Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 35
sjávarútvegsdeild til 1962. Þá hóf
hann störf hjá Vélsmiðjunni Héðni
og vann þar til ársins 2008, lengst
af sem yfirbókari.
Elías byrjaði að sparka bolta á
Framnesvellinum á horni Hring-
brautar og Framnesvegar, ásamt
KR-ingunum Þórólfi Beck, Ellert
Schram og Kristni Jónssyni. Hann
gekk þó í Val og æfði og keppti í
knattspyrnu með félaginu í öllum
aldursflokkum, varð nokkrum
sinnum Íslandsmeistari og
Reykjavíkurmeistari í yngri flokk-
um, lék 100 keppnisleiki með
meistaraflokki á árunum 1956-62,
varð Íslandsmeistari 1956 og
Reykjavíkurmeistari 1962 og lék
með nokkrum úrvalsliðum.
Elías sat í stjórn knattspyrnu-
deildar Vals og var formaður
knattspyrnudeildar í fjögur ár, sat
í aðalstjórn Vals um skeið, sat í
stjórn KRR, Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur, í átta ár, sat í stjórn
KSÍ í áratug og var gjaldkeri KSÍ
í átta ár. Hann þjálfaði 4. flokk
Vals í þrjú ár og æfði og keppti á
skíðum með Ármanni á unglings-
árunum.
Elías hefur starfað í Lions-
klúbbnum Baldri um langt árabil,
setið í stjórn klúbbsins og verið
formaður hans. Hann hefur auk
þess starfað í Akoges Reykjavík í
50 ár og sinnt þar ýmsum trún-
aðarstörfum.
Elías var sæmdur heiðurskrossi
ÍSÍ fyrir fáum árum.
Elías er spurður hvort hann
hvetji ekki enn sína menn til dáða:
„Jú, jú. Sú var tíðin að ég fór á
nánast alla leiki. Síðan lét ég
heimaleikina duga og fer reyndar
enn á völlinn þó ég hafi dregið úr
því í seinni tíð. Mér finnst samt
alltaf jafn gaman að fylgjast með
góðum knattspyrnuleik. Svo hef
ég lengst af mætt á þorrablótin
hjá Val og Herrakvöldið til að
hitta gamla félaga og rifja upp
gamla tíma.“
Nú eru allir að tala um hreyf-
ingu og útiveru. Þú varst nú alltaf
mikið fyrir að hreyfa þig?
„Já. Mér fannst það svo sjálf-
sagt að það tæki því varla að
minnast á það. Þetta var alltaf
sjálfsagður þáttur í daglegu lífi
manns. Ég fór alltaf daglega í
sund um langt árabil og fjöl-
skyldan fór töluvert á skíði hér
áður fyrr en við drógum svo úr
því, líklega helst vegna snjóleysis
hér í nágrenni borgarinnar.“
Fjölskylda
Elías kvæntist 7.12. 1963 Val-
gerði Önnu Jónasdóttur, f. 21.2.
1941, verslunarmanni hjá SÍS og
síðar skrifstofumanni hjá Sjálf-
stæðisflokknum. Hún er dóttir
Jónasar Þorvaldssonar, skóla-
stjóra í Ólafsvík, og Magneu G.
Böðvarsdóttur, húsfreyju frá
Laugarvatni.
Börn Elíasar og Valgerðar
Önnu eru 1) Hergeir Elíasson, f.
31.3. 1967, iðnfræðingur hjá GG
Verk, en kona hans er Rósa Guð-
mundsdóttir, starfsmaður hjá
Reykjavíkurborg, og eru þau með
fjögur börn; 2) Margrét Elíasdótt-
ir, f. 10.5. 1970, ritari hjá KSÍ, en
maður hennar er Hermann
Hauksson, verslunarmaður hjá
Boss og eiga þau þrjú börn; 3)
Ragnheiður Elíasdóttir, f. 3.1.
1973, ritari hjá KSÍ, en maður
hennar er Sigurður Egill Þor-
valdsson, starfsmaður hjá Alcan í
Straumsvík, og eiga þau þrjú
börn, og 4) Jónas Elíasson, f. 20.9.
1975, tölvumaður hjá Advania og
dómari í handbolta, en kona hans
er Arna Sigurðardóttir og á hann
þrjú börn auk þess sem hún á
þrjú börn.
Systkini Elíasar: Valdimar Her-
geirsson, f. 9.8. 1930, d. 28.10.
