti Alþingis
Hildur Einarsdóttir
húsfr. í Bolungarv.
Halldóra Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Elías Jónatansson fyrrv. bæjarstj. í Bol-
ungarvík og forstj.OrkubúsVestfjarða
KristjánJónssonblaðam.áMorgunblaðinu
Kristín Aradóttir
húsfr. á Kleifum,afVigurætt, afkomandiÓlafsGíslas.Skálholtsbiskups
Jóel Einarsson
b.áKleifum,systurdóttursonur
Guðrúnar, móður Stefáns frá
Hvítadal, af ArnardalsættJónína Jóelsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Pálmi Árni Karvelsson
sjóm. í Bolungavarík Rósinkransa Jónsdóttir
húsfr. í Bæjum
Karvel Pálmason
sjóm. á Bæjum á Snæfjallaströnd
Úr frændgarði Pálma Gestssonar
Gestur Oddleifs
Kolbeins Pálmason
trésmiður í Bolungarvík
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
90 ára
Sólveig F. Bjartmarz
85 ára
Ásdís Aðalsteinsdóttir
Eðvard H. Vilmundsson
Kristján Kristjánsson
Sverrir Vilhjálmsson
80 ára
Guðmundur Jónsson
Kristinn Jón R. Kristinsson
Kristín Össurardóttir
Margrét Jóhannsdóttir
Sigurgrímur Jónsson
Vilhjálmur Bergsson
Þórunn Rut Þorsteinsdóttir
75 ára
Birgir Stefánsson
Eyrún Edda Óskarsdóttir
Halldóra Játvarðardóttir
Hjörtur Jónsson
Jón Baldvinsson
Liisa S. Tuhkunen J.
Sigríður Sæunn Óskarsd.
Sigurður Fanndal
Wilhelm W. G Wessman
Þorbjörg Hermannsdóttir
Þórður A. Helgason
Örn Ingvarsson
70 ára
Guðrún Sigríður Norðfjörð
Hjörtur Ingólfsson
Ómar Kristinsson
Reynir Árnason
Svanur Þorsteinsson
Sveinn Sveinsson
Þórður J. Óskarsson
60 ára
Alexander Kristjánsson
Ásta Sigríður Sigurðard.
Hafdís Jóna Stefánsdóttir
Halldór Þorsteinsson
Hörður Antonsson
Jóhann Böðvarsson
Kestutis Macijauskas
Pálmi Gestsson
Ragnheiður Margrét Eiðsd.
Sólveig Arnþrúður Skúlad.
50 ára
Ása Brynjólfsdóttir
Celine Aline Mathey
Hörður Ólafsson
Jens Andrés Jónsson
Jóhannes Helgason
Óskar Gísli Óskarsson
Ragnheiður Ósk Erlendsd.
Sigríður Arna Sigurðard.
Waclaw Bus
40 ára
Benoný Kristinsson
Bjarni Ragnar Guðmundss.
Bjarni Tryggvason
Elín Björg Harðardóttir
Guðmundur Guðmundsson
Hilmar Ægir Þórðarson
Lilja Björg Sigurjónsdóttir
Marteinn Teitur Kristjánss.
Svana Björk Hjartardóttir
30 ára
Aðalheiður Ágústa Jónsd.
Casey Ronald W. Lavigne
Cátia A. Brandao Vieira
Eik Haraldsdóttir
Guðrún Magnúsdóttir
Guðrún Steinþórsdóttir
Helga María Sigurðardóttir
Josepha Katarina Thomsen
Jóhann Ingi Jóhannsson
Kristófer Ólafsson
Mariusz Andrzej Gruchala
Przemyslaw Kowal
Sigrún Guðmundsdóttir
Sigurlaugur G. Jósefss.
Simona Paula Atomei
Steffi Meisl
Steinþór Freyr Steinþórss.
Steinþór Jón Gunnarsson
Valur Már Valmundsson
Til hamingju með daginn
40 ára Lilja er Reykvík-
ingur og er nemi í hjúkr-
unarfræði við HÍ.
Maki: Halldór Örn Þor-
steinsson, f. 1969, fram-
haldsskólakennari í
Hringsjá.
Börn: Alexandra Mist, f.
1998, Helga Karen, f.
2008, Emma Sóley, f.
2009, og Ísak Logi, f.
2016.
Foreldrar: Sigurjón Har-
aldsson, f. 1956, og Sig-
rún Árnadóttir, f. 1958.
Lilja Björg
Sigurjónsdóttir
30 ára Aðalheiður Ágústa
ólst upp í Múla 2 í Aðaldal
en býr á Akureyri, er með
BA í félagsfr. og diplóma í
geðheilbrigðisfræði.
