Morgunblaðið - 12.12.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2017
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Jóhannes Kristjánsson
bifvélavirkjameistari
lést á dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri laugar-
daginn 2. desember.
Hann var fæddur 25.
nóvember 1921 og því
nýorðinn 96 ára.
Jóhannes var frá
Syðra-Hvarfi í Skíða-
dal, sonur hjónanna
Soffíu Jóhannesdóttur
og Kristjáns Jakobs-
sonar vélstjóra. Systk-
ini Jóhannesar voru
Guðrún, Ásgeir og
Oddný Dúfa.
Foreldrar Jóhannesar fluttust til
Akureyrar fljótlega eftir að hann
fæddist. Bjó hann fyrstu árin hjá
móðursystkinum sínum á Syðra-
Hvarfi en flutti til foreldra sinna
þegar hann hóf skólagöngu.
Ungur lærði hann bifvélavirkjun
og stofnaði bifreiðaverkstæði í eigin
nafni, í félagi við föður sinn og bróð-
ur. Verkstæðið rak Jó-
hannes í áratugi við
Gránufélagsgötu á
Oddeyri, allt fram-
undir 1990, þegar hann
veiktist og settist í
helgan stein.
Jóhannes var mikill
veiðimaður; lands-
kunnur fyrir bæði
skot- og stangveiði. Þá
átti hann trillu í ára-
tugi og var ekki síðri
aflakló þegar hann reri
til fiskjar en með byssu
eða stöng.
Eiginkona Jóhannesar er Ólafía
Jóhannesdóttir, sem varð 93 ára síð-
astliðið sumar. Þau hjónin eignuðust
fimm börn; Guðmundur Páll, sem
var elstur, er látinn, en Kristján, Jó-
hannes Haukur, Sigurður og Soffía
Freydís lifa föður sinn. Jóhannes og
Ólafía bjuggu áratugum saman í
Eyrarvegi 33 á Akureyri en fluttu á
dvalarheimilið Hlíð um mitt þetta ár.
Andlát
Jóhannes Kristjánsson
Kristleifur Guðbjörns-
son, lögreglumaður og
bólstrari, lést miðviku-
daginn 6. desember síð-
astliðinn, 79 ára að
aldri. Kristleifur var
meðal fremstu frjáls-
íþróttamanna Íslands á
sjöunda áratugnum.
Kristleifur var fædd-
ur í Reykjavík 14. ágúst
1938 og ólst upp við
Bergþórugötuna. Hann
stundaði nám í bólstrun
frá 1957 hjá Bólstrun
Harðar Péturssonar og
lauk sveinsprófi 1962 frá Iðnskól-
anum í Reykjavík.
Kristleifur stundaði nám við Lög-
regluskóla ríkisins 1966-68 og starf-
aði við almenna löggæslu í Reykja-
vík til vors 2000, er hann fór á
eftirlaun.
Kristleifur var fremsti langhlaup-
ari landsins frá því síðla á sjötta ára-
tug 20. aldar og fram á miðjan þann
sjöunda, en hann keppti fyrir KR. Á
fyrrgreindum árum
setti hann 16 Íslands-
met í 2.000 m, 3.000 m,
5.000 m og 3.000 m.
hindrunarhlaupi, auk
fjölda meta í yngri ald-
ursflokkum. Stóðu
sum met hans áratug-
um saman. Hann varð
28 sinnum Íslands-
meistari. Kristleifur
tók þátt í Evrópu-
meistaramótunum
1958 og 1962. Hann tók
fram hlaupaskóna á
nýjan leik á níunda
áratugnum og setti þá nokkur met í
langhlaupum í eldri aldursflokkum.
Um árabil stundaði Kristleifur
ræktun skrautrunna og rósa.
Kristleifur kvæntist 12.11. 1960
Margréti Stefaníu Ólafsdóttur, f.
20.4. 1941, d. 21.9. 2017. Börn þeirra
eru Guðbjörn Sigfús (látinn), Gunn-
ar Ólafur, Unnur Sigurrún og
Hanna Margrét. Barnabörnin eru
níu og barnabarnabörnin eru þrjú.
