Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Vöxtur kallar á breyttar ferðavenjur
Fjölsóttur íbúafundur um borgarlínu í Hafnarfirði Meiri- og minnihluti bæjarstjórnar sammála um
borgarlínu, segir formaður skipulagsráðs „Stórt mál fyrir okkur Hafnfirðinga sem skattgreiðendur“
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
„Við erum samfélag á höfuðborgar-
svæðinu sem er að glíma við vöxt og
við gerum ráð fyrir að höfuðborgar-
svæðið muni vaxa áfram. Vöxtur kall-
ar á auknar fjárfestingar í sam-
göngum,“ sagði Hrafnkell Á. Proppé,
svæðisskipulagsstjóri hjá Samtökum
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
(SSH), á íbúafundi Hafnarfjarðarbæj-
ar um borgarlínu í gær. Fundurinn fór
fram í Hafnarborg og var fullt hús. Á
þriðja hundrað fylgdust einnig með
fundinum á netinu. Hrafnkell lagði
áherslu á að nauðsynlegt væri að
breyta um stefnu í samgöngumálum
vegna fjölgunar íbúa höfuðborgar-
svæðisins. Ásamt Hrafnkeli hélt Ólöf
Kristjánsdóttir, verkfræðingur og
fagstjóri samgangna hjá verkfræði-
stofunni Mannviti, erindi, en stofan
hefur séð um greiningar á borgarlínu
fyrir Hafnarfjarðarbæ.
Viðbrögð við auknum vexti
Hrafnkell sagði að spár gerðu ráð
fyrir um 70 þúsund manna fjölgun á
höfuðborgarsvæðinu á 27 ára tímabili.
„Þetta eru álíka margir og búa núna í
Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi.“
Álíka fólksfjölgun átti sér stað á höf-
uðborgarsvæðinu á árunum 1985 til
2012 en á tímabilinu fjölgaði íbúum um
50% og á sama tíma fjórfaldaðist um-
ferðin. Sagði Hrafnkell nauðsynlegt að
ýta undir almenningssamgöngur sem
valmöguleika fyrir suma, ekki alla, til
að umferð yrði ekki of þung á svæðinu.
„Ef við náum ekki markmiðum um
breyttar ferðavenjur verða 234.000
fleiri bílferðir á dag en ef það tekst
verða þetta 59.000 fleiri bílferðir.“
Opnað var fyrir spurningar á fundin-
um og spurði einn íbúinn hvort meiri-
og minnihluti bæjarstjórnar væru
samstiga í borgarlínuferlinu eða hvort
íbúar gætu átt von á að þessu yrði koll-
varpað ef skipt yrði um meirihluta í
bæjarstjórn. „Það er enginn ágrein-
ingur um þetta verkefni innan bæjar-
stjórnar,“ sagði Ólafur Ingi Tómasson,
formaður skipulagsráðs og bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-
firði. Þá var því einnig velt upp hvert
fargjald borgarlínu yrði og sagði einn
fundarmanna að rekstur bíls væri hag-
stæðari en strætókort fyrir par með
þrjá unglinga á heimilinu. Hrafnkell
svaraði því að ekki væri gert ráð fyrir
breytingum á fargjöldum í þeirra
vinnu. „Áfram munu farþegar greiða
gjald en ekki er ákveðið hversu hátt
það verður,“ sagði Hrafnkell og bætti
við að slíkt gjaldið yrði svipað og í
strætó. Hann svaraði einnig fyrri
spurningu fundarins og sagði fulla sátt
um borgarlínu í þeim sjö sveitarstjórn-
um sem væru aðilar að SSH. Þá lagði
íbúi til að kosið yrði um borgarlínu í
íbúakosningu. „Það er búið að lofa
okkur gagnsæi og opinni stjórnsýslu.
Hér eru bílastæði og lóðamörk undir
og það er búið að kynna þetta. Þetta er
stórt mál fyrir okkur Hafnfirðinga
sem skattgreiðendur,“ sagði íbúinn á
fundinum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borgarlína Hátt í hundrað manns sóttu fund um borgarlínu í Hafnarfirði.
Dregið var í annað sinn af tíu í
áskrifendaleik Árvakurs og WOW
air í gær.
Fimm áskrifendur höfðu heppn-
ina með sér og fær hver þeirra
flugferð fyrir tvo með Wow air til
Stokkhólms. Næstu átta vikurnar
verða dregnar út fimm ferðir fyrir
tvo til Cleveland, Barcelona, Tel
Aviv, Detroit, Cincinnati, St. Lou-
is, Dublin og Dallas.
Áskrifendur Morgunblaðsins
bíða eflaust spenntir eftir umfjöll-
un Morgunblaðsins næsta fimmtu-
dag þar sem fjallað verður um
Cleveland og fimm heppnir áskrif-
endur voru dregnir út.
