Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Blaðsíða 19
Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu
sem er að líða?
„Á árinu sem leið lærði ég að vera
þingmaður, hvaða verkfæri ég hef
sem slíkur til þess að láta gott af mér
leiða og hvernig ég upplifi mig í þessu
nýja hlutverki mínu. Mér finnst mjög
gaman að vera þingmaður og hlakka
til að læra meira. Þingmennskan er í
eðli sínu mjög fjölbreytt starf og því
fylgir ótrúlega fjölbreytt fræðsla um
allt milli himins og jarðar. Mér finnst
ég því margfalt ríkari af upplýsingum
sem og áhugaverðri reynslu eftir árið
2017.
Mikilvægasti lærdómurinn var að
sjá að hlutverk þingmanna er að ljá
öðrum rödd sína til þess að auka
áhrifamátt þeirra í valdakerfi sem
gjarnan hundsar almenning.“
Ef þú horfir til þess sem þú hefur upp-
lifað, reynt og lært á árinu sem er að
líða, hvert er besta ráðið sem þú gæt-
ir gefið sjálfri þér fyrir nýja árið?
ÞÓRHILDUR SUNNA ÆVARSDÓTTIR ÞINGMAÐUR
Ríkari af upplýsingum
Morgunblaðið/Hari
31.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Getty Images/iStockphoto
Hvað finnst þér þú hafa lært á
árinu sem er að líða?
„Þetta var ár uppskeru hjá
mér, þar sem ég fékk að njóta
og upplifa það sem ég hef unnið
að. Bæði í vinnunni og heim-
ilislífinu þar sem börnin eru
orðin aðeins stærri og svona.
Það sem ég hef því lært er hvað
maður uppsker eins og maður
sáir og mikilvægt að standa
með sér og fylgja draumum
sínum og skila af sér góðu verki
til að fara í það næsta.
Ég hafði tækifæri til að
ferðast mikið, vinnutengt og
með fjölskyldu og sá þá hvað
það er gaman að hitta fólk,
hvað við erum öll lík, sama
hvort við búum í Kína eða Ís-
landi og hvað það er mikið af
góðu fólki til.
Svo varð ég fertug og
lærði hvað mér finnst
gott að eldast og þroskast um
leið kannski pínulítið.
Ég lærði líka að sumt hefur
miklu meiri áhrif á mann en
mann getur órað fyrir. Hug-
rekki kvennanna sem stigu
fram í byltingum svo sem
#metoo og hvernig karlar og
konur byrjuðu að hlusta, þessi
stóra heimsáköllun um kúlt-
úrbreytingu litaði auðvitað ár-
ið en það sem kom mér á óvart
var hvernig ég lamaðist hrein-
lega inni í mér. Þegar ég sat
heima og las sögu eftir sögu
varð ég miður mín og hrædd og
fann óvæntar tilfinningar eins
og að vilja hreinlega næstum
stoppa þetta allt saman, í stað
þess að valdeflast. Mér fannst
svo erfitt að horfast í augu við
hvað hefur verið látið viðgang-
ast. Lærdómurinn fyrir
mig og alla er að reyna
að læra af þessum
sögum, með virð-
ingu og hlustun
að leið-
arljósi.“
Ef þú horfir til þess sem þú hef-
ur upplifað, reynt og lært á
árinu sem er að líða, hvert er
besta ráðið sem þú gætir gefið
sjálfri þér fyrir nýja árið?
„Að vera opin í því að leita
að nýjum verkefnum sem halda
mér á tánum sem listamanni,
sá góðum fræjum, hlusta á þær
hugmyndir sem koma til mín
og rækta garðinn minn, fjöl-
skylduna. Pabbi ráðlagði mér
allltaf að passa að brenna kert-
ið ekki í báða enda, ég ætla að
fara eftir því, og hlæja mikið.“
SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR LEIKKONA
Fyrstu viðbrögð komu á óvart
Morgunblaðið/Ásdís
Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu sem er
að líða?
„Tilfinningar þarf ekki að merkja. Mamma
sagði mér það, allir vita það, ég er nýbúin að
skilja þetta, tilfinningar þurfa aðallega traust.
