Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 26

Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 ✝ Margrét Guð-munda Guðna- dóttir fæddist í Landakoti á Vatns- leysuströnd 7. júlí 1929. Hún lést á Landspítalanum 2. janúar 2018. Foreldrar Mar- grétar voru Guðni Einarsson, f. 31.3. 1881, d. 16.6. 1970, og Guðríður Andr- ésdóttir, f. 10.12. 1891, d. 12.4. 1966. Guðni var bóndi og sjó- maður í Landakoti á Vatns- leysuströnd en ættaður frá Haga í Holtahreppi í Rangár- vallasýslu. Hann var jafnframt organisti í Kálfatjarnarkirkju og hreppstjóri í Vatnsleysu- strandarhreppi. Guðríður var húsmóðir og póstafgreiðslu- maður, fædd í Hlöðversnesi á Vatnsleysuströnd. Systkini Margrétar samfeðra voru Eyrún, f. 28.2. 1912, d. 18.12. 1989, Guðmunda, f. 23.2. 1913, d. 4.4. 2008, Jón Guðni, f. 7.3. 1914, d. 9.12. 2011, og Lilja, f. 4.7. 1916, d. 12.5. 2011. Móðir þeirra var Guðfinna Loftsdóttir, f. 12.4. 1881, d. 3.5. 1927. Al- bróðir Margrétar var Eyjólfur bóndi í Bryðjuholti í Hruna- mannahreppi, f. 4.1. 1931, d. Halla nemi í sjúkraþjálfun, f. 1991. Sambýlismaður Ágúst Guðmundsson, f. 1979. Sonur hans er Kormákur, f. 2005. Móð- ir Þórarins og Guðrúnar er Jóna Fanney Friðriksdóttir, f. 1963. Menntun Margrétar: Barna- skóli í Brunnastaðahverfi á Vatnsleysuströnd og gagn- fræðaskóli Reykvíkinga í Vonarstræti. Gagnfræðapróf og stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949 af stærðfræði- deild. Lauk Cand. Med. prófi frá læknadeild við Háskóla Íslands 1956 og stundaði framhaldsnám í veirufræðum við Yale háskóla 1958-1960. Margrét sinnti rann- sóknastörfum á Keldum 1954- 1974, starfaði á rannsóknastofu Háskólans í veirufræði á ár- unum 1974-1999, sinnti kennslu við Háskóla Íslands 1960-1999 og starfaði sem prófessor við læknadeild HÍ 1969-1999. Hún var sjálfstætt starfandi við rann- sóknir í Ármúla 1A, á Kýpur og víðar á árunum 1999-2017 Eftir Margréti liggur fjöldi greina og rannsókna á sviði hæggengra veirusýkinga sem vöktu alþjóðlega eftirtekt vís- indasamfélagsins. Margrét hlaut margar viðurkenningar fyrir störf sín og var sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Læknadeild Háskóla Íslands ár- ið 2011. Margrét verður jarðsungin frá Neskirkju í dag, 19. janúar 2018, klukkan 11. 29.1. 1990. Ekkja Eyjólfs er Helga Magnúsdóttir, f. 2.3. 1936. Börn Margrétar eru Guðni Kjartan Franzson tónlist- armaður, f. 21.1. 1961, og Eydís Lára Franzdóttir tónlistarmaður, f. 31.3. 1963. Faðir þeirra er Francis Donaldson lífefnafræðingur frá Skotlandi, f. 2.1. 1925. Maki Guðna er Lára Stefánsdóttir, dansari, f. 16.9. 1962. Sonur þeirra er Stefán Franz, f. 2004. Sonur Láru og uppeldissonur Guðna er Hróar Sigurðsson, f. 1992. Eldri börn Guðna eru: 1) Margrét hjúkrunarfræðingur, f. 1976. Hennar maki er Hall- grímur Arnarson, f. 1976. Þeirra börn eru Þórður, f. 1999, Grímur Smári, f. 2002, og Þór- anna Guðrún, f. 2007. Móðir Margrétar er Guðrún Björg Er- lingsdóttir, f. 1960. 2) Hildur tónlistarmaður, f. 1982. Sonur hennar er Kári Basile Hildarson Grisey, f. 2012. Móðir Hildar er Ingveldur Ólafsdóttir, f. 1959. 3) Þórarinn tónlistarmaður, f. 1989. Sambýliskona Ásdís Eva Ólafsdóttir, f. 1989. 