Morgunblaðið - 02.10.2017, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 2017
kranar &
talíur
STAHL kranar og talíur frá
Þýskalandi eru áreiðanlegir
vinnuþjarkar sem auðvelda
alla vinnu. Kranarnir og
talíurnar
eru í hæsta gæðaflokki þar
sem öryggi og góð ending
eru höfð að leiðarljósi.
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu óhræddur við að opinbera hug-
myndir þínar því þér gæti verið fengur að
þeim. Gefðu þér tíma til að rækta líkama og
sál því allt veltur á jafnvægi þar í milli.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekkert koma þér á óvart í dag.
Sérstaklega þegar einhver reynir á sjálfsálitið
hjá þér. Brýndu raustina og segðu hvað þér
finnst, því þú hefur líklega rétt fyrir þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú eigir erfitt með að hemja
tilfinningar þínar geturðu haft stjórn á þeim.
Brettu nú upp ermarnar og láttu sem flesta
heyra frá þér í síma eða með tölvupósti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt fjármálin séu þér ofarlega í huga
skaltu ekki láta þau ná svo miklum tökum á
þér að þú hafir ekkert annað að tala um.
Náðu aftur sambandi við þá sem þú hefur
saknað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eitthvað verður til þess að róta upp í
gömlum tilfinningum svo þú þarft að koma
þér í jafnvægi aftur. Notaðu eigin dómgreind
og fylgdu hjarta þínu er taka þarf ákvörðun.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Oftast fyllistu ekki valkvíða, en val-
kostirnir eru nú svo girnilegir að þú verður að
hugsa þig vel um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að velja þá sem þú umgengst af
meiri kostgæfni. Vandinn er bara að velja og
hafna. Þú getur ekki bætt samband þitt við
vin þinn með því að breyta honum/henni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þess að ganga ekki of
langt í þrjósku í samskiptum við aðra því að
það gæti valdið óbætanlegum skaða.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert staðráðinn í því að fara
þínu fram, sama hvað það kostar. Þér kann
að finnast þú umsetinn svo þú eigir erfitt
með að gera nokkurn skapaðan hlut.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú skapast stund til þess að taka
til hendinni heima fyrir. Ef það er valdabar-
átta á milli framans og vinanna, leyfðu þá
vinunum að vinna.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Reyndu að gera öllum eitthvað til
góða en láttu það ekki hafa áhrif á þig þótt þú
getir ekki bjargað öllum. Þetta getur orðið
skemmtilegur dagur hjá þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú nýtur þess að ræða við vini þína í
dag, ekki síst vinkonur. Heima fyrir er einhver
sem elskar þig en getur ekki alltaf sýnt það.
Þú hefur haft yfrið nóg að starfa að und-
anförnu en sérð nú fram á að eiga tíma af-
lögu fyrir sjálfan þig.
Út af skoðanakönnun MMR yrkirDavíð Hjálmar Haraldsson:
Þótt könnunin sé kannske frekast leikur
á kimum sálar þekkingu hún eykur
og sannar það er sumir hafa talið;
7% af þjóðinni er galið.
Sr. Skírnir Garðarsson rifjar á
Leirnum upp limru, sem hann gaf
Grétari bónda og hagyrðingi á
Hávarsstöðum Jónssyni um árið:
Fjárbóndinn finnur sinn staðal,
hann fílar sig hreint eins og aðal,
hann hokrar með kindur,
og hrútinn sinn bindur,
við hásingu traktors, – með kaðal.
Skírnir þóttist sjá hrút bundinn
við dráttarvél á meðan bóndi hafði
skroppið í kaffi og sendi vísu Ólafi
kunningja Pálssyni, bónda í Saurbæ
í Holtum:
Fjár- þú góður -festir ert,
flestan slaginn tekur,
en húsfreyja þín hnakkakert,
á hælúx rauðum ekur.
Skírnir segir frá því, að þegar
hann var sauðfjárbóndi var enginn
hrútur á heimilinu nema sumr-
ungur ónothæfur. Páll nágranni
hans, ágætur drengur og sauð-
fjárbóndi, taldi þetta siðferðilega
spurningu fremur en praktíska, en
lánaði Skírni svo gamlan hrút,
svona uppá kunningsskap. „Það
tryggir gæðin,“ sagði Páll.
„Gamlan hrút ég get þér léð,
ég gjarna hjálpa vil.“
Höfðingjar vel hugsa um féð,
þeir hleypa gömlum til.
