Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Qupperneq 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Qupperneq 45
Þegar blaðamaður tók að spyrjast fyrir um Íslending sem hefur elst einstaklega vel þá beindust böndin fljótlega að Ellert B. Schram, for- manni Félags eldri borgara í Reykja- vík. Ellert er 78 ára en virðist spræk- ari en margir menn á þrítugsaldri. Eiginkona hans, Ágústa Jóhanns- dóttir, starfandi kennari og fyrirles- ari, varð sextug á þessu ári og því ný- orðin gjaldgeng í félagið sem Ellert er í forsvari fyrir. Hún segir að ef- laust hjálpi það til að halda Ellert ungum að hann skuli eiga maka sem er 18 árum yngri. „Það er ekki nokk- ur vafi á að það er hvetjandi, og ef ég ætti 42 ára kærasta væri ég aldeilis á tánum,“ segir hún og hlær dátt. Ellert segist aldrei hafa kviðið fyr- ir því að eldast og yfirleitt hafi hann litið svo á að með aldrinum kæmu ný tækifæri. Ef benda ætti á eitthvað eitt sem heldur Ellert hraustum þá væri það hvað hann er duglegur að hreyfa sig. Eins og lesendur vita var Ellert í fremstu röð í knattspyrnunni á sínum tíma og hann hefur stundað íþróttir og líkamsrækt alla tíð. „Eftir að ég varð of gamall fyrir fótboltann tók ég upp á því á miðjum aldri að stunda langhlaup, og eftir að líkamsræktarstöðvarnar komu til sögunnar hef ég verið duglegur að sækja þær. Undanfarin fimmtán ár hef ég síðan mætt samviskusamlega á golfvöllinn yfir sumartímann,“ seg- ir Ellert og kveðst að jafnaði stunda líkamsrækt þrisvar til fjórum sinnum í viku yfir veturinn. Reynslunni ríkari Þegar hann er spurður hvort eitt- hvað sé farið að gefa sig nefnir Ellert að helst sé minnið tekið að ryðga. Vandinn sem um ræðir er þó eitthvað sem fólk á öllum aldri kannast við: „Þetta lýsir sér helst í því að ég hitti fólk á förnum vegi og heilsa því, en get ekki munað hvað viðkomandi heitir eða hvenær við hittumst síðast. Kannski er þetta bara afleiðing af því að þekkja of marga,“ segir Ellert glettinn. Það vegur á móti nokkrum minni- háttar gloppum í minninu að Ellert hefur þroskast með aldrinum. „Þeg- ar ég var yngri átti ég það til að vera fljótur að láta hlutina fara í taug- arnar á mér og bregðast við á ókurt- eisan hátt. Með árunum held ég að ég hafi náð tökum á þessum bresti, og lífið hefur kennt mér að maður á ekki að vera að röfla og kvarta eða vera langrækinn.“ Ellert bætir því við að miklu máli skipti fyrir aldrað fólk að halda áfram að vera virkt félagslega, láta gott af sér leiða og takast á við fjöl- breytt verkefni sem halda huganum skörpum. Þetta gerir Ellert m.a. með því að vera virkur í starfi Félags eldri borgara í Reykjavík, liggja yfir krossgátum, spila bridge, sitja yfir skrifum og lestri, og með því að rækta tengslin við vini og vanda- menn. „Mér þykir það nauðsynlegt að fá að taka áfram þátt í samfélag- inu, vera innan um annað fólk, vera með og láta til mín taka, hjálpa til, hafa nógu mikið að gera og hafa eitt- hvað að hlakka til sérhvern dag. Svo má ekki gleyma gleðinni.“ Hrukkur eru aukaatriði Ágústa bætir við að það skipti líka máli að hugsa vel um útlit og um- hirðu, og ljóstrar hún því upp að hún þurfi stundum að reka á eftir Ellert að endurnýja hjá sér jakka og skyrt- ur, svo hann tolli í tískunni og sé huggulega til fara. Hún segir að íþróttaiðkunin tryggi að Ellert sé alltaf hreinn og strokinn. „Stundum getur það gerst með aldrinum að geta og færni til að halda sér hrein- um og fínum minnkar hjá okkur. Það er alltaf mikilvægt, hvort heldur við erum unglingar eða fullorðin að huga vel að líkamanum, halda honum hreinum og ilmandi.“ Óhætt er að segja að árin hafi líka farið vel með Ágústu og grunar hana að skýringin kunni m.a. að vera sú hvað hún er dugleg að bera á sig krem sem næra húðina. „Það er líka mikilvægt að velja gleðina, hlæja, gleðjast og njóta þess að gefa af sér. Ég er svo lánsöm að kenna bæði ung- lingum sem og fullorðnu fólki og þar fæ ég hvatningu til að vera glöð, gefa af mér og njóta þess að vera í sam- skiptum við aðra. Það er lykilatriði í því að lifa lífinu lifandi.“ Hún bætir við að hrukkurnar séu alls ekki eitthvað til að skammast sín fyrir. „Ég er virk í kvennakórnum Vox feminae og Óperukór Reykja- víkur og finnst konurnar þar afskap- lega sætar komnar yfir sextugt og sjötugt, þó að nýjar hrukkur bætist við með hverju árinu. Hrukkur skipta í raun engu máli, en aftur á móti er mikilvægt að bera sig vel, hafa ákveðna reisn og spara ekki brosið.“ ELLERT SCHRAM OG ÁGÚSTA JÓHANNSDÓTTIR LUMA Á NOKKRUM GÓÐUM RÁÐUM UM HVERNIG MÁ ELDAST MEÐ REISN Lykilatriði að vera virkur Fegurðardrottningar keppa um titilinn Ms. Senior America í New Jersey í október. Ágústa segir hrukkur ekki skipta máli en mikilvægt að bera sig vel. Morgunblaðið/Ásdís Ellert B. Schram Ágústa Jóhannsdóttir 31.12. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 Kaupfélag Skagfirðinga óskar starfsfólki, félagsmönnum, viðskiptavinum svo og landsmönnum öllum velfarnaðar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Kaupfélag Skagfirðinga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.