Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018
Því verður tæpast haldið fram aðvæntanlegri ríkisstjórn Þýska-
lands hafi verið tekið fagnandi.
Raunar er staðan þannig að ekki er
öruggt að Sósíaldemókratarnir
samþykki hana í at-
kvæðagreiðslu og í
gær hrökklaðist leið-
togi þeirra út úr
stjórninni áður en
hún var mynduð, að
eigin sögn til að auka
líkur á að stjórnin
hljóti samþykki flokksmanna.
Kristilegu demókratarnir eru ekki
heldur sáttir og kvarta undan því
að hafa látið í minni pokann í
stjórnarmyndunarviðræðunum þó
að þeim hafi ekki gengið jafn illa og
krötunum í kosningunum.
En það eru ekki aðeins flokks-menn beggja vegna sem
kvarta. Fulltrúar atvinnulífsins
hafa líka áhyggjur af að ríkisstjórn-
arsamstarfið muni litlu skila.
Framkvæmdastjóri málm- ograforkufyrirtækja segir samn-
inginn „enn ömurlegri en búist hafi
verið við“. Þeir sem standi undir
verðmætasköpuninni hafi orðið fyr-
ir vonbrigðum en ríkisútgjöldin séu
þanin út. „Þetta er dapurlegur dag-
ur,“ bætti hann við þegar
ríkisstjórnaráformin voru kynnt.
Aðrir úr atvinnulífinu hafa tekið í
sama streng og gagnrýnt skort á
skattalækkunum og ríkisútgjalda-
þenslu. Forysta Samtaka skatt-
greiðenda kvartar undan því sama.
Til framtíðar litið er þettaáhyggjuefni fyrir Þýskaland.
Að sameinast hvað sem það kostar
um lægsta samnefnarann er ekki
líklegt til að skila landinu árangri.
Og það er alls óvíst að slíkt verðiheldur til þess að hjálpa þeim
flokkum sem að slíku standa, næst
þegar þeir þurfa að leita til kjós-
enda.
Lítil ánægja með
lágan samnefnara
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 9.2., kl. 18.00
Reykjavík -5 léttskýjað
Bolungarvík -3 snjókoma
Akureyri -3 heiðskírt
Nuuk -15 snjóél
Þórshöfn -1 rigning
Ósló 0 skýjað
Kaupmannahöfn -1 léttskýjað
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Helsinki -7 skýjað
Lúxemborg -1 alskýjað
Brussel 0 snjókoma
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 4 heiðskírt
London 4 rigning
París 1 þoka
Amsterdam 1 snjókoma
Hamborg 0 þoka
Berlín 0 heiðskírt
Vín 1 skýjað
Moskva -5 skýjað
Algarve 8 skýjað
Madríd 7 léttskýjað
Barcelona 9 heiðskírt
Mallorca 10 léttskýjað
Róm 11 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -21 heiðskírt
Montreal -11 alskýjað
New York -1 léttskýjað
Chicago -2 snjókoma
Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:40 17:45
ÍSAFJÖRÐUR 9:57 17:38
SIGLUFJÖRÐUR 9:40 17:21
DJÚPIVOGUR 9:12 17:12
Flokksvali Samfylkingarinnar í
Reykjavík fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor lýkur í dag.
Kosið er með rafrænum hætti á
vefsíðu flokksins en utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla fer jafn-
framt fram á skrifstofu flokksins á
Hallveigarstíg. Kosningu lýkur
klukkan 19 í kvöld og úrslit verða
gjörð kunn á veitingastaðnum
Bergsson RE upp úr klukkan
20.30.
Dagur B. Eggertsson býður sig
einn fram í fyrsta sætið en borgar-
fulltrúarnir Heiða Björg Hilmis-
dóttir og Kristín Soffía Jónsdóttir
bítast um annað sætið. Sabine Les-
kopf, Skúli Helgason, Hjálmar
Sveinsson og Aron Leví Beck gefa
kost á sér í þriðja sætið.
Flokksráð Miðflokksins
fundar
Fyrsti fundur flokksráðs Mið-
flokksins verður haldinn í dag
klukkan 11 á Suðurlandsbraut 18.
Á dagskrá fundarins verður ræða
formanns hans, Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, og almennar um-
ræður. Ræða formannsins verður
send beint út á Facebook-síðu
flokksins. Starf þingflokks verður
kynnt, lögð verða fram drög að
skipulagi Miðflokksins og skipun
laganefndar, fyrsta landsþing verð-
ur undirbúið sem og sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor.
hdm@mbl.is
Hörð bar-
átta hjá
Samfylkingu
Miðflokkurinn
með flokksráðsfund
Viðskipti
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Kristín Soffía
Jónsdóttir