Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 45.880 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ættgengi er mjög mikilvægur
áhættuþáttur þegar húðkrabba-
meinið sortuæxli (malignant mel-
anoma) er annars vegar. Stökk-
breyting í geninu CDKN2A getur
legið í ættum og þeir einstakling-
ar sem eru með hana eru í meiri
hættu á að fá
sortuæxli.
„Sortuæxli er
það krabba-
mein sem hefur
hvað hæsta til-
hneigingu hvað
varðar ætt-
gengi. Þetta er
svipað og
BRCA-genið
sem veldur
aukinni áhættu
á brjóstakrabbameini. Það hefur
ekki verið talað mikið um
CDKN2A en það er einnig gen
sem er sterkt í ættgengu sortu-
æxli á Íslandi. Ég hef verið að
skoða þetta mjög mikið í Svíþjóð
og það er sams konar þar og hér
á landi og öðrum löndum á norð-
lægum slóðum,“ segir Hildur
Björg Helgadóttir, krabbameins-
læknir á Karólínska háskóla-
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Hún
fjallaði um sortuæxli á Lækna-
dögum í gær.
„Það eru líka til gen sem stýra
því að fólk á Norðurlöndunum er
með ljósa húð og ljóst eða rautt
hár og blá augu og það eru oft
sömu gen sem stýra því að það
fólk er í meiri hættu á að fá
sortuæxli. Þá sérstaklega ef það
er mikið í sólböðum, eins og að
fara um miðjan vetur til útlanda
til að sóla sig þegar húðin er al-
veg hvít og ekki undir það búin.
Þegar maður er með sjúkling
með sortuæxli þarf maður að
vera meðvitaður um ættarsöguna
því það geta verið alvarlegar
genabreytingar í CDKN2A.“
Gríðarlega mikil áhætta
Þeir sem eru með þessa arf-
gengu stökkbreytingu eru í gríð-
arlega mikilli hættu á að fá sortu-
æxli. „Um áttrætt eru nærri 100%
þeirra sem eru með þetta gen bún-
ir að fá sortuæxli eða annað
krabbamein. Það er talað um að
1-2% þeirra sem eru með sortu-
æxli séu með genið. Ef það er ætt-
arsaga um sortuæxli er sennilega
10-20% hætta á að manneskja sé
með genið og þá þarf að skoða bet-
ur hvort hún hefur áhættu fyrir
öðrum krabbameinum líka. Það
eru þá mikið reykingatengd
krabbamein eins og bris- og önd-
unarfærakrabbamein. Genastökk-
breytingin CDKN2A, reykingar og
mikil sólböð geta verið banvæn
blanda.“
Hildur Björg segist halda að
ekki sé mikil vitund um þessa arf-
gengu áhættu á Íslandi, meðal
annars vegna þess að sé miðað við
hinar Norðurlandaþjóðirnar eru
sortuæxli ekki eins algeng hér. Ís-
lendingar virðist jafnvel passa sig
betur í sólinni en t.d. íbúar Sví-
þjóðar og Danmerkur þar sem er
mikil sóldýrkun.
Á Íslandi greinast upp undir 40-
50 einstaklingar á ári með sortu-
æxli og svipaður hópur með for-
stigsbreytingar. Hildur Björg seg-
ir gott ef læknar séu meðvitaðir
um möguleikann á CDKN2A-
stökkbreytingunni og fylgi þeim
fjölskyldum eftir sem hafa ætt-
arsögu. Þá er hægt að fara í gena-
próf og láta athuga hvort stökk-
breytingin er til staðar og ef svo
er fara þeir einstaklingar reglu-
lega í húðskimun og í skimun fyrir
öðru krabbameini, sérstaklega
briskrabbameini.
Ungar konur og eldri karlar
Spurð hverjir greinist helst með
sortuæxli segir Hildur Björg að
sortuæxli sé eitt algengasta
krabbameinið í ungu fólki en ann-
ars sé það dálítið mismunandi milli
kynja. „Ungar konur eru mikill
áhættuhópur og eldri karlar er
annar sterkur áhættuhópur. Ungu
konurnar eru að brenna sig í sól-
inni, fara frá engu upp í sólbruna,
stunda sólbekki, en eldri karlarnir
eru þeir sem hafa alltaf verið út-
settir fyrir sólinni. Þeir eru búnir
að vera mikið úti alla ævi, eru t.d.
bændur, sjómenn eða smiðir.“
Batahorfur stórbatnað
Mikil umbylting hefur átt sér
stað í lyfjameðferð sortumeina síð-
ustu ár og batahorfur hafa stór-
batnað. „Fyrir nokkrum árum
voru 25% þeirra sem greindust
með útbreiddan sjúkdóm enn á lífi
eftir eitt ár og eftir tvö ár eig-
inlega enginn. Núna eru 75% enn
á lífi eftir eitt ár. Margir ná langri
lifun með sjúkdóminn í dag, sem
er algjör bylting fyrir sjúklingana
og okkur sem erum að vinna með
þennan sjúkdóm, sem var dauða-
dómur fyrir nokkrum árum,“ segir
Hildur Björg.
