Morgunblaðið - 19.01.2018, Side 39
39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2018
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Líkaminn er kjarninn í þessum verk-
um hérna,“ segir Brynja Sverrisdóttir
sýningarstjóri um athyglisverða sýn-
ingu, Líkamleika, sem hún hefur sett
saman í sölum Gerðarsafns í Kópavogi
og verður opnuð í kvöld, föstudag,
klukkan 20.
Áhersla er á ljósmyndamiðilinn á
sýningunni. Á henni eru myndverk eft-
ir 18 listamenn ólíkra kynslóða; sumir
eru í hópi okkar virtustu og reyndustu
en aðrir enn í námi, og þá gefur líka að
líta verk eftir erlenda listamenn sem
hafa búið og starfað hér á landi. Lista-
mennirnir eru Bára Kristinsdóttir,
Claire Paugam, Eirún Sigurðardóttir,
Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir,
Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur
Jónsson, Shoplifter – Hrafnhildur
Arnardóttir, Hrafnkell Sigurðsson,
Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvars-
dóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét
Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður
Guðmundsson, Steina, Una Margrét
Árnadóttir og Örn Alexander
Ámundason.
Líkamleg upplifun
Brynja útskýrir að orðið líkamleiki
sé býsna órætt og þekkist varla í ís-
lensku nema sem hugtak í fyrir-
bærafræði, tengist tvískiptingu sálar
og líkama og er einskonar áminning
um að við mennirnir upplifum hluti og
heiminn sem líkamar.
„Mörg verkanna hér tengjast ein-
mitt líkamlegri upplifun á heiminum,“
segir hún og nefnir sem dæmi mynd-
bandsverk eftir Sigurð Guðmundson
þar sem hann þreifar bæði á blómkáls-
haus og höfðinu á sér og upplifunin er
mjög líkamleg. Brynja bætir við að
nokkur þemu séu á sýningunni:
„Líkamleg upplifun á umhverfi okk-
ar, performatíf verk, holdleg náttúra
og samruni manns og náttúru. Svo
kemur viss leikur inn líka, vísun í eðli
ljósmyndarinnar sem getur verið hold-
legt eða líkamlegt; nýtt verk eftir Har-
ald Jónsson sem er hér á sýningunni
vísar til dæmis til þess.
Þá er á sýningunni líka leikið með að
leyfa þessum þemum að stökkva fram
og aftur og trufla hvert annað svolítið.
Það er þessi líkamlega upplifun á
umhverfi og líkaminn er líka miðill
listamanna í performans. Sem dæmi
má nefna þessi verk eftir Evu Ísleifs-
dóttur“ – hún bendir á litljósmyndir í
veglegum römmum en á þeim sést
hvar risastór gylltur lárviðarkrans hef-
ur kramið konu úti á götu. „Þarna hef-
ur þetta valdsmannstákn, lárviðar-
sveigurinn, algjörlega kramið
listamanninn í tilraun hans til full-
komnunar og við að ná sínu fram.
Þetta er húmorískur leikur með per-
formans.“
Sjónrænn leikur
Áhugaverður leikurinn í mörgum
verkanna skilar sér út í sýninguna alla.
„Það var einmitt hugmyndin að leyfa
þessu að vera sjónrænn leikur frekar
en einhver djúp, listfræðileg rannsókn.
Hér er leikið mikið með form og vís-
anir,“ segir Brynja og bætir við að það
sé mikil breidd í sýningunni enda lista-
mennirnir 18 ólíkir og með mismun-
andi reynslu í farteskinu.
„Ég reyndi að búa til samtal milli
ólíkra verka og þennan takt með því að
blanda saman þemunum og listamönn-
um sem vinna í mismunadi miðla.
Ljósmyndin er útgangspunkturinn –
Ljósmyndin er
útgangspunkturinn
frekar en að litið sé á hana sem einn af
listmiðlunum þá er hún grunnurinn og
verk í öðrum miðlum hér, svo sem
vídeó, skúlptúrar og gjörningaverk,
spretta út frá því. Mörg vídeóverkanna
hér eru eins og lifandi ljósmyndir,
kyrrir rammar sem eitthvað gerist í.“
Samtal milli kynslóða
Þegar gengið er um sali Gerðar-
safns með Brynju bendir hún á ýmis
verkanna og ræðir um þau í sambandi
við grunnþemu sýningarinnar.
