Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Page 60
Janúar
Þegar enginn vildi spila fyrir
Trump
Fátt annað komst að í byrjun árs en yfirvof-
andi upphaf embættistíðar Donalds Trump.
Að venju var skipulögð heljarinnar vígsluhátíð
í byrjun janúar en það reyndist þrautin þyngri
að fá tónlistarfólk til að taka þátt í athöfninni.
Meðal þeirra sögð voru hafa hafnað Trump
voru Andrea Bocelli, Elton John, Céline Dion,
Kiss, og Moby en listinn er mikið lengri. Að
lokum tókst þó að fylla dagskrána en þekkt-
ustu listamennirnir sem fram komu voru
kántrísöngvarinn Toby Keith og hljómsveitin
3 Doors Down sem þekktust er fyrir lagið
„Kryptonite“ frá árinu 2000.
Annars hugar kærasti
Vinsælasta „meme“ ársins, „Distracted boyfri-
end“, lét fyrst á sér kræla í janúar. Fremst á
myndinni er rauðklædd kona en fyrir aftan
hana maður sem dáist að henni við mikla
hneykslan samferðakonu sinnar. Myndin hef-
ur getið af sér óteljandi endurtekningar þar
sem hverjum leikmanni í sögunni er gefið nýtt
nafn. Þannig hefur kærastinn verið æskan að
renna hýru auga til sósíalisma á meðan kapít-
alisminn horfir hneykslaður á en einnig köttur
að dást að pappakassa á meðan dýra og flókna
leikfangið situr eftir með sárt ennið.
Nathan Heller, hjá The New Yorker, segir
grínið hafa verið sérlega viðeigandi á árinu
2017. „(…)Gleðin við annars huga kærasta
meme-ið var ekki ólík þeirri pervertísku
ánægju sem kærastinn sjálfur upplifir,“ skrif-
ar Heller. „Það leyfði Bandaríkjunum að beina
athygli sinni frá mun mikilvægari skuldbind-
ingum.“
Febrúar
Með tvíbura í farteskinu
Fræg pör áttu miklu barnaláni að fagna á
árinu en engar fréttir vöktu þó jafn mikla at-
hygli og tvíburatilkynning Beyoncé Knowles
sem smellti myndum af sér á nærklæðunum á
alnetið í febrúar. Litir og uppstilling mynd-
arinnar bera augljósa vísun í myndir af Maríu
mey frá tímum endurreisnarinnar, en líklega
var það þó fremur framstæður magi R&B
drottningarinnar sem gerði myndina að þeirri
vinsælustu frá upphafi á Instagram, með yfir
11 milljónir „læka“. Þau Rumi og Sir fæddust
svo í júní.
Óskarsklúðrið mikla
Aðstandendur kvikmyndarinnar La La Land
voru komin langleiðina í gegnum þakkarræð-
urnar eftir að hafa unnið Óskarinn fyrir bestu
kvikmynd ársins þegar það kom í ljós að alvar-
leg mistök höfðu átt sér stað. „Þetta er ekki
grín, Moonlight vann fyrir Bestu kvikmynd
ársins,“ tilkynnti Jordan Horowitz, framleið-
andi La La Land, af sviðinu og salurinn saup
hveljur.
Í ljós kom að Warren Beatty hafði fengið
rangt umslag afhent þegar hann steig á svið til
að kynna verðlaunin ásamt Faye Dunaway.
Endirinn var svo sannarlega ævintýralegur,
ekki síst fyrir þær sakir að Moonlight fjallar
um reynsluheim samkynhneigðs svarts
drengs, en slíkar sögur eru bæði sjaldséðar og
sjaldverðlaunaðar í Hollywood.
Mars
Stolinn samfestingur – stolin hjörtu
Söngvakeppni sjónvarpsins sá landanum fyrir
góðri skemmtun og að venju stóð einnig styrr
um búninga kynnanna. Í þetta sinn voru það
þó ekki fegurðarstaðlarnir einir sem rætt var
um. Eitt kvöldið klæddist Ragnhildur Stein-
unn nefnilega samfestingi, í hönnun Elmu
Bjarneyjar Guðmundsdóttur, sem þótti aug-
ljós eftirmynd af samfestingi úr vor- og sum-
arlínu hátískumerkisins Balmain.
Auðvitað var þó tónlistin í fyrirrúmi. Svala
Björgvins og lagið „Paper“ fóru alla leið í
Eurovision fyrir Íslands hönd en annar kepp-
andi söng sig þó einnig inn í hug og hjörtu
áheyranda. Hinn geðþekki Daði Freyr Pét-
ursson hefur ekki slegið slöku við síðan heldur
dælt út lögum, ábreiðum, vefþáttum og al-
mennri gleði.
Apríl
Saga þernunnar
Sjónvarpsþættirnir The Handmaid’s Tale,
sem byggðir eru á samnefndri skáldsögu
Margaret Atwood, hófu göngu sína í apríl.
Þættirnir segja frá dystópískum veruleika í
náinni framtíð þar sem strangtrúaðir aðilar
hafa tekið völdin og titilpersónurnar, þern-
urnar, hafa verið hnepptar í kynlífs- og
barnsburðarþrældóm. Þættirnir vöktu sam-
stundis gríðarlega athygli, ekki síst sökum
þeirrar staðreyndar að efnistökin þóttu ríma
óþægilega vel við blákaldan veruleikann.
Þannig skrifaði Moira Weigel
t.d. fyrir The New Yorker:
„(...)nú þegar það eru menn
við völd sem tala tungu-
mál ódulins kvenhaturs,
og nota trúarlegar hug-
myndir til að réttlæta
höft á líf kvenna, sjá
aðdáendur söguna
sem mótmælatákn.“
Þáttaröðin var valin
besta dramaþáttaröð
ársins á Emmy verð-
laununum og er hún
einnig talin sigur-
strangleg á Golden
Globe verðlaununum í
janúar.
Þegar Pepsi lagaði
kynþáttamisréttið
Þið þekkið söguna. Kylie
Jenner er að pósa fyrir
tískumyndatöku í óskil-
greindri dyragætt – bara enn
einn stífmálaður þriðjudag-
urinn – þegar mótmælendur
koma marserandi framhjá.
„Hvað er í gangi, hugsar hún,
hlessa á tilstandinu. Ungur
Eitt sinn þótti flott að brjóta internetið en hetjur ársins, samkvæmt Time, brutu hinsvegar þögnina.
Olnboganum á forsíðu tímaritsins er ætlað að tákna þá þolendur sem enn hafa ekki stigið fram.
AFP
Epalhommar,
vondar píur og
gosdósin góða
Það er ógerningur að ætla að fara í smáatriðum yfir árið í
poppkúltúr svo hér verður hundavaðið að nægja, frá Trump-
tónleikum í upphafi árs til #metoo-byltingar við lok þess
Anna Marsibil Clausen anna_clausen@berkeley.edu
Óskarsverðlaunin fengu á
sig farsakenndan blæ þeg-
ar mistökin urðu ljós.
AFP
Þau Harry og Meghan
þykja sýna meiri ástúð
á almannafæri en hefð
er fyrir hjá konungs-
fjölskyldunni.
AFP
Myndin sem Áslaug Arna hafði á sinni persónu-
legu Facebook síðu fór fyrir brjóstið á banka-
stjóranum fyrrverandi, Ragnari Önundarsyni.
Flestum þótti það þó helst segja eitthvað um
hans hugarheim en ekki nokkurn skapaðan hlut
um Áslaugu.
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.12. 2017
DÆGURMENNINGARÁRIÐ 2017