Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Qupperneq 19
7.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Íslenska sendinefndin varð vitni að sameiningu fjölskyldu í Suður-Súdan. „Það var mikil gleði og allir á staðnum urðu mjög hrærðir. Við vorum eiginlega með tárin í augunum, þetta var mjög látlaust og fallegt,“ segir Kristín. Rauða kross-fulltrúi ræðir málin við nokkra íbúa Suður-Súdan. Sjálfboðaliði Rauða krossins tekur á móti gamalli konu sem flutt var með flugvél Rauða krossins til endurfunda við fjölskyldu sína. Á meðan íslenska sendinefndin var í landinu urðu þau vitni að fallegum endurfundum fjölskyldu sem ekki hafði sést í eitt og hálft ár. „Þetta var mjög óvænt. Það var akkúrat að gerast þegar við vorum þarna að flugvél var að lenda með fimm manna hóp og fórum við með að taka á móti þeim. Þau voru að sameinast ættingjum sínum sem þau höfðu ekki séð síðan 2016. Það varð tilfinningauppnám. Það var mikil gleði og allir á staðnum urðu mjög hrærðir. Við vorum eiginlega með tárin í augunum, þetta var mjög látlaust og fallegt,“ segir Kristín og segir þetta ekki hafa verið eins og í bíómynd þar sem fólk hleypur í fangið hvað á öðru. „Það varð svo seinna hjá þeim spennufall og þau byrjuðu að gráta og faðmast og syngja og fóru að kyssa og faðma okkur öll.“ Grátið og faðmast

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.