Morgunblaðið - 19.01.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 19.01.2018, Síða 13
Vinnustofa Hópur kennara í Suður-Afríku tók þátt í vinnustofu sem Profetus stóð fyrir á dögunum um framúrskarandi teymisvinnu. gjafar- og þjálfunarfyrirtæki, Prof- ectus, sem einnig er með starfsemi í Kanada, Suður-Afríku og á Írlandi. Hann er ekki alveg ókunnugur bóka- bransanum því árið 2015 gaf hann, ásamt hollenskum kollega sínum og meðhöfundi, út bók á ensku um nú- tíma stjórnunarhætti og mark- þjálfun, The Whole Brain Leader. „Bókin kom út á Íslandi og í Hollandi og er væntanleg á markað í Indlandi í næsta mánuði. Alþjóðlega útgáfufyrirtækið SAGE falaðist eftir að gefa hana út,“ segir Ingvar og er ekki að ósekju stoltur af að fá bókina útgefna á margfalt stærri markaði en Íslandi. En aftur að nýju bókinni, sem að sögn Ingvars byggist á hug- myndafræði markþjálfunar og ekki síst á reynslu hans sjálfs eftir mörg hundruð samtöl sem markþjálfi. Í bókinni eru fjölmörg verkfæri til að auðvelda lesendum að ná mark- miðum sínum – sigra sjálfa sig, eins og þar stendur. Þeir þurfa að hafa skriffæri við hendina því í hverjum kafla eru spurningar. Óþægilegar spurningar „Bókin er þrískipt, í byrjun horf- ast lesendur í augu við stöðuna eins og hún er, síðan fara þeir í rannsókn- arvinnu og innri skoðun, og ljúka vinnunni með því að móta aðgerðir og setja sér markmið. Hlutverk mark- þjálfans er ekki að segja fólki hvað það á að gera, heldur spyrja réttu spurninganna til að hjálpa því að sjá viðfangsefnin í öðru ljósi. Spurning- arnar eru á stundum býsna óþægileg- ar og beinskeyttar, enda er lesendum ætlað að rýna í sjálfa sig og setja sér leikreglur til þess að auka möguleika sína á að vinna leikinn,“ segir Ingvar og leggur áherslu á að sjálfsvirðing og heiðarleiki skipti mestu máli. Einnig sé mikilvægt að vera laus við með- virkni gagnvart sjálfum sér og öðrum. Áður en lengra er haldið er ráð að biðja Ingvar um að útskýra örstutt helsta markmið markþjálfunar. „Að hámarka möguleika einstaklingsins til að verða betra eintak af sjálfum sér,“ svarar hann að bragði og heldur áfram: „Markþjálfun snýst ekki um að kenna, heldur að hjálpa fólki að læra. Og öfugt við það sem margir halda eru skýr skil á milli markþjálf- unar og sálfræði. Skilin liggja í núinu því sálfræðingar líta til baka og vilja skoða og laga það sem afvega hefur farið í fortíðinni, en markþjálfi skoðar styrkleika manneskjunnar og horfir með henni til framtíðar.“ Hið tilfinningalega vogarafl Spurningunni hvort þeir sem fara eftir bókinni séu um leið að hætta sér út fyrir þægindarammann svarar Ingvar játandi, því nánast ekkert í bókinni sé innan þess ramma og eng- inn vöxtur eigi sér þar stað. „Þótt mörgum finnist erfitt að ganga í gegnum breytingar, er það léttvægt miðað við að vera fastur á sama stað,“ bendir hann á. Hvað áttu við með „vexti“? „Í mínum huga er það að komast nær því sem maður þráir, draumum sínum og markmiðum,“ svarar hann og upplýsir að rannsóknir hafi sýnt að þeir sem setji sér markmið séu ekki hamingjusamari en þeir sem geri það ekki. Og hvernig stendur á því? „Flestir setja sér markmið með hausnum en ekki hjartanu til að losna undan sársauka en ekki til að öðlast einhvers konar fullnægju eða vellíð- an. Gott dæmi er maður sem ætlar að létta sig vegna þess að sársaukinn við að vera of þungur er orðinn óbæri- legur. Hins vegar hefur hann ekki skýra mynd af lífi sínu eins og það yrði þegar hann hefur náð markmiði sínum og gefst því upp á miðri leið, með öðrum orðum þegar sársaukinn minnkar.