Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Page 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Page 34
FERÐALÖG Það getur verið freistandi að draga það að panta flug ívon um að tilboð detti inn. Þetta getur þó verið varasamt enda hækkar verð oftar þegar nær dregur ferðadögum. Ekki draga það að panta 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.1. 2018 Egyptaland er akkúrat tíu sinn-um stærra en Ísland; milljónferkílómetrar. Þessar eitt hundrað milljónir búa á svæði sem er einungis þriðjungur af lýðveldinu okkar. Meira en 99% af Egyptalandi er bara brennheit eyðimörk. Mann- lífið, menningin, margmennið lifir og dafnar á bökkum Nílar – lífæðar landsins, sem litar landið svo grænt. Rétt austur og vestur yfir árbakk- ana. … og þjóðsöngurinn, það fyrsta sem maður heyrir þegar maður tyll- ir fæti í Egyptalandi, er flaut. Flaut í þeim aragrúa bifreiða sem læðast, því þær fara ekki hratt um æðar vegakerfis; bíll við bíl. Þeir silast þétt saman og flauta lag sem er bæði lifandi glaðvært og pirrandi í senn – eins og Egyptaland auðvitað er. Standandi við gangbraut á Zamal- ek, eyju í miðri Kaíró … í miðju al- heimsins … í miðri Níl, leitandi eftir náttmáli, hljómar þjóðsöngur Egypta hátt og snjallt. Svo ótrúlega náttúrulegur og fagur; hver einasti bíll spilar sína nótu svo úr verður lag. Hávaði og gleði sem er eitthvað svo ekta, ekta egypskt. Undir öllum þessum tónum streyma um kettir og spennandi fólk; konur með blæju, töffarar með brilljantín og eldri menn með yfirvaraskegg og jafnvel tvenn axlabönd. Þarna hlaupa um glaðværar skólastelpur í bláum pilsum, framhjá dreymandi konu í rauðum kjól, meðan tannlaus mað- ur gefur köttum og blómasölubetl- ari með þrjá snjallsíma í hendi sit- ur hjá; súdanskir farand- verkamenn færa fisk eða teppi yfir í næstu götu; varðmaður hrýtur hátt fyrir utan risastórt rúmenska Þjóðsöngurinn og aðrar sögur frá Kaíró Þjóðsöngur Egypta … hann er auðvelt að muna, einfaldlega svo fallegur og minnisstæður. Sama með egypskar tölur; íbúafjöldinn þar er núna 100 milljónir, upp á punkt og prik. Íbúar höfuðborgarinnar, heimsborgar- innar Kaíró, eru 30 milljónir plús. Í Alexandríu bara sex. Texti og myndir: Páll Stefánsson hr.pallstefansson@gmail.com

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.