Morgunblaðið - 10.02.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.02.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Fyrir rúmum tveimur árumákvað Hugsmiðjan aðleggja af stað í til-raunaverkefni með starfs- fólki sínu um að stytta vinnudaginn í 6 klukkustundir. Meginmarkmiðið var að bæta líðan starfsfólks og ákveðið var að fylgjast með hvaða áhrif styttri vinnudagur myndi hafa á framleiðni fyrirtækisins en Hug- smiðjan sérhæfir sig í þróun starf- rænna lausna og markaðssetningu á veraldarvefnum. Margeir Steinar Ingólfsson, stjórnarformaður Hug- smiðjunnar, segir í viðtali við Morg- unblaðið að áhrifin hafi verið mjög góð fyrir starfsfólk, framleiðni fyr- irtækisins og viðskiptavini þess. „Þetta hefur haft gríðarlega góð áhrif á starfsanda og fólk mætir jákvæðara til vinnu, ég myndi segja að viðhorfið til vinnunar hefði batnað umtalsvert,“ segir Margeir. „Við finnum það í nafnlausum könnunum hjá VR, sem við erum upp á við í, og líka í persónulegum samtölum. Það er í raun enginn starfsmaður óánægður með þetta,“ segir Margeir en árangurinn er bæði sjáanlegur og mælanlegur þar sem framleiðni fyr- irtækisins hefur aukist um 23% og veikindadögum fækkað um 44% á tímabilinu. Boða nýja vinnumenningu Spurður um hugmyndina á bak- við við þetta tilraunaverkefni segir Margeir að hugsjónin hafi snúist um að bæta líðan starfsmanna og breyta vinnumenningu. „Vinnumenning á Íslandi hefur lengi verið á þann veg að það er gerður samningur um að fólk vinni í 8 til 10 tíma. Svo er fólk að skreppa á vinnutíma og jafnvel ekki alltaf að vinna á vinnutíma. Við tökum eftir því í geiranum þar sem við þurfum sköpun, að hafa hausinn í lagi og fá nýjar hugmyndir að þá er 8 tíma vinnudagur svolítið langur. Það er ekki lögmál að vinna í 8 tíma,“ seg- ir Margeir en ákveðið var að setj- ast niður að athuga hvort hægt væri að breyta þessari menningu. „Við fór- um að pæla, hvað ef við verðum rosalega einbeitt og úthvíld í vinnutímanum, náum við ekki bara að afkasta meiru og skila af okkur betri vinnu og þjónustu? Þetta er svona lykilatriði sem fær okkur til að hugsa hvort við eigum að gera þessa tilraun.“ Fyrirkomulag Hugsmiðjunnar var með þeim hætti að starfsfólki var kynnt verkefnið og spurt hvort það vildi gera munnlegan samning við vinnuveitendur sína um að stytta vinnuvikuna. „Við kynntum þetta fyrir starfsfólkinu og spurðum hvort það vildi gera mjög einfaldan samn- ing við okkur og allir þurfa að taka þátt. Samningurinn er á þá leið að við vinnum á okkar vinnutíma og höldum öllu persónulegu þar fyrir utan. Við skiptum deginum upp í tvær þriggja tíma lotur og ef við ger- um það með stæl er dagurinn búinn eftir það.“ Margeir segir einnig að með of miklu álagi í vinnunni séu meiri líkur á að eitthvað fari út af sporinu og að það sé gamaldags hugsunarháttur að það þurfi að vinna endalaust lengi. „Það er að okkar mati rangur hugsunarháttur því ef þú keyrir þig út er það ávísun á að það hrikti í grunnstoðunum þínum, sem eru næring, svefn, hreyfing og sam- skipti. Það getur verið algjör víta- hringur og í raun og veru ávísun á kulnun í starfi, þunglyndi og kvíða sem er svolítið vandamálið sem við erum að glíma við í samfélaginu í dag.“ Tveggja ára tilraun sem skilaði árangri Margeir Steinar Ingólfsson, stjórnarformaður Hugsmiðjunnar, sem ákvað fyrir tveimur árum að stytta vinnudaginn í sex klukkustundir, segir árang- urinn sjáanlegan í aukinni framleiðni og betri líðan starfsmanna. Margeir segir að það sé ekkert lögmál að það þurfi að vinna í 8 tíma á dag og bætir við að ánægt starfsfólk skili ánægðari viðskiptavinum. Styttri dagar Vinnumenningin í Hugsmiðjunni er þannig að starfsfólk vinnur frá kl. 9 til 15:30. Tvær þriggja tíma lotur með hádegismat á milli. „Dramatík varðandi að sækja börn og komast á æfingu heyrir sögunni til, auk þess sem orkustigið er hærra yfir daginn. Ég held 100% fókus og skila af mér betri vinnu.