Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Blaðsíða 33
Phoebe Philo segir í yfirlýsingu að það hafi verið frábær lífs-reynsla að vinna hjá Céline. „Ég er mjög þakklát fyrir að hafaunnið með ótrúlega hæfileikaríku og einörðu teymi og mig langar að þakka öllum sem hafa tekið þátt í samstarfi og samtali … þetta hefur verið frábært.“ Síðasta lína Philo fyrir Céline verður sýnd í mars næstkomandi en ekki er búið að nefna eftirmann hennar. Philo er einhver áhrifmesti hönnuður af sinni kynslóð og hefur ver- ið áberandi fyrir naumhyggju í hönnun sem hentar konum sem vilja ekki vera fórnarlömb tískunnar heldur klæðast fötum sem henta þeirra lífsstíl. Föt hennar taka ákveðna þætti úr karlmannatísku en eru samt sem áður kvenleg og það lítur út fyrir að það sé hægt að nota þau árum saman. Hún er líka hrifin af þægilegum skóm og sagði í samtali við W að hún kynni vel við strákalega skó. „Þeir eru með fæturna á jörðinni. Það er hægt að finnast kona í háum hælum spennandi en ég elska líka notagildi. Ég tengi við að vera algjörlega við stjórnvölinn í því sem þarf að gera,“ segir Philo, sem m.a. gerði flatbotna sandala með loð- fóðri að hætti Birkenstock að tískuvöru og kom hvítum Stan Smith- skóm frá Adidas á kortið. Philo er ekki sem stendur á leið til annars tískuhúss heldur er búist við því að hún taki sér hlé frá störfum til að einbeita sér að fjölskyld- unni. Hún er búsett í London og á þrjú börn á aldrinum 5-12 ára. Hún hefur áður tekið sér frí til að sinna börnum sínum en hún tók sér tveggja ára hlé þegar hún hætti hjá Chloé árið 2006 áður en hún tók við stjórninni hjá Céline. Í bæði skiptin hættir hún þegar allt stendur í blóma hjá fyrirtækjunum, bæði hvað sölu og virðingu varðar. Phoebe Philo hættir Philo þakkar fyrir sig að lokinni tískusýningu. Breski fatahönnuðurinn Phoebe Philo hefur sagt starfi sínu lausu hjá Céline, einu af áhrifamestu tískuhúsunum í iðnaðinum, eftir að hafa starfað hjá fyrirtækinu í áratug. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Adwoa Aboah var valin fyrirsæta ársins í Bretlandi. Hún hefur verið áberandi síðastliðið ár en hún bar sigurorð m.a. af Hadid-systrum. Hún stofnaði ennfremur vefsíðuna gurlstalk.com, vettvang fyrir ungar stelpur til að fræðast um andlega heilsu og fleira sem þeim liggur á hjarta. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is 7.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Adwoa Aboah var valin fyrir-sæta ársins á bresku tísku-verðlaununum sem voru af- hent í desember. Hún bar þar sigurorð af Kaiu Gerber, systrun- um Bellu og Gigi Hadid auk Winnie Harlow. Verðlaunin eiga „að fagna alþjóðlegum áhrifum fyrirsætu, karl- eða kvenkyns, sem hefur á síðastliðum 12 mánuðum verið áberandi í tískuiðnaðinum“. Gigi Hadid fékk verðlaunin árið á und- an. Árið hefur sannarlega verið gott hjá þessari 25 ára gömlu bresku fyrirsætu. Hún prýddi forsíðu fyrsta breska Vogue-blaðsins undir ritstjórn nýs ritstjóra, Edwards Enninfuls, sat fyrir í hinu fræga Pirelli-dagatali, gekk sýningarpall- ana á ótalmörgum tískusýningum og sat fyrir í auglýsingaherferðum fyrir m.a. Marc Jacobs Beauty og H&M. Hún hefur ennfremur verið á for- síðu bandaríska og ítalska Vogue auk i-D. Á meðal annarra fyrirsætna sem hafa hlotið þessi verðlaun eru Kate Moss, Cara Delevingne, Agyness Deyn, Jourdan Dunn og Edie Campbell en Hadid er eini Banda- ríkjamaðurinn sem hefur unnið til verðlaunanna. Samfélag á netinu Aboah er meira en bara fyrirsæta því hún er líka baráttukona og stofnandi Gurls Talk, sem er samfélag á net- inu þar sem ungar kon- ur geta á öruggan hátt rætt sín á milli um and- lega heilsu, kynlíf og samfélagsmiðla. Hún var valin kona ársins af GQ meðal annars fyrir þetta framlag sitt. Á Instagram- reikningi hennar eru myndir af henni með ýmsum stjörnum en þrátt fyrir að hún sé fyrirsæta er hún stundum óörugg með útlitið. „Það versta sem ég geri þegar ég er óörugg með mig og viðkvæm er að skoða Instagram. Það sýna allir bara myndir af því þegar lífið er gott. Allir líta út fyrir að vera hamingjusamir.“ Aboah hefur talað opinskátt um andlega heilsu sína en hún hefur gengið í gegnum margt. Hún hefur þjáðst af þungyndi og er líka greind með geðhvarfasýki. Hún hefur ennfremur átt við áfengis- og eiturlyfjavanda- mál að stríða og tók of stóran skammt í október 2015. Núna notar hún engin vímuefni og segir reynslu sína getað hjálpað öðrum. Hún fer til dæmis í skóla og heldur fyrirlestra. „Ég hefði virkilega þurft á þessu að halda þegar ég var í skóla. Mig óraði ekki fyrir að ungar stelpur ættu eftir að koma til mín á Glastonbury eða götum LA, New York eða Lond- on og segja mér hversu mikils virði Gurls Talk sé þeim,“ sagði hún við Vogue en hún hefur líka barist fyrir því að tískuheimurinn endurspegli fjölbreytileika mann- lífsins. Adwoa Aboah klæddist fötum frá breska tísku- merkinu Halpern á bresku tískuverðlaununum. Hér gengur hún tískupallinn fyrir Topshop og sýnir sumartískuna 2018. Á opnun sýningarinnar Rei Kawakubo/Comme des Garcons: Art Of The In-Between. Fyrirsæta og baráttukona Hún situr fyrir í nýju Pirelli-dagatali og mætti því á kynningu þess í New York í nóvember. Á galakvöldi tileink- uðu jafnréttisbar- áttunni í New York í október. Aboah sýndi sum- artískuna fyrir Marc Jacobs. AFP Úr sumarlínu Celiné fyrir 2018.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.