Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 Sjálfstæðisflokkurinn www.xd.is Á morgun 20. janúar, kl. 11:00 mun Vörður bjóða flokksmönnum að mæta á opinn kynningarfund og brunch í Valhöll með þeim fimm frambjóðendum sem gefa kost á sér í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Heitt á könnunni og allir velkomnir. Vörður - fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Kaffihúsastemning í Valhöll Þetta er mat Styrmis Gunnars-sonar á stöðunni í höfuð- staðnum:    Þótt staða Sjálf-stæðisflokks- ins í Reykjavík sé ekki upp á marga fiska er ekki þar með sagt að mál- efnastaða vinstri meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur sé sterk.    Þvert á móti. Hverjir eru helztu veikleik- arnir?    Í fyrsta lagi húsnæðismálin:Skortur á lóðaframboði á senni- lega mestan þátt í því að húsnæðis- verð er orðið svo hátt að fólk getur hvorki keypt né leigt.    Í öðru lagi: „Þétting byggðar“.Þessari stefnu hefur verið fylgt út í öfgar.    Í þriðja lagi: Samgöngur íReykjavík eru orðnar dagleg martröð.    Í fjórða lagi: Það eru of mörgvandamál í skólakerfinu, alveg frá leikskólastigi.    Í fimmta lagi: Rekstur borgar-kerfisins hefur augljóslega far- ið úr böndum.    Líklegt er að kosningabaráttanmuni einkennast af því að meirihlutinn verði í vörn á öllum þessum vígstöðvum.    Að auki bætast við skólpvanda-mál og mengun vatns.“ Styrmir Gunnarsson Smásýnishorn STAKSTEINAR Veður víða um heim 18.1., kl. 18.00 Reykjavík -6 heiðskírt Bolungarvík 0 alskýjað Akureyri -5 skýjað Nuuk -13 léttskýjað Þórshöfn -1 snjókoma Ósló -2 alskýjað Kaupmannahöfn 1 skýjað Stokkhólmur -2 léttskýjað Helsinki -5 snjókoma Lúxemborg 5 léttskýjað Brussel 7 súld Dublin 4 léttskýjað Glasgow 2 skúrir London 7 skúrir París 9 skýjað Amsterdam 4 súld Hamborg 1 snjókoma Berlín 4 rigning Vín 5 heiðskírt Moskva -5 snjókoma Algarve 16 heiðskírt Madríd 8 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 11 léttskýjað Aþena 10 léttskýjað Winnipeg -8 skýjað Montreal -4 snjókoma New York -2 heiðskírt Chicago -6 þoka Orlando 2 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:45 16:33 ÍSAFJÖRÐUR 11:14 16:14 SIGLUFJÖRÐUR 10:58 15:56 DJÚPIVOGUR 10:20 15:56 Allt um sjávarútveg Menntamála- ráðherra hefur hrundið af stað könnun í ráðu- neytinu á meðferð þess á umkvört- unum vegna ein- eltis, áreitni og ólöglegrar áminn- ingar hjá embætti þjóðskjalavarðar Íslands. Tilefnið er grein sem Elín S. Krist- insdóttir, stjórnsýslufræðingur og fyrrv. starfsmaður Þjóðskjalasafns Íslands, skrifaði í Morgunblaðið í gær þar sem m.a. mátti lesa að meðferð ráðuneytisins á málunum væri ekki í samræmi við umræðu og orð ráða- manna þessa dagana um viðbrögð í málum sem þessum. „Ég las þessa grein snemma í (gær)morgun, við erum nú þegar að láta kanna málið í forgangi og ég mun fylgja því eftir,“ sagði Lilja Dögg Al- freðsdóttir menntamálaráðherra sem vildi ekki tjá sig meira að svo stöddu en lofaði skriflegu svari þegar frekari upplýsingar lægju fyrir. ernayr@mbl.is Forgangs- mál í ráðu- neytinu  Ráðherra kannar meðferð umkvartana Lilja Alfreðsdóttir Malbikað var fyrir tæpar 1.300 milljónir króna í Reykjavík á síð- asta ári. Fyrir það fengust 30 kíló- metrar af malbiki sem er um 7,1% af heildarlengd gatnakerfisins. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Reykjavíkurborg. „Þessar miklu malbiksframkvæmdir núna eru til að bæta úr brýnni þörf en heildarúttekt á malbikunarþörf var unnin á vegum borgarinnar og gerð áætlun til fimm ára um nauð- synlegar framkvæmdir. Þörfin var uppsöfnuð vegna sparnaðar fyrstu árin eftir hrun og aukinnar umferð- ar,“ segir í tilkynningu borgar- innar. Malbikað fyrir 1,3 milljarða árið 2017

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.