Morgunblaðið - 12.12.2017, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2017
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Kíktu á verðið
Hlýir inniskór
Laust mjúkt
innlegg
Verð 4.995
Stærðir 36-42
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það sem þér finnst vera mistök getur
einhver annar séð sem lítið mál, eða alveg
meiriháttar vandamál. Ekki taka það per-
sónulega þó að þú sért alltaf sá sem tekur
upp tólið.
20. apríl - 20. maí
Naut Besta leiðin til að takast á við daginn er
að vinna hörðum höndum og búast við litlu
frá öðrum. Með því að leika þannig persónu
verður maður ósjálfrátt eins og hún.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt einkalífið taki sinn tíma máttu
ekki gleyma starfsskyldum þínum. Nýttu þér
lausar stundir sem gefast til þess að bæta við
þig á sviðum sem hugur þinn helst stendur
til.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér gengur óvenjulega vel í vinnunni í
dag. Njóttu þess að vera í faðmi fjölskyld-
unnar og byrjaðu svo á nýju verkefni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samræður um heimspeki, trúmál og
pólitík virðast dálítið óraunsæjar í dag. Inn-
heimtu það sem þú átt útistandandi og
komdu fjármálunum í lag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er þér í hag sem öðrum að sam-
komulag takist í viðkvæmu fjölskyldumáli.
Hugsaðu þig vandlega um áður en þú fjár-
festir í einhverju, jafnvel þótt þér finnist
nauðsyn bera til.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þetta er góður tími til að endurskoða
stefnu þína í lífinu. Allir þurfa ást og allir eru
færir um að gefa hana.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt gott með að koma fyrir
þig orði og skalt nú viðra gamlar hugmyndir
við félaga þinn. Allt sem þarf er að vera op-
inn. Vegur vináttunnar er nefnilega ekki ein-
stefnugata.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú skalt sinna málum er varða
samskipti þín og opinberra stofnana. Segðu
vinum þínum frá framtíðaráætlunum þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Bryddaðu upp á einhverju nýju til
að setja lit á tilveruna. Neikvætt fólk eitrar út
frá sér með viðhorfi sínu, en þú lætur það
ekki á þig fá. Láttu ekkert trufla áætlun þína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Allir hafa álit á því hvað þú átt að
gera. Gættu þess að stíga ekki óvarlega til
jarðar í viðleitni þinni til þess að ná árangri.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru oft einföldustu hlutir sem
vefjast mest fyrir manni. Hindranir og rifrildi
reyna verulega á samningahæfileika þína.
Ekki vera hreinstefnumanneskja.
Kerlingin á Skólavörðuholtinuskaut upp kollinum á fésbók:
Fyrir náköldum norðlægum gný
og næðingi hvergi mig fel
svo kannski er nú komið að því
að kerlingin frjósi í hel.
Af þessari ógnvænlegu frétt
spunnust umræður. Dagbjartur
Dagbjartsson:
Kerling frækin kólnar ört
kaldar brækur detta
sitthvað frækinn gæti ég gjört
en get ei lækað þetta.
Hann bætti við:
Greini ég hjá mér gáfnaskort
glöggt og lítils megna.
Þessi vísa er því ort
aðeins rímsins vegna.
Kerlingin svaraði:
Vitið smátt þér góður gaf
guð með sínum hætti,
vont er að yrkja vísu af
vilja en engum mætti.
Sá gamli:
Kuldinn reynir, kerla góð.
Það kannski hefst.
Um þig skal ég yrkja ljóð
ef þú drepst.
Kerlingin:
Sei sei, varstu að senda mér
svona væmið raus :)
vita máttu að ég er
alveg hjartalaus.
Og hún bætir við til þess gamla:
Ef að hrelld og hrollköld ég
hrekk upp af í flýti
þér leiðum sendi um langan veg
ljóð frá heitu víti.
Pétur Blöndal finnur til með
henni:
Að króknir þú má kallast hneisa,
kerling veðurbarða;
óðar þjóðin á að reisa
um þig minnisvarða!
Kerlingin svarar:
Margt þú kannt að meta og vega
mönnum öðrum betur,
í sál minni er ég sérstaklega
sammála þér Pétur.
