Morgunblaðið - 12.12.2017, Síða 18

Morgunblaðið - 12.12.2017, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tilkynnt varum helgina,að óformlegt samkomulag hefði náðst milli Breta og Evrópusambands- ins um helstu lykil- spurningar sem snúa að útgöngu Breta úr sambandinu, hið svo- nefnda Brexit, sem ráðgert er að verði af í maí árið 2019. Viðræð- urnar hafa hingað til ekki gengið sem skyldi, en vaxandi tíma- pressa hefur sennilega skilað sínu um helgina. Í viðræðunum til þessa hefur einkum strandað á þrennu. Í fyrsta lagi þeirri upphæð sem Evrópusambandið vill að Bretar greiði, í öðru lagi hver réttindi þegna Evrópusambandsríkjanna sem búa í Bretlandi yrðu við út- gönguna og í þriðja lagi hvernig landamærin yrðu á milli Írlands og Norður-Írlands. Evrópusambandið hefur sett það sem ófrávíkjanlegt skilyrði að gengið verði frá þessum mál- um öllum, áður en hægt verði að ræða það hvernig viðskipta- samband Breta og Evrópusam- bandsins verði eftir útgönguna. Írar höfðu hótað því að beita neitunarvaldi um framhald við- ræðnanna, ef ekki hefði fengist viðhlítandi svar við landamæra- spurningunni, og vitað er að aðr- ar þjóðir, eins og t.d. Pólverjar, höfðu einnig haft miklar efa- semdir um framgang viðræðn- anna. Í Bretlandi þykir samkomu- lagið sem nú liggur fyrir nokkuð útvatn- að og jafnvel lykta af því að hin veika ríkisstjórn Íhalds- flokksins, sem hafði áður lofað því að „Brexit þýddi Brexit“, væri nú að reyna að koma sér undan því sem telja megi ókosti við Brexit. Jafnvel hefur verið talað um að lending May muni þýða „Brexit án þess að fá Brexit“ fyrir Breta, sem er auðvitað ekki það sem lagt var upp með eða lofað. Verði þetta niðurstaðan skap- ar það ný vandamál fyrir Ther- esu May, forsætisráðherra Breta, sem óvíst er að hún kom- ist í gegnum. Hennar helsta af- rek til þessa þótti hafa verið það að geta sameinað Íhaldsflokkinn um harða afstöðu til Brexit- málsins, eftir að hann hafði verið klofinn í afstöðu sinni til Evrópu- sambandsins svo áratugum skiptir. Ekki þarf mikið til að gömul átök taki sig þar upp á nýjan leik. Ljóst er að margir innan Bret- lands munu fagna því, ef það tekst að klára Brexit-samning- ana á þann veg, að það verði líkt og Bretar hafi hvergi farið. Þeir eru þó ekki síður fjölmennir sem myndu líta á það sem algjör svik við niðurstöðu kosninganna sum- arið 2016. Ólíklegt er að May muni finna hinn gullna meðalveg sem sættir báðar fylkingar þó að hún muni án efa halda áfram ákafri leit. Örvæntingarfull leit May að hinum gullna meðalvegi er ekki líkleg til árangurs} Á leiðinni út úr Brexit? Breska blaðiðGuardian segir frá því að sífellt víð- ar glitti í kröfur um sjálfstæði eða að minnsta kosti aukið sjálfstæði. Nú síð- ast er það Korsíka. Falleg eyja og hrjúf og um eilífð tengd nafni síns frægasta sonar, en Napoleon Bonaparte fæddist þar og ólst upp. Eftir síðustu kosningar hafa sjálfstæðissinnar á eyjunni krafist viðræðna við frönsk stjórnvöld um aukna sjálfs- stjórn. Sjálfstæðissinnar hlutu 56,5 prósent atkvæðanna, en flokkur Macrons forseta varð í þriðja sæti með aðeins 12,7 prósent. Blaðið segir forsetann standa frammi fyrir þeim vanda hvort bregðast eigi við af sömu hörku og nágrannaríkið Spánn eða fara mildari höndum um ósk- irnar svo illindi og ólga brjótist ekki út eins og varð í Katalóníu. Kröfur um aukið sjálfstæði hafi lengi blundað í Korsíku- mönnum en aðstæður þar eru vissulega að ýmsu leyti ólíkar þeim í Katalóníu. Það hérað er eitt ríkasta svæði Spánar og borgar verulega með sér til mið- stjórnarinnar í Madrid. Korsíka er á hinn bóginn miklum mun fátækari og mjög háð styrkjum frá stjórninni í París. Sigurvegarar kosninganna leggja því áherslu á að þeir séu ekki að krefjast þess að skilja við Frakkland og stofna sjálf- stætt ríki. Kröfur þeirra snúist einungis um að fá viðurkenndar óskir um aukna sjálfsstjórn eyj- unnar. Nefndar eru þrjár meg- inkröfur: Að korsíska verði jafn- gild frönskunni, eyjarskeggjar sem gisti frönsk fangelsi sem „pólitískir fangar“ verði náðaðir og að heimamenn fái rétt til þess að stöðva uppkaup