„Þessi vísa var það eina sem Palli
hafði uppúr því krafsi,“ lýkur
Skírnir sögu sinni.
Páll Imsland víkur einnig að
sauðfjárbændum „á dimmri nóttu“:
Fram kom í fréttunum stórmál
og fannst reyndar sumum þó smámál.
Í blöðum er gargað
að bændum sé fargað,
svo ráðleysa ríki um fjármál.
Það er komið hausthljóð í Ingólf
Ómar:
Falla lauf og fölnar reyr
flögra í hringi þrestir.
Vankaðir nú virðast þeir
vel af berjum hresstir.
Svo að Sigrún Haraldsdóttir fór
að gá út um gluggann eins og Óm-
ar:
Úr glugga mínum glöggt má sjá
greinar trjáa niður slúta
og framandlega fjúka hjá
foktjónaða labbakúta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af skoðanakönnunum
og sauðfjárbúskap
„LEYFÐU MÉR AÐ SVARA ÞÉR SÍÐAR. ÉG
VIL ALLTAF FÁ MEIRA EN EITT TILBOÐ.“
„SANDRA, GÆTIRÐU RÉTT MÉR
ELDHÚSRÚLLU?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... yndislegi
heimavinnandi
eiginmaðurinn þinn!
ÉG HEF VERIÐ AÐ ÆFA
MIG FYRIR LEIKHÚSIÐ
DRAMATÍSK
PÁSA!
HVERSU
HEIMSKU-
LEGT
ÁTTI ÉG EKKI AÐ DEILA
PERSÓNULEGUM UPPLÝSINGUM
MEÐ BARÞJÓNINUM?
NEI, NEI, FÓLK
GERIR ÞAÐ ÖLL-
UM STUNDUM
GOTT! ÞVÍ ÉG SAGÐI HONUM ALLT
AF LÉTTA UM VANDAMÁLIN ÞÍN!
Fimmtudagur. Unglingnum varskutlað í skólann í bítið en um
klukkan átta á morgnana er nánast
samfelld bílalest alveg frá Grafar-
holti og niður að Snorrabraut, fyrir
utan stöppuna á Reykjanesbraut og
Kringlumýrarbraut. En allir komast
í áfangastað að lokum og satt að
segja er umferðin í morgunsárið
svolítið skemmtileg; að sjá daginn
verða til þar sem hver gengur til
sinna skyldustarfa, sem er undir-
staða þess að þjóðfélagið virki.
x x x
Föstudagur. Um kvöldið kom Vík-verji með áætlunarflugi utan af
landi, hvaðan var flogið ofan skýja
mestan hluta leiðarinnar. Rétt aust-
an við Reykjavík kom flugstjórinn
niður úr skýjunum og þá blasti við
sannkölluð ljósaborg. Fjölförnustu
vegirnir upplýstir með ótal straur-
um, beinir og breiðir og gætu verið
ósæðar mannslíkamans. Í lendingu
blöstu við Perlan og Hallgríms-
kirkja; bjartar borgir í myrkrinu.
x x x
Laugardagur. Biskupstungur í frá-bæru haustveðri. Í Vatnsvík á
Þingvöllum var lynggróðurinn bók-
staflega rauðglóandi og austur í
Laugardal mynduðu aspirnar í sín-
um gula haustlit skemmtilega and-
stæðu innan um sígrænt grenið. Af
Lyngdalsheiði blöstu Laugarvatn og
Apavatn við; speglandi blá í logninu.
Í austri djarfaði fyrir Heklu í skýja-
slæðingnum. Frábær dagur til
ferðalaga eða þess að njóta lífsins úti
í náttúrunni, að minnsta kosti var
fjöldi fólks í sumarhúsum og á ferða-
mannastöðunum.
x x x
Sunnudagur. Jeppinn var mislukk-aður í útiliti þegar einn hjólkopp
vantaði. Í umboðinu kosta slíkir
hönd og fót svo Víkverji fór að
Hólmi sem er við Suðurlandsveginn
rétt ofan við Reykjavík og vísiteraði
hinn víðfræga Valda koppasala.
Gripur sem smellpassaði á bílinn var
hendi nærri og umbeðinn var sölu-
maðurinn ekki lengi að festa kopp-
inn á felguna og það með flötum lóf-
anum. Stykkið kostar 2.500 krónur
og í kaupbæti var spjall við litríkan
samferðamann. vikverji@mbl.is
Víkverji
Komið til mín, öll þér sem erfiðið og
þunga eruð hlaðin, og ég mun veita
yður hvíld
(Matt 11:28)