Svo hef ég lært að heimurinn eins og hann er
er ekki börnunum bjóðandi; honum verður
að breyta mikið þeirra vegna.“
Ef þú horfir til þess sem þú hefur upplifað,
reynt og lært á árinu sem er að líða, hvert er
besta ráðið sem þú gætir gefið sjálfri þér fyr-
ir nýja árið?
„Fyrir mörgum árum gerði ég það nýárs-
heiti að geyma peningavesið í vinstri rass-
vasa og segja alltaf satt, ári síðar hugsaði ég
með mér: best að fara að plata smá en var þá
orðin háð því að segja satt. Nú veit ég að
sannleikur er flókið fyrirbæri, stundum
blekking, skraut, góð ástæða fyrir einhverju
skemmtilegu, ég get samt ekki útskýrt til-
finninguna.
Á næsta ári ætla ég að leita skilnings, þekk-
ingar, visku og fegurðar og óska mér að hitta
vitring eins og í ævintýrum - kerlingu - dverg
- í jarðhýsi með strompi á.“
KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Tilfinningar þurfa traust
Morgunblaðið/Ómar
Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu
sem er að líða?
„Ég komst að því að ég er við-
kvæmari fyrir gagnrýni en ég hafði
talið, miklu viðkvæmari, og jafnvel
óþroskaðri í persónulegum sam-
skiptum en ég hef þóst. Oft ósann-
gjarn og yfirleitt þver, sem er
ómöguleg nálgun við tilveru sem er
svotil mæralaus urð misgrárra
tóna. En ég þykist svo sem líka hafa
lært að ef ég er meðvitaður um
þetta rugl mitt og viljugur get ég
bætt mig dálítið. Kannski helling,
tíminn leiðir það væntanlega í ljós.
Ég vona það besta, sjálfum mér til
handa. Og öðrum reyndar líka, ef
ég væri spurður.“
Ef þú horfir til þess sem þú hefur
upplifað, reynt og lært á árinu sem
er að líða, hvert er besta ráðið sem
þú gætir gefið sjálfum þér fyrir nýja
árið?
„Slappaðu af, maður. Vertu ekki
svona ægilega dramatískur alltaf
hreint. Andaðu bara djúpt og hlust-
aðu. Dramatískir karlar eru til ei-
lífra vandræða, einsog skarpskyggn
vinkona mín benti mér réttilega á.
Hófleg dramatík er af hinu góða,
lofar okkur að skynja lífsmark með
okkur, en ofurviðkvæmni er full-
komlega óþolandi. Það er því mið-
ur mikilvægt að bæði hlusta og
hugsa, áður en maður byrjar að
gjamma.“
KÖTT GRÁ PJÉ, SKÁLD OG RAPPARI
Óþroskaðri en ég hef þóst
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvað finnst þér þú hafa lært á árinu sem er að
líða?
„Ég er svo lánsamur að geta ferðast út um
allan heim og þar með kynnst ólíkum þjóðum
og menningarheimum. Það sem stendur upp
úr í öllum þessum ferðalögum er hversu
heppin við Íslendingar erum að alast upp og
búa hér á landi. Það er í raun magnað hvað
litla Ísland stendur sig vel nánast á öllum svið-
um og ég vona að við berum gæfu á nýju ári til
að hrósa hvert öðru aðeins meira fyrir það
sem vel er gert og vera þakklát fyrir það sem
við höfum.“
Ef þú horfir til þess sem þú hefur upplifað,
reynt og lært á árinu sem er að líða, hvert er
besta ráðið sem þú gætir gefið sjálfum þér
fyrir nýja árið?
„Við búum í dag í síbreytilegum heimi þar
sem hraðinn er orðinn svo mikill að allt um-
hverfi okkar, heilsa og aðstæður geta breyst á
svipstundu. Það er því lykilatriði að kunna að
njóta augnabliksins og lifa í núinu með vinum
og fjölskyldu en jafnframt að halda áfram að
læra alla ævi og vera forvitinn og opinn fyrir
nýjungum.“
SKÚLI MOGENSEN FORSTJÓRI
Hrósa hvert öðru aðeins meira
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Að halda gleðinni, þakklætinu og
ástríðunni fyrir þessu frábæra starfi
sem ég hef. Að muna að ég nýt mikilla
forréttinda að fá að sinna þing-
mennsku og gleyma því aldrei að það
gætu komið kosningar á morgun.“