Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Page 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.12. 2017 S alvör Nordal tók við emb- ætti umboðsmanns barna í sumar og hefur því feng- ið nokkra mánuði til að kynnast starfinu. Hún er skipuð til fimm ára en umboðsmaður má vera í embættinu í tíu ár líkt og tveir forverar hennar í starfi hafa gert. Það er kannski of snemmt að spyrja Salvöru hvort hún ætli að leika það eftir en það er ekki of snemmt til að forvitnast um hvernig starfið legg- ist í hana. „Ég hafði verið að hugsa um að breyta eitthvað til,“ segir Sal- vör og svarar því játandi að starfið leggist vel í hana. Hún er með annan bakgrunn en forverar hennar sem hafa allir verið lögfræðingar. Þegar starfið var auglýst var henni bent á að það krefðist ekki lögfræðimennt- unar en Salvör er doktor í heimspeki og hefur kennt siðfræði við Háskóla Íslands og var forstöðumaður Sið- fræðistofnunar. Útúr fræðilega rammanum „Í náminu einbeitti ég mér einkum að siðfræði og réttarheimspeki. Á síð- ustu árum hef ég komið að mörgum mikilvægum verkefnum, var í sið- fræðihópnum, sem vann með rann- sóknarnefnd Alþingis og var formað- ur stjórnlagaráðs. Eitt af því sem ég hafði verið að hugleiða í framhaldinu var hvernig ég gæti nýtt minn fræði- lega bakgrunn í stefnumótun og til góðra áhrifa í samfélaginu. Það er enginn málaflokkur mikilvægari og meira spennandi en sá sem lýtur að börnum,“ segir hún og bætir við að málefni barna snerti allt samfélagið. „Það er enginn málaflokkur þar sem börn koma ekki að. Samgöngu- mál, skipulagsmál, börn skipta alls- staðar máli. Skólakerfið skiptir auð- vitað mjög miklu máli en við þurfum að hafa sjónarmið barna allsstaðar. Þetta er stórt málasvið og af ýmsu að taka, mér finnst þetta afar spennandi en einnig mikil áskorun,“ segir hún. „Umboðsmaður er hluti af stjórn- kerfinu en er samt mjög sjálfstætt embætti. Það heyrir undir forsæt- isráðuneytið en sá sem gegnir emb- ættinu mótar áherslur hverju sinni. Hingað berast mörg erindi og við höf- um skyldu til að leiðbeina fólki en það er ekki þannig að fólk geti kært mál hingað. Við skerum ekki úr um ein- stök mál og tökum ekki til meðferðar persónulegan ágreining á milli ein- staklinga. Fólk getur ekki kært það hvernig einhver mál hafa farið í stjórnkerfinu. Við höfum heimild til að kalla eftir upplýsingum og metum hvað megi betur fara ef það þarf að breyta lögum eða að ákveðin máls- meðferð taki ekki tillit til barna eða eitthvað slíkt.“ Hún segir að það hafi verið rætt hvort embættið ætti að hafa úrskurð- arvald en það séu kostir og gallar við það fyrirkomulag og gallarnir væru helst þeir að það tæki svo mikinn slagkraft frá öðrum verkefnum. Kosturinn væri að geta aðstoðað börn með beinni hætti. Helsta verkefni embættisins er að standa vörð um réttindi barna en eru réttindi barna vel tryggð á Íslandi? „Ég vildi að ég gæti sagt skýlaust já en ég get það ekki. Í samanburði við margar aðrar þjóðir stöndum við vel en við þurfum að gera mun betur. Ég fagna því alveg sérstaklega að það er talað óvenju mikið um börn í stjórnarsáttmálanum og vitnað í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ég bind miklar vonir við að hags- munir barna verði settir framarlega í starfi þessarar ríkisstjórnar,“ segir hún en í stjórnarsáttmálanum segir að framfylgja þurfi ákvæðum Barna- sáttmálans, m.a. um aukin áhrif barna í samfélaginu. Þátttökuréttur mikilvægur Salvör segir að það sé mikil áhersla á það nú að öll börn hafi rétt til að tjá sig og hafa áhrif. „Það er mikilvægt að efla vitund um þennan rétt barna í