„Þessar ljósmyndir þarna eru eftir
yngsta listamanninn sem á verk hér,
Claire Pougam frá Frakklandi en hún
var í meistaranámi við LHÍ,“ segir
hún um röð stórra ljósmynda. „Þetta
er sería verka þar sem hún veltir fyrir
sér tengingu mannsins og náttúrnnar,
tengingu þar sem maðurinn verður oft
hluti af náttúrunni. Hér er hún búin að
setja kjötstykki út í grjótið og oft er
erfitt að greina hvort er hvað. Rétt
eins og maður – holdið – og náttúra
verði eitt. Paugam gerir líka þessa litlu
skúlptúra þar sem hún fjallar um hvað
bæði maðurinn og náttúran snúast
mikið um op – og þessir skúlptúrar
kallast á við litla skúlptúra eftir Harald
Jónsson sem eru hér og hann kallar
„Blindur“. Hann bjó þá til með lokuð
augu en eins og holdgerir tjáninguna í
þessum litlu verkum sem minna á lík-
amshluta.“
Við skoðum röð ljósmynda eftir Unu
Margréti Árnadóttur, „Endurtekin til-
raun til að nálgast rabarbara“; sams-
konar myndramma sem sýna listakon-
una reyna að hlaupa í tíma að
rabarbarabreiðu en sjálftakari mynda-
vélarinnar smellir alltaf of fljótt af.
Henni tekst aldrei ætlunarverkið.
Þarna eru líka verk úr tveimur ljós-
myndaröðum Hrafnkels Sigurðssonar.
Önnur sýnir formhrein en skítug
klakastykki sem safnast aftan við hjól-
barða bíla í vetrarfæri. Brynja segir
Hrafnkel takast á við áþreifanleika
umhverfisins og skapa þessa „litlu
íkona“ í umhverfi sem við viljum ekki
endilega horfast í augu við. Hin mynd-
röð hans sýnir ruslapoka á götum í er-
lendri stórborg, þeir „verða eins og
manneskjur úti á götu að kvöldi til en
eru afurðir manna sem menn vilja
samt ekki alveg gangast við.“
Og hún ítrekar að á sýningunni sé
samtal ólíkra kynslóða. Á einum
myndbandsskjá er verk eftir frum-
kvöðulinn Steinu Vasulka en skammt
þaðan er skjár með verki eftir Klæng
Gunnarsson sem er í framhaldsnámi í
Svíþjóð. Listamaðurinn sést þar horfa
út um glugga á snævi þakta jörð og
slefa yfir ægifegurðinni.
Fjölbreytileg verk 18 listamanna á sýningu í Gerðarsafni
Farg Hluti verks Evu Ísleifsdóttur, If I were rich I would give you gold.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýningarstjórinn Brynja Sverrisdóttir við skúlptúra eftir Örn Alexander
Ámundason, en á veggnum eru ljósmyndaverk eftir Claire Paugam.
Hápunktur Úr einu myndbandsverkanna á sýningunni, High Point, frá
2016, eftir Unu Margréti Árnadóttur og Örn Alexander Ámundason.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas.
Síðustu sýningar leikársins!
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s
Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Medea (Nýja sviðið)
Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 7. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s
Ástir, svik og hefndarþorsti.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 19/1 kl. 20:00 46. s Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Lau 3/2 kl. 20:00 50. s
Lau 20/1 kl. 20:00 47. s Fös 2/2 kl. 20:00 49. s
Draumur um eilífa ást
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas.
Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Allra síðustu sýningar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 20/1 kl. 13:00 5. s Lau 27/1 kl. 13:00 7. s
Sun 21/1 kl. 13:00 6. s Sun 28/1 kl. 13:00 8. s
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
ICQC 2018-20
Hafið (Stóra sviðið)
Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn
Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 11.sýn
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00
Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn
Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn
Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 13.sýn
Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Lau 20/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn
Lau 20/1 kl. 15:00 4.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00
Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 19/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 20:00
Fös 19/1 kl. 22:30 Fim 1/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 22:30
Lau 20/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 20:00 Fim 15/2 kl. 20:00
Lau 20/1 kl. 22:30 Fös 2/2 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 20:00
Sun 21/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30
Fim 25/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 22:30 Lau 17/2 kl. 20:00
Fös 26/1 kl. 20:00 Fim 8/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 22:30
Fös 26/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 20:00 Sun 18/2 kl. 21:00 Konudagur
Lau 27/1 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Bílar
Matur