Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018
Þjóðleikhúsið hefur um nokk-urt skeið sinnt ungum leik-húsgestum vel. Bara á yfir-standandi leikári hafa börn
getað séð ævintýrasöngleikinn
Fjarskaland, jólasýninguna Leitin að
jólunum og brúðusýninguna Pétur og
úlfinn úr smiðju Bernds Ogrodnik
sem sett var upp í samstarfi við
Brúðuheima auk þess sem brúðu-
meistarinn Bernd hefur tekið á móti
elstu deildum leikskóla í sögustund.
Tvær nýjar uppfærslur bættust við í
vetur, báðar í leikstjórn Björns Inga
Hilmarssonar sem sér um barna- og
fræðslustarf Þjóðleikhússins. Þetta
eru Oddur og Siggi sem leikin hefur
verið víðs vegar um landið til að leyfa
fleirum að njóta hæfileika Þjóðleik-
hússins óháð búsetu og Ég get sem
frumsýnd var í Kúlunni fyrir
skemmstu og gæti einnig hæglega
farið í leikferð um landið enda um-
gjörðin einföld.
Leiksýningin Ég get kemur úr
smiðju Peters Engkvist þar sem hún
var frumsýnd hjá Teater Pero í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum, en leikstjóri
sýningarinnar og þýðandi, Björn
Ingi, starfaði um nokkurra ára skeið
með Engkvist undir merkjum Teater
Pero. Engkvist er Íslendingum að
góðu kunnur, en meðal leiksýninga
sem hann hefur leikstýrt hérlendis
eru Ormstunga, Mr. Skallagrímsson
og Maðurinn sem hélt að konan hans
væri hattur.
Ég get er hugsuð fyrir allra yngstu
áhorfendurna, sem eru frá tveggja til
fimm ára, og er afbragðskynning á
töfrum leikhússins. Sýningin er að-
eins 30 mínútur að lengd og inniheld-
ur heillandi lýsingu Hermanns Karls
Björnssonar, hljóðmynd Kristins
Gauta Einarssonar þar sem tónlist
eftir m.a. Philip Glass og Caravan Pa-
lace skapar viðeigandi stemningu, lit-
ríka búninga Leilu Arge sem gleðja
augað og leikmynd sem sam-
anstendur að stórum hluta af brúnum
pappakössum í mismunandi stærðum
sem stafla má líkt og um kubba væri
að ræða, en útlit sýningarinnar er
byggt á hugmyndum Peters Eng-
kvist og Linu Serning sem Högni Sig-
urþórsson útfærir.
Í verkinu fáum við að fylgjast með
tveimur nafnlausum verum af sitt-
hvoru kyni. Sá litli texti sem er not-
aður einkennist af einföldum, stuttum
setningum á borð við „ég get“, „ég á
þetta allt“ og „ég er bestur“. Í upp-
hafi sýningar er það stúlkan sem hef-
ur eignarhald á leikrýminu sem af-
markast af litríku teppi alsettu
þríhyrningum, en eins og hendi væri
veifað hefur strákurinn skyndilega
tekið yfirhöndina án þess að um-
skiptin væru skýrð með nægjan-
legum hætti. Verurnar tvær bítast
eins og krakkar í sandkassa um leik-
munina, vilja gjarnan skoða dót hins
án þess þó að gefa sitt eftir.
Átökin um yfirráðin gleymast hins
vegar reglulega þegar verurnar tvær
detta inn í hina ýmsu leiki þar sem
rytmi gegnir vegamiklu hlutverki,
eins og sést vel í rigningarkaflanum.
Byggja má skemmtilegan turn úr
pappakössum og láta þá snúast með
dáleiðandi hætti, garðkönnur úr
blikki svífa um í heillandi dansi og
skapa má kunnugleg dýr úr pappa og
blikkpottum fái ímyndunaraflið að
ráða för.
María Thelma Smáradóttir og
Stefán Hallur Stefánsson hafa góða
sviðsnærveru og gættu vel að tengsl-
unum við áhorfendur. Á stundum
saknaði rýnir þess þó að leikararnir
sýndu okkur þegar hugmyndin að
nýjum leik kviknaði.
Fegurð verksins felst í ferðalaginu
frá mér og þér til okkar, en verurnar
tvær uppgötva að með samvinnu og
samleik geta undirsamlegir hlutir
gerst sem jaðra við töfra.
Ljósmynd/Halldór Örn Óskarsson
Töfrar „Fegurð verksins felst í ferðalaginu frá mér og þér til okkar, en ver-
urnar tvær uppgötva að með samvinnu og samleik geta undirsamlegir hlut-
ir gerst sem jaðra við töfra,“ segir í rýni um barnasýninguna Ég get.