Vinningshafar þessarar viku
voru dregnir út í gær en þeir eru:
Guðbjörg Þorvarðardóttir, Guð-
björg Erla Kristófersdóttir, Berg-
ljót Sigurðardóttir, Jónas Ragn-
arsson og Pétur Björnsson.
Morgunblaðið fjallaði í gær ítar-
lega um Stokkhólm, sem kölluð
Þetta kemur á óvart
Guðbjörg Erla Kristófersdóttir,
búsett á Selfossi, varð orðlaus
fyrst þegar henni var tilkynnt að
hún hefði unnið flugmiða fyrir tvo
til Stokkhólms.
„Þetta kemur mér mjög óvart.
Ég tek eiginmanninn með til
Stokkhólms, það er góð gjöf á
bóndadaginn að bjóða honum
þangað,“ segir Guðbjörg og bætir
við að hún fái ekki oft vinning og
það sé langt síðan það gerðist síð-
ast.
„Ég hef aldrei komið til Stokk-
hólms. Það er alltaf gaman að
prófa eitthvað nýtt,“ segir Guð-
björg sem hefur verið áskrifandi
til nokkurra ára en hafði ekki
fylgst með áskriftarleiknum.
ge@mbl.is
hefur verið Feneyjar norðursins. Í
umfjölluninni er dregið fram hvað
Stokkhólmur, stærsta borg Norð-
urlandanna, hefur upp á að bjóða.
Ferð til Stokkhólms bóndadagsgjöfin
Heppnir áskrifendur á leið til Stokkhólms Cleveland kynnt í næstu viku
Ferðalangur Guðbjörg Erla býður
bóndanum með sér til Stokkhólms.
Stokkhólmur Feneyjar norðursins í
Svíþjóð eru fallegar heim að sækja.
Embla Kristínar-
dóttir, leikmaður
Íslands- og bikar-
meistara Kefla-
víkur, steig fram í
viðtali við RÚV í
gærkvöldi og
sagði frá því að
henni hefði verið
nauðgað 13 ára
gamalli af afreks-
manni í frjálsum
íþróttum, sem þá var um tvítugt.
Maðurinn var dæmdur fyrir kynferð-
isbrot gegn barni og fékk skilorðs-
bundinn dóm. Embla segir að ekkert
meira hafi verið gert í málinu. Hún
hafi þurft að spila mjög mikilvæga úr-
slitaleiki í íþróttahúsinu þar sem hinn
dæmdi kynferðisbrotamaður æfði og
alltaf fundist mjög erfitt að mæta á
þessa leiki. Henni finnst íþróttafélag
ofbeldismannsins hafa tekið afstöðu
með honum og segir að með þögninni
sé tekin afstaða með gerandanum.
Embla segir að heimabær sinn,
Keflavík, hafi klofnað vegna málsins.
Hún hafi verið dæmd og mátt þola
einelti í stað þess að gjörðir gerand-
ans væru dæmdar. ge@mbl.is
Afstaða
tekin með
þögninni
Embla
Kristínardóttir
Keflavík klofnaði
Það var létt yfir starfsmönnum og viðskiptavinum Nóatúns þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að garði. Erla Kristbjörg Sigurgeirsdóttir og
Guðmundur Bergþórsson voru ánægð með fjölbreyttan þorramat úr kjöt-
borði Nóatúns. Í dag hefst þorrinn með tilheyrandi þorramat og blótum. Í
leikskólum er hann boðinn velkominn með ýmsum hætti. Hákarlinn kætir
suma en aðrir fá sér hangikjöt, svið, rúgbrauð, harðfisk og smjör.
Þorrinn gengur í garð með súrmat og tilheyrandi
Morgunblaðið/Eggert
Vinstri-græn í Reykjavík ákváðu á
félagsfundi í gærkvöldi að halda
rafrænt forval við val á lista flokks-
ins í borginni
fyrir komandi
borgarstjórnar-
kosningar.
Félagsmenn
kusu á fundinum
um hvort fara
ætti í forval eða uppstillingu og
varð fyrri kosturinn fyrir valinu.
Forvalskosningar Vinstri-grænna
fara fram 24. febrúar næstkomandi.
Allir þeir sem eru skráðir félags-
menn í VG og eiga lögheimili í
Reykjavík hafa kosningarétt í for-
vali flokksins. Á félagsfundinum
var einnig kosin kjörnefnd, sem
gera mun tillögu að skipan fram-
boðslista í kjölfar forvals. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra kom
einnig á fundinn og ræddi um
stjórnmálin við félagsmenn VG í
Reykjavík.
VG heldur forval við
val á lista í borginni