Morgunblaðið - 12.12.2017, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2017
Útlit er fyrir að vertíð skemmti-
ferðaskipa í Reykjavík á næsta ári
verði sú umfangsmesta frá upp-
hafi. Alls er gert ráð fyrir því að
hingað komi 68 skip, sem er einu
færra en í ár, en farþegar verða
umtalsvert fleiri. Komur skipanna
verða 141 talsins en voru 133 í ár.
Farþegar sem koma með
skemmtiferðaskipum til Reykjavík-
ur verða rétt tæplega 144 þúsund
talsins en í ár voru þeir tæplega
127 þúsund. Í áhöfnum skipanna
verða ríflega 62 þúsund manns.
Þegar allt er talið koma því rúm-
lega 206 þúsund manns með
skemmtiferðaskipum til Reykjavík-
ur á næsta ári.
Fyrsta skemmtiferðaskipið sem
kemur til Reykjavíkur verður
Magellan sem leggst að bryggju
föstudaginn 9. mars. Skipið kemur
alls þrisvar hingað á næsta ári.
Vertíðin hefst svo fyrir alvöru í
maí og stendur fram í september.
Síðasta skemmtiferðaskip ársins
verður Ocean Dream sem kemur
21. október. hdm@mbl.is
Aldrei fleiri gestir með
skemmtiferðaskipum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skemmtiferðaskip í Sundahöfn Nýtt met verður slegið í komum slíkra
skipa til Reykjavíkur á næsta ári ef marka má bókanir hjá Faxaflóahöfnum.
„Ég vísa alfarið á bug ásökunum um
að félagið hafi misfarið með fé,“ segir
Valgerður Jónsdóttir, formaður
stjórnar Krabbameinsfélagsins.
Greint var frá því í fréttum RÚV
um helgina að fyrrverandi yfirlæknir
félagsins fullyrti að fé sem eyrna-
merkt hefði verið krabbameinsleit
hefði runnið í óskylda starfsemi. Um-
ræddum yfirlækni, Kristjáni Odds-
syni, var nýverið sagt upp störfum.
Hann hafði gagnrýnt rekstrarfyr-
irkomulag félagsins og staðhæft að
með áðurnefndum tilfærslum á fé
sem átti að nota til skimunar hefðu
heilsufarslegir hagsmunir kvenna
verið settir til hliðar.
Valgerður segir í samtali við
Morgunblaðið að hún telji engan fót
fyrir ásökunum Kristjáns.
„Nei. Við höfum ekki fengið neinar
athugasemdir frá Ríkisendurskoðun
sem nýlega hefur farið í gegnum fjár-
mál félagsins. Það er ekki nýtt að
þessi fyrrverandi yfirlæknir gagn-
rýni félagið. Hann sat nú sjálfur sem
forstjóri í heilt ár og skrifaði undir
ársskýrslu félagsins og annað. Hon-
um hefði verið í lófa lagið að leggja
fram rök máli sínu til stuðnings.“
Hyggst Krabbameinsfélagið
bregðast við þessari umræðu?
„Það tel ég alveg víst. Við eigum
eftir að setjast niður og funda um
það.“
Grafalvarlegt mál
Kristján Oddsson gagnrýnir að
frjálsum félagasamtökum sé falið að
stjórna skimun fyrir krabbameinum,
slíkt eigi heima á stjórnsýslustigi.
Gagnrýnt er að þátttaka kvenna fari
minnkandi og yngri konur greinist á
alvarlegu stigi krabbameins. Um
70% þátttaka er meðal kvenna í
skipulagðri brjósta- og legháls-
skimun sem er undir viðmiðum yf-
irvalda.
„Þetta er grafalvarlegt mál og ég
held að það þurfi að fara fram sam-
félagsumræða um þessa þróun mála.
Það er þegar byrjuð vinna í okkar
hópi við að setja í gang áætlun til að
snúa þessari þróun við.“
Valgerður segir að öfugt við það
sem kom fram í frétt RÚV sé mikil
starfsgleði innan félagsins og spenn-
andi tímar framundan.
„Krabbameinsfélagið þurfti árum
saman að leggja til hliðar fé vegna líf-
eyrisskuldbindinga en á því fékkst
lausn síðasta daginn sem Kristján
Þór Júlíusson sat í stól heilbrigð-
isráðherra. Þá tók ríkið yfir 80% af
skuldbindingunum og allt í einu átti
félagið fé. Það var mikil breyting, 800
milljónir króna. Fyrir vikið er margt
á döfinni til að bæta þjónustuna.“
hdm@mbl.is
Telur eng-
an fót fyrir
ásökunum
Krabbameinsleit Formaður félags-
ins vísar ásökunum um óráðsíu á bug.
Segir ekki nýtt að
fyrrv. yfirlæknir
gagnrýni félagið
Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu í
gær um reynslusögur undir yfir-
skriftinni #metoo lýsti 16 ára gömul
stúlka reynslu sinni úr leikhúsi. Þar
sagði að stúlkan hefði tekið þátt í sýn-
ingu í Borgarleikhúsinu en rétt er að
atvikið sem fjallað var um gerðist í
Þjóðleikhúsinu, að því er kemur fram
á vefsíðunni tjaldidfellur.com.
Reynslusagan vísaði
til Þjóðleikhússins
LEIÐRÉTT