2017, kennari og aðstoðarskóla-
stjóri VÍ, var búsettur í Reykja-
vík; Haukur Hergeirsson, f. 24.8.
1931, d. 2.3. 2014, rafvirki og síð-
ast ljósamaður hjá RÚV – Sjón-
varpi; Herdís Hergeirsdóttir, f.
21.3. 1935, d. 26.9. 2009, kaupkona,
var búsett í Garðabæ.
Foreldrar Elíasar voru Hergeir
Elíasson, f. 7.1. 1901, d. 23.1. 1959,
togaraskipstjóri, búsettur í
Reykjavík, og k.h., Ragnheiður G.
Þórðardóttir, f. 10.11. 1901, d.
21.6. 1969, húsfreyja.
Elías Hergeirsson
Þórður Helgason
b. á Rafnkelsstöðum í Garði
Ingibjörg Árnadóttir
húsfr. á Rafnkelsstöðum
Guðríður Jóhannsdóttir
bústýra á Stóru-Grund og víðar
Ragnheiður Guðmunda Þórðardóttir
húsfreyja í Rvík
Guðríður Björnsdóttir
húsfreyja á Laxárfossi
Jóhann Jónsson
b. á Laxárfossi í Stafholtstungum
Þórður Þórðarson
vinnum. á Þingvöllum,
Miðfelli, Álfsnesi, í Engey,
á Stóru-Grund og víðar
Þorsteinn
Björnsson
fríkirkjuprestur
í Rvík
Pálína
Þórðardóttir
húsfr. í
Miðhúsum í
Gerðahreppi
Páll
Þorsteins son
héraðsdómari
Elísabet Þórðardóttir húsfr.
í Varmadal á Kjalarnesi
Þorsteinn Þórðarson
húsgagnabólstrari í Rvík
Margrét Elíasdóttir húsfreyja í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Haukadal
Bjarni Jónasson
b. í Haukadal í Dýrafirði
Þórkatla Bjarnadóttir
húsfr. á Þingeyri
Elías Guðbjartur Arnbjörnsson
járnsmiður á Þingeyri
Ingibjörg Bjarnadóttir
vinnukona í Dýrafirði
Arnbjörn Jónsson
vinnum. víða í Dýrafirði
Úr frændgarði Elíasar Hergeirssonar
Hergeir Elíasson
togaraskipstjóri í Rvík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018
Ívar Guðmundsson fæddist íReykjavík 19.1. 1912. Hann varsonur Guðmundar Jónssonar
verkstjóra og Sesselju Stefánsdóttur
húsfreyju.
Eiginkona Ívars var Barbara Guð-
mundsson frá Manitoba í Kanada.
Þau hjónin eignuðust þrjá syni, þá
Bryan, Bruce og Pétur.
Ívar stundaði nám við Mennta-
skólann í Reykjavík og síðan við
Menntaskólann á Akureyri á árunum
1927-31. Þá gerðist hann blaðamaður
við Morgunblaðið og átti eftir að
verða einn þekktasti blaðamaður
landsins og víðkunnur blaðafulltrúi
og fréttaritari. Hann var fréttastjóri
við Morgunblaðið á árunum 1934-51.
Ívar varð blaðafulltrúi hjá upplýs-
ingadeild Sameinuðu þjóðanna í New
York árið 1951. Eftir það starfaði
hann hjá Sameinuðu þjóðunum og
rak upplýsingaskrifstofu fyrir Norð-
urlönd í Kaupmannahöfn 1955-60, var
upplýsingafulltrúi við friðarsveitir SÞ
á Ítalíu og í Kaíró, blaðafulltrúi við
ráðstefnu utanríkisráðherra stórveld-
anna í Genf 1959, blaðafulltrúi forseta
allsherjarþingsins í New York 1961
og síðan forstjóri skifstofunnar í Kar-
achi til 1965. Þá tók hann aftur við í
Kaupmannahöfn.
Hann var deildarstjóri alþjóða-
deildar upplýsingaskrifstofu Samein-
uðu þjóðanna í New York á árunum
1967-70 en árið eftir varð hann aðal-
fulltrúi við mannfjöldasjóð SÞ.
Eftir að Ívar lauk störfum hjá SÞ
fyrir aldurs sakir gerðist hann ræðis-
maður Íslands í New York og var
jafnframt viðskiptafulltrúi við sendi-
ráðið í Washington. Er því starfs-
skeiði lauk, 1986, kom Ívar aftur að
Morgunblaðinu sem fréttaritari
blaðsins í Washington og sendi heim
fréttir frá Bandaríkjunum allt til
1992.
