Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.01.2018, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 ✝ Gíslína Garð-arsdóttir fædd- ist að Vesturgötu 58 í Reykjavík 12. desember 1935. Hún lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu í Kópavogi 7. janúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Jóna Sigur- vina Björnsdóttir, fædd á Hánefs- stöðum í Svarfaðardal 26. sept- ember 1896, d. 29. mars 1966, og Garðar Jónsson, fæddur á Tindriðastöðum í Hvalvatnsfirði 6. nóvember 1898, d. 6. sept- ember 1967. Gíslína, eða Gígí eins og hún var ávallt kölluð, var yngst í röð fimm systra. Hinar voru: Þór- unn Bjarney, f. 2. september 2003; 2) Guðrún Katla, f. 28. maí 1968, gift Helgu Sigurjóns- dóttur; 3) Henry Alexander, f. 2. júní 1973, giftur Regínu Bjarna- dóttur. Börn þeirra eru Elín Katla, f. 2003, Emma Karen, f. 2008 og Henry Benedikt, f. 2012. Gígí ólst upp í Vesturbænum og stundaði nám í Miðbæjarskól- anum og Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Sem ung kona tók Gígi mikinn þátt í starfi skáta- hreyfingarinnar á Íslandi, fyrst innan Kvenskátafélags Reykja- víkur og síðar Skátasambands Reykjavíkur. Árið 1956 flutti hún með Henry Þór til útlanda, en þau bjuggu í Þýskalandi og Austurríki um árabil. Í Graz í Austurríki lauk Gígí námi í snyrtifræði árið 1961 og prófi sem fótaaðgerðafræðingur ári seinna. Eftir að heim til Íslands var komið starfaði hún mest sem fótaaðgerðafræðingur og rak lengi eigin stofu í Lönguhlíð 3. Útför Gíslínu verður frá Foss- vogskirkju í Reykjavík í dag, 19. janúar 2018, og hefst hún klukk- an 13. 1918, d. 18. janúar 2008; Sigurveig Mýrdal, f. 15. júlí 1924; Gerða Tóm- asína f. 17. ágúst 1927, d. 3. febrúar 2017 og Auður, f. 21. maí 1934, d. 18. mars 2013. Árið 1956 giftist Gígi Henry Þór Henryssyni, f. 23. mars 1934, en hann er sonur hjónanna Henrys A. Hálfdanssonar og Guðrúnar S. Þorsteinsdóttur. Börn hennar og Henrys Þórs eru: 1) Jón Garðar, f. 16. apríl 1966, d. 1. janúar 2018. Eftirlifandi eigin- kona hans er Halla Skúladóttir. Dætur þeirra eru Marín, f. 1991, sambýlismaður Björn Ásgeirs- son, Sóley, f. 2001 og Ásta f. Mjúk. Það er fyrsta orðið sem kemur upp í hugann minn þegar ég hugsa um ömmu. Knúsin hennar voru alltaf bestu knúsin. Þau voru svo mjúk og hlý. Manni fannst maður alltaf vera öruggur og eins og ekkert hræðilegt myndi gerast. Amma gerði alltaf allt fyrir alla – og þá sérstaklega fyrir barnabörnin. Amma var fullkom- in fyrir ömmuhlutverkið, var al- veg fædd inn í það. Hún átti alltaf allt fyrir mann og það leið ekki ein sekúnda sem maður var svangur hjá henni því hún var dugleg að mata mann með öllu á milli himins og jarðar. Amma elskaði að raula vísur, og voru þær ófáar vísurnar sem hún raul- aði fyrir mig á meðan hún strauk á mér bakið og lét mér líða vel. Í miklu uppáhaldi hjá okkur var „Í skóginum stóð kofi einn“. Ömmu verður sárt saknað en allar hlýlegu minningarnar munu ylja manni á þessum erfiðu tím- um. Amma, ég elska þig. Elín Katla. Kær mágkona er nú kvödd. Í hugum okkar er björt minningin um það er Henry Þór bróðir kynnti okkur fyrir Gíslínu unn- ustu sinni, eða Gígí eins og hún var jafnan kölluð, en þau höfðu kynnst í skátastarfi á sjötta ára- tug síðustu aldar. Gígí var glæsi- leg stúlka er ljómaði af, hógvær og hlýleg. Þannig var hún alla tíð. Var henni vel fagnað í fjölskyld- unni. Hún var sérstaklega barn- elsk og þess nutu þau einkum er voru yngst í systkinahópnum. Börnin hennar þrjú er síðar komu til sögunnar voru svo sann- arlega alin upp við ástúð og um- hyggju og nutu þeirrar natni og myndarskapar sem einkenndi ætíð heimili þeirra hjóna. Síðustu árin áður en veikindi skárust í leikinn hjá Gígí héldu þau Henry heimili bæði í Reykjavík og aust- ur á Sumarliðabæ þar sem þau stunduðu skógarbúskap eftir að þau komust á eftirlaunaaldur. Þar leið þeim vel, ekki síst þegar börnin og barnabörnin komu í heimsókn. Nú þegar erfiðu dauðastríði er lokið og komið að kveðjustund minnumst við með hlýju allra þeirra góðu stunda er við og fjöl- skyldur okkar áttum með Gígí og þökkum fyrir þá tryggð og vin- áttu er við nutum af hennar hálfu. Einnig má ekki gleyma þeirri ástúð sem hún sýndi ætíð foreldrum okkar sem mátu hana mikils og þótti innilega vænt um hana. Henry Þór, börn þeirra, tengdabörn og barnabörn hafa misst mikið og er hugur okkar með þeim á þessari sorgarstund. Helga, Haraldur, Hálfdan og Hjördís. Með söknuði og hlýjum huga kveð ég móðursystur mína, Gísl- ínu Garðarsdóttur, sem við í fjöl- skyldunni kölluðum Gígí. Hún ólst upp í samhentum og glað- værum hópi fimm systra á Vest- urgötu 58 í Reykjavík. Þær syst- ur báru með sér andblæ foreldra sinna, Garðars afa og Jónu ömmu, úr norðlenskum dölum og frá Akureyri í upphafi 20. aldar. Þær héldu nánu og kærleiksríku sambandi alla tíð. Nú eru fjórar þeirra fallnar frá. Við systrabörnin erum lánsöm að hafa tilheyrt kynslóðinni sem ólst upp í skjóli þeirra systra. Mikill samgangur var á milli okkar barnanna og margar góð- ar minningar eru frá heimsókn- um og samkomum í fjölskyld- unni, þar sem oft var kátt á hjalla. Það var mikið hlegið þegar þær komu saman systurn- ar fimm. Gígí var yngst þeirra systra. Í barnsminni mínu var hún rólynd og hlý og einstaklega barngóð. Ég var reyndar svo heppinn að kynnast Gígí nýfæddur, þótt ég muni ekkert eftir því. Hún kom 14 ára í vist norður á Siglufjörð þar sem mamma var með mig á fyrsta ári. Pabbi var á togaran- um og landlegur strjálar og stuttar. Mamma þáði því fé- lagsskap yngri systur og aðstoð með þökkum. Af ljósmyndum sé ég að Gígí stjanaði við mig, dúll- aði við mig í vöggunni og keyrði mig í vagni ótal ferðir um ójöfn- ur síldarbæjarins sumarið 1950. Ég veit að ég bý enn að því upp- eldi. Alla tíð var gott að umgangast Gígí og þiggja bros eða góð ráð frá þeim Henrý. Hún passaði síð- ar Sigurveigu fyrir okkur Maju. Þar vissum við að hún var í nær- gætnum og öruggum höndum. Gígí var hjartahlý og um- hyggjusöm og ávallt áhugasöm um fjölskyldu og vini. Nú hefur hún kvatt eftir erfið veikindi. