Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 RAFVÖRUR Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk gæða heimilistæki Þvottavél tekur 17 kg og þurrkari tekur 10 kg Amino bitar Í 30 g pokanumer passlegur skammur af próteini (26,4 g í poka). Inniheldur 88%prótei og engin aukaefni. 88% prótein 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Einfaldle a hollt og gott snakk 12. janúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 104.11 104.61 104.36 Sterlingspund 140.94 141.62 141.28 Kanadadalur 83.71 84.21 83.96 Dönsk króna 16.755 16.853 16.804 Norsk króna 12.897 12.973 12.935 Sænsk króna 12.707 12.781 12.744 Svissn. franki 106.43 107.03 106.73 Japanskt jen 0.934 0.9394 0.9367 SDR 148.35 149.23 148.79 Evra 124.8 125.5 125.15 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.557 Hrávöruverð Gull 1319.85 ($/únsa) Ál 2158.5 ($/tonn) LME Hráolía 69.12 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hagnaður Haga á þriðja fjórðungi rekstrarársins dróst saman um 54% og var 401 milljón króna. Um er að ræða tímabilið september til nóvember. Hagn- aðarhlutfallið lækkaði úr 5% niður í 2% á milli ára. Tekjurnar drógust saman um 11% á milli ára og voru 16,9 milljarðar króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði dróst saman um 36% á milli ára og var 894 milljónir króna. EBITDA-hlutfallið lækkaði í 5%, úr 7%, á milli ára. Hluthöfum Haga hefur fækkað um 5% frá 1. mars til 30. nóvember 2017 og voru 802 við lok tímabilsins, samkvæmt árshlutauppgjöri. Á þeim tíma hafa hlutabréf félagsins lækkað um 25%. Fram kemur í afkomutilkynningu til Kauphallar að verðhjöðnun hafi áfram áhrif á rekstur félagsins. Litið til fyrstu níu mánaða rekstrarársins, að teknu til- liti til aflagðar starfsemi, var 5% sölu- samdráttur í matvöruverslunum sam- stæðunnar en magnminnkunin var 3%. helgivifill@mbl.is Hagnaður Haga dróst saman um 54% STUTT Fjármálaeftirlitið kynnti starfs- mönnum skipu- lagsbreytingar í gærmorgun. Við breytinguna fjölgar fram- kvæmdastjórum úr þremur í fjóra. Störf þriggja framkvæmda- stjóra verða aug- lýst innan tíðar. Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, segir í samtali við Morgun- blaðið að komið verði á fót fjórum sviðum: Eftirliti með fjármálafyrir- tækjum, eftirliti með vátrygginga- starfsemi og eftirliti með viðskipta- markaði sem vakir yfir verðbréfa- viðskiptum, verðbréfasjóðum og viðskiptaháttum. Auk þess verði þverfaglegt svið sem annist vett- vangsathugunar og lögfræði- þjónustu. Fjögurra manna teymi sem sinnir þjóðhagsvarúð fyrir fjár- málastöðugleika verður á skrifstofu forstjóra. „Nýju skipuriti fylgja skýrari ábyrgðarlínur og það er aðgengi- legra fyrir þá sem eiga í samskiptum við okkur,“ segir Unnur. Eldra skipurit FME hafði þrjú eftirlitssviðs: Vettvangs- og verð- bréfasvið, eftirlitssvið og greining- arsvið. „Greiningarsviðið hefur gegnt mikilvægu eftirlitshlutverki við að greina áhættur. Sú sérhæfing mun flytjast inn á sviðin,“ segir Unnur. Til viðbótar eru rekstrarsvið, mannauður og upplýsingatækni sem þjóna meðal annars eftirlitssvið- unum þremur. Önnur svið eru skrif- stofa forstjóra og svið yfirlögfræð- ings. helgivifill@mbl.is FME breytir skipuriti  Þrjár stjórnenda- stöður auglýstar Unnur Gunnarsdóttir ● Velta á gjaldeyrismarkaði nam 407 milljörðum króna og dróst saman um 42% á árinu 2017 miðað við árið á und- an, að því er fram kemur á vef Seðla- banka Íslands. Hlutdeild Seðlabankans var um 20% af veltunni, en um 55% ár- ið 2016, enda hætti Seðlabankinn reglubundnum gjaldeyriskaupum í maí. Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnk- aði um 130 milljarða króna á árinu 2017 og nam í árslok 686 milljörðum. Helstu ástæður þess að forðinn minnk- aði voru endurkaup ríkissjóðs á skulda- bréfum í erlendum myntum og kaup á aflandskrónueignum. Gjaldeyrisjöfn- uður Seðlabankans, þ.e. mismunur eigna og skulda í erlendum gjald- miðlum, nam 587 milljörðum króna í lok ársins 2017, samanborið við 609 milljarða í lok árs 2016. Minni forði vegna endurgreiðslu og krónukaupa Mismunandi aðferðafræði Gunnar segir að þegar litið sé til heildarupphæðarinnar hvað eigið féð varðar, þá þurfi einnig að meta hvernig farið sé með neikvætt eigið fé í úrvinnslu gagna. „Það eru plús- ar og mínusar í þessu. Við gerð greiningar okkar á hlutdeild ein- staklinga, þá tókum við til dæmis ekki tillit til neikvæðs eigin fjár. Eftir því hvor aðferðin er notuð má segja að hlutdeild þeirra 1.000 efnamestu liggi á bilinu 76% til 98% af því eigin fé fyrirtækja sem er í beinni eigu einstaklinga.“ Hann segir að með sambæri- legum hætti liggi eignarhald 50 eignamestu einstaklinganna á bilinu 35% til 53%. Eins og fram kom í fréttinni í gær á íslenskur almenningur stærstan hlut sinn í íslensku at- vinnulífi í gegnum lífeyrissparnað hjá lífeyrissjóðunum, en einnig má segja að almenningur eigi óbeint stóran hlut atvinnulífsins í gegn- um opinbera aðila svo sem Reykjavíkurborg og íslenska rík- ið. Það á m.a. við um bankana, sem eru að stórum hluta í eigu ríkisins. „Einnig skal hafa í huga að þeg- ar hinn almenni borgari vill fjár- festa í fyrirtækjum, þá gerir hann það oft í gegnum hlutabréfasjóði á meðan hinir efnameiri eru oftar skráðir sjálfir beint fyrir sínum hlut,“ segir Gunnar Gunnarsson að endingu. 12% eigin fjár í beinni eigu einstaklinga  Stofnanafjárfestar og opinberir og erlendir aðilar eiga 88% Morgunblaðið/Árni Sæberg Eignir „Stóru fréttirnar í tölunum eru að fyrir utan eign stofnanafjárfesta og erlendra aðila þá er íslenskt atvinnulíf í eigu tiltölulega fárra aðila.“ BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Um 12% alls eigin fjár í íslenskum fyrirtækjum eru í beinni eigu ís- lenskra einstaklinga. Stór hluti þess sem eftir er er í eigu lífeyr- issjóða, opinberra aðila eða ann- arra stofnanafjárfesta. Þetta kem- ur fram í ítarlegri samantekt Creditinfo fyrir Morgunblaðið. Eins og kom fram í Viðskipta- Mogganum í gær er þessi 12% hluti eigin fjárins í eigu tiltölulega fámenns hóps. Gríðarlega viðmikil gögn Gunnar Gunnarsson, forstöðu- maður greiningar og ráðgjafar Creditinfo, segir í samtali við Morgunblaðið að stóru fréttirnar í tölunum séu að fyrir utan eign stofnanafjárfesta og erlendra aðila þá sé íslenskt atvinnulíf í eigu til- tölulega fárra aðila. „Um er að ræða gríðarlega viða- mikil gögn og því er ávallt ákveðin óvissa í úrvinnslu á tölunum. Til dæmis þekkjum við ekki að fullu eignarhald allra íslenskra félaga þar sem við skráum ekki 100% eignarhald þegar um marga litla eigendur er að ræða. Hjá skráðu félögunum skráum við t.d. bara 20 stærstu hluthafana, en hluthafarn- ir skipta oft þúsundum. Einnig má nefna að endanlegt eignarhald er- lendra félaga sem eiga í íslenskum félögum er ekki þekkt en slík félög eru stórir endanlegir eigendur eig- in fjárins,“ segir Gunnar í samtali við Morgunblaðið. Hann ítrekar að þetta „óþekkta eignarhald“ geti einnig haft áhrif á niðurstöðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.