Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Qupperneq 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.1. 2018 D óra Jóhannsdóttir brá sér í ótal líki í áramótaskaupinu sem 70 prósent landsmanna horfðu á síðasta kvöld ársins 2017. Dóra var þó ekki bara í hlutverkum frægra og ófrægra heldur var hún einnig yf- irhandritshöfundur skaupsins. Dóra hefur ver- ið afar ötul við að koma hugmyndum sínum í verk, kynnt spunaleikhús fyrir Íslendingum, leikstýrt, skrifað og leikið. Við hittumst rétt áður en sólin settist í Vesturbænum. Hvernig hefur þú upplifað viðbrögðin við Skaupinu? „Miklu betri en ég þorði að vona. Ég var í Kringlunni áðan og þar var fólk að stoppa mann til að tala um skaupið, gerir mann bæði hissa og þakklátan. Ég er líka ánægð með að fólk hefur verið að nefna mismunandi atriði sem sín eftirlætis. Gefur til kynna að margir hafi fengið eitthvað fyrir sinn snúð.“ Þið virðist vera að fá svolítið mörg rokkstig fyrir atriðið í heita pottinum, þar sem kon- urnar voru komnar í hlutverk karlanna og völsuðu berar að ofan um laugina og allt varð vitlaust þegar karlinn fór úr að ofan. „Já, persónulega verð ég að segja að ég er stoltust af því atriði, mér fannst það yfirlýsing sem var mikilvæg og gaman að standa með henni og framkvæma. Svo lék sonur minn barnið sem konan í næsta potti tók fyrir augun á. Þegar við vorum að útskýra atriðið fyrir honum var hann svolít- ið hissa, honum fannst að konur ættu jú alveg að geta fengið að vera berar að ofan í sundi. Svo sagði hann við mig í dag: „Mamma, árið 2018, þá mega konur vera berar að ofan.“ Fannst að við Saga hefðum í raun verið að kynna ný lög fyrir nýtt ár.“ Var að drepast Er eitthvert atriði sem hefur vakið sterkari við brögð en önnur? „Líklega þetta atriði. Við spáðum aðeins í það hvort það myndi fara fyrir brjóstið á fólki en ég hef bara séð eitt eða tvö komment um slíkt, sem voru einmitt í þeim dúr sem við vor- um að gera grín að; „En hvað með börnin?““ Enginn kvíði í maganum þegar maður bíður eftir því hvernig svona fellur í kramið? „Jú, ég var bókstaflega að drepast! Ég skildi símann minn eftir heima því ég var svo hrædd við samfélagsmiðlana, rétt dirfðist að kíkja þegar ég var búin að frétta að þetta væri almennt að vekja jákvæð viðbrögð.“ Þegar svo margt gerist á einu ári, meira að segja tvennar alþingiskosningar, hvernig gengur að koma því heim og saman í aðeins eitt skaup? „Það sést auðvitað best á því að við skrif- uðum samtals tvö skaup. Efniviðurinn var slíkur. Svo völdum við það besta og fengum vini til að lesa yfir. Ef margir voru að benda á eitthvert atvik sem þá rámaði ekkert í hentum við því út. Þetta var líka flókið því mjög mikið af erf- iðum og viðkvæmum málum komu upp 2017, sem við vildum sýna virðingu og eiginlega ekki gera létt grín að einhverju sem skiptir ótrú- lega miklu máli og er viðkvæmt umfjöllunar- efni fyrir marga. Við frekar bentum á þau mál hér og þar með stuttum setningum án þess að taka endilega heil atriði í að fjalla um þau. Í pólitíkinni vorum við líka meðvituð um að dreifa atriðunum þannig að það væri ekki ein- hver áberandi slagsíða, passa að sem flestir sem fara með völdin væru teknir fyrir. Við vissum að við yrðum að gera grín að Costco en það tók marga mánuði að finna eitt- hvað sem okkur fannst gott og satt.“ Nýfráskildir lita ljóst og klippa topp Þegar hér er komið í viðtalinu kemur ljós- myndari Morgunblaðsins askvaðandi inn. Hokinn af reynslu hefur hann að sjálfsögðu myndað Dóru áður. „Hvað ertu orðin eitthvað meira blond en venjulega?“ spyr hann. Dóra svarar honum í glensi að það hljóti að vera vegna þess að hún sé fráskilin. „Ég las það í blaði að nýfráskilið fólk liti oft á sér hárið og konur klippi á sig topp. Nema að ég var bæði búin að lýsa aðeins á mér hárið og klippa á mig toppinn þegar ég las þetta!“ Ljósmyndarinn smellir myndum af Dóru og við höldum svo áfram. Hvaðan ertu? „Ég er héðan.“ Dóra bendir út um gluggann þar sem við sitjum á Kaffi Vest. „Vest- urbænum. Ólst hér upp og hér við vorum vin- konurnar einmitt alltaf að plotta þegar við vor- um unglingar að stofna kaffihús. Þannig að það var algjörlega geggjað þegar þetta var svo opnað. Ég fór í Hagaskóla, svo Menntaskólann í Reykjavík, Listaháskólann og eftir að hafa leikið í nokkur ár í leikhúsunum hér heima fór ég í meira nám til Bandaríkjanna.“ Var fljótt ljóst að í þér byggi leikari og grín- ari? „Nei eiginlega ekki. Það var ekkert í mínu umhverfi sem hafði með leiklist að gera. Faðir minn, Jóhann Þór Magnússon, er verkfræð- Morgunblaðið/Hari Engum datt í hug að leiklist væri fyrir mig Dóra Jóhannsdóttir, áramótaskaupshöfundur, leikkona, leikstjóri og spunameistari með meiru hefur verið í hláturskasti allt sitt líf og var rekin úr tímum fram á fullorðinsár fyrir það. Hún segist lítið vera fyrir dramatík, þótt starfsframa síns vegna ætti hún varla að viðurkenna það. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Ég fór þó í Listaháskólann, með það í huga að verða leikstjóri. Þá var ekki komin þessi sviðshöfundabraut svo ég fór í leikaradeild- ina og það leið ekki á löngu þar til ég var skömmuð fyrir að vera þar af hálfum hug.“ ’Ég var mjög oft rekin úr tímum fyrir fliss, meira að segja í síðastabekk í menntaskóla, þegar ég var að fara að útskrifast, orðin 19ára, var ég rekin út fyrir að hlæja. Ég klóraði mér í hausnum yfirsjálfri mér, rekin úr tíma fyrir að vera með læti, hálffullorðin?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.