Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Qupperneq 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Qupperneq 37
Ísrael þurfa að gegna daglegum erind- um aka þeir tugi kílómetra til hinnar raunverulegu höfuðborgar landsins. Aðeins þar ná þeir fundi þeirra sem fara með forræði landsins. Hæstiréttur landsins situr þar. Hvert einasta hæsta lag stjórnsýslunnar, öll ráðuneytin og helstu stjórnsýslustofnanir eru þar. Með fullri virðingu fyrir erlendum sendiráðum þá eru það ekki þau sem ráða úrslitum um það hvort borg er höfuðborg eða ekki. Sendiráðin í Tel Aviv eru út úr. Auð- vitað reyna þau að laga sig að því með ýmsum hætti, en staðsetningin er um- hendis. Það veldur engum úrslitum um spurninguna um það, hvort Jerúsalem sé höfuðborg eða ekki hvort sendiráð séu þar eða í Tel Aviv. Reykjavík yrði áfram höfuðborg þótt þau fáu sendiráð sem hér eru flyttu fyrir pólitíska þvermóðsku austur á Hellu á Rangárvöllum. Sjálfsagt myndi fækka eitthvað í síðdegisboðunum þó. Sérstaðan mikla En það verður að viðurkenna að eitt sendiráð hefur sérstöðu í þessum efn- um. Það er sendiráð Bandaríkjanna. Sendiráð eina örugga vinar Ísraels í heiminum. Að minnsta kosti þess eina sem skiptir máli á úrslitastundum. Vestrænu ríkin, sem gerðu sig að álf- um með því að fordæma Bandaríkin fyrir að ætla sér að að ákveða að þeirra eigið sendiráð verði í Jerúsalem eins og FJÓRIR bandarískir forsetar höfðu lofað og tilkynnt og 97% af öld- ungadeildinni höfðu staðfest í atkvæða- greiðslu. Forsætisráðherra Ísraels virtist mis- líka þegar að utanríkisráðherra minni- hlutastjórnar í Svíþjóð var með ónot út í Ísrael. Það var óþarfi. Það hefur iðu- lega andað köldu úr þeirri átt. Svíþjóð fyrri tíðar má þó eiga það, að hún stóð sig betur þegar aðþrengdir gyðingar reyndu að flýja undan böðlum Hitlers en Íslendingar gerðu. Eftir hrylling heimsstyrjaldarinnar síðari var stofnað til Sameinuðu þjóð- anna. Horft var til örlaga Þjóðabanda- lagsins sem stofnað var eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þótt Wilson for- seti væri sjálfur áhugasamur um það bandalag fór svo að Bandaríkin fóru ekki með. Sú niðurstaða réði miklu um það að bandalagið koðnaði niður og bjó til falskt öryggi í heiminum. Stofnað var til Sameinuðu þjóðanna í góðum til- gangi. Sigurvegarar seinni styrjald- arinnar gerðu það. Sameinuðu þjóð- irnar hafa ekki verið eins ömurlega gagnslausar og Þjóðabandalagið en munurinn á milli þeirra minnkar sífellt. Stofnunin brennir miklum fjármunum og dauflega lítið af þeim fúlgum kemur að nokkru gagni. Auðvitað má nefna mörg dæmi um að samtökin hafi fengið nokkru þokað. En þegar mikið liggur við er þessum heimssamtökum oftast skákað út í horn á meðan þeir sem valdið hafa fást við ástandið. Stríðið um Kóreu var (og er) háð undir fána Sameinuðu þjóðanna. En það gerðist vegna óvenjulegs klúðurs Jósefs Stalín sem varð til þess að Sov- étríkin voru fjarri þegar það mál var afgreitt. Bandaríkin, sem báru hita og þunga þess stríðs, þótt fáni SÞ væri við hún, náðu að tryggja að kommúnistar gæti verið harðort. Og íslenska rík- isstjórnin gæti tekið undir það og sent bréf. En þegar lesinn er listinn yfir þær þjóðir sem fordæmdu á allsherj- arþinginu ákvörðun Bandaríkjanna um það hvar þeir ætla að hafa sitt eigið sendiráð