Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Blaðsíða 29
31.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Ég stóð á eldhúsgólfinu heima þegar ég heyrði umstöðu barna á Íslandi. Þetta var í lok janúar 2016,skýrsla Unicef á Íslandi sagði að 9,1% barnanna okk-
ar liði mismikinn skort. Ég trúði varla eigin eyrum en tók
samstundis þá ákvörðun að ef satt væri þá skyldi ég stofna
stjórnmálaflokk sem myndi útrýma fátækt á Íslandi. Þetta
voru ekki einungis tölur á blaði, þetta var satt. Ég settist
fyrir framan tölvuna og aflaði mér allrar nauðsynlegrar
þekkingar til að geta stofnað stjórnmálaflokk.
Skömmu síðar fæddist Flokkur fólksins.
Alþingiskosningar 2016
Óvænt var boðað til alþingiskosninga 29. október 2016 en
þá var Flokkur fólksins að taka sín fyrstu skref. Margt gott
fólk, hugsjónafólk, var tilbúið að leggja sitt af mörkum til
að við ættum möguleika á að bjóða fram krafta okkar í
þágu þeirra sem verst eru staddir í samfélaginu, þeirra sem
fá ekki að njóta gæðanna og hagsældarinnar sem umvefur
alla nema suma.
Skemmst er frá því að segja að við hlutum 3,5% atkvæða
á landsvísu. Það lögðu sem sagt tæplega sjö þúsund kjós-
endur traust sitt á Flokk fólksins og gáfu okkur sitt dýr-
mæta atkvæði. Ég er auðmjúk yfir allri þeirri velvild og
þeim stuðningi sem okkur hefur verið sýndur. Allt þetta
segir mér að það er þörf fyrir Flokk fólksins, blæs okkur
byr undir báða vængi.
Og þá fór ég að skæla
Ríkisstjórnin sem mynduð var eftir kosningarnar 2016
sprakk í loft upp eins og allir þekkja. Við gengum aftur að
kjörborðinu 28. október 2017.
Kosningabaráttan var stutt en hörð. Margt flaut á fjör-
una sem ég hefði aldrei látið hvarfla að mér að óreyndu að
ég ætti eftir að upplifa.
Það var kvöldið fyrir alþingiskosningarnar. Ég var mætt
venju samkvæmt ásamt öðrum leiðtogum stjórnmálaflokk-
anna í beina útsendingu á ríkisfjölmiðilinn eina sanna,
RÚV. Okkur var stillt upp í boga, hlið við hlið, standandi
þarna eins og steinrunnar styttur, starandi út í loftið á
meðan við biðum prúð eftir því að röðin kæmi að okkur til
að segja eitthvað gáfulegt, eitthvað magnað. Allt til að selja
sig og málstaðinn, allt fyrir atkvæðið. Hugsanlega allir
nema ég sem hef ekki hugmyndaflug í allan þennan póli-
tíska hráskinnaleik sem ég hef nú fengið nasaþefinn af.
Ekki það að ég hafi kært mig um að kynnast honum, en því
miður fylgir hann með í pakkanum, hvort sem manni líkar
betur eða verr.
Til beggja hliða stóðu styttur eins og ég og biðu eftir því
að röðin kæmi að þeim. Mér fannst allt í einu að þetta væru
vélmenni, eitthvað sem var ekki í neinum tengslum við
raunveruleikann og þá hugsjón sem ég var að berjast fyrir.
Þau stóðu þarna og sungu fallega, lofuðu öllu fögru hvert í
kapp við annað.
Ég áttaði mig skyndilega á því að ég trúði ekki orði af
því sem þau voru að segja. Ég fann hvernig kökkurinn
myndaðist í hálsinum og fannst ég vera að kafna. „Guð
minn góður, var ég virkilega að brotna niður í beinni út-
sendingu, nú á þessari ögurstundu,“ hugsaði ég.
Skyndilega var röðin komin að mér. Ég gat með naum-
indum stunið upp fyrstu orðunum áður en eitthvað brast og
ég fór hreinlega að skæla. Ég hafði áttað mig á því að hér
stóð ég í leikhúsi fáránleikans. Mér fannst holur hljómur
allt um kring og engin hugsjón, enginn virkilegur baráttu-
andi og vilji til að gera betur fyrir fólkið okkar. Ég fór að
hugsa til allra þeirra sem höfðu komið til okkar í baráttunni
og leitað eftir stuðningi. Þeirra sem eiga í engin hús að
vernda, til öryrkja og aldraðra sem þurfa að glíma við kerfi
sem heldur þeim í gildru fátæktar. Til fátækra barnafjöl-
skyldna sem ekki ná endum saman og eiga í erfiðleikum
með að fæða og klæða börnin sín.
Grenjað okkur á þing?
Samkvæmt skoðanakönnunum mældist fylgi Flokks fólks-
ins á landvísu ekki nema um 3,5% nokkrum dögum fyrir
kosningar. Það er skemmst frá því að segja að þegar talið
var upp úr kjörkössunum að kvöldi kjördags hafði Flokkur
fólksins tvöfaldað fylgi sitt frá árinu áður. Hann hlaut tæp
7% atkvæða í kosningunum og fjóra menn kjörna á þing.
Gárungarnir vilja meina það að ég hafi grenjað okkur á
þing, hvað svo sem þeir hafa fyrir sér í því. Staðreyndin er
hins vegar sú að við erum komin með aðgang að öflugasta
ræðustól landsins, og það í boði þeirra sem við erum að
berjast fyrir af öllu afli.
Við höfum öll sem eitt í þingflokki Flokks fólksins unnið
að því að gera okkur sýnileg á þingi. Að láta í okkur
heyra, að nýta okkur þá aðstöðu sem við nú erum komin
með.
Ég er stolt af því að segja ykkur frá því, að Flokkur
fólksins hefur ekki einungis lagt fram frumvarp til laga,
sem kveður á um það að afnema skerðingar á launatekjur
eldri borgara sem við teljum bæði réttlætis- og lýðheilsu-
mál, heldur komum við líka fram með sérstaka umræðu um
fátækt á Íslandi nú á milli jóla og nýárs. Það gladdi mig
innilega að sjá hvað umræðunni var almennt vel tekið.
Dropinn holar steininn.
Sköpum betri tíma
Ég trúi því að fyrr en seinna munum við landsmenn taka
saman höndum hvar í flokki sem við stöndum og útrýma
þjóðarskömminni fátækt saman. Því ef það er einhvers
staðar mögulegt þá er það hér í okkar ríka og gjöfula landi.
Gleðilegt nýtt ár.
INGA SÆLAND, FORMAÐUR FLOKKS FÓLKSINS
Útrýmum fátækt
’ Ég trúi því að fyrr enseinna munum við landsmenn taka saman höndum hvar í flokki sem við
stöndum og útrýma þjóðar-
skömminni fátækt saman. Því
ef það er einhvers staðar
mögulegt þá er það hér í okkar
ríka og gjöfula landi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon