Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.12. 2017 Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga, 10-14 á laugardögum Við kynnum Lífið í grænu LÍFIÐ Í GRÆNU er þróaður í samstarfi Sérefna og útgefanda bókarinnar Lífið í lit hinn fullkomna, óræða millilit VETTVANGUR Í árslok er við hæfi að velta fyrirsér framtíðinni, nánar tiltekið:Hvaða augum lítum við framtíð- ina og skiptir það máli? Sagnfræðingurinn Yuval Noah Harari segir í bók sinni „Sapiens“ að trúin á framtíðina sé mikilvægasti drifkraftur efnahagslífsins. Þetta kann að virðast langsótt en Harari færir fyrir þessu áhugaverð rök. Hann bendir á að öldum og árþús- undum saman upplifði mannkynið sáralítinn hagvöxt þrátt fyrir marg- víslega framþróun. Það sem hindraði vöxtinn var að hans mati sú stað- reynd að fólk hafði almennt ekki trú á að hagsæld myndi aukast í framtíð- inni, sem gerði að verkum að láns- viðskipti voru nær engin. Sá sem trú- ir því að kakan verði alltaf jafnstór er eðlilega tregur til að veita lán, því að augjóst er að erfitt verður að greiða það til baka af jafnstórri köku. Án lánafyrirgreiðslu var ekki hægt að ráðast í framkvæmdir eða verkefni nema greiða þær úr eigin vasa. Þetta stóð í vegi fyrir framtaki, nýsköpun og hagvexti sem aftur dró úr tiltrú á framtíðina. Sem sagt: Vítahringur. Vítahringurinn rofinn Það sem loks rauf vítahringinn og leysti vöxtinn úr læðingi fyrir um það bil 500 árum var trúin á framfarir og aukna hagsæld sem leiddi af vísindabylting- unni. Hin nýja bjartsýni losaði smám saman um lánsfé, sem stuðlaði að framkvæmdum og framtaki, sem leiddi af sér nýsköp- un, verðmætasköpun og hagvöxt, sem aftur jók bjartsýni og trú á framtíðina – og þannig koll af kolli. Þessi áhugaverða nálgun leiðir hugann að tvennu. Í fyrsta lagi hvern- ig við tryggjum að það verði áfram innistæða fyrir trú okkar á að fram- tíðin beri aukna hagsæld í skauti sér. Í öðru lagi hvaða mælistiku við setj- um á framfarir, hagsæld og lífsgæði. Hvað innistæðuna varðar er ljóst að hagvöxtur verður vitaskuld ekki drifinn áfram til lengdar af bjartsýni og lánveitingum einum saman. Við þurfum fyrr eða síðar að borga brús- ann og það gerum við með því að framleiða meiri verðmæti. Tækni- framfarir sem auka framleiðni hafa oftast vegið þyngst á metunum í því sambandi en fleira skiptir máli, til dæmis að þróa nýjar vörur og þjón- ustu og búa þannig til nýja eftirspurn. Hvernig sem á það er litið skiptir hugvit og sköpunargáfa mestu. Efna- hagslegur styrkur þjóða mun í aukn- um mæli ráðast af því hvernig þeim tekst að efla hugvit og sköpunarkraft og áhersla okkar á þessa þætti er því ekki til skrauts heldur lífsnauðsyn. Mælikvarðar lífsgæða En efnahagslegur styrkur er ekki eini mælikvarðinn á framfarir og ekki er gefið að aukin framleiðni skili sér í auknum lífsgæðum. Aðrir mælikvarð- ar skipta einnig máli. Þættir á borð við lífslíkur og heilbrigði, öryggi gagnvart glæpum og sjúkdómum, menntun, umhverfisgæði, samfélags- þátttöku, jafnrétti og lífshamingju. OECD ber þannig saman ellefu lífs- gæðamælikvarða í aðildarlöndunum og hefur hver þeirra nokkra undir- mælikvarða. Sum Evrópulönd hafa lagt tölu- verða vinnu í að skilgreina sína eigin lífsgæðamælikvarða. Í stjórnarsátt- mála ríkisstjórnarinnar er nefnt að settur verði á fót þverpólitískur hóp- ur um „þróun mælikvarða um hag- sæld og lífs- gæði“. Þetta er spennandi og gagnlegt verk- efni vegna þess að í því felst að ræða ofan í kjöl- inn hvað við telj- um að skipti mestu máli um velferð okkar og lífsgæði. Um- ræðan ein og sér er gagnleg og afurð- in mun síðan gagnast okkur til að meta árangur. Framfarir eru ekki sjálfgefnar Johan Norberg rökstyður það vel í bók sinni „Framfarir: Tíu ástæður til að taka framtíðinni fagnandi“ að heimurinn fari batnandi á flesta mælikvarða. Hann bendir á að sam- kvæmt könnunum vanmetur fólk al- mennt þessar framfarir, þekkir ekki staðreyndirnar og telur þess vegna að heimurinn fari versnandi. Að sumu leyti er það skiljanleg afleiðing af því að stríð, glæpir, slys og sjúkdómar fylla flesta fréttatíma en friður og spekt miklu síður. Norberg hvetur okkur því réttilega til að meta að verðleikum þær miklu framfarir sem hafa orðið. En hann brýnir okkur líka til ár- vekni og bendir á að það sé ekki sjálf- gefið að þróunin verði áfram í sömu átt. Ég er hins vegar hiklaust bjart- sýn fyrir Íslands hönd, því að frjálst, frjálslynt, upplýst, tæknivætt og vel menntað samfélag eins og okkar hef- ur alla burði til að vera áfram í fremstu röð. Ég óska lesendum farsældar á nýju ári og þakka samfylgdina á árinu sem er að líða. Trúin á framtíðina ’Í fyrsta lagi hvernig viðtryggjum að það verðiáfram innistæða fyrir trúokkar á að framtíðin beri aukna hagsæld í skauti sér. Í öðru lagi hvaða mælistiku við setjum á framfarir, hag- sæld og lífsgæði. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Dagur Hjart- arson skáld tísti í tilefni þess að íþróttamaður árs- ins var valinn: „Ömurlegt að við val á íþróttamanni ársins sé al- gjörlega litið fram hjá öllum þeim frambærilegu kandídötum sem stunda þjóðaríþrótt okkar Íslend- inga: vinnustaðajólahlaðborða- framhjáhald.“ Lögmaðurinn og hlaðvarps- stjórnandinn Árni Helgason tísti um vinsælustu jólagjöf landsmanna í ár: „Ég hef ákveðið að vacuum- pakka sjálfan mig og eyða árinu 2018 í potti sem Sous-vide-tækið mun halda stöð- ugum á 38 gráðum. Verður góð saga.“ Fólk gerði sér misjafnan dagamun um hátíðirnar. Uppistandarinn með meiru Bylgja Babýlons tísti um sína skemmtun annan í jólum: „Er í partíi með fimm öðrum þrítugum manneskjum. Er- um að hlusta á b.o.b.a., drekka vín og blása upp vindsæng með út- blæstrinum frá handryksugu. Segið svo að lífið hefjist við barneignir.“ Og Birna Anna Björns- dóttir rithöf- undur tísti: „Það er ákveðin tegund af hryðjuverki að tagga fólk án þess að spyrja í óflatt- erandi gamlar gelgjumyndir á fés- inu,“ skrifaði Birna Anna og bætti svo við: „Og nei, maður verður aldrei „nógu gamall“ til að finnast þetta „bara sætt“.“ AF NETINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.