annarra á landsvæðum á Korsíku. Þessu síðasta getur verið snú- ið að bregðast jákvætt við vegna veru Frakka í Evrópusamband- inu. Franska stjórnin vill seint viðurkenna opinberlega að hún haldi pólitíska fanga. En það skyldi þó ekki vera? Ekki hikaði stjórnin í Madrid við að fangelsa án réttarhalda þá sem voru í for- göngu fyrir sjálfstæðisbarátt- unni í Katalóníu. Sjálfstæðissinnar á Korsíku unnu stór- sigur. Þeir vilja þó ekki ganga jafnlangt og Katalóníumenn} Fæðingareyja Napoleons Í pistli mínum hérna hinn 2. desember sl. fjallaði ég um ný vinnubrögð á Alþingi. Þar setti ég fram þrjár einfaldar regl- ur fyrir stjórnarflokka; að hlusta á gagnrýni, að svara spurningum og að axla ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis. Einnig setti ég eftirlitsflokkunum eina reglu, að gera ekki úlfalda úr mýflugu eða kalla sífellt „úlfur, úlfur“. Gagnrýnin þarf að vera málefnaleg, annars hættir fólk að hlusta eða svara. Það er meira sem þarf að gera sem lýtur að hlutverki þingmanna samkvæmt stjórnarskrá. Þar sem þingmenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína þá er það hlutverk þing- manna að taka ákvarðanir um ýmis málefni sem koma fyrir þingið út frá samvisku sinni. Ef ég er sannfærður um að eitt sé betra en annað þá hlýtur það að varða samvisku mína ef ég greiði atkvæði gegn sannfæringu minni. Því miður erum við ekki alltaf það vel sett að málin séu það skýr og afleið- ingar ákvarðanna okkar þingmanna séu það fyrirsjáan- legar að við getum talið okkur sannfærð um að sú ákvörð- un sem við tökum leiði til niðurstöðu sem við erum sátt við, samviskulega. Það má nefna dæmi um leiðréttingu á lög- um um almannatryggingar þar sem villan kostaði 2,5 milljarða á mánuði og annað dæmi um nemanda í fram- haldsskóla sem getur ekki stundað námið sitt lengur vegna mistaka í lögum um útlendinga. Flest mistök má rekja til þess að flóknar breytingar eru gerðar á lögum undir lok þings. Hvorki þingmenn né um- sagnaraðilar fá tíma til þess að rýna málið til hlítar og taka upplýsta ákvörðun. Afleiðingin er að þingmenn annað hvort styðja eða hafna breytingum sem fylgja ekki samvisku þeirra. Vandamálið í hnotskurn er nokkurn veginn svona. Eina hæfnikrafa þingmanna er, sam- kvæmt stjórnarskrá, sannfæring þeirra. Það þýðir að til þess að geta tekið upplýstar ákvarðanir sem leiða til niðurstöðu sem þing- menn eru samviskulega sáttir við þá þurfa þingmenn að treysta því að fá til sín fjölbreytt sjónarmið til að vega og meta. Ef sérfræðingar fá ekki nægan tíma til þess að skila vel ígrund- aðri umsögn eða ef aðrir aðilar máls, fólkið í landinu, fá ekki tækifæri til þess að segja sína sögu, þá geta þingmenn einfaldlega ekki tekið upplýsta ákvörðun. Ef við hefðum ekki heyrt sögur þolenda kynferðisofbeldis þá værum við ekki að breyta lögum um uppreist æru. Ef við hefðum ekki heyrt þeirra hlið málsins þá væri ekki hægt að taka tillit til þeirra í breytingunni. Þó að reglurnar sem ég skrifaði um síðast séu lykillinn að málefnalegu starfi fyrir framtíðina þá er ekki síður mik- ilvægt að þingmönnum, sérfræðingum og öllum (ungum sem öldnum) sé gefið tækifæri til þess að láta í sér heyra. Þetta er ekki bara mikilvægt fyrir þingmenn og þeirra samvisku. Þetta er lykilatriðið í lýðræðislegu samfélagi. Björn Leví Gunnarsson Pistill Samviska þingmanna Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is V elta erlendra greiðslu- korta fyrstu átta mán- uði ársins var um 63% meiri en sömu mánuði ársins 2015 á núvirði. Þannig var hún 188 milljarðar þessa mánuði í ár en 115 milljarðar sömu mánuði árið 2015 á núvirði. Hagstofan hefur birt tölur fyrir kortaveltu fyrstu átta mánuði árs- ins. Ekkert lát er á vextinum. Til marks um aukninguna var velta erlendra greiðslukorta þessa mánuði alls 187,6 milljarðar, borið saman við 44,5 milljarða á núvirði þessa mánuði 2010. Það samsvarar um 322% aukningu frá 2010. Til samanburðar var velta inn- lendra debetkorta um 195 milljarðar fyrstu átta mánuði ársins. Munar því orðið aðeins 8 milljörðum á veltu þeirra og erlendu greiðslukortanna. Úr 44 í 143 