Þar sem ímyndunar-
aflið fær að blómstra
Þjóðleikhúsið
Ég get bbbmn
Eftir Peter Engkvist. Leikstjórn og ís-
lensk þýðing: Björn Ingi Hilmarsson.
Leikmynd: Högni Sigurþórsson, en útlit
sýningarinnar er byggt á hugmyndum
Peters Engkvist og Linu Serning. Bún-
ingar: Leila Arge. Lýsing: Hermann Karl
Björnsson. Hljóðmynd: Kristinn Gauti
Einarsson. Leikarar: María Thelma
Smáradóttir og Stefán Hallur Stefáns-
son. Frumsýning í Kúlunni í Þjóðleikhús-
inu 7. janúar 2018, en rýnt í 2. sýningu
14. janúar 2018.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
The Pain Tapestry nefnist ein-
leikur eftir ensk-armenska skáldið
Baret Magarian sem leikhópurinn
Lab Loki sýnir í Tjarnarbíói í kvöld
og annað kvöld kl. 21. Sýningin er
leikin á ensku af leikaranum Páli
Sigþóri Pálssyni og leikstýrt af
Rúnari Guðbrandssyni. Haukur
Valdimar Pálsson sér um hljóð, lýs-
ingu og myndefni í sýningunni.
Leikritið fjallar um sendil sem er
einn á ferð í gömlum kagga, með
dularfullan pakka, á leið þvert yfir
Bandaríkin. Hann byrjar að velta
vöngum yfir eðli tilverunnar og til-
gangsleysi eigin lífs og rekst á alls
kyns einkennilegar persónur á
vegahótelunum við þjóðveginn.
Páll Sigþór flutti nýverið heim til
Íslands eftir áralanga búsetu í Eng-
landi. Þar útskrifaðist hann frá Gu-
ildford School of Acting og starfaði
með The Rude Mechanical Theatre
Company frá árinu 2000. Um er að
ræða farandleikhóp sem samdi sýn-
ingar innblásnar af Commedia
dell’Arte-hefðinni.
Sýnir einleikinn The Pain
Tapestry í Tjarnarbíói
Sendill Páll Sigþór bregður sér í
margvísleg hlutverk í sýningunni.
The Post
Nýjasta kvikmynd leikstjórans Ste-
vens Spileberg. Hún er sannsögu-
leg og fjallar um það er blaðamenn
Washington Post komust árið 1971
yfir trúnaðargögn sem nefnd hafa
verið Pentagon-skjölin. Þau inni-
héldu m.a. upplýsingar um að
bandarískr stjórnvöld hefðu ekki
sagt satt um gang stírðsins Víet-
nam. Með aðalhlutverk fara Tom
Hanks og Meryl Streep.
Metacritic: 83/100
Three Billboards Outside
Ebbing, Missouri
Gamandrama eftir leikstjórann
Martin McDonagh sem segir af
Mildred Hayes, fráskilinni móður
sem syrgir táningsdóttur sína sem
myrt var með hrottalegum hætti.
Sjö mánuðum frá morðinu hefur
morðrannsókninni ekkert miðað og
Hayes þykir lögreglumenn smábæj-
arins sem hún býr í, Ebbing í Mis-
souri, lítið aðhafast. Hún ákveður
því að stilla upp þremur skiltum við
bæjarmörkin með skilaboðum til
lögreglustjórans. Með aðalhlutverk
fara Frances McDormand, Woody
Harrelson og Sam Rockwell.
Metacritic: 88/100
12 Strong
Sönn saga af tólf manna sveit her-
manna sem send var til Afganistans
eftir hryðjuverkaárásina á tvíbura-
turnana í New York 11. september
2001. Sveitin átti að aðstoða afg-
anska vinasveit Bandaríkjanna í
baráttunni við talíbana og reyndist
þetta mikil hættuför. Leikstjóri er
Nicolai Fuglsig og með aðalhlut-
verk fara Chris Hemsworth, Mich-
ael Shannon og William Fichtner.
Metacritic: 58/100
Bíófrumsýningar
Leki, sorg og stríð
Verðlaunamynd Úr Three Billboards Outside Ebbing, Missouri sem hlotið
hefur mikinn fjölda verðlauna og þykir líkleg til afreka á Óskarnum.
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
Dekraðu við línurnar
Að vera í brjóstahaldara
í réttri stærð skiptir miklu
máli, gefðu þér tíma,
við erum á Laugavegi 178
Haldari 8.950 kr.
Buxur 3.650 kr.
Misty
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 8, 10.40 Sýnd kl. 3.30, 5.45
Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5 Sýnd kl. 3.30, 5.45