Morgunblaðið - 12.01.2018, Side 13
háar raddir í þessari óperu, Hall-
veig og María Sól syngja báðar
sópran og Þorkell Helgi syngur
tenór.
Ekki löt, heldur verkfælin
Hildigunnur segir engan kór
vera í verkinu og að hún hafi valið
að nota aðeins þrjú hljóðfæri, píanó,
óbó og klarinett.
„Ég leita svolítið að litum við
val á hljóðfærum, óbóið getur alveg
leikið skessu, og það getur klarin-
ettið í raun líka, en bæði þessi hljóð-
færi hafa mikla liti. Píanóið nær yfir
breitt svið og getur fyrir vikið hald-
ið vel utan um þetta allt saman.“
Sagan af Gilitrutt er ekki löng,
en Hildigunnur segir að textahöf-
undurinn Salka Guðmundsdóttir
hafi samið heilmikinn texta í kring-
um hana, skemmtileg frásagnarljóð
til að syngja. „Við látum söguna
gerast í nútímanum, þó svo að ullar-
vinnsla og skessa komi við sögu.
Hjónin flytja saman á ættaróðal
bóndans sem er lengst inni í dal, og
þar þarf að sinna skepnum og vinna
sveitastörf. En unga húsfreyjan hef-
ur lítinn tíma til þess, því hún þarf
að snappa á símanum og vera á fa-
cebook, hanga í tölvunni. Hún er
ekki löt, heldur verkfælin og
verkkvíðin, hún vill fresta öllu til
morguns. Og þá kemur aðstoð
skessunnar sér vel, eða það heldur
húsfreyjan.“
Aría fyrir Gilitrutt
Hildigunnur segir að hún og
Salka hafi unnið að hluta til saman
við að skapa
óperuna.
„Salka er
ofboðslega klár
og þetta er mjög
skemmtilegur
texti hjá henni
sem ég fæ að
semja tónlist við.
Í óperum er
þetta svolítið
öðruvísi en í leik-
ritum, að því
leyti að persónur
verksins syngja
stundum saman,
textahöfundur
þarf því að hafa í huga að textinn
geti virkað fyrir fleiri en eina
persónu verksins. Að persónur
skiptist ekki einvörðungu á að
syngja, heldur syngi líka
stundum saman í dúett,“
segir Hildi-
gunnur og
bætir við að
hún hafi beðið
Sölku um að semja
sérstakan texta svo
hún gæti gert
skemmtilega aríu
fyrir Hallveigu.
„Ég vildi gera að-
eins meira úr hlut-
verki Gilitruttar en
sagan býður upp á,
því Hallveig er stór-
kostleg söngkona, þó
ég segi sjálf frá,“ segir
Hildigunnur og hlær, en þær eru
systur.
Krakkar sækja í hrylling
Eins og áður sagði er sýningin
ætluð fólki á öllum aldri, en ókeypis
er á hana fyrir börn sjö ára og
yngri.
„Töfrahurðin hefur alltaf lagt
mikla áherslu á að hafa ókeypis fyr-
ir börn á tónlistarviðburði, enda
skiptir miklu máli að ala upp nýja
hlustendur. Það er mjög áríðandi að
börn fái að kynnast allskonar tónlist
þegar þau eru ung, það skilar sér
áfram. Börn eru mjög opin fyrir
klassískri tónlist,“ segir Hildigunn-
ur sem hefur einu sinni áður samið
barnaóperu, Hnetu-Jón og gullgæs-
ina.
„Ég gerði það eftir pöntun frá
tónlistarskóla Garðabæjar í tilefni
25 ára afmælis skólans. Sú ópera
var flutt fyrir fullu húsi fyrir rúm-
um tuttugu árum, en aldrei síðan.
Það er sannarlega kominn tími til
að hún verði aftur sett á svið, enda
komin ný kynslóð af börnum. Auð-
vitað dreymir mig um að stóru leik-
húsin grípi þessar barnaóperur sem
ég hef samið og setji upp á svið hjá
sér. Þetta á erindi og er skemmti-
legt, ég get lofað því. Ég man vel
eftir því þegar ég heyrði söguna af
Gilitrutt sem lítil stelpa, ég man eft-
ir að hafa fengið skemmtilegan hroll
niður bakið, en krakkar sækja í
hrylling, rétt eins og við fullorðna
fólkið förum að sjá sálfræðitrylla í
bíó.“
Nútíma-Gilitrutt Heiða Rafnsdóttir teiknaði plakat.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
Grísk jógúrt
www.biobu.is
Lífrænar
mjólkurvörur
Lífrænu Grísku jógúrtina frá Biobú er gott nota í
matargerð, svo sem í ídýfur með karríréttum og
öðrum sterkkrydduðum réttum, þar sem hún er
svalandi og vinnur á móti kryddinu í réttunum.
Svo er hún alveg kjörin í alla sósugerð og til
mareneringar á grillsteikinni.
Jógúrt hvítlaukssósa
250 ml Grísk jógúrt
1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
1-2 hvítlauksrif, pressuð
0,25-0,5 tsk svartur pipar
Smá klípa steinselja (má sleppa)
Hrærið öllu vel saman.
Kælið í a.m.k. 30 mínútur.
Lífræn íslensk framleiðsla
Lífræn
Töfrahurð er félag um víðtæka starfsemi sem snýr að tónlist fyrir
börn og unglinga, jafnt tónleika sem útgáfu. Félagið var stofnað
2010 af Pamelu De Sensi flautuleikara, og hefur að markmiði
að auka framboð á tónlistarefni fyrir börn og unglinga, t.d.
söngleiki, tónlistarævintýri sem og alls konar efni sem
hentar til tónlistarfræðslu í tónlistarskólum og leik- og
grunnskólum. Barnaóperan Gilitrutt, eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur og Sölku Guðmundsdóttur, verður
frumflutt sem tónleikar 27. janúar kl. 12-13 í Iðnó.
Um leik og söng sjá Hallveig Rúnarsdóttir, María Sól
Ingólfsdóttir og Þorkell H. Sigfússon. Sheherazade-
hópurinn sér um tónlistarflutninginn. Myndskreyt-
ingar eru eftir Heiðu Rafnsdóttur. Aðgangur er
ókeypis fyrir börn 7 ára og yngri. Til stendur að setja
óperuna upp á svið á barnamenningarhátíð í lok apríl.
Gilitrutt eitt af mörgum
TÖFRAHURÐ OG TÓNLISTAREFNI FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
Tónskáld Hildi-
gunnur man eftir
hrolli niður bak við
lestur á sögunni um
Gilitrutt í bernsku.
Morgunblaðið/Hanna
Pamela de Sensi