Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.12. 2017
Von á svipuðum fjölda 2018
Það er ljóst að það eru fleirinúna á flótta heldur ennokkru sinni áður í sögu
mannkyns og fátt sem bendir til þess
að það muni minnka. Við erum að
fást við þennan vanda víða. Verkefnið
hér á Íslandi er viðráðanlegt, innviðir
hér eru sterkir. Það þarf að halda
áfram að sinna málum vel og laga það
sem þarf að laga. Það er von fljótlega
á hópi kvótaflóttafólks en við sinnum
öllum hælisleitendunum,“ segir Ás-
hildur Linnet verkefnastjóri hælis-
leitenda hjá Rauða krossinum.
„Svo fyrir þá sem fá alþjóðlega
vernd bjóðum við upp á leiðsögu-
mannakerfi og þá fær fólk sjálf-
boðaliða sem styður við það fyrsta
árið hér á landi.“
Áshildur segist búast við svipuð-
um fjölda hælisleitenda á næsta ári
og kom hingað 2017.
„Það er ekkert sem bendir til þess
að það verði aukning en heldur ekk-
ert sem bendir til þess að það dragi
úr því, en það þarf ekkert mikið að
gerast til þess að það breytist,“ segir
Áshildur.
Neðst í goggunarröðinni
Oft gengur erfiðlega að finna hús-
næði fyrir flóttafólk sem komið er
með alþjóðlega vernd.
„Það er mikil áskorun því það er
mikil samkeppni á húsnæðismark-
aðinum og flóttafólk stendur höllum
fæti; þau tala ekki tungumálið,
þekkja ekki samfélagið og lenda því
kannski neðst í goggunarröðinni í
þeirri samkeppni. Það er á ábyrgð
félagsþjónustunnar að hjálpa við að
finna húsnæði en leiðsögumaðurinn
er síðan hugsaður sem viðbót við líf-
ið, við þá aðstoð sem er fyrir í boði.“
Að finna týnda ættingja
Áshildur segir mörg verkefni vera á
dagskrá nú sem endranær en á döf-
inni er að efla leitarþjónustuna en í
gegnum hana geta flóttamenn og
hælisleitendur oft fundið týnda ætt-
ingja og komið á sambandi við fjöl-
skylduna sem ef til vill varð eftir á
flóttanum frá heimalandinu.
„Við erum að setja enn meira púð-
ur í að kynna fyrir fólki leitarþjón-
ustu Rauða krossins til að tryggja
það að fjölskyldur komist aftur í
samband. Og viðhaldi sambandinu.
Það eru sífellt fleiri að nýta sér
þessa þjónustu. Þetta er eitt af
kjarnaverkefnum Rauða krossins
um heim allan. Fólk verður oft við-
skila við fjölskyldu sína.“
Áshildur segir hinn venjulega Ís-
lending geta lagt lið.
„Við höfum alltaf þörf fyrir gott
fólk; fólk getur haft samband og
skráð sig sem sjálfboðaliði. Það er
mjög fjölbreytt starf sem sjálf-
boðaliðar sjá um þannig að allir
ættu að geta fundið eitthvað við
hæfi. Við þiggjum það með þökk-
um.“
Tekið var vel á móti þessum
flóttamönnum frá Sýrlandi í Leifs-
stöð í fyrra. Von er á fleiri kvóta-
flóttamönnum í byrjun árs.
Morgunblaðið/Eggert
Verkefnastjóri hælisleitenda hjá Rauða krossi Íslands, Áshildur Linnet, telur að von sé á svipuðum fjölda hælisleitenda
á árinu 2018 og kom hingað allt árið 2017, eða um 1200 manns. Af þeim fengu 115 alþjóðlega vernd.
Hjá Rauða krossinum er nú
starfrækt verkefni sem fer
þannig fram að sjálfboðaliði og
flóttamaður eru paraðir sam-
an og gera þeir með sér samn-
ing um samstarf í eitt ár um
að vinna að skilgreindum
markmiðum sem flóttamaður
stefnir að. Miðað er við að
þeir eyði saman 4-6 klukku-
stundum á mánuði og er
markmiðið að flóttamaðurinn
öðlist betri innsýn í samfélagið
og byggi upp tengslanet. Jafn-
vel er honum hjálpað að finna
nám við hæfi, leita að vinnu, fá
aðstoð við að finna sér íbúð og
fá leiðbeiningar varðandi ýmis
réttindi.
Ýmis önnur verkefni tengd
innflytjendum, hælisleitendum
og flóttamönnum eru í gangi
og hægt er að kynna sér þau á
heimasíðu Rauða krossins.
Leiðsögumaður flóttafólks
Á fyrstu 11 mánuðum ársins
sóttu 1033 einstaklingar um
alþjóðlega vernd hér á landi.
Á sama tímabili veitti Út-
lendingastofnun 106 ein-
staklingum alþjóðlega vernd.
Níu einstaklingar til viðbótar
fengu dvalarleyfi af mann-
úðarástæðum.
Flestir, eða 30, eru frá Írak,
ellefu frá Sýrlandi og tíu frá
Afganistan.
Langstærsti hluti hælisleit-
anda er frá Albaníu, Georgíu
og Makedóníu, eða samtals
743. Af þeim fengu aðeins sex
alþjóðlega vernd, þar af þrír
viðbótarverndina svokölluðu.
Alls voru 228 manneskjur
sendar tilbaka til þess lands
sem þær komu frá, á grund-
velli Dylfinnarreglugerð-
arinnar. Helmingar málanna,
eða mál 529 manna, fengu
„önnur lok“.
Ríkisstjórnin samþykkti í
ágúst að bjóða allt að 55
kvótaflóttamönnum hingað
til lands á næsta ári og innan
fárra ára er stefnt að því að
tekið verði við 100 flótta-
mönnum á ári.
1033 vildu
vernd árið
2017
INNLENT
ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR
asdis@mbl.is ’
Við erum að setja enn meira púður í að kynna fyrir fólki
leitarþjónustu Rauða krossins til að tryggja það að fjöl-
skyldur komist aftur í samband. Og viðhaldi sambandinu.
Áshildur Linnet, verkefnastjóri hælisleitenda hjá Rauða krossinum.
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is