Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Blaðsíða 16
Getty Images/iStockphoto ’ Það lærir nefnilega nánastenginn af mistökum eðareynslu annarra og því miðurþarf maður að verða fyrir áföll- um sjálfur til að læra af þeim. Morgunblaðið/Golli Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu sem er að líða? „Samskipti og samtöl við fólk eru ótrúlega dýrmæt í leik og starfi. Gerum aldrei nóg af því að taka samtalið. Fjölbreytileiki ein- staklinganna með sinni blíðu, harðneskju, miskunnarleysi, sköpunargáfu og gjafmildi kemur enn á óvart og heldur áfram að þroska mann sjálfan. Hlustunin er eitt af því sem mætti vera meira af, svo ég líti nú bara á sjálfa mig. Veit að börnin mín myndu taka undir það. Lífið allt er eitt lærdómsferli sem vert er að njóta. Einnig hefur það skipt mig máli nú sem fyrr að horfa fram á við og halda áfram, sama hvað tautar og raular og glata ekki gleðinni. Hún er dásamlegur drifkraftur.“ Ef þú horfir til þess sem þú hefur upplifað, reynt og lært á árinu sem er að líða, hvert er besta ráðið sem þú gætir gefið sjálfri þér fyrir nýja árið? „Ég nefndi hlustun, mun sjálf taka meira af henni inn í næsta ár til að styrkja þann grunn með- al annars sem ég trúi á og vil tala fyrir. Ef einstaklingar halda áfram að þroskast og læra er líklegra að þeir verði sterkari, staðfastari og óhræddari til að fylgja eftir eigin sannfæringu. Þannig verða þeir frjálsari og fyrir hvern þann sem starfar í pólitík er það ómetanlegt. Að vera frjáls og óháður nýtist ekki síst mál- staðnum sem vert er að berjast fyrir.“ ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR ÞINGMAÐUR Ætla að hlusta betur LEXÍUR 2017 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.12. 2017 Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu sem er að líða? „Ég er búin að læra margt og mikið. Ég lenti í hræðilegu slysi og þurfti að vinna mig upp úr því og fékk að upplifa að vera algjörlega ósjálfbjarga í langan tíma, það kennir manni ýmislegt. 2017 var mér eflaust erfiðasta ár sem ég hef upplifað, bæði út af persónulegum og líkamlegum áföllum sem heltóku árið mitt og ég er nokkuð viss um að ég hafi þarna náð mér í gott veganesti fyrir lífið og ég er reynslunni rík- ari. Ég náði að nýta mér þessa erf- iðu tíma og skrifa bók sem von- andi kemur að góðum notum fyrir fleiri konur en mig.“ Ef þú horfir til þess sem þú hefur upplifað, reynt og lært á árinu sem er að líða, hvert er besta ráð- ið sem þú gætir gefið sjálfri þér fyrir nýja árið? „Bara að læra að meta þessa reynslu og vera jákvæð, þol- inmóð og gera mitt besta. Að vera aðeins afslappaðri yfir lífinu og leggja meira í að rækta sjálfa mig.“ ÁSDÍS RÁN GUNNARSDÓTTIR LÍFSTÍLSFRÖMUÐUR Erfiðasta ár ævinnar Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu sem er að líða? „Í ár lærði ég að hugsa um ljóðlist eins og fimleika. Hvort tveggja snýst um mýkt og styrk, hefð en um leið frumleika. Mik- ilvægast er þó að negla lend- inguna. Ef þú horfir til þess sem þú hef- ur upplifað, reynt og lært á árinu sem er að líða, hvert er besta ráðið sem þú gætir gefið sjálfri þér fyrir nýja árið? „Veistu, Gerður, allt sem veldur þér áhyggjum á eftir að fara svo miklu betur en hug- myndaflugi þínu hættir til að magna upp rétt fyrir svefninn.“ GERÐUR KRISTNÝ RITHÖFUNDUR Allt fer betur en hugmyndaflugið segir Morgunblaðið/Golli Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu sem er að líða? „Þetta var án nokkurs vafa lang- viðburðaríkasta ár ævi minnar og verkefnin miserfið og mis- skemmtileg. Við Viktoría samein- uðum fjölskyldur okkar í 83 ára gömlu húsi í Vesturbænum í vor þar sem okkur líður frábærlega. Það stendur þó upp úr að ég greindist með krabbamein í sumar en læknaðist blessunarlega af því eftir nokkurra mánaða lyfja- meðferð. Svona veikindi breyta sýn manns á lífið og klisjurnar fara að „meika sens“. Ég reyni samt að vera ekki óþolandi týpan sem segir fólki hvernig það á að meta lífið og lifa því. Það lærir nefnilega nánast enginn af mistökum eða reynslu annarra og því miður þarf maður að verða fyrir áföllum sjálfur til að læra af þeim. Sú reynsla er afar dýrmæt. Ef þú horfir til þess sem þú hefur upplifað, reynt og lært á árinu sem er að líða, hvert er besta ráðið sem þú gætir gefið sjálfum þér fyrir nýja árið? „Ég held að það sé mikilvægast að gleyma ekki þeirri lífssýn sem ég hef öðlast á árinu. Muna hvernig það er að vita að þú sért veikur en þurfa að bíða eftir niðurstöðum úr rannsóknum sem eiga að segja til um hversu alvarlega veikur þú ert. Muna léttinn sem fylgir því að heyra að þú sért ekki eins veikur og þú óttaðist. Muna að vera þakk- látur fyrir trausta vini og fjölskyldu. En muna líka að vera ekki óþolandi væminn og jákvæður og því ætla ég ekki að segja meira. Höfum bara gaman af þessu.“ SÓLMUNDUR HÓLM SJÓNVARPSMAÐUR Veikindin breyttu sýn minni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon H vert ár færir okkur flestöllum á einn eða annan hátt eitthvað nýtt í farteskið. Nýjan þroska, lærdóm, visku, við höfum komist að einhverju nýju í gegnum smærri eða stærri atvik ársins. Sum ár eru þannig að við lærum af erfiðri reynslu, önnur þannig að við lærum eitthvað í gegnum gleðilegri atvik. Sunnudagsblað Morgunblaðsins ræddi við þjóð- þekkta einstaklinga úr ólíkum áttum sem draga lærdóm ýmist af erfiðum augnablikum ársins 2017 eða léttari, all- ir eiga þeir það sameiginlegt að taka með sér einhverja nýja visku inn í nýja árið, 2018. Þau deila því einnig með lesendum hvaða ráð það eru sem þau ætla að hafa bak við eyrað á komandi ári, í ljósi þess sem þau lærðu á árinu sem er að líða. Gleðilegt nýtt ár! Hvað lærðu þau á árinu? Áramót eru tími til að líta um öxl, sjá hvað maður veit nýtt, og skoða hvað hægt er að gera betur á nýju ári. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.