þá má fullyrða að á þeirri ög- urstund myndi lunginn sem fordæmdi þá, óska árásarherjunum alls hins besta. Af hverju þessi undirlægjuháttur Af hverju er Ísland í slíkum fé- lagsskap? Eftir að ákvörðun Banda- ríkjanna hefur verið tekin og þriggja daga mótmæli farið fram eins gert er út af öllu, er málið úr sögunni. Það er öllum aðilum á svæðinu sama hvar þjóðirnar sem hafa sendiráð í Tel Aviv eru með þau. Ísland fordæmdi það ríki sem tilkynnti á sínum tíma að Ísland tilheyrði Norður-Ameríkuflekanum og því mætti forsetinn senda hingað herlið án stríðsyfirlýsingar. Roosvelt dró sjálfur þessa nýju Monroe-línu niður á blað eigin hendi. Og Bandaríkin voru fljót til að viðurkenna Ísland sem sjálf- stætt ríki 1944 og hafa ábyrgst öryggi þess með sérstökum varnarsamningi. Eftir að þeir á Rauðarárstíg for- dæmdu Bandaríkin fyrir að ætla að ákveða sjálfir hvar þeir staðsetja sitt sendiráð í Ísrael, hljóta Bandaríkja- menn að fylgjast grannt með því hvort Íslendingar muni bregðast við með því að flytja sendiráð Íslands gagnvart Ísr- ael frá Rauðarárstíg, þar sem það er nú, og t.d. í Neskaupstað, til að draga úr hugsanlegri tortryggni sem gæti leynst í huga hryðjuverkasamtakanna Hamas? Það hefur verið stefna ráðuneytisins að hafa þau samtök góð. Af hverju, með leyfi að spyrja? legðu ekki suðurhlutann undir sig. Landinu var skipt og vandinn ekki leystur og er nú verri en nokkru sinni. Sameinuðu þjóðirnar hafa stefnu um að hefta útbreiðslu kjarnorkuvopna. Samtökin hafa sömu áhrif í því efni og þau myndu hafa ef þau rækju sjoppu í Senegal. Þegar Balkanlöndin loguðu gátu Sameinuðu þjóðirnar dapurlega lítið, en sitja lengi uppi með þungar ásakanir. Ekki síst eftir fjöldamorðin in Srebrenica þegar friðargæsluliðar samtakanna stóðu aðgerðarlausir hjá er ódæðin voru framin. Eini lýðræðisvotturinn Ísrael er eina lýðræðisríkið í sínum heimshluta. Ríkið er fámennt og land- lítið. Þjóðir sem eru margfalt fjölmenn- ari eru allt um kring hafa alloft lagt til atlögu við landið með miklu ofurefli. Enn hafa sumar þeirra í hótunum um að reka hvern einasta Ísraela á haf út. Þótt Ísrael sé fámennt land hefur það öflugan her sér til varnar. Það verður að treysta á þann her, a.m.k. í upphafi hverrar orrustu. En Ísrael getur enn ekki staðið eitt. Það var stofnað með at- beina Sameinuðu þjóðanna og er aumk- unarvert hve margir vilja hlaupa frá þeirri staðreynd. Ísrael verður að treysta á utanaðkomandi aðstoð við sitt öfluga varnarlið, ef ofurefli liðs sækir að landinu úr öllum áttum. Og þessi lífsreynda þjóð, sögulega hokin af hörmungum, veit að í rauninni getur hún engum treyst fyrir tilveru sinni á slíkri ögurstund nema Bandaríkjunum. Ef staðfestan þar bregst, eins og glitti í á valdatíð Baracks Obama, er vá fyrir dyrum. Vissulega má treysta því að gerðu nágrannalönd í Ísrael enn eina árásina á það myndi utanríkisráðherra minni- hlutastjórnarinnar í Svíþjóð senda bréf. Það gæti jafnvel farið víða. Það Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Íslensk yfirvöld fordæmdu sína helstu vinaþjóð fyrir það að ætla sér sjálf að ráða því hvar sendiráð hennar yrði staðsett í Ísrael. Fullyrt var að Bandaríkin ætluðu með þessu að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. 7.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.