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt hana Gígí frænku. Ég sendi Henry Þór og fjöl- skyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minningin um um- hyggjusama frænku. Sigurjón Mýrdal. Gíslína Garðarsdóttir ✝ Teitur Jónassonfæddist í Borgarnesi 31. jan- úar 1930. Hann lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boða- þing í Kópavogi 1. janúar 2018. Foreldrar Teits voru hjónin Ingveld- ur Teitsdóttir hús- móðir, f. 7.5. 1901, d. 11.12. 1981, og Jónas Kristjánsson kaupmaður, f. 17.6. 1895, d. 8.6. 1964. Systir Teits var Kristín Jónasdóttir, f. 21.2. 1931, d. 20.3. 2012, kaup- maður í Borgarnesi, gift Braga Jóhannssyni verkstjóra. Teitur kvæntist 27.12. 1952 Ástbjörgu Halldórsdóttur hús- móður, f. 17.10. 1930, d. 3.5. 2013. Foreldrar hennar voru Ást- björg Magnúsdóttir húsmóðir og Halldór Þórarinsson inn- heimtumaður. Börn Teits og Ást- bjargar eru Halldóra skrif- stofustjóri, f. 8.4. 1953, gift Jónasi Haraldssyni, fv. ritstjóra, og eiga þau fjögur börn. 1) Jónas Teitsson, f. 31.12. 1954, d. 6.8. 2009, framkvæmdastjóri, hans kona Inga Marta Jónasdóttir farin ár. Teitur starfaði að mál- efnum Kiwanishreyfingarinnar í Kópavogi um árabil. Hann sat í Ferðamálaráði um hríð, formað- ur skipulagsnefndar Landflutn- ingamanna, formaður Hóp- ferðaleyfishafa og var einn af stofnendum Hópferðamið- stöðvarinnar. Samhliða rekstri eigin hópferðafyrirtækis er fyrirtæki hans með umboð fyrir rútuyfirbyggingar og hefur flutt inn fjölmargar rútur, bæði til eigin nota og fyrir önnur hóp- ferðafyrirtæki. Teitur var áhugamaður um skógrækt og sjást þess glögg merki á sælureit- um þeirra Ástbjargar, fyrst í Grímsnesi og síðar í Laugarási í Biskupstungum. Þá hefur hann og fyrirtækið stutt Skógræktar- félag Kópavogs um árabil við skógrækt í Guðmundarlundi í Kópavogi. Teitur og Ástbjörg fluttu í Kópavog 1954 og bjuggu þar all- an sinn búskap, lengst af í Holta- gerði, þá í Gullsmára og loks í Laxalind áður en þau fluttu í þjónustuíbúð við Boðaþing. Síð- ustu árin, eftir að Ástbjörg lést, dvaldi Teitur á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Boðaþing. Útför Teits verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 19. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. hjúkrunarfræð- ingur og eiga þau þrjú börn, fyrir átti Jónas einn son. 2) Ingveldur Teits- dóttir, f. 19.9. 1959, skrifstofumaður, gift Gunnari Torfa- syni, fv. fram- kvæmdastjóra, og eiga þau þrjú börn. 3) Haraldur Þór Teitsson, f. 31.8. 1966, framkvæmdastjóri, kvænt- ur Ylfu Edith Jakobsdóttur Fenger, og eiga þau þrjú börn, fyrir átti Haraldur einn son. Barnabarnabörnin eru 21. Teitur ólst upp í Borgarnesi. Hann nam við Bændaskólann á Hvanneyri en stundaði að því loknu bifreiðaakstur og versl- unarstörf í Borgarnesi, auk þess sem hann vann við vegagerð. Hann var um skeið strætis- vagnastjóri hjá SVR en stofnaði eigið og samnefnt hópferða- fyrirtæki í Kópavogi árið 1963. Hann byrjaði smátt en fyrir- tækinu óx fiskur um hrygg undir hans stjórn. Börn hans tóku síðan við stjórninni og hafa rekið hóp- ferðafyrirtækið mörg undan- Elsku pabbi minn, nú hefur þú kvatt þetta jarðlíf eftir farsæla ævi og ert kominn til mömmu, Ástu þinnar, sem þú elskaðir mest. Þegar hún dó