Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 14
Vesturlandsvegur Mikil umferð á álagstímum.
„Bæjarstjórn Akraness skorar á samgönguyfirvöld að
bregðast nú þegar við ástandi Vesturlandsvegar á Kjal-
arnesi og verja frekari fjármunum til nauðsynlegra úr-
bóta vegna tvöföldunar vegkaflans.“ Þetta segir m.a. í
ályktun bæjarstjórnar Akraness sl. þriðjudag.
Bæjarstjórnin segir ljóst að við núverandi ástand
verði ekki unað og vegamálastjóri hafi sjálfur stigið fram
og sagt vegkaflann hættulegan og brýnt að aðskilja akst-
ursstefnur. „Þegar æðsti embættismaður vegamála á Ís-
landi lýsir því yfir að banaslys á tilteknum vegkafla sé
kannski ekki mjög óvæntur atburður þá verður að
bregðast við því með viðeigandi hætti,“ segir í álykt-
uninni.
Í samgönguáætlun 2015-2018 sé gert ráð fyrir 700
milljónum króna til endurbóta á Vesturlandsvegi. Þrátt
fyrir auknar fjárveitingar í þágu umferðaröryggis í ný-
samþykktu fjárlagafrumvarpi sé vegkaflanum um Kjal-
arnes raðað enn aftar í röðina en áður. „Bæjaryfirvöld á
Akranesi hafa margsinnis undanfarin ár vakið athygli á
brýnni nauðsyn þess að framkvæmdum á Vesturlands-
vegi verði hraðað umfram þær áætlanir sem þó birtast í
langtímasamgönguáætlun. Það er með öllu óviðunandi
Vilja tvöföldun á Kjalarnesi
Ekki verði unað lengur við núverandi ástand vegarins
að árið 2018 sé enn verið að keyra Vesturlandsveg sem
einu einbreiðu og óupplýstu þjóðleiðina út úr Reykjavík
og er það ástand ekki í samræmi við áherslur stjórnvalda
um forgangsröðun í þágu umferðaröryggis.“ sisi@mbl.is
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
Nýjar vörur frá geoSilica
Kísill Íslenskt kísilsteinefni
Recover Fyrir vöðva og taugar
Renew Fyrir húð, hár og neglur
Repair Fyrir bein og liði
Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum,
Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Það hefur verið bókað í bak og fyr-
ir að við fáum ekki verri golfvöll en
við höfum og öllu lengra er málið
ekki komið,“ seg-
ir Guðmundur
Oddsson, formað-
ur Golfklúbbs
Kópavogs og
Garðabæjar, en
uppbygging í
Vetrarmýri og
Hnoðraholti í
Garðabæ kallar á
talsverðar breyt-
ingar á vellinum.
Nokkrar brautir
verða lagðar af vegna framkvæmda
og einnig hluti æfingasvæðis. Á
móti fær klúbburinn land fyrir
nokkrar brautir nálægt Vífils-
staðavatni.
Tilbúin í vinnu
með sveitarfélaginu
Guðmundur segir að alveg sé eft-
ir að setjast yfir það hversu mikil
skerðingin verði á núverandi velli,
en þrjár brautir í Mýrinni þurfi lík-
lega að víkja. Hann segir að ráða-
menn bæjarins hafi talað um að
ekki megi taka tillöguna sem bar
sigur úr býtum í rammasamkeppni
um svæðið of bókstaflega, enda sé
öll deiliskipulagsvinna eftir. Nauð-
synlegt sé fyrir golfklúbbinn að fá
fasta punkta um framkvæmdir áður
en fyrsta skóflustunga verður tekin.
