Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
Þáttaröðin Stella Blómkvist mun
keppa um Nordisk Film og TV
Fond-verðlaunin á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Gautaborg sem
fram fer 26. janúar til 5. febrúar.
Verðlaununum fylgja peninga-
verðlaun, 200.000 sænskar krónur
eða um 2,5 milljónir íslenskra
króna og eru verðlaunin veitt fyrir
besta handrit dramatískrar sjón-
varpsþáttaraðar frá Norðurlönd-
um. Aðalhöfundur handrits er Jó-
hann Ævar Grímsson en Nanna
Kristín Magnúsdóttir og Andri Ótt-
arsson komu einnig að handrita-
skrifum þáttanna.
Þættirnir um Stellu verða einnig
sýndir í sjónvarpsþáttahluta Nordic
Light-sýningaraðarinnar á hátíð-
inni og sýningar á fyrstu tveimur
þáttunum hefjast á norrænu
streymisþjónustunni Viaplay 2.
febrúar. Þáttaröðin var frumsýnd í
Sjónvarpi Símans Premium í nóv-
ember í fyrra og á sunnudaginn, 14.
janúar, verður fyrsti þáttur raðar-
innar sýndur í línulegri dagskrá
Sjónvarps Símans og svo hver þátt-
urinn af öðrum vikulega.
Stella keppir á
Gautaborgarhátíð
Stella Heiða Rún Sigurðardóttir fer
með hlutverk Stellu Blómkvist.
Paddington 2
Í Paddington 2 lendir góðhjartaði
bangsinn í mikilli klemmu þegar
óprúttinn þjófur stelur fágætri bók
sem Paddington ætlaði að kaupa.
Þjófurinn hverfur á dularfullan
hátt svo grunur fellur á Paddington
sem sendur er í steininn. Myndin er
sýnd með íslensku tali og meðal
leikara sem ljá persónum raddir
sínar eru Sigurður Þór Óskarsson,
Orri Huginn Ágústsson og Álfrún
Helga Örnólfsdóttir.
Rotten Tomatoes: 100%
Metacritic:89/100
The Commuter
Michael hefur um tíu ára skeið
ferðast með sömu lest til og úr
vinnu. Dag einn sest hjá honum
ókunnug kona og býður 75 þúsund
dollara greiðslu takist honum að
leysa dularfullt verkefni sem teng-
ist einum farþega lestarinnar, áður
en hún kemur á endastöð. Um leið
og Michael þiggur peningana kem-
ur í ljós að hann hefur lagt líf sitt og
fjölskyldu sinnar að veði. Leikstjóri
er Jaume Collet-Serra og í aðal-
hlutverkum eru Liam Neeson, Sam
Neill og Elizabeth McGovern.
Rotten Tomatoes: 65%
Metacritic: 57/100
Downsizing
Hjónin Paul og Audrey ákveða að
taka þátt í tilraun sem gengur út á
að þau eru minnkuð niður í um 10%
af stærð venjulegs fólks. Ýmislegt
fer öðruvísi en þau hjón gátu séð
fyrir, en fyrir liggur að breytingin
er óafturkræf. Leikstjóri er Alex-
ander Payne og í aðalhlutverkum
eru Matt Damon, Christoph Waltz,
Hong Chau og Søren Pilmark.
Rotten Tomatoes: 50%
Metacritic: 63/100
Bíófrumsýningar
Góðhjartaður
bangsi og spenna
Í steininum Paddington ásamt sam-
fanga í eldhúsi fangelsisins.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Hér hefur að vanda ríkt mikil sköp-
unargleði og góð orka,“ segir mynd-
listarkonan Mireya Samper um
listahátíðina Ferska vinda sem fram
fer í fimmta sinn
um þessar mund-
ir. Mireya hefur
verið listrænn
stjórnandi hátíð-
arinnar frá upp-
hafi, en hún var
fyrst haldin 2010
og hefur að jafn-
aði verið haldin á
tveggja ára fresti
síðan. Að þessu
sinni taka 40 listamenn af 21 þjóðerni
þátt í hátíðinni og sýna afrakstur
vinnu síðustu vikna í Garði um
helgina.
