Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Side 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.12.2017, Side 64
SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2017 „Við stefnum á sambærilegan fjölda og í fyrra og vonandi fleiri, en 1600 manns tóku þátt í fyrra. Þetta er orðið að einu stærsta hlaupinu, sem er sérstakt af því það er haldið 31. des. Það er spáð hægviðri og frosti sem er ekkert mál, svo lengi sem það er ekki hávaðarok,“ segir Inga Dís Karlsdóttir, hlaupstjóri Gaml- árshlaups ÍR sem fer fram í 42. sinn á gamlársdag. Hefð er fyrir því að hlauparar mæti í búningum sem setja skemmtilegan svip á hlaupið. „Þarna mæta okkar sterkustu hlauparar en meginþorri fólksins mætir til að gera sér glaðan dag. Þarna eru stórir vinahópar og hlaupahópar og það er hægt að taka börnin með,“ segir Inga Dís, en auk hlaupaverðlauna eru veitt verðlaun fyrir bestu búninganna. Hefst hlaupið kl. 12 frá Hörpu og að þessu sinni verður auk 10 km hlaups boðið upp 3 km skemmtiskokk. Hægt er að skrá sig í hlaupið á hlaup.is. Hlaupið fer fram á gamlársdag frá Hörpu. Flestir leggja mikið upp úr því að vera í flottum búningi, enda eru verðlaun í boði fyrir besta búninginn. Morgunblaðið/Ófeigur Metnaður í búningum Gamlárshlaup ÍR er nú haldið í 42. sinn og hefur aldrei dottið út ár, þrátt fyrir misjöfn veður á þessum árstíma. Morgunblaðið/Styrmir Kári Gamlárshlaup ÍR fer fram á gamlársdag. Hlauparar mæta flestir í skrautlegum búningum og láta kuldann ekki á sig fá. Í Morgunblaðinu 31. desember, 1997 má lesa um ferð Suð- urskautsfaranna Ingþórs Bjarna- sonar, Ólafs Arnar Haraldssonar og Haralds Arnar Ólafssonar en þann 1. janúar 2018 eru tuttugu ár liðin frá því að þremenning- arnir náðu fyrstir Íslendinga á Suðurpólinn. Í fréttinni segir: Í gærmorgun voru þeir í 62 km fjarlægð frá pólnum og í erfiðu færi. Una Björk Ómarsdóttir, sam- býliskona Haralds Arnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að nýlega hefðu borist skilaboð frá þremenningunum um það að síðustu 150 kílómetrana á pól- inn væri færið mjög erfitt og lík- ast því að ganga á skíðum í sandi. Hafi þeim gengið ferðin álíka vel í gær og undanfarna daga hafa þeir þrátt fyrir að- stæðurnar náð að leggja allt að 25-30 km að baki og eiga þá 32- 37 km ófarna í dag. Una Björk kvaðst búast við því að eftir að þeir leggja af stað í dag muni þeir halda för sinni áfram allt þar til þeir komast á Pólinn hvort sem það verður á nýársnótt eða að morgni nýárs- dags. GAMLA FRÉTTIN „Á skíðum í sandi“ Suðurskautsfararnir Ingþór Bjarnason, Haraldur Örn Ólafsson og Ólafur Örn Haraldsson náðu á Suðurpólinn þann 1. janúar fyrir tuttugu árum. Morgunblaðið/Jim Smart ÞRÍFARAR VIKUNNAR Svavar Gestsson fyrrverandi ráðherra Arnar Jónsson leikari Logi geimgengill leikinn af Mark Hamill

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.