okkar samfélagi,“ segir hún en eitt af því sem umboðsmaður barna gerir til þess er að starfrækja ráðgjafarhóp. Í hópnum eru unglingar á aldrinum 13 til 18 ára sem eru umboðsmanni barna innan handar með ráðgjöf um málefni barna og ungmenna og rétt- inda og hagsmunamál þeirra. Hugmyndin er að efla þetta starf og að stofnanir hafi í meira mæli ráð- gjafarhópa þar sem leitað verði sjón- armiða barna. Salvör nefnir sem dæmi að ráðgjafarhópurinn hafi átt sérlega vel heppnaðan fund með Embætti landlæknis í haust. „Ungmennin hittu landlækni, sótt- varnarlækni og fleiri starfsmenn og ræddu málefni sem snerta þau og þá fann maður hvað það er mikilvægt fyrir stofnanir að geta átt milliliða- laust samtal við ungt fólk. Við þekkj- um það í allri umræðu um lýðræði að þátttaka þarf að vera þannig að við þurfum að ná í sem fjölbreyttastan hóp barna og taka síðan tillit til þess sem þau segja. Það þarf að finna leið- ir til að koma tillögum þeirra og rödd inni í kerfið,“ segir Salvör og útskýrir að þátttaka barna efli þau. „Þau eiga að fá að segja sína skoðun varðandi umhverfi sitt. Það þroskar þau og efl- ir lýðræðisvitund þeirra og er mik- ilvægt fyrir framtíðina.“ Þarf að hlusta á börnin Rödd barna þarf að heyrast í deilum um forsjá, umgengni og búsetu. „Það þarf að hlusta á börnin, ekki bara þegar þau eru 12 eða 14 ára heldur líka yngri börn. Í Barnasáttmálanum eru engin mörk varðandi aldur, okkur ber að finna leiðir til að fá skoðanir þeirra fram og taka tillit til sjón- armiða þeirra. Það er vaxandi skiln- ingur á þessu atriði. Sem dæmi má nefna að Hæstiréttur vísaði nýlega máli um lögheimili og umgengisrétt aftur í hérað því það hafði ekki verið leitað eftir sjónarmiðum barnsins. Hér áður fyrr voru börn flutt hreppa- flutningum og ekki spurð að einu eða neinu en sem betur fer hefur það breyst. Oft hafa börn skýra hugmynd um hvar þau vilja vera og hvar þeim líður vel og á það þarf að hlusta.“ Hún segir áhrif barna vera að aukast í samfélaginu, ekki síst í skóla- samfélaginu. Samráðshópum með börnum og fullorðnum fjölgar. „Þau hafa skoðanir á skólalóðinni, matnum og tilhögun á frímínútum og alls- konar hlutum. Þetta er alltaf að koma inn meir og meir. Þetta eflir börnin og skapar betra skólasamfélag.“ Er ekki líklegra að manneskja sem elst upp við þetta samráð haldi áfram að tjá sig sem fullorðinn ein- staklingur? „Jú, ekki spurning. Við erum bæði að hugsa um að barnið hafi réttindi hér og nú vegna þess að það er sjálfstæður einstaklingur en fyrir þessu eru líka ákveðin nytjarök; að þessi áhersla muni efla barnið í framtíðinni og skila betri árangri fyr- ir viðkomandi í framtíðinni og sam- félagið til lengri tíma. Auðvitað þarf samráð að vera með réttum hætti eins og þegar verið er að tala við ung börn um erfið mál en þá þurfa sér- Salvör tók við embætti um- boðsmanns barna í sumar. Morgunblaðið/Hari Raddir barna þurfa að heyrast Mikilvæg viðhorfsbreyting er að verða til barna í samfélaginu og þátttaka þeirra á öllum sviðum er nauðsynleg, segir Salvör Nordal, nýr umboðsmaður barna. Hún segir ákveðna hópa barna hafa orðið útundan vegna togstreitu í kerfinu og að börn í leit að alþjóðlegri vernd séu í sérstakri hættu. Foreldrar verða að treysta menntakerfinu og styðja við bakið á kennurum. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is ’Hér áður fyrr voru börn flutthreppaflutningum og ekkispurð að einu eða neinu en sembetur fer hefur það breyst. Oft hafa börn skýra hugmynd um hvar þau vilja vera og hvar þeim líður vel og á það þarf að hlusta.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.