saknaðir þú hennar svo mikið að þú hliðraðir til fyrir henni í rúminu þegar þú fórst að sofa og skildir ekkert hvert hún hafði farið þegar þú vaknaðir. Það var mikill kærleikur á milli ykkar. Þú varst framkvæmdaglaður maður og lést ekkert stöðva þig í því sem þú ætlaðir. Mamma kall- aði það „Borgarnesþrjóskuna“. En þar varstu fæddur og ólst upp í frjálsræði með dugnaðarfólki sem lét ekkert aftra sér. Þaðan hafð- irðu það. Þú varst athafnasamur allt þitt líf og í þínum huga var ekkert óframkvæmanlegt. Það var bara að finna réttu leiðina. Þú byggðir hús fyrir fjölskyld- una þína með mikilli útsjónarsemi. Þegar þú vannst hjá Strætó stofnaðir þú, ásamt sjö öðrum, tvöfaldan kvartett til að fara á kóramót í Svíþjóð sem nú, 60 ár- um síðar, starfar enn sem Strætó- kórinn. Í þessari ferð, fyrir 55 ár- um, keyptir þú þér litla rútu til að ferðast um Evrópu með kórinn. Þessi litla rúta varð að rútufyrir- tæki sem stækkaði og var líf þitt og yndi í leik og starfi. Þegar þú fékkst þér sumarhús sastu ekki auðum höndum, þú gróðursettir ekki nokkur tré heldur ræktaðir skóg og varst alltaf eitthvað að framkvæma. Síðustu árin, þegar þú dvaldir í Boðaþingi, var hugurinn oft bund- inn vinnunni. Þú vildir jafnvel ráða starfsstúlkurnar þar í vinnu til þín. Starfsfólkið í Boðaþingi reyndist þér mjög vel. Fyrir það er ég afar þakklát og sendi því mínar bestu kveðjur. Þín dóttir, Halldóra. Fallið er frá góðmenni mikið og í dag fylgjum við honum til grafar. Af því tilefni langar mig að segja nokkur orð um tengdaföður minn, hann Teit Jónasson heitinn. Ég kynntist Teiti árið 1977 í kjölfar sambands okkar Jónasar míns. Í 32 ár þekkti ég hann ekki öðruvísi en sem harðduglegan og sérstaklega brosmildan mann sem var hlýr í allri framkomu og ein- staklega hvetjandi. Hann lagði það aldrei í vana sinn að draga úr fólki, heldur hvatti mann áfram í öllu sem maður vildi gera og hrós- aði þegar vel tókst til. Ég kunni alltaf einstaklega vel við hann Teit og taldi mig heppna að eiga þenn- an hjartahlýja mann að tengda- föður. Teitur minn, mig langar að þakka þér kærlega fyrir mig og þá samfylgd sem við áttum í gegnum lífið. Hvíldu í friði með ástvinum þínum. Inga Marta Jónasdóttir. Framkvæmdagleði er orð sem lýsir Teiti, tengdaföður mínum, best. Hann var athafnaskáld, hafði yndi af því að sjá eitthvað verða til. Hann byggði með eigin höndum hús sitt í Kópavogi þegar sá bær var að myndast, stofnaði ungur sitt eigið hópferðafyrirtæki og var vakinn og sofinn yfir vexti þess og viðgangi. Í byrjun stýrði hann sjálfur sinni eigin rútu og var sum- arlangt í ferðum um landið þvert og endilangt, naut þess að kynna ferðamönnum fegurð þess og fjöl- breytileika, hvort heldur þeir voru innlendir eða erlendir, söng fyrir þá og skemmti á kvöldin, söngvinn og félagslyndur sem hann var. Þegar fyrirtækið stækkaði færðist vinnan að skrifborðinu, ráðnir starfsmenn tóku við akstri hópferðabílanna, auk þess sem Teitur var í tíðum ferðum til Þýskalands, Belgíu og fleiri landa þar sem keyptar voru rútur, byggt yfir þær eða varahlutir sóttir. Í því erilsama starfi nutu margir