Lyfin sem skila þessum árangri
skiptast í tvo flokka, í fyrsta lagi
ákveðin ónæmislyf og svo mark-
sækin lyf. Hefðbundin krabba-
meinslyf hafa ekkert að segja við
sortuæxlum eftir að þau hafa
dreift sér. „Nú þegar þessi lyf eru
komin er mikið verið að skoða
svipuð lyf og mismunandi sam-
setningu af lyfjunum og læra á
nýjar aukaverkanir m.v. gömlu
krabbameinslyfin. Ónæmislyfin
ráðast t.d. á heilbrigða vefi eigin
líkama hjá nokkrum prósentum
þeirra sem fá þá meðferð. Það get-
ur verið hættulegt og því er enn
verið að læra á lyfin og hvernig
höndla má aukaverkanirnar,“ segir
Hildur Björg. Hún er bjartsýn á
að batahorfur sortuæxlissjúklinga
haldi áfram að batna. „Við erum
komin með algjörlega ný verkfæri
í þessari baráttu og á næstu árum
mun sú bylting halda áfram og enn
betri lyf koma til skjalanna.“
Sortuæxli geta verið ættgeng
Stökkbreyting í geninu CDKN2A eykur stórlega hættuna á að fá sortuæxli Um áttrætt hafa um
100% þeirra sem eru með genið fengið sortuæxli eða annað krabbamein Ný lyf stórbætt batahorfur
AFP
Á ströndinni „Ungar konur eru mikill áhættuhópur og eldri karlar er annar sterkur áhættuhópur. Ungu konurnar
eru að brenna sig í sólinni, fara frá engu upp í sólbruna, stunda sólbekki,“ segir Hildur Björg.
Hildur Björg
Helgadóttir
Primera Air telur ríkissáttasemjara
ekki hafa lögsögu í kjaradeilu flugliða
við Primera, samkvæmt því sem kem-
ur fram í athugasemd frá félaginu,
sem það sendi fjölmiðlum í gær, undir
fyrirsögninni „Primera Air leiðréttir
rangfærslur“.
Orðrétt segir m.a. í athugasemd
Primera: „ Í fjölmiðlum í dag er haft
eftir skrifstofustjóra hjá ríkissátta-
semjara að það hafi aldrei gerst í sögu
embættisins að deiluaðili mæti ekki til
boðaðs sáttafundar. Var þar vísað til
þess að Primera Air hafi ekki mætt á
sáttafund sem boðaður hafði verið
degi fyrr. Samhliða er birt afstaða Al-
þýðusambands Íslands vegna deilna
sem sambandið telur sig eiga í við Pri-
mera Air
Primera Air telur ríkissáttasemj-
ara ekki hafa lögsögu í því máli sem til
hans var vísað, auk þess sem ekki sé
til staðar vinnudeila sem boða þarf
sáttafund til að leysa úr. Ástæða þess
er margþætt. Til að mynda má nefna
að Primera Air starfar ekki á íslensk-
um vinnumarkaði og stendur auk þess
ekki í kjaradeilu. Flugliðar um borð í
flugvélum félagsins eru ekki meðlimir
í Flugfreyjufélagi Íslands og hefur
Flugfreyjufélagið því ekki umboð til
að semja fyrir þeirra hönd. Að auki
eru umræddir flugliðar ekki í ráðning-
arsambandi við Primera Air svo félag-
ið getur þar af leiðandi að sjálfsögðu
ekki samið um kjör þeirra. Fluglið-
arnir eiga þar að auki ekki í kjaradeil-
um við Primera Air eða aðra. Með vís-
an til alls þessa var ríkissáttsemjari
ítrekað upplýstur um að Primera Air
myndi ekki mæta á boðaða fundi.“
Í lok athugasemdar Primera kem-
ur fram að kjósi Flugfreyjufélag Ís-
lands að halda málinu til streitu og
boða á ný til verkfalls hjá Primera Air,
sem félagsdómur hafi 2017 talið ólög-
mæta verkfallsboðun, muni Primera
Air sækja málið fyrir félagsdómi líkt
og fyrr. agnes@mbl.is
Hafi ekki lög-
sögu í málinu
Ósammála ríkissáttasemjara og ASÍ
Primera Primera Air telur sig ekki
eiga í kjaradeilu við flugliða sína.