Kristleifur Guðbjörnsson
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aðalvélar varðskipsins Óðins eru í
góðu lagi miðað við aldur að mati
þriggja reyndra vélstjóra sem
skoðuðu vélar skipsins í gær.
Sennilega þurfi ekki að gera mikið
svo gangsetja megi þær og sigla
skipinu á nýjan leik.
„Við kíktum í einn strokkinn
og inn í sveifarhúsið og þetta virð-
ist allt vera í fínu lagi,“ sagði Ing-
ólfur Kristmundsson vélstjóri að
skoðunarferðinni lokinni. „Skrúf-
urnar hafa ekki verið hreyfðar í
meira en tíu ár og eina vitið er að
taka Óðin í slipp og öxuldraga hann
til að ganga úr skugga um hvort
þéttingar með stefnisröri eru í lagi
eða hvort við þurfum að endurnýja
þær. Öxuldráttur kostar kannski
1,5 milljónir á hvora skrúfu.“
Með honum í för í gær voru
Halldór Friðrik Olesen, sem lengi
starfaði á hvalbátunum, en einnig
hjá Gæslunni og víðar, og Búi
Steinn Jóhannsson, sem um árabil
var vélstjóri við Búrfellsstöð. Sjálf-
ur var Ingólfur lengi á varðskip-
unum. Þremenningarnir hafa komið
að ýmsum viðhaldsverkefnum í
Óðni í sjálfboðavinnu hollvina Óðins
og eftir áramót er á dagskrá hjá
þeim að koma ljósavélum skipsins í
gang.
Leita til fjárlaganefndar
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Hollvinasamtaka Óðins,
sagði það hafa verið ánægjulegt
hversu gott ástand véla skipsins
reyndist vera. „Auðvitað væri mjög
skemmtilegt að geta gangsett vél-
arnar og siglt Óðni á nýjan leik og
það er vilji stjórnar Hollvina-
samtakanna,“ segir Guðmundur.
Hann segir að næsta verk
samtakanna sé að leita til fjár-
laganefndar Alþingis og leita eftir
tíu milljóna króna styrk vegna
slipptöku Óðins. Meðal annars
þurfi að yfirfara botn skipsins og
nú sé komið á hreint hvað þurfi að
gera við vélbúnaðinn. Þá er farið
að bera á ryðskemmdum á ytra
byrði og aðeins farið að gæta leka
inn í yfirbygginguna.
Varðskipið Óðinn var smíðað
1959 í Álaborg í Danmörku og er
lítið breytt frá því að það kom til
landsins 1960. Aðalvélar skipsins
eru frá Burmeister & Wain. Óðinn
tók þátt í þorskastríðunum þegar
landhelgin var færð út í 50 mílur
og síðar 200 mílur, en Land-
helgigæslan hætti að nota Óðin í
júní 2006.
Hollvinasamtök Óðins voru
stofnuð í október 2006 að frum-
kvæði Sjómannadagsráðs og tóku
þá við Óðni, en formlega afsalaði
ríkið sér skipinu í lok maí 2008. Í
afsali er gert ráð fyrir að um borð í
Óðni verði hægt að fræðast um
þorskastríðin. Reksturinn um borð
er hluti af Sjóminjasafninu í
Reykjavík.
Vélar Óðins í góðu
lagi miðað við aldur
Morgunblaðið/Eggert
Eins og spegill Halldór Olesen athugar vélsímann, en allt er gljáfægt og skínandi í vélarrúminu. Þar hefur ef-
laust talsvert gengið á í þorskastríðunum tveimur sem skipverjar á varðskipinu Óðni tóku þátt í.
Væri skemmtilegt að geta gangsett vélarnar og siglt á ný
Skólabræður Sjálfboðaliðarnir Búi Steinn, Halldór og Ingólfur hafa
mikla reynslu af vélum og mátu vélar Óðins í góðu lagi miðað við aldur.