Morgunblaðið - 12.01.2018, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
Björn Thors leikari á 40 ára afmæli í dag. Hann er núna að leikaí sýningunni Brot úr hjónabandi í Borgarleikhúsinu ásamtkonu sinni, Unni Ösp Stefánsdóttur, en þau eru einu leik-
ararnir í verkinu sem Ólafur Egill Egilsson leikstýrir.
„Sýningin er búin að ganga fyrir fullu húsi í rúmt ár með einu stóru
hléi. Við hjónin erum að leika hjón og þetta er ansi flott verk sem
byggist á sjónvarpsseríu eftir Ingmar Bergman og er í tíu þáttum.
Þeir vöktu mikla athygli og voru sýndir í sjónvarpinu. Sagt var að
skilnaðartíðni í Svíþjóð hefði hækkað eftir að þættirnir fóru í loftið en
þeir fjalla um hjónabandið, hjónalífið og hjónaskilnað. Þeir ollu
straumhvörfum og í framhaldinu hófst mikil umræða um stöðu kon-
unnar bæði á heimilinu og atvinnumarkaðinum.
Kvikmynd var gerð upp úr þáttunum og leiksýning en Ólafur Egill
samdi nýja leikgerð og færði hana nær okkur í tíma og rúmi en við er-
um að skoða hjónabandið í samfélaginu í dag. Við höfum gert grín að
því að við skiljum þrisvar til fjórum sinnum í viku og ég mæli með því
að ganga gegnum stórt rifrildi nokkrum sinnum í viku, það er mjög
hreinsandi.“
Björn og Unnur eignuðust tvíburana Björn og Stefán fyrir tæpu ári
en fyrir eiga þau Dag sem er tíu ára og Bryndísi sem er fimm ára.
„Merkilegt nokk, þá hefur tekist prýðilega að púsla þessu saman, og
við höfum tekið skarpa törn í leikhúsinu síðan í nóvember.
Í tilefni dagsins þá er ég að hugsa um að bregða mér í vinnuna, leik-
sýningin hefst klukkan átta og ég er mættur upp í leikhús um hálf sjö.
Dagurinn verður líklega hversdagslegur fram að því.“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Brot úr hjónabandi Björn á sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Hreinsandi að rífast
nokkrum sinnum í viku
Björn Thors er fertugur í dag
Á
lfþór B. Jóhannsson
fæddist á Siglufirði 12.1.
1933 og ólst þar upp
fyrstu fimm árin. Þá
flutti fjölskyldan til
Seyðisfjarðar þar sem þau bjuggu
næstu fimm árin. Þau fluttu síðan til
Reykjavíkur er Álfþór var tíu ára.
Þar átti hann heima þar til hann flutti
með sína fjölskyldu vestur á Seltjarn-
arnes 1969, eftir þriggja ára dvöl við
Búrfellsvirkjun: „Faðir minn var
verkstjóri Síldarverksmiðja ríkisins á
Siglufirði og síðar framkvæmdastjóri
verksmiðjanna á Seyðisfirði. Maður
fékk því nasasjón af síldarævintýr-
unum á þessum stöðum.
Við áttum heima í Snæfelli á
Seyðisfirði, sem enn stendur og er nú
hótel. Það var alla tíð mikil glaðværð
á bernskuheimilinu. Faðir minn var
glaðsinna, góður hagyrðingur og
samdi m.a. leikrit fyrir leikfélagið á
Seyðisfirði. Móðir mín setti einnig
saman vísur en var þó mun alvöru-
gefnari en pabbi.“
Álfþór lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Íslands 1953.
Hann var fulltrúi hjá Innflutnings-
skrifstofunni til 1960, aðalbókari Tób-
akseinkasölu ríkisins 1960-61, fulltrúi
hjá Ríkisendurskoðun 1961-66, skrif-
stofustjóri hjá Fosskraft við Búrfells-
virkjun 1966-69, skrifstofustjóri
Heildverslunar Alberts Guðmunds-
sonar 1969-73, aðalbókari Seltjarnar-
neshrepps frá 1973 og bæjarritari
Seltjarnarness frá 1976 og þar til
hann lét af störfum fyrir aldurs sakir
í janúar 2003.
Álfþór sat í stjórn Gróttu 1971-73
og 1978-82 og sat í stjórn UMSK
1980-82.
Þegar Álfþór er spurður um hugð-
arefni koma bækur fyrst upp í
hugann: „Ég hef alltaf verið síles-
Álfþór B. Jóhannsson, fyrrv. bæjarritari á Seltjarnarnesi – 85 ára
Afkomendum fjölgar stöðugt Hér eru þau hjónin, Álfþór og Björg, með barnabörnum sínum um jólin fyrir einu ári.
Með bækur við hönd-
ina öllum stundum
Á ferðalagi Álfþór og Björg taka upp nestisboxið og slaka á í forsælunni.
Þurrkgrindur
Innan- og utandyra
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
60 cm x 3,6 lm, ber 10 kg
Verð kr. 5.215
80 cm x 6,7 lm, ber 20 kg
Verð kr. 9.450
100 cm x 8,5 lm, ber 20 kg
Verð kr. 9.980
3 stærðir
Ný
vefverslun
brynja.is
Holyoke Ottó Ægir Gísla-
son Moody fæddist í
Holyoke, Massachusetts í
Bandaríkjunum 28. janúar
2017 kl. 10.52. Hann vó
3.912 g og var 54,6 cm
langur. Foreldrar hans eru
Jónas Maxwell Moody og
Gísli Rúnar Harðarson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.