Jón Gissurarson:
Leggir þú á lífsins haf
lýðir munu sakna þín.
Viljum síður verða af
vísunum þínum, kerla mín.
Kerlingin svarar:
Soldið hjaðnar í mér urgur,
oft það varla skeður
því bærilega bóndadurgur
bögur sínar kveður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nokkrar vísur
kerlingar og karla líka
„ÞETTA ER NOTALEGT. VIÐ TÖLUÐUM
SVO SJALDAN SAMAN Á MEÐAN ÞÚ
VARST Á LÍFI“
„TAKTU ÞÉR ÞANN TÍMA SEM ÞÚ ÞARFT.
VÉLIN FER EKKI FYRR EN EFTIR 3 MÍNÚTUR
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
... að hjálpa honum að
halda upp á stórafmælið
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HALLÓ – Ó DOKTOR LÍSA
HVAR ER
KÖTTURINN ÞINN?
KÖTTUR?
JÁ, KÖTTURINN
EINU SINNI HÉT
ÉG NAFNI
ÁHÖFNIN
ER FARIN AÐ
PÍSKRA UM
UPPREISN
HA?! ÞÉSSAR
HORRENGLUR GÆTU EKKI
BROTIÐ SÉR LEIÐ ÚT ÚR
BRÉFPOKA
HAFIRÐU EKKI TEKIÐ EFTIR ÞVÍ, HAFA ÞEIR
VERIÐ AÐ RÓA Í SEX MÁNUÐI SAMFLEYTT
Það þótti með nokkrum ólíkindumþegar ný verslunarmiðstöð,
Korputorg, var opnuð í Reykjavík
korteri eftir hrun, eða því sem næst.
Var miðstöðinni, sem gárungarnir
gáfu strax nafnið „Krepputorg“ ekki
spáð löngum lífdögum.
Einhvern veginn marðist þetta þó
og Víkverji verslaði talsvert á Korpu-
torgi, í hinum ýmsu verslunum. Allt
frá dýramatvöru upp í mublur. Mest
þó arinkubba. Nú fer ferðum hans
hins vegar óðum fækkandi enda eru
nær allar verslanirnar horfnar.
Eftir tæpan áratug hafa menn lík-
ast til komist að þeirri niðurstöðu að
Korputorg væri ekki góð staðsetning
fyrir verslun. Í stað einhverra versl-
ananna hafa komið vörulagerar, ann-
að rými stendur autt. Víkverji áttar
sig ekki alveg á þessu, Korputorg er í
mjög hóflegri fjarlægð frá fjölmenn-
ustu mannabyggðum, en kannski er
það bara vegna þess að hann ekur
þarna framhjá á hverjum degi.
Hinum megin við götuna er risa-
vaxin bygginga- og garðyrkjuversl-
un. Fróðlegt verður að sjá hvort
hnignun Korputorgs hefur áhrif á
hana.
x x x
Annars er Víkverji bara þokka-legur. Takk fyrir að spyrja!
Hann er að reyna að komast í jóla-
skapið og þegar hann heyrði óvænt í
sínum gömlu félögum Glámi og
Skrámi gabba jólasveininn upp úr
skónum á dögunum hækkaði hann
umsvifalaust í útvarpinu í bílnum. Í
aftursætinu sat átta ára gömul son-
ardóttir hans og hváði.
„Hvað er þetta?“
Glámur og Skrámur, hefur þú
aldrei heyrt í þeim?
„Nei!“
Við þau tíðindi hækkaði Víkverji
ennþá meira og leyfði laginu, öllu
heldur syrpunni, að klárast í Guðs
friði. Bar síðan upp aðra spurningu-
fyrir blessað barnið:
Hafðirðu ekki gaman af þessu?
Svarið var stutt og laggott: „Nei!“
Lærdómurinn sem Víkverji dró af
þessu er eftirfarandi: Ekki er sjálf-
gefið að allt sem virkaði á börn í hans
æsku geri það enn í dag!
Jóla hvað? vikverji@mbl.is
Víkverji
Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp
í nauðum. Því óttumst vér eigi þótt
jörðin haggist og fjöllin steypist í djúp
hafsins
(Sálm. 46:2-3)