greið- vikni Teits, sem vildi hvers manns vanda leysa. Teitur naut ekki síður fram- kvæmda við sumarhús þeirra hjóna, Ástu og hans, fyrst í Gríms- nesi og síðar sælureit þeirra í Laugarási í Biskupstungum. Þar á hann mörg handtökin, ruddi jörð og ræktaði skóg. Sama gilti um áhuga hans og hjálpsemi þegar börn hans og tengdabörn komu sér upp þaki yfir höfuðið. Athafna- maðurinn var þar nálægur, lagði gott til og gladdist með sínum. En Teitur stóð ekki einn í sínu stússi. Þétt við hlið hans frá unga aldri var Ásta, Ástbjörg Halldórs- dóttir, Reykjavíkurstúlkan sem hann kynntist þegar hún var við nám í Húsmæðraskólanum á Varmalandi um leið og hann, Borgarnespilturinn, var við nám á Hvanneyri. Saman gengu þau sinn veg upp frá því, studdu hvort annað í einu og öllu, elsk hvort að öðru alla tíð. Börnin urðu fjögur, heimilið stórt og annir miklar, hvort heldur var við rekstur þess eða fyrirtækisins. Nú er löngu og farsælu ævi- starfi lokið. Teitur valdi sér nýárs- dag til brottfarar, reiðubúinn að kanna nýjar lendur með ástinni sinni, henni Ástu, sem hann kvaddi með söknuði fyrir tæpum fimm árum. Hann hafði skilað sínu og vel það – og þau hjón bæði. Þau voru börnum sínum góðar fyrir- myndir og öðrum afkomendum síðar sem afi og amma, langafi og langamma. Tengdaföður mínum þakka ég ljúfa samfylgd og stuðn- ing í áratugi. Megi hann hvíla í friði. Jónas Haraldsson. Það er skrýtið að hugsa til þess að Teitur afi hafi verið árinu yngri en ég er núna þegar ég gerði hann að afa. Ég var skírður í höfuðið á honum og við erum alnafnar þrátt fyrir að hann hafi verið móðurafi minn. Hann var 43 ára þegar ég fæddist og ég naut góðs af því að eiga ungan, orkumikinn afa. Hann var frumkvöðull, algjör töffari og mér mikil fyrirmynd. Ég fylgdist með honum byggja upp sitt fyrirtæki og sín áhuga- mál. Hann hafði bara tvær still- ingar; allt á fullu annars vegar og sofandi yfir sjónvarpinu hins veg- ar. Hann hafði líka gaman af því að láta mig fá verkefni, fannst ég þurfa að vinna og eflaust var það rétt hjá honum. Ætli eftirminni- legasta verkefnið hafi ekki verið þegar hann rétti mér skóflu og bað mig að gróðursetja nokkrar aspir á við sumarbústaðinn austur í Skálholti. Nokkrum dögum og 90 tveggja metra holum síðar var verkinu lokið. Ég fyllist enn stolti þegar ég kem þangað og lít yfir þráðbeinar raðirnar af 12 metra háum öspunum. Ætli þetta hafi ekki verið mitt Mr. Miyagi and- artak þó að ég sé nokkuð viss um að afilafi hafi aldrei séð Karate Kid ósofandi. Afi var líka merkilega mikill græjufíkill og það smitaðist yfir á mig. Hans gleði fólst samt meira í því að eignast græjurnar en að nota þær og ég naut svo sannar- lega góðs af því. Eitt sinn kom afi heim úr Evrópureisu með forláta John Letters-golfkylfur. Ég veit ekki til þess að hann hafi nokkru sinni slegið golfbolta með þeim en við bræður gerðum það svo sann- arlega. Svo var það litla VHS-víd- eóvélin. Þar lagði hann endanlega grunninn að minni græjufíkn og gott ef það hefur ekki verið áhrifa- valdur í mínu starfsvali seinna meir. Afi var líka góður í því að sýna áhuga á því sem