Ívar flutti heim til Íslands árið 1996
og átti þá við veikindi að stríða. Síð-
ustu mánuðina var hann búsettur á
Skjóli þar sem hann fékk hægt andlát
hinn 2.6. 1996.
Merkir Íslendingar
Ívar Guðmundsson
101 árs
Katrín Jóhanna Gísladóttir
100 ára
Áslaug Helgadóttir
95 ára
Hallgrímur Oddsson
90 ára
Þórdís Grímheiður
Magnúsdóttir
85 ára
Anja Honkanen
Gísli Arnkelsson
Svanur Jónsson
80 ára
Bergur Ingólfsson
Elías Hergeirsson
Ingibjörg Erlingsdóttir
75 ára
Anna Jóna Kristjánsdóttir
Bryndís Hulda Búadóttir
Jón Gunnar Gunnlaugsson
Vigfús Ingólfsson
70 ára
Jenný Sigrún Elíasdóttir
60 ára
Anna Ólafía Guðnadóttir
Ágúst Ragnarsson
Ellý Vilhjálmsdóttir
Guðmundur Rúnarsson
Guðríður M. Sveinarsdóttir
Gunnar Þórarinsson
Jón Ísak Harðarson
Kristín Guðmundsdóttir
Kristín Þórdís Reynisdóttir
Kristján Jónasson
Magnús Steinar
Magnússon
Ólafur Valgeir Guðjónsson
Sigurborg M.
Guðmundsdóttir
50 ára
Brynhildur Gunnarsdóttir
Guðbjörg A.
Benediktsdóttir
Jóhann Kristinn Grétarsson
Jón Hreiðar Sigurðsson
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Steinar Guðmundsson
Wojciech Szaro
Þorleifur Páll Ólafsson
40 ára
Baldvin Árnason
Björgvin Marinó Pétursson
Davíð Ólafsson
Guðni Agnar Kristinsson
Hermann Reynir
Hermannsson
Jakob Már Stefánsson
Linda María Jóhannsdóttir
Sara Sigurðardóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Þórunn Harðardóttir
30 ára
Adrian Artur Oleszczuk
Alma Rut Þorleifsdóttir
Brynja Gunnarsdóttir
Brynleifur Hlynsson
Elva Hrönn Smáradóttir
Heiðrún Gissunn Káradóttir
Hermann Þór Hauksson
Jóhanna Íris Hjaltadóttir
Kolbrún Stefánsdóttir
Monika Zak
Sandis Isjomins
Sylvía Hera Skúladóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Kolbrún ólst upp
í Kópavogi, býr í
Mosfellsbæ og er í
fæðingarorlofi.
Maki: Arnar Agnarsson,
f. 1989, framkvæmda-
stjóri eigin fyrirtækis.
Dóttir: Sóldögg Arnars-
dóttir, f. 2017.
Foreldrar: Margrét
Einarsdóttir, f. 1956,
leikskólakennari, og
Stefán Ingólfsson, f.
1951, arkitekt. Þau eru
búsett í Kópavogi.
Kolbrún
Stefánsdóttir
30 ára Sylvía ólst upp á
Hvammstanga, býr á Akra-
nesi og starfar við leikskól-
ann Vallasel.
Maki: Stefán Örn Karls-
son, f. 1985, starfsmaður
hjá Norðuráli á Grundar-
tanga.
Börn: Dagný Rós, f. 2008;
Tristan Snær, f. 2010, og
Viktor Snær, f. 2013.
Foreldrar: Guðrún Esther
Jónsdóttir, f. 1969, og
Skúli Hreinn Guðbjörns-
son, f. 1965.
Sylvía Hera
Skúladóttir
30 ára Jóhanna ólst upp
á Kvistási í Eyjafjarðar-
sveit, býr á Selfossi, lauk
framhaldsstigi í klass-
ískum söng frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri og
stundar nú nám í búvís-
indum við LBHÍ.
Maki: Hörður Ársæll Sig-
mundsson, f.1982, stál-
smiður hjá Landstólpa.
Foreldrar: Arnbjörg Jó-
hannsdóttir, f. 1964, og
Hjalti Þórsson, f. 1957.
Þau búa á Kvistási.
Jóhanna Íris
Hjaltadóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón