Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 31

Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 31
Móðir þeirra systra fluttist til Akraness eftir að bróðir þeirra, sem verið hafði þeirra aðalstoð í Reykjavík, lést skyndilega árið 1970. Eignuðust þær mæðgur, Halla og Ingibjörg, íbúð sem þær bjuggu í eftir það, meðan báðar lifðu. Halla bjó síðan ein í íbúð- inni eftir lát móðir sinnar. Sum- arið 2016 fékk hún vistun á Dval- arheimilinu Höfða, þar sem heilsu hennar var nokkuð tekið að hraka. Naut hún þar mjög góðrar umhyggju og góðvildar starfsfólks og undi hag sínum vel, en átti samt erfitt með að slíta al- veg tengslin við íbúðina sína og innbúið á Garðabraut 10. Þó Halla giftist aldrei og ætti engin börn þá átti hún samt fjöl- skyldu og það a.m.k. tvær. Systr- anna beggja og reyndar bróður- dætranna einnig en þær voru lengra í burtu, búsettar í Reykja- vík. Henni var mjög annt um börnin okkar öll og barnabörn og þeim þótti öllum mjög vænt um hana. Hún var oftast með í af- mælum og öðrum hátíðahöldum, gaf öllum jóla- og afmælisgjafir og allir nutu samvistanna. Við söknum öll Höllu, en erum þakklát fyrir að henni varð að ósk sinni um að fá að deyja í íbúðinni sinni á Garðabraut, þar sem hún sofnaði lokasvefninum, í kyrrð og ró í rúminu sínu. Bestu þakkir. Ingjaldur Bogason. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Okkar ástkæra frænka, Halla, er látin. Hún kvaddi þennan heim 12. þessa mánaðar og verður jarðsungin í dag, 19. janúar. Þeg- ar við systur lítum yfir farinn veg rifjast upp margar ljúfar minn- ingar frá þeim stundum sem við áttum með Höllu. Fyrstu minn- ingarnar eru úr Tjarnagötu þar sem Halla og amma Ingibjörg bjuggu í sama húsi og við. Eydd- um við mörgum góðum stundum í nærveru þeirra á uppvaxtarárum okkar. Minnisstæðar eru fjöl- margar gönguferðir í miðbænum, ferðir í bakarí og að Tjörninni til að gefa öndunum brauð. Einnig var mikil gleði þegar þær mæðg- ur komu að sækja okkur í leik- skólann og stoppuðu í bakarí á leiðinni heim. Halla var yndisleg, góð frænka sem gott var að heimsækja þó að heimsóknirnar hefðu mátt vera fleiri síðustu árin. Hún var alltaf svo mikil dama hún Halla, hafði gaman af því að punta sig og setja upp fallega skartgripi. Minningar frá 80 ára afmælisdeginum henn- ar þegar hún tók á móti fjöl- skyldu og gestum á heimili sínu eru okkur ljóslifandi. Þar sem hún stendur ánægð í faðmi fjöl- skyldunnar, smá feimin af allri athyglinni og ræðunum. Halla var komin inn á hjúkr- unarheimilið Höfða en fór þó allt- af á heimilið sitt við og við, þar sem hún hafði alla sína hluti í kringum sig. Lífsgöngu Höllu lauk svo á friðsælan hátt þar sem hún undi sér best, á heimili sínu á Akranesi. Þetta ljóð hefur mikla leitað á huga okkar síðan fréttin af and- láti Höllu barst og fylgir það kveðju okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Nú þegar komið er að leiðar- lokum erum við vissar um að vel verði tekið á móti henni Höllu. Gengin er einstök manneskja. Megi hún hvíla í friði. Fjölskyldunni allri sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Ingibjörg Jóna Þórsdóttir, Guðrún Þórsdóttir. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018 ✝ Ásta Sigurðar-dóttir fæddist á heimili móðurfor- eldra sinna að Litlu-Grund við Grensásveg í Reykjavík 11. febr- úar 1949. Hún lést á heimili sínu að Böðvarsgötu 6 í Borgarnesi 2. jan- úar 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sigurður B. Guð- brandsson, f. 3. ágúst 1923, d. 15. janúar 2008, og Helga Þor- kelsdóttir, f. 24. desember 1923, d. 7. október 2003. Systur Ástu eru Sigþrúður, f. 9. október 1952, og Sigríður Helga, f. 29. október 1957. Ásta kvæntist hinn 9. desem- ber 1967 Halldóri Brynjúlfssyni Ásta f. 24.4. 2008. 3) Brynjúlfur, f. 23.1. 1974, kvæntur Vigdísi Hallgrímsdóttur, f. 30.9. 1973, dætur þeirra Sigurlaug, f. 26.10. 2001, og Bryndís, f. 24.9. 2003. Ásta ólst upp í Borgarnesi og eftir hefðbundna skólagöngu stundaði hún nám einn vetur við Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Ásta og Halldór hófu sambúð ung að aldri að Borgarbraut 31 og byggðu svo heimili sitt að Böðvarsgötu 6 þar sem þau áttu heima alla sína búskapartíð. Fyrsta starf Ástu var við af- greiðslu í mjólkurbúð Mjólkur- samlagsins í Borgarnesi. Hún starfaði í fjölda ára við versl- unarstörf hjá Kaupfélagi Borg- firðinga, síðar Samkaupum/ Nettó þar til hún lét af störfum vegna aldurs. En auk þess starfaði Ásta um tíma á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi og einnig síðar hjá Prentborg. Útför Ástu fer fram frá Borg- arneskirkju í dag, 19. janúar, og hefst athöfnin klukkan 14. frá Brúarlandi á Mýrum f. 20. júní 1943, d. 18. október 2007. Foreldrar hans voru Halldóra Guðbrandsdóttir, f. 15.5. 1911, d. 7.12. 2000, og Brynjúlfur Eiríksson, f. 21.12. 1910, d. 12.1. 1976. Ásta og Halldór eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Óskírð dóttir, f. 31.5. 1968, d. 3.6. 1968. 2) Sigurður, f. 15.6. 1970, sambýliskona Ásta Kristín Guðmundsdóttir, f. 5.1. 1970, sonur hennar Hlynur Snær Unn- steinsson, f. 13.9. 1998, sonur Sigurðar og Brynju Sifjar Bjarnadóttur er Brynjar Tumi Sigurðarson, f. 9.8. 2006, dóttir Sigurðar og Ástu Kristínar, Elín Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson) Elsku mamma mín, ég trúi því ekki að komið sé að kveðjustund. Svo skjótt og óvænt kom kallið, þú búin að leggja frá þér bókina og gleraugun og allt með friði og ró í bólinu þínu heima. Þú sem varst svo hress og kát um áramótin, glöðust allra að hafa drengina þína, tengdadætur og barnabörnin saman í Borgarnesi um áramótin. Ég hef ekki verið í Borgarnesi um áramót í fjöldamörg ár eða síð- an ég var ungur drengur fyrir tuttugu árum. Því er það mér afar kært að örlögin höguðu því svo að við vorum saman með veislu í Borgarnesi þessi áramótin. Það er ótrúlega strembið að kveðja þig núna, mamma mín, en víst er að þú átt von á góðum end- urfundi á himnum hjá pabba og litlu systur. Hvíl í friði, elsku mamma mín, og takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér. Brynjúlfur Halldórsson. Mikið er sárt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur með okkur. Efst í huga mér er mikið þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér og vera þér samferða. Ég man að þú varst ekki alveg viss um hvað þér ætti að finnast um þessa Reykjavíkurmey sem var farin að venja komur sínar í Borgarnes. Við vorum samt fljótar að ná sam- an og þú sýndir mér mikla vænt- umþykju alla tíð. Það var mér dýrmætt að mikill vinskapur varð á milli ykkar Dóra og foreldra minna og við áttum margar góðar stundir saman. Það var ykkur öllum mikið fagnaðar- efni þegar Sigurlaug okkar fædd- ist. Hún varð strax sólargeislinn í lífi ykkar Dóra. Það sama kom á daginn þegar Bryndís kom í heim- inn, hún vann hug ykkar og hjörtu. Stundum held ég að sam- starfsfólki þínu í búðinni hafi þótt nóg um, svo miklir snillingar voru þær systur í frásögnum þínum. Þegar stelpurnar voru litlar vor- um við Binni bæði í vaktavinnu og þurftum ósjaldan að leita til for- eldra okkar eftir aðstoð. Það stóð aldrei á ykkur Dóra. Oft á tíðum kom Dóri og sótti stelpurnar og stundum komst þú til okkar í Tjarnarmýri. Oft komst þú fær- andi hendi með gjafir handa stelpunum og eitthvað fallegt til heimilisins handa mér. Þér þótti fátt skemmtilegra en að gleðja fólkið þitt. Þú gerðir ekki miklar kröfur og vildir alls ekki láta hafa fyrir þér. Þú baðst mig stundum um að kaupa Moggann á laugardags- morgnum þegar þú varst í heim- sókn hjá okkur. Það var alltaf eins og ég væri að gera þér heimsins stærsta greiða. Fátt gladdi mig samt meira en að koma með blaðið heim og sjá þig njóta þess að leysa krossgáturn- ar hverja á fætur annarri. Þó að árin frá því að Dóri féll frá hafi verið þér erfið þá fannst mér samt eins og líðan þín væri á uppleið. Komur þínar til okkar urðu tíðari og samverustundirn- ar því fleiri. Þó að Sigurlaug og Bryndís séu orðnar unglingar þótti þeim alltaf gott að fá þig í heimsókn. Þú gafst þér góðan tíma til að spjalla við þær um ým- is mál sem lágu þeim á hjarta. Oft var líka fíflast og mikið hlegið. Þið mamma hélduð vinskap ykk- ar og ég er nokkuð viss um að þið hafið fundið styrk hvor hjá ann- arri. Við hittumst síðast á gamlárs- kvöld og áttum yndislega kvöld- stund saman hjá Sigga og Ástu í Borgarnesi. Siggi og Binni eld- uðu dýrindis mat, Ásta gerði dásamlegan eftirrétt og við skál- uðum í alvöru kampavíni. Þú varst svo glöð og ánægð þetta kvöld, heitt í hjartanu eins og þú orðaðir það svo oft. Þessi kvöld- stund rennur okkur fólkinu þínu seint úr minni og ég reikna fast- lega með að það verði farið til Siglufjarðar í sumar eins og þú varst að leggja drög að þarna um kvöldið. Þegar ég horfi til baka er ég fyrst og fremst þakklát fyrir tím- ann sem við áttum saman. Þakk- lát fyrir þann góða vinskap sem við áttum. Þakklát fyrir að hafa fengið að ferðast og gleðjast sam- an og takast á við sorg og sigra. Þó að sorgin sé okkur þungbær þá munum við, fólkið sem fyllti þig stolti alla daga, halda merkj- um þínum á lofti með því að hugsa vel hvert um annað og gera litlu hlutina í lífinu að þeim stóru. Guð geymi þig, elsku Ásta. Vigdís Hallgrímsdóttir. Elsku amma okkar. Nú ert þú engill á himnum sem vakir yfir okkur og verndar. Nú ert þú komin til afa Dóra. Þó að við séum sorgmæddar erum við þakklátar fyrir allar góðu minningarnar. Það var allt- af svo gaman að segja þér frá og hlæja með þér. Við söknum nær- veru þinnar mjög. Við munum sakna þess að fá þig til okkar og koma til þín í Borgarnes. Þú varst okkar allra besta vinkona og takk fyrir að kenna okkur að vera þakklátar fyrir það sem við höf- um. Elsku amma, minningin lifir í hjarta okkar að eilífu. Þínar ömmustelpur, Sigurlaug og Bryndís. Elsku amma. Þú varst amma mín og verður það alltaf, um ævi og aldur verður þú amma mín. Þú varst síbrosandi og alltaf hlæj- andi. Þú munt vaka yfir mér. Ég veit það. Ég vona að ég muni hitta þig í draumum mínum. Þú varst alltaf hreinskilin og skemmtileg við alla. Ég get þakkað fyrir líf þitt og stundir okkar saman. Ég get þakkað fyrir góðu stundina okkar allra saman um áramótin. Ég get þakkað Guði fyrir það að þú þurft- ir ekki að glíma við veikindi og að þú þurftir ekki að þjást neitt. Það var alltaf mjög gott að knúsa þig og sitja í fanginu á þér. Á meðan sál þín lifir verður þú á lífi. Ég bjó til málshátt sem ég tileinka þér, en hann hljómar svona: „Lífið er ævi- langt ferðalag, en það eru engir áfangastaðir í lífinu.“ Takk fyrir að hafa verið amma mín. Ég bara vona að þér líði vel með afa Dóra. Ég samdi einnig ljóð handa þér. Það er um þig. Minning þín verður alltaf í okkar hjarta, einnig ljósið þitt bjarta. Þú hefur verið stór þáttur í okkar lífi, ljós þitt og minning er okkar þýfi. Þú varst besta amma í heimi hér, nú ert þú þar sem afi Dóri er. Þú hugsaðir fyrst um mig, síðan hugsaðir þú um þig. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur, þú lýstir upp herbergið eins og minn ljósi lokkur. Hvíl í friði. Þinn ömmustrákur, Brynjar Tumi Sigurðarson. Elsku systir okkar. Þegar mömmu okkar voru færðar andlátsfréttir þá bað hún viðkomandi Guðs blessunar og sagði: „Já, maður veit aldrei hver er næstur.“ Svo sannarlega er þetta rétt. Þú fórst bara allt í einu, algerlega ótímabært. Við huggum okkur við að það var friðsælt, þú sofnaðir bara út frá bókinni þinni. Við systur rifjum upp minning- ar, ljúfsárar, gleði okkar og sorgir í gegnum árin. Minningarnar munu lifa. Við trúum því að þú og hann Dóri þinn skoppið nú um græna grundu leiðandi lítið stelpuskott á milli ykkar. Guð blessi ykkur öll. Blíður morgunbláminn hlýr bræðir drunga nætur þegar Drottins dagur nýr dregur mig á fætur. Er birtist sólin, björt og hlý, byrjar lífsins saga. Allir morgnar eru því upphaf nýrra daga. Það sem auðgar Drottins dag, dætur lands og synir, og færir lífsins för í lag er fjölskylda og vinir. (Gunnar J. Straumland) Þínar elskandi systur, Sigríður Helga og Sigþrúður. Árið er 1966. Sunnan Álftár berst þykkur rykmökkur frá vöru- bíl sem kemur vestur þjóðveginn. Það heyrist greinilega í mótor- bremsunni þegar slegið er af sunn- an við brúna. Þetta er Halldór bróðir okkar á Benzanum sínum, kominn heim að Brúarlandi, og með unga dömu í bílnum, – ekki ber á öðru –. Grunsemdir undan- farna mánuði eru nú orðnar stað- reynd. Unga daman er hún Ásta Sigurðardóttir, fram að þessu Ásta Sigga Brands, skólasystir okkar yngri bræðra úr Borgar- nesi. En nú var hún orðin Ásta hans Dóra. Ásta var myndarleg og glaðsinna ung kona og var fljót að samlagast okkur Brúlendingum, þessari stóru sveitafjölskyldu og myndaðist fljótlega gott samband milli okkar og hennar, svo og við foreldra okkar, þar sem ríkti gagn- kvæm vinátta og traust sem leiddi einnig til góðs vinskapar fjölskyld- unnar við þau Helgu og Sigga, for- eldra Ástu. Ásta var hlýleg, sér- lega traust og raungóð. Hún var í eðli sínu orðvör manneskja og vel máli farin. Hún var ágætlega orð- heppin og svaraði vel fyrir sig ef mál snérust þannig. Mörg dæmi eru um skemmtilegar athuga- semdir og tilsvör sem einhvern veginn, af sjálfu sér runnu af henn- ar vörum. Setningar sem engan meiddu en voru húmor augna- bliksins og hittu beint í mark. Ásta hafði góða greind og las mikið sér til skemmtunar og fróðleiks og hafði unun af alls kyns getraunum, mynda- og krossgátum. og kom sér þar vel hve hún hafði góðan orðaforða og tök á íslenzku máli. Hún hafði gaman af að segja frá og rifja upp sögur og tilvik úr sam- tímanum. Svipaði henni þar nokk- uð til Sigurðar föður síns. Starfsvettvangur hennar utan heimilisins var lengst af við af- greiðslustörf hjá Kaupfélagi Borg- firðinga og síðar Nettó í Borgar- nesi. Um tíma vann hún í prentsmiðjunni Prentborg og á Dvalarheimili aldraðra, og þótti ætíð traustur og góður starfskraft- ur. Hannyrðakona var hún og öll matargerð var henni auðveld við- fangs, svo sem að slægja fisk, ham- fletta lunda eða önnur sambærileg verk, og átti auðvelt með að gera úrvalsmat úr dýraafurðum. Hún var engin tepra þegar að slíku kom og í sveitinni gat hún veitt fæðing- arhjálp, aðstoðað lömb eða litla grísi við að komast í heiminn. Ásta og Dóri bjuggu alla tíð í Borgarnesi og frá 1969 í sömu íbúð að Böðvarsgötu 6. Þau eignuðust sitt fyrsta barn árið 1968, stúlku sem lifði einungis í þrjá daga. Eng- inn vafi er á að sú reynsla hefur verið þeim erfið að vinna úr, þó að við minnumst ekki annars en þau hafi gert það af yfirvegun. Dóri bróðir okkar lézt úr hjartaáfalli ár- ið 2007, einungis 64 ára að aldri. Það varð Ástu eðlilega mikið áfall og raun sem hún var lengi að jafna sig á. Engan grunaði nú að heilsu hennar væri svo farið að hún myndi kveðja á svipaðan veg og Dóri, tíu árum fyrr. Við systkinin og fjölskyldur vottum sonum hennar, Sigga, Binna og fjölskyldum þeirra, inni- lega samúð. Með söknuði og þökk minnumst við kærrar mágkonu sem við áttum svo lengi samleið með. Helga, Ólöf, Ragnheiður, Guðbrandur og Guðmundur Brynjúlfsbörn. Í dag kveðjum við kæra, góða og kærleiksríka vinkonu með hlýju og söknuði. Mig setti hljóða þegar Unnsteinn sagði: „Ég færi sorgarfréttir, Ásta er dáin, já, Ásta Sigurðar er dáin, Ásta hans Dóra (litla á Landi).“ Hjartað mitt fylltist vanmætti og söknuði, þú horfin á brott langt fyrir aldur fram og ég trúi ekki enn að ég hitti þig ekki aftur, elsku vinkona. Ásta og Dóri voru með þeim fyrstu sem ég kynntist er ég flutti í Borgar- nes árið 2001. Þau hjón voru hluti af stórum vinahóp mannsins míns og var mér vel tekið í þeim hópi. Fljótt mynduðust tryggðarbönd á milli mín og ykkar hjóna og nota- legt var að sitja með ykkur og Unnsteini yfir kaffibolla og spjalli. Fræðast um mín nýju heimkynni því þar var ekki komið að tómum kofunum. Það var því þungt og djúpt högg sem hoggið var er Dóri kvaddi svo óvænt og dýpsta sárið af öllu var það fyrir þig, Ásta mín. En þú barst harm þinn í hljóði og hélst áfram lífsbaráttunni. Mér er það kært og ljúft að minnast okkar vináttu, þess trausts sem þú sýndir mér í orði og verki, og mörgum minningar- brotum úr lífshlaupi þínu trúðir þú mér fyrir sem ég mun geyma í hjarta mínu. Ég mun sakna þess að sjá ekki ykkur Elínu Ástu aftur skottast til mín í kaffibolla og spjall. Þar sem Elín Ásta fékk kakóbollann sinn, settist niður og litaði eða las á meðan við ræddum málin. Þú sýndir því alltaf skilning ef ég hafði ekki tíma, þú greipst þá gjarnan í prjónana eða þið Kata slóguð á létta strengi. Síðasta heimsókn ykkar mun verða mér afar kær þar sem þú færðir mér handprjónaða hyrnu að gjöf og með þeirri hyrnu tel ég þig hafa fléttað þau fallegu bönd sem við tengdumst hér á jarðríki. Elín Ásta mun alltaf eiga stað í hjarta mínu og mun ávallt vera velkomin. Ég veit að heimkoma þín hefur verið falleg og friðsæl þar sem Dóri var búinn að undirbúa hana svo vel. Svo sterk var vitjun hans á gamlárskvöld þegar allir voru mættir í Borgarvík 1 þar sem þú Ásta mín varst með sonum þínum, tengdadætrum og yndislegum ömmubörnum að fagna nýju ári. Lagt hafði verið á borð fyrir 11 en þegar sest var niður að veislu- borðinu kom í ljós að einn stóll stóð auður. Þar var Dóri mættur og allir urðu hissa og sögðu: „Gamli minn, ertu með okkur, skál.“ Nýársdagur rann upp, að kvöldi lagðist þú til hvílu með bók að vanda. Þar sofnaðir þú þínum hinsta svefni, falleg í rúminu ykk- ar hjóna. Nú vitum við að þú hvílir í faðmi Dóra með litlu dóttur ykk- ar. Megi ljós og friður lýsa minn- ingu ykkar. Þú varst yndisleg móðir, tengdamóðir og amma, þín verður sárt saknað af þeim sem elskuðu þig mest sem og þínu nærsam- félagi. Unnsteinn, Kata og Gosi vilja þakka þér samfylgdina og við öll sendum ástvinum þínum hug- heilar samúðarkveðjur. Takk fyrir allt, elsku Ásta mín, hver minning er dýrmæt perla. Þín vinkona, Svava í Blómasetrinu – Kaffi Kyrrð. Ásta Sigurðardóttir HINSTA KVEÐJA Amma var góð, glöð og hress. Hún var líka hug- rökk. Hún passaði upp á mig og vildi alltaf vera skemmtileg. Aldrei vildi ég að þú færir, amma. Elska þig, amma mín. Þín ömmustelpa Elín Ásta Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.