“ Mætti ekki þvert á móti ætla að hann hefði skýra og fagra mynd af sér grönnum? „Yfirleitt fer fólk af stað með hornin á undan sér vegna þess að sársaukinn er orðinn svo mikill. Til þess að öðlast betri líðan og ham- ingju er affarasælast að setja sér markmið til jafns með höfðinu og hjartanu, sem samkvæmt mark- þjálfafræðunum er hið tilfinninga- lega vogarafl. En – svo ég vitni í heilavísindin – þá er sársaukinn sjö sinnum sterkara tilfinningalegt afl en vellíðan og því er líklegra að þeir sem upplifa vanlíðan eða sársauka setji sér markmið.“ Uppgjör dagsins Hvað sem drifkröftunum líður kannast efalítið margir við hversu auðvelt er að setja sér markmið en að sama skapi erfitt að halda þeim til streitu. Ingvar segir megintilgang bókar- innar einmitt vera að hjálpa fólki að halda sér við efnið. Honum rennur til rifja hversu margir eru áhorfendur en ekki þátttakendur í eigin lífi. „Þá skortir kjark til að spyrja sjálfa sig hvað þá í al- vörunni langar til að gera, eignast og verða. Ef maður gerir ekki neitt, gerist heldur ekki neitt,“ segir hann og lýsir stuttlega hvernig Sigraðu sjálfan þig kemur að sem bestum notum: „Bók- inni er skipt í 21 kafla, undirkafla og verkefni. Henni er ætlað að vera und- irbúningur fyrir þá vinnu sem í hönd fer við að ná markmiðum sem lesand- inn setur sér í síðustu köflunum að undangenginni sjálfskoðun. Hug- myndin er að lesandinn lesi og vinni verkefni í einum kafla daglega í þrjár vikur.“ Dagsverkinu lýkur svo með upp- gjöri, sem felst í því að lesandinn svarar samviskusamlega eftirfarandi spurningum: 1. Hvað var gott við daginn í dag – hvað gekk vel? 2. Hvað vil ég sjá betur fara á morgun? 3. Hvað lærði ég um sjálfa(n) mig í dag? 4. Hvað gerði ég í dag sem ég hef aldrei gert áður? 5. Hvað lærði ég um sjálfa(n) mig þegar ég vann verkefnið? (Vísað í tiltekinn kafla). Að mati Ingvars eru spurning- arnar ein mesta áskorunin í bókinni, sérstaklega sú fjórða. Enda vefst honum aðspurðum tunga um tönn. „Nú hittirðu vel á vondan, bíddu við .... heyrðu, jú, ég notaði rjómapipar- ost á pizzuna mína.“ Hafði það kannski táknræna þýðingu fyrir þig, til dæmis að þú sért að verða opnari fyrir nýjungum? „Sko . . .,“ . . . eða kannski enga þýðingu? „Ég lít á lífið sem eina stóra áskorun. Þegar ég hef ekki áskoranir þá dofnar neistinn. Bókin var mikil áskorun. Ég hlakkaði svo til að vinna að henni að ég vaknaði stundum klukkan þrjú eða fjögur á nóttunni til að kanna hvort nóttin væri ekki að verða búin.“ Ertu byrjaður á annarri bók? „Ég og hollenski meðhöfundur minn að The Whole Brain Leader, erum að leggja drög að bók um sölu- fræði, sem kemur út á næsta ári. Þá er verið er að þýða, breyta og aðlaga Sigraðu sjálfan þig fyrir enskumæl- andi markað. Find Your Inner Vik- ing mun hún nefnast, enda ætla ég að gera svolítið út á víkinga og Ísland.“ Margt fleira er í bígerð hjá Ingvari, sem auk þess að skrifa bæk- ur heldur námskeið í tengslum við þá nýjustu – þriggja vikna námskeið fyrir venjulegt fólk sem vill meira! Fyrirlesarinn Ingvar með fyrir- lestur í Bela Bela í Suður-Afríku. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 „Tilfinningagreind hefur tvær hliðar: Annars vegar er geta okkar og hæfni til að greina og skilja eigin tilfinningar og hins vegar til að greina og skilja til- finningar annarra. [...] Travis Bradberry sýndi fram á það með rannsóknum sínum að bein tengsl eru á milli tilfinningagreindar og árangurs í lífi og starfi. Þannig reyndust 90% afreksfólks hafa mikla tilfinningagreind, 58% af ár- angri þínum í vinnu má rekja til tilfinningagreindar og þeir sem hafa mikla tilfinningagreind hafa að jafnaði umtalsvert hærri árstekjur. Fórnarlambið og gerandinn eru lýsandi dæmi um mikla og litla tilfinningagreind. Fórnar- lambinu er [...] tamt að við- halda styrk sínum í hugar- ástandi sem einkennist af neikvæðni, tillitsleysi og sjálfs- vorkunn. Það kærir sig ekki um greiningu eða sjálfsskoðun af neinu tagi. Það þarf ekki að laga neitt – fórnarlambinu líður vel þegar okkur líður illa. Til að efla tilfinningagreind er hollt að spyrja sig fjögurra spurninga reglulega, ekki bara þegar eitthvað hvílir þungt á manni heldur einnig þegar manni líður vel.  Hvernig líður mér núna?  Af hverju líður mér þannig?  Vil ég breyta líðan minni?  Hvað get ég GERT til að breyta líðan minni? Ein aðalbirtingarmynd mik- illar tilfinningagreindar er næmi á eigin líðan, getan til að skilgreina tilfinningar sínar og einnig að hafa bæði vilja og getu til að taka ábyrgð á og bregðast við tilfinning- unum. Önnur leið til að auka til- finningagreind sína veru- lega er að læra að beita heildarhugsun. Með því að læra heildarhugsun ferð þú að sjá bæði sjálfa(n) þig og aðra í öðru ljósi. Tilfinninga- greind BÓKARKAFLI – 6. DAGUR Af hverju eru stjörnur mismunandi á litinn og hvers vegna sjást norður- ljósin bara stundum? Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari hjá Háskóla Íslands, er vís með að svara þessum spurningum og fleiri á göngu sem hann leiðir við Kaldársel í Hafnarfirði kl. 20 í kvöld, föstudaginn 19. janúar. Gangan sem er helguð himin- geimnum; stjörnu- og norðurljósa- skoðun, er ókeypis og öllum er vel- komið að slást í hópinn. Ferðin er hluti af samstarfsverk- efni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands sem ber nafnið Með fróðleik í fararnesti. Þátttakendur hittast við skrifstofu Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 kl. 20 og aka í halarófu út fyrir borgarmörkin. Ferðinni er heitið að Kaldárseli og geta þeir sem vilja hitt hópinn þar um kl. 20.20. Fá bíla- stæði eru í boði og því þarf að leggja bílunum beggja vegna við veginn, helst þvert, a.m.k. þar sem hægt er. Mikilvægt er að allir séu vel klæddir og upplagt að stinga sessu eða gamalli frauðdýnu í bakpokann því best er að skoða himingeiminn liggjandi eða sitjandi á einhverju sem einangrar rassinn frá jörðinni. Mælt er með að göngufólk taki með sér kíki og nesti, gott er að hafa eitt- hvað heitt á brúsa til að fá yl í kropp- inn. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um tvær klukkustundir. Með fróðleik í fararnesti – stjörnu- og norðurljósaskoðun AFP Himingeimurinn heillar Sævar Helgi svarar spurningum um heima og geima. Vísindamiðlari leiðir göngu sem helguð er himingeimnum www.profectus.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.