„Draumar er þema hátíðarinnar í
ár. Þegar sýningin var komin upp
var ég fyrst svolítið hissa á því að
hún er mun loftkenndari og litríkari
en þær hafa verið hingað til. Ég
komst að þeirri niðurstöðu að þemað
hefði þessi áhrif; að draumar bæru
með sér meiri léttleika og gleði en
önnur þemu,“ segir Mireya og rifjar
upp að þema fyrri hátíða hafi verið
sjávarföll, norðurljós, bjartar nætur
og víðáttan.
Aðspurð segir Mireya næstu hátíð
eftir tvö ár þegar fullskipaða lista-
fólki og fólk sé einnig komið á bið-
lista. „Ég var líka komin með þema,
en velti fyrir mér hvort ég eigi að
skipta um þema nú þegar ég sé hvað
það getur haft mikil áhrif á sköp-
unina,“ segir Mireya kímin.
Eitthvað nýtt á hverjum stað
Dagskrá helgarinnar hefst kl. 14
báða daga og er mæting á Sunnu-
braut 4 þar sem aðalsýningarsalur
hátíðarinnar er. „Þar tökum við á
móti gestum og leyfum þeim að
skoða sýninguna áður en við bjóðum
fólki í rútuferðir með leiðsögn á milli
sýningarstaða,“ segir Mireya og
bendir á að verkin séu meðal annars
sýnd í skúlptúrgarði, Útskálahúsi, á
vitasvæðinu, byggðasafninu og
íþróttamiðstöðinni. „Á hverjum stað
tekur listafólk á móti gestum og túlk-
ar verkin sín á sýningarstað,“ segir
Mireya og tekur fram að aðgangur
sé ókeypis á alla viðburði, gjörninga
og tónleika sem og í rútuna.
„Hægt er að koma báða dagana og
upplifa eitthvað nýtt á hverjum stað
því það er ekkert endurtekið efni.“
Meðal þeirra sem fremja gjörning
um helgina eru Aki-Ra Sunrise,
Tomoo Nagai, Fabrice Bony og Sim-
on Whetham auk Hrafns Andrésar
Harðarsonar og Örnu Guðnýjar
Valsdóttur. Þeir aðrir íslenskir lista-
menn sem taka þátt í hátíðinni í ár
eru Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir og
Bjarni Sigurbjörnsson, sem unnið
hefur nýtt varanlegt vegglistaverk
fyrir íþróttamiðstöðina.
„Verkið nefnist „Gleðigarður“ og
er komið til að vera. Það er mjög
ánægjulegt að varanlegum verkum
fer sífellt fjölgandi í bænum, bæði
inni- og útiverkum.“
Dagskrá beggja daga lýkur með
tónleikum. „Á laugardag er það tón-
leikagjörningur í Gerðaskóla sem
hefst kl. 17.30 þar sem gestaleikari
er Árni Heiðar Karlsson píanisti en á
sunnudag lýkur dagskránni með tón-
listarviðburði á efri hæð Sunnu-
brautar 4 kl. 16 þar sem japönsk ljóð
eru í forgrunni,“ segir Mireya.
Allar nánari upplýsingar um dag-
skrá helgarinnar má finna á vefnum
fresh-winds.com.
Draumar þema ársins
Seinni sýningarhelgi hátíðarinnar Ferskra vinda í Garði
40 listamenn frá 21 landi Varanlegum verkum fjölgar
Gleðigarður Bjarni
Sigurbjörnsson
vann veggmynd fyr-
ir íþróttahús Garðs.
Mireya Samper
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 3.30, 5.45
Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 6, 8 Sýnd kl. 5, 10 Sýnd kl. 3.30
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
ÚTSALA
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
20-80%
afsláttur af umgjörðum