Ægir - 01.04.2017, Side 10
10
„Námið hefur opnað mér ótalmargar dyr, ég er óhrædd við að taka
áskorunum og henda mér í djúpu laugina. Það er gaman að takast
á við krefjandi verkefni og ég legg mig alla fram um að leysa þau
vel af hendi,“ segir Unnur Inga Kristinsdóttir sem útskrifast sem
sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri nú í júní. Unnur,
sem er fædd árið 1989, ólst upp í Hrísey og segir það aldeilis hafa
verið frábært að alast upp í litlu sjávarþorpi þar sem börnum lærist
fljótt að sætta sig við það sem í boði er hverju sinni og meta fólk
eins og það er.
Keppnisandinn réð ríkjum í
beitningaskúrnum
„Við lærðum að búa til okkar
eigin afþreyingu. Fótbolti, sund
og leikir af öllu tagi á opnum
svæðum voru vinsæl iðja, þá
veiddum við marhnúta, krabba
og krossfiska. Tengslin við sjáv-
arútveginn myndast strax en
svo til allir í minni fjölskyldu
hafa unnið við greinina. Ég byrj-
aði 12 ár gömul að vinna fyrir
mér, fyrst í bæjarvinnunni á
sumrin en beitti línu eftir skóla
og um helgar á veturna og var
fljót að ná tökum á beitning-
unni. Á kannski ekki langt að
sækja þann hæfileika, amma
Eygló og pabbi minni voru vel
liðtæk og beittu línu í mörg ár.
Þegar ég var 14 ára var ég farin
að beita allt árið um kring og
tók þetta þrjá til fimm bala á
dag. Á sumrin og um helgar yfir
veturinn mætti ég í skúrinn
helst ekki seinna en klukkan 4
að nóttu og var eiginlega ekki
ánægð nema hafa tekið fimm
bala um hádegi. Ég er svo mikil
keppnismanneskja, tók aldrei
pásur á milli bala nema ef
gömlu karlarnir sem litu við í
skúrnum í kaffi buðust til að
beita á meðan ég brá mér frá.
Ég vissi nefnilega að öðruvísi
gerðist ekki neitt í balanum,“
segir Unnur.
Hún hefur töluverða reynslu
af beitningu og línuveiðum, en
vann einnig annað slagið í
frystihúsinu, hjá Útgerðarfélag-
inu Hvammi og Íslensku sjávar-
fangi, en staldraði aldrei lengi
við í einu – það vantaði alltaf
einhvern í beitninguna og var
Unnur send í verkið snarlega.
Grunnskólagöngunni lauk
vorið 2005, þegar Unnur var 16
ára gömul og flutti hún þá til
Akureyrar og hóf nám við Verk-
menntaskólann á Akureyri. Það-
an útskrifaðist hún um jólin árið
2010.
Áhugi og ástríða
„Þessi vinna í tengslum við sjáv-
arútveginn varð til þess að
áhuginn á greininni kviknaði og
leiddi mig að þeim stað sem ég
nú er á. Ég skal samt alveg við-
Unnur Inga Kristinsdóttir lýkur námi í sjávarútvegsfræði frá
Háskólanum á Akureyri
Óhrædd við að taka
áskorunum og henda sér
í djúpu laugina
Unnur fræðir grunnskólabörn um lífríki sjávar. Myndin er tekin um borð í Húna II haustið 2016.
U
n
g
t fólk
í sjá
v
a
rú
tv
eg
i