„Við erum staðráðin í því að
vinna þetta með sveitarfélaginu og
sögðum strax að við værum tilbúin í
þá vegferð,“ segir Guðmundur. „Við
ætlum ekki að standa í einhverju
stríði, en þeir mega alveg vita að
það verður ekki valtað yfir okkur
og ég hef ekki trú á að það sé mein-
ingin hjá þeim. Við höfum lengi ver-
ið meðvituð um að byggt yrði í
Hnoðraholtinu enda einstakt bygg-
ingarland. Það má hins vegar ekki
þrengja svo að golfvellinum að ann-
að hvert högg skili boltanum í húsa-
garða í hlíðinni.“
Í raun er um tvo velli að ræða, 18
og níu holna, og er minni völlurinn,
Mýrin, á flatlendi sem hentar mörg-
um. Flestar brautanna eru í Vetrar-
mýri en stærri völlurinn teygir
brautir sínar upp í Leirdal sem er í
landi Kópavogs, og ber stærri völl-
urinn heitið Leirdalur.
Lengi vel var golfklúbburinn með
samning við Ríkisspítalana, sem
höfðu umsjón með Vífilsstaðalandi
fyrir hönd fjármálaráðuneytisins,
og giltu samningar til ársins 2035.
Síðasta vor færðist eignarhaldið frá
ríkinu til Garðabæjar með kaupum
sveitarfélagsins á landi Vífilsstaða.
Guðmundur segir að svæðið nær
Vífilsstaðavatni bjóði upp á ýmsa
möguleika, en þar sé mikil og
kostnaðarsöm vinna framundan.
„Þar er alveg eftir að móta brautir
og það er ekkert sem dettur af
himnum ofan. Ætli gerð golfvallar
taki ekki að minnsta kosti þrjú ár,“
segir Guðmundur.
Staðsetning golfskálans
Hann segist líka hafa áhyggjur af
staðsetningu golfskála GKG, sem
var formlega tekinn í notkun vorið
2016, og með fyrirhuguðum breyt-
ingum verði hann kominn í útjarðar
vallarins. Á sínum tíma hafi margir
viljað hafa golfskálann við flötina á
þriðju braut vallarins á leiðinni upp
í Leirdal. Hugsanlega verði rykið
nú dustað af þeim hugmyndum.
Guðmundur segir að á næstunni
verði vallarmálið rætt innan klúbbs-
ins. Einnig verði óskað eftir fundi
félaga í GKG með bæjar- og skipu-
lagsyfirvöldum í Garðabæ.
Vilja fasta punkta áður en byrjað verður
Ljósmynd/Úr safni GKG
Breytingar Horft af flötinni á þriðju braut yfir golfvöllinn í átt að vallarhúsi og Vífilsstöðum. Til hægri má sjá skýli
við æfingasvæði, en á þeim slóðum í Vetrarmýri er fyrirhugað að reisa fjölnota íþróttahús með knattspyrnuvelli.
Breytingar fram undan á velli GKG „Bókað í bak og fyrir að við fáum ekki verri golfvöll“
Guðmundur
Oddsson
„Landssamband smábátaeigenda
lýsir yfir miklum áhyggjum
vegna þeirrar fyrirætlunar að
lækka fjárframlög til Landhelgis-
gæslunnar. Gangi hún eftir mun
öryggi sjómanna skerðast.“ Þetta
kemur fram í ályktun sambands-
ins.
Skorar LS á alþingismenn að
tryggja nægt fjármagn til rekst-
urs Landhelgisgæslunnar þannig
að trygg verði sú þjónusta sem
henni er lögskipað að sinna.
Þyrluþjónusta sé öryggisþáttur
sem ávallt verði að vera vel sinnt
og ekki megi undir neinum
kringumstæðum draga úr.
LS ítrekar fyrri samþykktir um
nauðsyn þess að ræða við ná-
grannaþjóðir okkar um hvort
hugsanlegt væri að einhver
þeirra eða allar gætu ásamt Ís-
lendingum komið að rekstri
þyrlna við Norður-Atlantshaf.
Ljóst sé að nokkrar þjóðir hefðu
þar beina hagsmuni, t.d. Fær-
eyingar, Norðmenn, Danir og
Grænlendingar. sisi@mbl.is
Gæslan fái nægilegt
fjármagn