Maki: Sigmundur Birgir
Skúlason, f. 1982, íþrótta-
kennari í Naustaskóla.
Börn: Heiðar Ingi, f. 2012,
og Fannar Atli, f. 2014.
Foreldrar: Jón Jóhannss.,
f. 1945, d. 2005, og Ragn-
heiður Pálsdóttir, f. 1958,
fósturfor: Aðalgeir Karls-
son og Guðný Gestsdóttir.
Aðalheiður Á.
Jónsdóttir
30 ára Eik fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Sussex-skíri á Englandi
en býr núna í Kópavogi.
Hún er lífvísindafræð-
ingur og er verkefnastjóri
hjá hugbúnaðarfyrirtæk-
inu Wuxi Nextcode.
Foreldrar: Haraldur Er-
lendsson, f. 1956, forstjóri
Heilsustofnunarinnar í
Hveragerði, og Svanhildur
Sigurðardóttir, f. 1945,
myndhöggvari. Þau búa í
Kópavogi og Hveragerði.
Eik
Haraldsdóttir
Thecla Munanie Mutia hefur varið
doktorsritgerð sína við Líf- og um-
hverfisvísindadeild Háskóla Íslands.
Ritgerðin ber heitið: Áhrif losunar efna
frá jarðvarmavirkjunum á landvistkerfi
við mismunandi loftslagsskilyrði (The
impacts of geothermal power plant
emissions on terrestrial ecosystems
in contrasting bio-climatic zones).
Leiðbeinendur eru dr. Ingibjörg
Svala Jónsdóttir, prófessor við Líf- og
umhverfisvísindadeild Háskóla Ís-
lands, og dr. Þráinn Friðriksson, jarð-
efnafræðingur við ÍSOR og orku-
sérfræðingur við ESMAP-verkefni.
Markmið doktorsverkefnisins var að
kanna áhrif efnalosunar á landvistkerfi
við jarðvarmavirkjanir við líffræðilega
mjög ólíkar aðstæður, þ.e. í Kenýa og á
Íslandi. Ríkjandi plöntutegundir um-
hverfis virkjanasvæðin, Tarchonant-
hus camphoratus runni í Kenýa og
Racomitrium lanuginosum mosi á Ís-
landi, voru notaðar sem líffræðilegir
vísar og styrkur brennisteins, arsens,
bórs, antimons og kvikasifurs mældur
í þeim og í jarðvegi í mismunandi fjar-
lægð frá virkjununum í stefnu ríkjandi
vindátta. Vöxtur og heilbrigði plantna
voru einnig könnuð í sömu fjarlægðum
til þess að meta möguleg áhrif er
tengjast jarðvarmavirkjunum. Einnig
voru gerðar staðl-
aðar tilraunir þar
sem áhrif brenni-
steinsvetnis á vöxt
og heilbrigði teg-
undanna tveggja
voru könnuð. Nið-
urstöður vett-
vangsrannsókna
og tilrauna benda
til þess að brennisteinsvetni, eitt
meginefnið sem losað er frá jarð-
varmavirkjununum, safnist fyrir í
plöntum og jarðvegi. Styrkur snefi-
lefnanna arsens, bórs, antímons og
kvikasilfurs í plöntum og jarðvegi
benti hins vegar ekki til þess að þau
mætti rekja til losunar frá virkjun-
unum. Við orkuverin í Olkaria í Kenýa
komu fram fremur veik en neikvæð
áhrif á vöxt og heilbrigði runnans Tarc-
honanthus camphoratus. Þessi áhrif
voru hins vegar merkjanleg á mosann
við íslensku orkuverin við Hengil. Til-
raunir sýndu að bæði í Kenýa og á Ís-
landi virðist styrkur H2S sem nemur
30 μg/l í vatnslausn (10,96 ppm í
lofti) vera efri þolmörk fyrir tegund-
irnar tvær. Þessar niðurstöður leggja
mikilvægan grunn að umhverfisvöktun
og við stjórn jarðvarmaorkuvera bæði
í Kenýa og á Íslandi.
Thecla Munanie Mutia
Thecla Munanie Mutia er fædd í Mombasa í Kenýa. Hún hlaut BSc-gráðu í um-
hverfisfræði frá Egerton University í Kenýa árið 2007 og lauk MS-gráðu í um-
hverfisfræði frá sama skóla árið 2011. Hún stundaði nám við Jarðhitaskóla SÞ á
Íslandi árið 2010. Hún hefur starfað sem umhverfisfræðingur við jarðvarmaorku-
fyrirtækið Geothermal Development Company Ltd. í Kenýa frá 2009.
Doktor