Morgunblaðið - 22.12.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2017
Dansk julegudstjeneste
i Domkirken søndag den 24. december
kl. 15.00 ved pastor Þórhallur Heimisson.
Alle velkomne.
Danmarks ambassade.
Sjálfsvígsforvarnarsamtökin Pieta Ísland stóðu
fyrir vetrarsólstöðugöngu út að vitanum við
Skarfagarð í gær, á stysta degi ársins, til minn-
ingar um þá sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Þar gafst aðstandendum tækifæri til að rita á
vegg vitans nöfn ástvina og kveðjur sem munu
standa þar fram yfir jól og áramót. Kveikt var á
friðarkertum og átti fólk notalega stund. Kveðj-
urnar og nöfnin eru tákn um von og samstöðu
með öllum þeim sem lifa í myrkri þungra hugs-
ana og uppgjafar. Er þetta í annað skiptið sem
gangan er farin á þessum tíma árs.
Pieta Ísland stóð fyrir vetrarsólstöðugöngu út að vitanum við Skarfagarð
Morgunblaðið/Eggert
Minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fulltrúar á vinnumarkaði eru farnir
að búa sig undir endurskoðun kjara-
saminga Samtaka atvinnulífsins og
ASÍ í febrúar. Þetta hefur Morgun-
blaðið eftir öruggum heimildum.
Horft er til þess að samstaða um
samræmdar launahækkanir hafi
veikst. Ýmsir hópar fari nú fram á
„leiðréttingu“ á launum. Því haldi
menn spilunum þétt að sér. Þeir vilji
ekki vera of framarlega í röðinni.
Einn viðmælandinn sagði líkur á
meiri launahækkunum hafa aukist.
Gangi það eftir kann launaskrið að
hafa verið vanmetið, líkt og bent er á í
nýjustu Peningamálum Seðlabank-
ans, og verðbólga verða umfram spár.
Fram kom í blaðinu í gær að Gylfi
Arnbjörnsson, forseti ASÍ, telji for-
sendur kjarasamninga brostnar.
Heimild er til að taka upp samninga í
febrúar. Sigurður Bessason, formað-
ur Eflingar, segir ljóst að forsendur
kjarasamninga séu brostnar. Horft
verði til hækkana kjararáðs.
Þurrkar út fyrir aðgerðir
„Þetta er ástæðan fyrir því að allt
er upp í loft á vinnumarkaði. Sömu al-
þingismenn og hafa kallað eftir
stöðugleika hafa skammtað sér allt
aðra launaniðurstöðu. Um það er eng-
in sátt. Úrskurðir kjararáðs eru frá
tímabilinu 2006 til þessa dags. Á ár-
unum frá 2006 og fram yfir hrun var
verið að verja lægst launuðu hópana.
Með úrskurðum kjararáðs er verið að
þurrka upp allar þær sértæku breyt-
ingar sem gerðar voru.“
Sigurður tekur undir með forseta
ASÍ um að ný ríkisstjórn hafi ekki
gert nóg fyrir tekjulága. Það eigi þátt
í erfiðri stöðu á vinnumarkaði. Margt
af því sem rætt var um í aðdraganda
þessarar ríkisstjórnar komi ekki fram
í fjárlagafrumvarpinu.
„Það má nefna vaxtabótakerfið,
húsnæðis- og barnabætur og atvinnu-
leysistryggingasjóð. Því miður er
hægt að telja upp fleiri atriði sem
vantar en hafa komist til betri vegar.
Það átti að breyta skattkerfinu lág-
tekjufólki til hagsbóta. Maður fær á
tilfinninguna að ríkisvaldið sé að
geyma þessar breytingar sem skipti-
mynt í komandi kjarasamninga.“
Sigurður telur jafnframt að ekki
hafi verið staðið við skuldbindingar í
húsnæðismálum. Líkt og launaþróun
í landinu gefi það tilefni til að endur-
skoða kjarasamningana.
Horft til annarra samninga
Björn Snæbjörnsson, formaður
verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju,
segir það verða skoðað í febrúar hvort
tilefni sé til að rifta kjarasamningum.
Meðal annars verði horft til komandi
kjarasaminga. Ríkið sé sá samnings-
aðili sem hafi flesta lausa samninga.
„Staðan er ekki góð eftir nýjasta út-
spil kjararáðs,“ segir Björn og leggur
áherslu á að gífurleg reiði sé vegna
launahækkana embættismanna að
undanförnu.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segist líta svo á að kjarasamn-
ingar SA og ASÍ eigi að halda út árið
2018. Hann telur ekki tilefni til upp-
sagnar samninganna í febrúar þegar
forsendur þeirra verða metnar. Hann
rifjar upp að sameiginleg forsendu-
nefnd ASÍ og SA hafi farið yfir málið í
febrúar sl. „Nefndin komst að þeirri
niðurstöðu að kjarasamningar kenn-
ara og sveitarfélaga í nóvember 2016
hefðu ekki verið í samræmi við þá
launastefnu sem mörkuð var. Nefnd-
in taldi það vera forsendubrest. Hún
taldi þó rétt að fresta umræðu um
hugsanlega uppsögn í eitt ár og sjá til
hvort aðrir samningsaðilar féllust á
að þessir kennarasamningar yrðu
teknir út fyrir sviga,“ segir Halldór
sem telur tilefni til riftunar ekki hafa
skapast síðan.
Skilyrðin hafi haldið
Hann rifjar upp að aðilar geti sagt
upp samningunum að uppfylltum
þremur skilyrðum. Fyrsta atriðið,
sem varðar húsnæðismálin, hafi verið
efnt. Annað atriðið snúist um hvort
kjarasamningar aðila verði stefnu-
markandi fyrir önnur samningssvið.
