Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Side 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Side 21
fjölmennt fyrir, en Guðmundi hefur klárlega tekist að stækka það enn frekar. Frásagnar- stíll Guðmundar er vel ígrundaður og hnytt- inn. Hann nýtur sín best þegar Guðmundur leyfir sér að víkja frá RÚV-talandanum, sem þær Vera og Viktoría hafa t.d. einnig tileinkað sér, og tala eins og hann sé raunverulega að eiga samræður við hlustandann. Samræður Guðmundar við íþróttamennina eru einmitt svo sterkar og þá ekki síst vegna þess hve vel hann byggir upp senurnar í kring- um þær með því að hitta t.d. Ingólf Sigurðsson á Valsvellinum og Emil Hallfreðsson í Fíladelfíu. Það verður spennandi að fylgjast með því hvað Guðmundur gerir næst eða hreinlega hvað RÚV og íslenska hlaðvarpssenan gerir næst. Rýmið til vaxtar er í það minnsta ríkulegt. S-Town Umsjónarmaður: Brian Reed S-Town rauk beint á topp vinsældalistanna þegar það kom út en varð fljótt umdeildasta hlaðvarp ársins. Í upphafi þáttaraðarinnar er gefið í skyn að henni muni svipa til Serial – þáttanna sem komu hlaðvörpum á kortið – en fljótlega verður ljóst að hér er eitthvað allt annað á ferð. Í stað sannrar glæpasögu, rann- sakaðrar af blaðamönnum, kafar þáttastjórn- andinn Brian Reed í smábæ í Alabama og þá sérstaklega í einn íbúanna, John B. McLe- more. Serial-sárir hlustendur voru þó ekki þær gagnrýnisraddir sem hæst heyrðist í. Það var enda engin ástæða til; flestir hlaðvarps- unnendur virðast sammála um að S-Town séu einstaklega vel skrifaðir og framleiddir. Í raun er þar unnið ákveðið frásagnar-afrek þar sem efni þáttanna var tekið upp yfir nokkurra ára tímabil án þess að Reed hefði fundið út hvern- ig hann gæti notað það. Gagnrýnin snýr að því hvort segja hafi mátt sögu John B. McLemore yfirhöfuð, eða hvort þáttastjórnandinn hafi, rétt eins og rætt er um í Missing Richard Simmons, farið yfir strikið hvað varðar einkalíf aðalhetjunnar. Það er líklega best að hafa sem fæst orð um það mál og leyfa lesendum fremur að mynda sína eigin skoðun á þessum áhugaverðu þátt- um. The Daily Umsjónarmaður: Michael Barbaro Fréttaþyrstir hlaðvarpsunnendur ættu ekki að láta þennan daglega morgunþátt The New York Times framhjá sér fara. Þættirnir eru framleiddir af einvalaliði fréttamanna undir stjórn hlaðvarpsdrottningarinnar Lisu Tobin en það er hljómþýð rödd Michael Barbaro sem leiðir hlustendur áfram. Í hverjum þætti er kafað djúpt í eitt frétta- tengt málefni, oft það sem hæst er á baugi þann daginn, af mikilli natni og nákvæmni en þó með tilfinningagáfurnar við stýrið. Á með- an aðrir morgunfréttaþættir eiga það til að vera þurrt og einfalt flæði upplýsinga, finnur The Daily leiðir til að snerta við hlustand- anum og viðhalda áhuga hans á eins ólíkum efnum og öldungadeildarkosningum, kyn- ferðisbrotum, námslánum og stríðs- glæpamönnum. The Daily er frábær fréttaskammtur fyrir fólk á ferðinni frá mánudegi til föstudags í viku hverri. Where Should We Begin Umsjónarmaður: Esther Perel Where Should We Begin er sannkölluð gull- náma fyrir fólk sem er forvitið um sambönd annarra, og erum við það ekki öll? Nei? Bara ég? Ok … Hvað sem því líður hefur hlaðvarp belgíska sambands-sálfræðingsins Esther Perel slegið rækilega í gegn. Í hverjum þætti fær hún til sín eitt hugrakkt en þó nafnlaust par sem greinir frá vandamálum sínum, veri það skort- ur á kynlífi, framhjáhald eða hvað annað. Oftar en ekki kafa pörin djúpt í sín myrkustu leynd- armál og Perel leiðbeinir þeim með reglu- legum innskotum. Þættirnir eru teknir upp á skrifstofu Perel, þar sem hún hittir einnig aðra skjólstæðinga sína. Perel fer í gegnum hefðbundinn sálfræði- tíma með parinu, án þess að nokkurt handrit komi til. Það sem hlustandinn heyrir er hins- vegar stytt útgáfa enda nennir enginn að hlusta á korters rifrildi um tengdamömmu þegar hægt er að spóla áfram á alvöru trámað. Meiningin er auðvitað sú að hlustandinn dragi lærdóm af þeirri umræðu sem tekin er í hverjum þætti þó margir hafi eflaust einhverja furðulega ánægju af því að vera vitni að þján- ingum annarra. Þegar upp er staðið er einfald- lega heillandi að heyra Perel leiðbeina skjól- stæðingum sínum í gegnum brotin sambönd og stundum, þegar sá möguleiki er fyrir hendi, púsla þeim aftur saman. 7.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 ● Ástandsbörn – RÚV ● Fruit – Issa Rae Productions ● Rough Translation – NPR ● NO – The Heart ● Dirty John – LA Times ● Nancy - WNYC AP Í Ear Hustle er skyggnst bak við lás og slá og greint frá ýmsum hliðum lífsins í fangelsum Kali- forníu. Myndin er tekin í San Quentin fangelsinu. Aðrir áhuga- verðir nýliðar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.