milljarða króna Þetta er gífurleg breyting frá árinu 2010. Þá var velta erlendu greiðslukortanna innanlands um 44 milljarðar á núvirði en velta inn- lendu debetkortanna 143 milljarðar. Annar mælikvarði á aukna veltu erlendra greiðslukorta er að hún er orðin ríflega tvöfalt meiri en velta innlendra greiðslukorta er- lendis. Með öðrum orðum: Erlendir gestir kaupa vörur og þjónustu fyrir tvöfalt hærri upphæð en Íslend- ingar gera með kortum sínum er- lendis. Þessi staðreynd segir margt um gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Í takt við fjölgun ferðamanna Þróun kortaveltu er nokkurn veginn í takt við tölur um fjölda far- þega á Keflavíkurflugvelli. Þannig hefur brottförum er- lendra ríkisborgara frá Keflavíkur- flugvelli fyrstu átta mánuði ársins fjölgað um 344% frá 2010, úr 344,273 í 1.529.585. Velta erlendra greiðslu- korta jókst þá sem fyrr segir um 322%, úr 44,5 milljörðum á núvirði í 187,6 milljarða. Á sama tímabili hefur gistinótt- um á hótelum fjölgað um 200%, úr 965.991 í 2.908.818. Samkvæmt þessu hefur kortavelta aukist hrað- ar en gistinætur. Ber að hafa í huga að Hagstofan telur gistinætur á hót- elum sem eru opin allt árið. Hvað snertir innlenda kortanotkun vekur athygli að velta debetkorta fyrstu átta mánuði ársins var 18,7% meiri en sömu mánuði árið 2015. Velta inn- lendra greiðslukorta erlendis er 33,8% meiri þessa mánuði í ár en 2015 og 7,1% meiri í kreditkortum innanlands en þessa mánuði 2015. Velta innlendra greiðslukorta hefur því aukist meira erlendis en innan- lands undanfarið. Skráð sem netverslun Þegar Íslendingar versla á er- lendum netsíðum er það skráð sem kortanotkun erlendis. Ný debetkort bjóða upp á viðskipti á netinu. Samkvæmt Hagstofunni voru landsmenn 346.750 undir lok 3. fjórð- ungs í ár. Um 188.000 milljón króna velta af erlendum greiðslukortum fyrstu átta mánuði ársins samsvarar því að veltan sé 542 þúsund á hvern landsmann þessa mánuði ársins. Loks má geta þess að velta erlendu greiðslukortanna fyrstu átta mánuðina í fyrra var 166 milljarðar á núvirði. Hún jókst um 22 milljarða milli ára í 188 milljarða, eða um 12,9%. Erlendu kortin veltu 188 milljörðum króna Árni Sverrir Hafsteinsson, nýr forstöðumaður Rannsóknaset- urs verslunarinnar, segir að verið sé að greina umfang innlendrar og erlendrar netverslunar á Ís- landi. Áður en því lýkur sé ekki hægt að fullyrða hversu stór hluti af veltu innlendra greiðslu- korta erlendis sé vegna netversl- unar. Brottförum íslenskra ríkis- borgara frá Keflavíkurflugvelli hefur fjölgað um 112,3% frá 2010, miðað við fyrstu átta mán- uði ársins, en velta innlendra greiðslukorta erlendis aukist um 114,4%. Aukningin í brottförum frá 2015 er 38,3% en 33,8% í veltu greiðslukortanna erlendis. Virð- ist því samhengi milli aukinna ferðalaga og meiri veltu. Vegna meiri kaupmáttar fá Íslendingar meira af vörum fyrir krónuna erlendis en áður. Unnið að greiningu VÆGI NETVERSLUNAR Árni Sverrir Hafsteinsson Þróun kortaveltu á Íslandi 2010-2017 Samanlögð velta í milljörðum kr. á núvirði frá janúar til ágúst ár hvert 2010 2015 2017 Heimild: Hagstofa Íslands *Miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs frá ágúst umrædd ár og til ágúst 2017. Vísitalan hefur hækkað um 22,5% frá ágúst 2010 og um 2,7% frá ágúst 2015. Breyting 2010 2015 2017 frá 2010 frá 2015 Komur allra ferðamanna 529.745 1.172.922 2.002.397 278,0% 70,7% Brottfarir íslenskra ríkisborgara 190.838 293.083 405.231 112,3% 38,3% Brottfarir erlendra ríkisborgara 344.273 887.146 1.529.585 344,3% 72,4% Gistinætur á hótelum 965.991 1.975.410 2.908.818 201,1% 47,3% 208 194 185 90 68 42 195 165 143 188 115 44 200 150 100 50 0 Kreditkort, heimili innanlands Greiðslukort, erlendis Debetkort, heimili innanlands Erlend greiðslukort, innanlands Breyting* frá 2010: 36,6% frá 2015: 18,7% Breyting* frá 2010: 114,4% frá 2015: 33,8% Breyting* frá 2010: 12,5% frá 2015: 7,1% Breyting* frá 2010: 321,6% frá 2015: 62,9% Umferð um Keflavíkurflugvöll og gistinætur á hótelum Í janúar til ágúst 2010-2017

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.