Það þriðja varði aukinn kaupmátt
sem hafi gengið eftir.
Hvað snertir kjararáð bendir Hall-
dór Benjamín á að úrskurðir þess séu
ekki kjarasamningar og SA hafi ekk-
ert forræði á kjararáði. Forsendu-
ákvæði kjarasamninga SA og aðild-
arfélaga ASÍ snúi að launastefnu í
kjarasamningum en ekki launabreyt-
ingum utan við gildissvið kjarasamn-
inga. „Ráðið virðist farið að líta til eig-
in úrskurða sem fordæmis, sem aftur
kallar fram innbyrðis höfrunga-
hlaup,“ segir Halldór sem telur úr-
skurði ráðsins ekki forsendu riftunar.
Vilja leiðréttingu launa
Samstaða á vinnumarkaði sögð hafa vikið fyrir kröfum um „leiðréttingu“ launa
Formaður Eflingar segir forsendur kjarasamninga brostnar SA er ósammála
Ljósmynd/fjármála- og efnahagsráðuneytið
Samið Samkomulag um launaþróunartryggingu í gær (sjá rammagrein).
Hulda Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin sem
forstjóri Helgeland-sjúkrahúsanna í Noregi en
hún var ráðin þangað formlega í gær.
Í samtali við Helgeland-blaðið segist Hulda
afar spennt fyrir því að hefja störf á hjá Helge-
land-sjúkrahúsunum. „Ég tel það algjör for-
réttindi að hafa hlotið starf forstjóra Helge-
land-sjúkrahúsanna. Það eru mörg brýn og
spennandi verkefni fram undan sem ég hlakka
mikið til að takast á við,“ segir Hulda, sem
starfaði áður fyrir Aker-sjúkrahúsin í Ósló í
Noregi, en hún hefur verið ötull talsmaður
frekari einkareksturs í íslenska heilbrigðis-
kerfinu undanfarin ár. Hulda er menntaður
hjúkrunarfræðingur með meistaragráðu í
stjórnun og heilbrigðisþjónustu, en hún hefur
að mestu starfað í Noregi frá árinu 1989 að frá-
töldum einum mánuði sem forstjóri Landspít-
alans árið 2008. Enn hefur ekki verið ákveðið
hvenær Hulda hefur störf, en vonast er til að
hún taki við sem allra fyrst segir í tilkynningu
frá sjúkrahúsunum. aronthordur@mbl.is
Hulda
Gunnlaugsdóttir
Ráðin forstjóri norskra sjúkrahúsa
„Jólasnjór er
mjög líklegur á
Vestfjörðum og
föl yfir víða ann-
ars staðar,“ segir
Einar Svein-
björnsson veður-
fræðingur spurð-
ur út í jólaveðrið
þetta árið.
Hann segir að
milt loft sé nú á
leið norður yfir landið og að hægt
og bítandi muni kólna í veðri næstu
daga. Útlit sé fyrir snjókomu á Þor-
láksmessu um mest vestanvert
landið sem og á Suðurlandi, en lík-
ur eru á éljagangi á Suðvesturlandi
síðar um daginn.
Einar segir að kólna muni tals-
vert á aðfangadag ásamt áfram-
haldandi éljagangi fyrripart dags á
Suðvesturlandi. Þá sé ágætis veður
í kortunum víðast hvar á landinu.
„Líkur eru á snjókomu snemma
morguns fyrir norðan sem síðar
snýst upp í éljagang. Eins má gera
ráð fyrir snjómuggu á Austurlandi
til að byrja með, en hvössum vindi
og éljagangi á Vestfjörðum sem
gæti orðið til þess að færð spilltist.
Hér fyrir suðvestan verður síðan él
en rofar til þegar frá líður,“ segir
Einar sem telur að jólasnjór verði
víðast hvar, síst þó suðaustanlands,
frá Mýrdal og austur á sunnan-
verða Austfirði.
aronthordur@mbl.is
Landsmenn mega
flestir búa sig undir
jólasnjó þetta árið
Fjör Það er gaman
að leika í snjónum.
Halldór Benja-
mín Þorbergs-
son, fram-
kvæmdastjóri
SA, segir
undirritun
samkomulags
um fram-
kvæmd launa-
þróunar-
tryggingar í
gær vitna um að annað for-
senduákvæða kjarasamning-
anna hafi haldið.
Laun ríkisstarfsmanna innan
BSRB munu hækka um að
meðaltali 1,3% en laun ríkis-
starfsmanna hjá ASÍ um 1,6%
að meðaltali. Útfærsla á
hækkuninni hefur ekki verið
ákveðin.
Umrædd launaþróunartrygg-
ing byggist á rammasamkomu-
lagi aðila vinnumarkaðarins frá
október 2015. Aðilar að því eru
fjármálaráðuneytið, Samband
íslenskra sveitarfélaga, Reykja-
víkurborg, ASÍ, BSRB og SA.
Með samkomulaginu eru félags-
mönnum aðildarfélaga BSRB og
ASÍ sem starfa hjá ríki og sveit-
arfélögum tryggðar launabætur
vegna lakari launaþróunar en á
almennum vinnumarkaði.
Halldór Benjamín segir aðila
starfa áfram á grundvelli
rammasamkomulagsins. Á þann
veg hafi kjarasamningarnir ver-
ið stefnumarkandi og annað for-
senduákvæðið gengið eftir.
Fá 1,3-1,6%
hækkun
SAMNINGAR UNDIRRITAÐIR
Halldór Benjamín
Þorbergsson