4) Guðrún Við fylgjum elsku ömmu síð- asta spölinn í dag. Gleðilegri og lærdómsríkri samfylgd lýkur fyrr en við væntum því hún ætl- aði að verða 120 ára. „Ég hef svo mörgu að sinna og það er svo gaman að lifa“ sagði hún. Því skyldi það ekki ganga eftir? Amma var hraustur gönguhrólf- ur, harðari af sér en nokkur ann- ar og lét aldrei á sér bilbug finna. Ævin náði þó aldrei þessum 120 árum. Það er sárt að kveðja en styrkurinn lifir og notalegt að orna sér við hlýjar minningar. Gistinætur í Rofabæ með frönsk- um kartöflum og karlakór Rauða hersins á grammófóninum. Amma að hlýða mér yfir landa- fræði eða fara með kvæði úr kolli sínum. „Ég get bara ekkert að þessu gert, það límist allt í haus- inn á mér sem rímar!“ Sá hæfi- leiki var sérlega kærkominn fyrir okkur Eydu og Hildi systur þeg- ar við sötruðum rauðvín á Kýp- urströnd og amma skemmti okk- ur með kvæðum Steins Steinars. Amma kunni að njóta lífsins og ferðaðist mikið og víða, allt frá austurlýðveldum Sovétríkjanna til vesturstrandar Bandaríkj- anna. Amma taldi jafnrétti í sam- félaginu mikilvægara öðru. Hennar boðskapur var að okkur bæri að hjálpast að, veita hvert öðru möguleika á að vaxa og dafna og að enginn væri merkari öðrum. Allir ættu að eiga jafnan rétt til lífs og náms hvaðan sem þeir væru upprunnir og gæta skyldi hagsmuna minni máttar. Menntun þjóðar væri lykill að farsæld en gróðafíkn eitur. Henni fannst að velja skyldi framtíðarstarf sem gagnaðist heildinni og styrkti samfélagið. Amma var svo sannarlega sjálfri sér samkvæm í þeim efnum. Hún var ástríðufull fagmanneskja, drifin áfram af kappi þess að spyrna fótum við framgangi hættulegra sjúkdóma. En um leið og hún barðist við veirurnar sínar naut hún samveru þeirra. „Sjáðu hvað þær eru fallegar!“ sagði hún þegar hún sýndi mér þær í smásjánni. Amma sá feg- urðina í hinu smáa. Hún vissi fátt betra en göngur í móanum á Vatnsleysuströnd, kíkja eftir eggjum og ungum í hreiðrum eða huga að agnarsmáum lággróðri í fallegum litum. Náttúran og rétt- lát notkun hennar stóð henni nærri. Hún barðist af hugrekki og réttvísi fyrir verndun hennar. Amma hafði sterkar skoðanir og gaf ekkert eftir í þeim efnum. Hún kenndi okkur að sinna öllum verkum af heilindum, ekkert hálf- kák. Enginn skyldi fá neitt upp í hendurnar án þess að vinna fyrir því. Að komast ódýrt frá verkefn- um er leti og að hennar mati hinn mesti löstur. Allt er betra en að láta sér leiðast. Ömmu leiddist aldrei. Hún sinnti starfi sínu af ástríðu til hinsta dags. Þrátt fyrir ótal til- raunir til að koma henni út af rannsóknastofu sinni, eða koma henni í úreldingu eins og hún orð- aði það sjálf, þá sat hún föst fyrir og fór hvergi. Aldur var engin fyrirstaða í hennar lífi. Á meðan starfsorka og heilsa leyfðu skyldi hún sinna starfi sínu og halda áfram að leggja sitt af mörkum til heildarinnar, ósérhlífin og sjálf- stæð. Það gekk eftir. Margrét Guðnadóttir yngri (klónið). Fyrir meira en tuttugu árum fór ung kona að birtast heima hjá okkur á Seltjarnarnesinu í fylgd sonar okkar Hallgríms. Nafn hennar var Margrét Guðnadóttir. Þau voru þá í Menntaskólanum í Reykjavík. Við fengum að vita að hún var barnabarn Margrétar Guðnadóttur prófessors. Þetta unga par lauk stúdentsprófi frá MR 1996 og þau gengu í hjóna- band 1998 og eiga nú þrjú börn. Þetta leiddi til þess að við hittum þessa ömmu tengdadóttur okkar við hina ýmsu viðburði í fjölskyld- unni á næstu árum og um leið kynntumst við afkomendum hennar. Við höfum átt ánægju- lega samleið með Margréti þessa rúmu tvo áratugi. Við komum nokkrum sinnum að Landakoti á Vatnsleysuströnd og eigum það- an góðar minningar. Þar var haldið upp á áttræðisafmæli hennar með tónlistarveislu í kirkjunni á Kálfatjörn og veiting- um á Landakoti. Fyrir nokkrum árum heimsóttu okkur hjón frá Bandaríkjunum, sem höfðu starf- að í sömu sérgrein og Margrét. Við buðum henni því að koma og spjalla við þetta fólk. Í ljós kom að þau þekktu sömu konu, sem þau höfðu umgengist þar vestra fyrir mörgum áratugum. Um leið og við kveðjum og þökkum fyrir þær stundir, sem við höfum átt með Margréti vottum við afkom- endum hennar samúð okkar. Rósa og Örn Smári. Nú hverfa þeir á brott hver af öðrum foreldrar okkar æskuvin- anna en það er víst lífsins gangur. Margrét Guðnadóttir, sem við kölluðum aldrei annað en Pró- fessorinn okkar á milli, var svo sannarlega ein af þeim eftir- minnilegri. Prófessorinn var ótrúlega þol- inmóð og skilningsrík móðir en á heimili Guðna vorum við fé- lagarnir hálfgerðir heimagangar á menntaskólaárunum. Það voru fjölmargar óvenjulegar uppá- komurnar í íbúðinni í Árbænum sem hún tók af jafnaðargeði, eitt- hvað sem ekki allir foreldrar hefðu gert. Að eiga við hana sam- ræður með félögunum var mikil skemmtun, en Prófessorinn var rauð alla tíð frá því hún stundaði nám í Ameríku. Hún hafði mikinn áhuga á pólitík en vildi þó ekki á þing þar sem veirurnar voru svo miklu skemmtilegri en stjórn- málamennirnir. Verndun náttúr- unnar var henni alla tíð hugleikin og ekki minnkaði það með árun- um. Barátta hennar og Eydísar dóttur hennar fyrir landvernd á Suðurnesjum hin síðari ár ber vott um það og dómsigrar á þeim vettvangi glöddu baráttukonuna mjög. Sumarið 1980 er mér sérlega eftirminnilegt en þá fórum við fé- lagarnir til Edinborgar ásamt móður minni að hitta Guðna og Prófessorinn sem var í námsleyfi þar í borg. Menntskælingar með mæðrum sínum var kannski ekki alveg þetta vanalega mynstur á þessum tímum en segir heilmikið um það góða samband sem ríkti okkar í milli. Listviðburðir Edin- borgarhátíðarinnar voru okkur félögunum ógleymanlegir, en þá ekki síður góðar samverustundir og pöbbarölt með Prófessornum og Ragnhildi Eyju. Margrét varð síðar lærifaðir minn í læknadeildinni og var sér- lega ánægjulegt að fá að kynnast henni líka á þeim vettvangi. Þar var Prófessorinn virkilega í ess- inu sínu, frábær kennari og mik- ilsvirtur vísindamaður sem vann ötul að sínum rannsóknum allt framá hin síðari ár, löngu eftir að hún komst á lögbundinn eftir- launaaldur. Orðstír hennar er mikill og hennar verður alla tíð minnst hér á landi og víðar sem frumkvöðuls á sviði veirurann- sókna og bólusetninga. Rollu- rannsóknum hennar kynntumst við félagarnir einnig á Landakoti þegar við eltumst út um túnin við rannsóknarhrútarna sem hún nefndi m.a. Stalín, Lenín og Krú- sjoff. Prófessorinn var gegnheill ein- staklingur sem lifði alla tíð sam- kvæmt sínum eigin grunngildum, laus við allt prjál og ekki upptekin af veraldlegum eigum. En hún var líka hlý manneskja með góð- an húmor og ég sé hana oft fyrir mér þar sem hún hló svo innilega, hristist svona létt og þá vinstri öxlin sýnilega meira en sú hægri. Ég kveð Margréti Guðnadótt- ur með mikilli virðingu og þökk- um fyrir góða viðkynningu og samfylgd, og sendi Guðna, Eydísi og afkomendum hugheilar sam- úðarkveðjur. Gunnlaugur Sigfússon. Margréti Guðnadóttur var yndisleg og skemmtileg mann- eskja. Hún hafði munninn fyrir neðan nefið því hún þoldi ekki óréttlæti og stóð fast á sínu. Mar- grét veiktist og fórum við fjöl- skyldan til hennar nokkrum sinn- um á spítalann. Kveðjustund var á annan í jólum, en ég vissi það ekki þá. Við vorum saman fjöl- skyldan mín. Kyssti Margréti á kinnina og sagði: Síðbúnar jóla- kveðjur. Hún átti erfitt með mál en svo kom hátt og snjallt: Sömu- leiðis. Þetta er okkar síðasta minning um Margréti. Vinkona mín Eydís, bróðir hennar Guðni og barnabarn Margrét Guðna- dóttir sátu að mestu yfir henni. Margrét eldri kallaði þau setulið- ið. Alltaf stutt í spaugið hjá henni. Ég þekkti Margréti alveg frá því ég var krakki og alltaf var heimili hennar opið. Ég á svo margar minningar um hana og ætla að rifja hér upp eina góða. Eydís var erlendis, að sinna hljóðfæraleik. Þær mæðgur höfðu ákveðið að hittast í Kaup- mannahöfn, en síðan sá Margrét fram á að komast ekki vegna mik- illar vinnu og bauð mér að nota farseðilinn. Við vinkonurnar vor- um rúmlega tvítugar. Síðan hringir Margrét í mig og segir mér að hún sjái sér fært að fara. Um miðnæturbil á fimmtudags- kvöldi hringir Margrét aftur og segist endilega vilja fá mig með. Hún myndi kaupa miða á flugvell- inum. Ég spenntist öll upp aftur. Ég svaf lítið þessa nótt. Við kom- um til Kaupmannahafnar um morguninn og Margrét vildi endi- lega skoða í búðir á Strikinu. Við sáum föt fyrir Eydísi og ég sá í glugga mokkajakka sem mig langaði í, en fannst hann dýr. Ég sagði Margréti seinna frá jakkan- um. Þá kom ekkert annað til greina hjá henni en að finna jakk- ann aftur og kíktum í alla búð- arglugga þar til við fundum hann og ég keypti jakkann. Dóttir mín notar hann í dag. Eftir alla göng- una var ég fegin að komast loks- ins upp á hótel og hvíla mig. Þá vildi Margrét fara í tívolíið og gerði hún það. Orkan í þessari konu var svo mikil. Næsta dag voru fagnaðarfundir þegar við hittum Eydísi sem hafði enga hugmynd um að ég yrði þarna með mömmu hennar. Það er svo margt sem ber á góma í sambandi við Margréti. Hún keypti æskuheimili sitt, Landakot á Vatnsleysuströnd. Margrét bjó samt áfram í Rofa- bænum. Guðni, sonur hennar, bjó á Landakoti um tíma með sína fjölskyldu. Síðan þegar Eydís kom aftur til Íslands, eftir nám og störf erlendis flutti hún inn í Landakot. Komum við fjölskyld- an oft í heimsókn þangað í sveit- ina. Þar hittum við oft Margréti, einnig í hinum ýmsu veislum og samkomum. Alltaf var hún hress og skemmtileg. Hún og Þorbjörn, maðurinn minn, spjölluðu oft saman um stjórnmál, þar sem enginn kom að tómum kofunum hjá Margréti. Hún var einstök og vel að sér um það sem var efst á baugi í þjóðfélaginu. Prófessor í sýklafræði og læknir en umfram allt yndisleg kona. Við minnumst hennar öll með yl í hjarta og þökkum fyrir þann tíma sem við fengum að umgang- ast hana. Blessuð sé minning Margrétar Guðnadóttur og mun- um við geyma hana í hjarta okk- ar. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar Eydís, Guðni, tengdadóttir, barnabörn og barnabarnabörn og aðrir ástvinir. Auður, Þorbjörn, Hildur Hafdís og Davíð. Að eiga Margréti Guðnadóttur að vini hefur verið ómetanlegt. Hún fór aldrei troðnar slóðir í líf- inu og þegar í menntaskólann kom valdi hún stærðfræðideild- ina þegar flestar stelpur völdu máladeild. Vorið 1949 voru þær fjórar sem útskrifuðust úr deild- inni en rúmlega fjörutíu strákar. Hún hafði mikinn áhuga á að læra náttúrufræði sem var ekki kennd við Háskóla Íslands á þessum ár- um, svo læknisfræðin varð fyrir valinu. Margrét var svo eina kon- an í hópi læknakandídatanna sem útskrifuðust vorið 1956. Árið eftir var hún eitt ár við Tilraunastöð háskólans í meinafræði á Keldum hjá dr. Birni Stefánssyni, í fram- haldi af því lá svo leiðin til Banda- ríkjanna. Þar varð ég kommún- isti, sagði Margrét, að mega ekki gefa alvarlega veiku fólki sprautu af því það átti ekki fyrir henni hafði djúp og varanleg áhrif. Um rannsóknir hennar má lesa í greininni Veirufræðingur af lífi og sál í Læknablaðinu 3. tbl. 95. árg. 2009. Á síðari árum naut ég þess í löngum símtölum að heyra frá rannsóknarferlinu á mæðiv- isnuveirunni, einkum eftir að hún flutti rannsóknarferlið yfir til Kýpur. Um sjötugt, þegar til stóð að hún yrði að hverfa með til- raunafé sitt frá Keldum, kom hún sér í samband við dýralækna í heilbrigðiseftirlitinu á Kýpur og hóf rannsóknarsamstarf með þátttöku fjárbónda sem átti um sjö hundruð kinda hjörð. Þótt visnuveiran sem þarna gengur sé af öðrum stofni en hér hefur fund- ist reyndi hún samt að bólusetja fé þarna. Að loknu þessu tilrauna- verkefni sagði hún: „Eftir þessa tilraun þýðir ekkert að segja mér að það geri ekki gagn að bólusetja fyrir þeirri tegund veiru sem visnu- og eyðniveiran eru af. Það þarf auðvitað að finna réttan skammt af bóluefninu, en ég er alveg viss um að þetta er hægt. Nú er bara næsta mál að komast í samband við góða eyðnirann- sóknarstofu og kanna hvort þessi aðferð virkar á eyðniveiruna.“ Margrét tók þátt í baráttunni gegn hersetu í landinu því hún taldi hana frekar bjóða upp á hættu en vernd. Seint gleymist sú stund þegar mér hlotnaðist sá heiður í menningarferð með MÍR til fyrrverandi Sovétríkja að leggja ásamt henni krans á leiði óþekkta hermannsins í Moskvu. Hún sat í stjórn MÍR og lagði sitt af mörkum. Þegar hún steig í pontu flutti hún ræðu tæpitungu- laust, þar sem kjarni máls var jöfnuður. Meðan kaffisala var 1. maí kom hún með bakkelsi í strætó, þjónaði til borðs og vask- aði upp. Á vegum MÍR var farið annað hvert ár til fyrrverandi Sovétríkja, að vera með Margréti á slíku ferðalagi er ógleymanlegt þar sem hún var hrókur alls fagn- aðar. Barátta Margrétar og Eydísar dóttur hennar gegn yfirgangi Landsnets á Suðurnesjum vegna Suðurnesjalínu 2 kostaði áralöng málaferli. Þeirri baráttu lauk með hæstaréttardómi um að Lands- net mætti ekki hefja fram- kvæmdir við Suðurnesjalínu 2 á landi, sem tekið var eignarnámi á Vatnsleysuströnd. Þarna vannst fordæmisgefandi sigur. Margrét ætlaði að fræða okkur eldri vinstri-græn um sauð- kindina í vetur, af því verður ekki. Margrétar Guðnadóttur er sárt saknað. J. Bryndís Helgadóttir. Sum spor eru gæfuspor eins og þau þegar ég gekk til Margrétar og falaðist eftir vinnu hjá henni i Veirunni. Er henni ævinlega þakklát fyrir að hafa ráðið mig til sín, hún kallaði mig stundum þrælinn sinn og það var ekki leið- inlegt að vera þrællinn hennar. Hún hvatti mig til dáða og sagði langar þig ekki að læra meira um veirur og skráði mig svo á nám- skeið í Læknadeildinni við Há- skólann. Ég var svo lánsöm að fá að vinna með henni við ræktun á frumum sem notaðar voru fyrir rannsóknir á visnu og mæðiveiki . Margrét var vísindamaður á heimsmælikvarða eins og stund- um er tekið til orða en einnig sveitamaður og á heimavelli hvort sem var úti i fjárhúsi með kind- unum sínum að Keldum eða i hópi frægra í útlöndum á ráðstefnu. Margrét var baráttukona og gafst aldrei upp þó við ofurefli væri að etja. Stóð í harðri baráttu með Ey- dísi ekki fyrir löngu að berjast gegn línulögn um landið sitt og þær unnu þá baráttu. Hún var ótrúlega dugleg og ósérhlífin og vann alltaf langan vinnudag og hugtakið að setjast i helgan stein var ekki til i hennar orðabók. Síðustu árin vann hún að því að klára og skrifa greinar um til- raunir sínar sem hún gerði með bólusetningar á ám, hluti af þess- um rannsóknum var gerður á Kýpur og þangað fór hún oft. Við Íslendingar kunnum ekki alltaf að meta okkar besta fólk og held ég að margir hér heima hafi ekki gert sér grein fyrir hvað Margrét var virtur vísindamaður og einstakur. Tónlist var eitt af áhugamálum Margrétar og fór hún á ótal tón- leika bæði hér heima og út um all- an heim. Hitti hana oft úti i Nor- ræna húsi þar sem annaðhvort Eydís eða Guðni voru með tón- leika. Voru fagnaðarfundir í hvert sinn sem við hittumst þarna og ánægjulegt að rifja upp gamlar samverustundir og fá fréttir af fólki. Stundum er sagt að með sum- um verði maður meiri en með öðr- um minni, með Margréti varð maður meiri. Hún fyllti mann von og bjartsýni á framtíðina, hún lét ekkert stoppa sig og var líka með þessa seiglu og þrjósku sem hefur komið okkur áfram, íslenskri þjóð. Margrét var fyrirmynd okkar allra. Höldum merki hennar á lofti og berjumst öll, verjum íslenska fjárstofninn og aðra bústofna gegn sýkingum og komum i veg fyrir óheftan innflutning á kjöti og útlendum stofnum. Stöndum vörð um íslensk góð gildi og verum sönn í verkum okkar. Dóttir mín, sem er núna að klára BS nám í jarðeðlisfræði, leit á Margréti sem sína helstu fyr- irmynd . Votta Guðna, Eydísi og öllum afkomendum Margrétar innilega samúð. Deyr fé, deyja frændur, Deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Katrín Þorsteinsdóttir. Með andláti Margrétar Guðna- dóttur er fallin frá ein merkasta samtíðarkona okkar Íslendinga. Hún varð prófessor í sýklafræði árið 1969, þar með fyrsti kvenprófessorinn á Íslandi. Mar- grét hóf fyrst störf við veirufræði með Birni Sigurðssyni á Til- raunastöð H.Í. að Keldum áður en hún fór utan í sérnám. Eftir sérnámið vann hún fyrst á Keld- um áður en hún kom á fót Rann- sóknastofu Háskólans við Land- spítalann á Hringbraut. Hún var prófessor í sýklafræði við lækna- deild H.Í. frá árinu 1969 til ársins 1999 og kenndi læknanemum veirufræði. Hún var afar vinsæll Margrét Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.