“ Andri Már Kristinsson, ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni. Heimildarmyndin Seeing Allred, um lögmanninn Gloriu Allred, var gerð aðgengileg fyrir íslenska notendur á efnisveitunni Netflix í gær. Allred hefur um áratugabil barist fyrir kven- réttindum í Bandaríkjunum og í gegnum tíðina tekið að sér fjölmörg dómsmál sem hafa vakið mikla fjöl- miðlaathygli vestanhafs. Allred hefur á sínum lögmannsferli sótt mál gegn þekktum Bandaríkja- mönnum, m.a. gegn trommuleik- aranum Tommy Lee, kvikmyndaleik- aranum og fyrrverandi ríkisstjóra Kaliforníu, Arnold Schwarznegger, og forsetaframbjóðandanum Herman Cain. Hefur hún barist fyrir kvenrétt- indum síðan á 7. áratugnum og fer heimildarmyndin yfir feril hennar bæði sem lögmanns og kvenrétt- indafrömuðar. Allred hefur á seinni árum verið ötull talsmaður þeirra kvenna sem stigu fram og sökuðu leikarann Bill Cosby um nauðganir og önnur kynferðisbrot. Hún hefur einnig verið talsmaður þeirra kvenna sem hafa sakað Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um kynferðislega áreitni. Meðal fram- leiðenda heimildarmyndarinnar er Marta Kauffman, einn framleiðandi Friends-þáttanna. mhj@mbl.is Heimildarmynd um Gloriu Allred komin á Netflix AFP Netflix Auglýsingaskilti fyrir þættina um Gloriu Allred, sem er beint á móti skrifstofu Allred í Los Angeles í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum. Kvenréttindafrömuður á Netflix Breski grime- og hiphop-tónlistar- maðurinn Stormzy verður meðal þeirra listamanna sem koma fram á Secret Solstice-hátíðinni í Laugar- dalnum í sumar. Stormzy gaf nýverið út sína fyrstu plötu, Gang Signs & Prayer, en platan varð fyrsta grime- platan til að ná toppsæti breska plötulistans. Platan er einnig tilnefnd til bresku tónlistarverðlaunanna sem besta plata ársins og þá er Stormzy sjálfur tilnefndur sem besti karlkyns tónlistarmaðurinn en verðlauna- hátíðin fer fram 21. febrúar nk. Söng- konan ástsæla frá áttunda áratugn- um Bonnie Tyler kemur einnig fram á hátíðinni og þá mun bandaríski plötusnúðurinn Steve Aoki þeyta skífum, svo dæmi séu tekin. Hátíðin stendur 21.-24. júní og er miðasala hafin. Tónlistarhátíðin Secret Solstice tilkynnti listamenn í vikunni AFP Tilnefndur Stormzy er tilnefndur til tvennra verðlauna á Brit Awards. Stormzy mætir á Secret Solstice Kokkar norska keppnis- liðsins á Vetrarólympíu- leikunum í Suður-Kóreu pöntuðu fyrir mistök 15.000 egg handa lið- inu. Norska dagblaðið Aftenposten greinir frá þessu. Kokkarnir not- uðust við Google trans- late-þýðingarvélina þegar þeir undirbjuggu matarpöntunina en til stóð að panta 1.500 egg til að matreiða ofan í norsku keppendurna á leikunum. Samkvæmt Aftenposten tókst að skila þeim 13.500 eggjum sem voru pöntuð aukalega. Blaðamaður breska ríkisútvarpsins í Suður-Kóreu, David Cann, segir að lík- lega hafi verið um innsláttarvillu að ræða en Kóreuríkin notast við annað talnakerfi. Tore Ovrebo, yfirmaður norska liðsins, segir þá skýringu alveg ganga upp að um innsláttarvillu hafi verið að ræða. Hann bætti síðar við á blaðamannafundi í Suður-Kóreu að þessi eggjapöntun hefði ekki verið stór- mál. Noregur er með 109 keppendur á mótinu og átti atvikið sér stað í síðustu viku en komst ekki í heimsfréttirnar fyrr en á föstudaginn sl. mhj@mbl.is Mistök í matarpöntun norska ólympíuliðsins í Suður-Kóreu Pöntuðu óvart 15 þúsund egg BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 kr. 179.800 EGSMARK SÓFI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.