maður var að fást við. Það var þægilegt að geta talað við hann um hitt og þetta og finna einlægan áhuga hans. Ég fann í því hvatningu og svo fannst mér tilkomumikið að sjá hversu sjálf- stæður hann var og ákveðinn í sín- um viðskiptum. Ég held að það hafi mótað mig að ákveðnu leyti og hvatt mig í minni viðleitni að gera slíkt hið sama. Nú er ég einn eftir sem ber okkar nafn og það er þá eins gott að standa undir því. Góða ferð minn kæri afi og ég vona að þeir bjóði upp á franskar með píts- unni, hvar sem þú ert. Teitur Jónasson yngri. Nú er elsku afi minn farinn að hitta Ástu ömmu loksins aftur. Afi minn var einstakur maður, sem var svo gaman að fá að vera í kringum. Ég var svo heppin að skólinn minn var í sömu götu og amma og afi bjuggu og fór ég oft til þeirra eftir skóla. Afi var oftast einhvers staðar úti að keyra, en kom í hverju hádegi heim til ömmu í mat og oft með einhverja vinnufélaga sína með sér. Ferðirnar í sumarbústaðinn voru sérstaklega skemmtilegar, alltaf sungið mikið á leiðinni og stoppað í ísbúðinni. Þegar í bú- staðinn var komið voru svo enda- laus verkefni sem þurfti að leysa, og ef það voru engin verkefni var bara farið í að stækka bústaðinn, byggja, breyta eða laga. Afi var líka duglegur að skutlast með okk- ur krakkana fyrir austan, á jetski, í hestaleiguna og í eitt skiptið skellti hann sér með okkur niður Hvítá í flúðasiglingar. Eftir að ég varð eldri fækkaði bústaðaferðunum, en heimsókn- um til ömmu og afa fjölgaði, þang- að var alltaf gott að leita og fá góð ráð. Í hans augum voru engin vandamál, bara verkefni til að leysa og hef ég reynt aða temja mér það hugarfar líka. Afi var einstaklega barngóður og langafabörnin hans elskuðu að fá að fara í heimsókn og spjalla við hann. Elsku besti afinn minn, nú er komið að leiðarlokum að sinni, ég veit að amma og Jónas taka vel á móti þér. Ástbjörg Ýr. „Afarúta!“ er setning sem oftar en ekki hefur hrokkið upp úr okk- ur systrunum þegar gulu rúturnar hans afa þustu framhjá. Það eru ófáar minningarnar sem við eig- um af afa, keyrandi rútu, á verk- stæðinu eða á skrifstofunni – alltaf að redda öllu og öllum. Afi var frábær maður, söng- elskur og hjartahlýr. Hann var með bisnessmennsku í blóðinu og lífið snerist að miklu leyti um vinn- una og auðvitað ömmu sem hann elskaði heitt. Að fara heim í há- degismat til ömmu var fastur liður hjá afa og við systurnar létum okkur ekki vanta í mat þegar færi gafst. Sveskjugrautur í eftirmat er mikil klassík og minnir á afa. Teitur afi var ekkert í matarsóun, skóf mygluna af ostinum og borð- aði alveg eins þurrar kökur sem gleymdust inni í skáp, alveg dásamlegt! Börnunum okkar þótti gott að heimsækja langafa, hann var barngóður og blíður, söng og trall- aði. Gott var svo að læðast í nammið sem alltaf mátti finna uppi í skáp og leika með dótið sem geymt var sérstaklega fyrir heim- sókn litla fólksins. Takk fyrir allt sem þú kenndir okkur, elsku afi, við byggjum á því alla ævi. Hildur Björg og Ásta Sirrí. Teitur Jónasson  Fleiri minningargreinar um Teit Jónasson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.